Dagur - 04.01.1989, Page 2
2 - DAGUR - 4. janúar 1989
Þrettándagleði Þórs:
Bjartmar og Hemmi
Gunn skemmta
gleðinni og væntanlega sprellar
hann eitthvað.
Páll Jóhannesson tenórsöngv-
ari mun syngja álfa- og áramóta-
lög og að sjálfsögðu verður stig-
inn dans. Brennan verður á sín-
um stað og að lokum verður flug-
eldasýning sem Þórsarar standa
sjálfir fyrir að þessu sinni. Félag-
ið keypti sérstakan pakka með
stórum bombum og flugeldum og
má því búast við að jólin verði
kvödd á tígulegan hátt.
Athygli áhorfenda skal vakin á
því að auk bílastæða við Glerár-
skóla er nóg af stæðuin norðan
við völlinn, nánar tiltekið við
Hamar, félagsheimili Pórs, en
þangað er hægt að komast frá
Skarðshlíð. SS
, Hafnamálastofnun:
Olfirskur saudburður
greindur í smáatriðum
- lokið við byggingu líkans af
Ólafsfjarðarhöfn um næstu mánaðamót
Hin árlega þrettándagleði Þórs
verður haldin á íþróttasvæði
félagsins við Glerárskóla næst-
komandi föstudagskvöld kl.
20. Þar verða fastir liðir á
dagskrá, auk þess sem söngv-
arinn og alþýðuskáldið
Bjartmar Guðlaugsson mætir á
staðinn, „beyglar munninn“
og skemmtir áhorfendum með
lögum sínum.
Að sögn Skúla Lórenzsonar
fengu Þórsarar einnig hinn fjöruga
sjónvarpsmann Hermann Gunn-
arsson, Hemma Gunn (veriði
hress, ekkert stress, bless), til að
slást í hópinn með álfum,
tröllum, púkum og jólasveinum.
Hemmi verður kynnir á þrettánda-
Húsavík:
Strákabandið með tónleika
Strákabandið, ein af grúppunum í Harmónikufélagi Þingeyinga lék í aðalverslun Kaupfélags Þingeyinga á Húsa-
vík fyrir hátíðarnar og skapaði skemmtilega stemningu, meðan viðskiptavinir litu á jólavarninginn. Á myndinni
eru: Jóel Friðbjarnarson, Kjartan Jóhanncsson, Hákon Jónsson, Karl Ingólfsson, Jósteinn Finnbogason og
Olafur Þ. Kristjánsson. Sjöundi meðlimur Strákabandsins er Haraldur Björnsson sem ekki gat mætt til leiks að
þessu sinni. Samanlagður aldur félaganna sjö eru 400 ár. IM
Áhrif 4% gengisfellingar á vöruverð:
Mótast af aðstæðum í
hveiju fyrirtæki um sig
- segir Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands
í húsi Hafnamálastofnunar við
Kársnesbraut í Kópavogi er nú
unnið að því að byggja líkan af
höfninni í Ólafsfirði í því skyni
að fá sem gieggsta mynd af
umhverfi hennar, sjávar-
straumum og öðrum náttúru-
farsþáttum í Olafsfirði. Hafnar-
aðstaða í Ólafsfirði hefur löng-
um verið mjög erfið sem helg-
ast ekki síst af óvenjulega
miklum og stöðugum efnis-
burði inn Ólafsfjörð. Efnið
safnast fyrir í innsiglingunni
eða inni í höfninni og gerir
skipum erfitt fyrir. Á undan-
förnum árum hefur þurft að
dæla ntiklu efnismagni upp úr
höfninni og enn standa menn
frammi fyrir því að þurfa að
grípa til sanddælunnar.
Að sögn Gísla Viggóssonar,
forstöðumanns rannsóknardeild-
ar Hafnamálastofnunar, er gert
ráð fyrir að ljúka við að „byggja
upp“ höfnina í þessunt mánuði
og „hleypa“ vatni á hana um
mánaðamótin janúar-febrúar. í
febrúarmánuði verður öllum
nauðsynlegum rannsóknartækj-
um komið á sinn stað og með
aðstoð hafnarvarða í Ólafsfirði er
ætlunin „að kortleggja núverandi
ástand." Mánuðunum mars og
apríl verður síðan varið til eigin-
legra rannsókna til úrbóta á hafn-
araðstöðu í Ólafsfirði."
Gísli segir að bygging líkansins
sé nokkuð flókin og ekki reynist
síður örðugt að „læra á það“. „Pað
verður að segja eins og er að í
Ólafsfirði eru öll þau vandamál
sem eru hafnargerð samfara. Af
þeim sökum eru þessar rann-
sóknir margháttaðar og nokkuð
flóknar." óþh
Nokkurrar óvissu gætir með
hvort 4% gengisfelling í gær
leiði til hækkaðs vöruverðs.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verzlunarráðs,
segir að ekki sé hægt að segja
almennt fyrir um hvort versl-
unin taki á sig gengisfellinguna
þannig að hún hlaupi ekki út í
verðlagið. Hann segir það m.a.
helgast af vöruflokkum og eðli
fyrirtækjanna.
Viðskiptaráðherra upplýsti í
gær að frá og með 1. janúar 1989
geti innflytjendur nýtt sér 3ja
mánaða greiðslufrest á vörum ef
ekki kemur til bankaábyrgð. Auk
þessa ákvæðis hefur fjármálaráð-
herra fært eindaga á söluskatti af
greiðslukortanótum aftur til sam-
ræmis við uppgjör greiðslukorta-
hafanna. Áður þurfti verslunin
að gera upp söluskattinn af des-
emberversluninni þann 25. janú-
ar en samkvæmt nýútgefinni
reglugerð er hægt að draga upp-
gjörið til 2. febrúar.
Vilhjálmur segir að vissulega
stuðli þessar aðgerðir ráðherr-
anna að lægra vöruverði en
„niðurstaða úr því dæmi hvort
þessi lækkunaráhrif vega upp
hækkunaráhrif mótast af aðstæð-
um í hverju fyrirtæki um sig og
lfka hvaða vörur er um að ræða.“
Vilhjálmur bendir á að verslunin
hafi að miklu leyti tekið á sig
verðhækkunaráhrif síðustu gengis-
lækkunar. „Það má síðan ekki
gleyma því að með aukinni sam-
keppni í versluninni er tilhneig-
ing til þess að halda verðhækkun-
um í skefjum.“ óþh
Blönduóskirkja:
Fermt við aítansöng
á gamlársdag
Forstjóri Álafoss,
um 4% gengisfellingu:
Er hænuskref
í rétta átt
- „Róm brennur ennþá!“
Við aftansöng I Blönduós-
kirkju kl. 16 á gamlársdag voru
tvö börn fermd. Það voru syst-
urnar Lára og Hildur Sveins-
dætur og hefði önnur þeirra
samkvæmt hefðinni átt að
„Áramótin brunnu út í róleg-
heitum hjá okkur,“ voru orð
lögreglunnar á Sauðárkróki er
haft var samband við hana.
Þrátt fyrir samkomur í sjö
félagsheimilum og öldurhúsum
í Skagafirði á nýársnótt átti
lögreglan rólega og náðuga
nótt. Á öllum þessum stöðum
voru rúmlega 1000 manns
samankomið, sem segir okkur
að Skagfirðingar hafa mikið til
haldið upp á nýárið í heima-
húsum.
Engin alvarleg óhöpp áttu sér
fermast á sl. vori en hin næsta
vor.
Foreldrar þeirra Hildar og
Láru voru við nám í Noregi og
var fjölskyldan búsett þar sl. vor
þegar Lára hefði átt að fermast.
stað í kringum flugeldana, nema
hvað á Sauðárkróki fékk ungl-
ingsstúlka flugeld í höfuðið, þar
sem hún stóð í krakkahópi fyrir
utan Félagsheimilið Bifröst. Ffún
fékk flugeld í hnakkann, þar sem
hann festist í hárinu og brenndi
það töluvert. Var hún send á
Sjúkrahúsið, þar sem gert var að
sárum hennar.
Pó nokkur fjöldi safnaðist sam-
an við áramótabrennuna á suður-
enda Nafanna á Sauðárkróki og
fylgdist með henni brenna all
myndarlega í sunnan vindinum.
-bjb
Var fermingunni frestað þar til
fjölskyldan væri flutt heim en það
gerðist einmitt á sl. hausti. For-
eldrar stúlknanna eru Hólmfríð-
ur Böðvarsdóttir og Sveinn
Kjartansson. í samtali við Dag
sagði Sveinn þetta tækifæri hefði
verið notað vegna þess að fjöl-
skyldan hefði öll verið saman-
komin nú um jól og áramót og
óvíst hvenær það yrði næst vegna
þess að þriðja dóttirin, Anna,
væri enn við nám úti í Osló.
Sveinn sagði að þetta hefði orðið
veruleg uppbót á áramótin því
auðvitað hefði verið standandi
veisla frá miðjum degi á gamlárs-
dag og frant eftir nóttu eins og á
að vera um áramót.
Séra Árni Sigurðsson, sóknar-
prestur á Blönduósi sagði að
fermingin hefði verið mjög
skemmtileg tilbreyting og óvænt
að ferma um áramót því venjan
væri að fermingar væru að vor-
inu. Hann kvaðst ekki áður hafa
fermt börn á gamlárskvöld. Séra
Árni sagði að kirkjusókn í þeim
kirkjum sem hann þjónar hefði
verið mjög góð um jól og áramót.
fh
„Fjögurra prósenta gengisfcll-
ing er hænuskref í rétta átt. Ég
hlýt aö treysta því aö til komi
frekari efnahagsráðstafanir því
þetta eina skref er langt frá því
að nægja útflutningsgreinun-
um. Það er alveg sama um
hverja verið er að tala,“ sagði
Jón Sigurðarson, forstjóri Ála-
foss hf., þegar hann var inntur
álits á 4% lækkun á gengi
íslensku krónunnar. „Það
verður eitthvað meira að fylgja
og það fljótt því að Róm
brennur ennþá!“
Varðandi þau orð Víglundar
Þorsteinssonar í Degi þann 30.
desember sl. að 17% gengislækk-
un sé nú aðalmálið en hliðar-
ráðstafanir með gengislækkun
aukaatriði, sagði Jón Sigurðarson
að þeim sé hann ekki sammála,
gengisfelling án hliðarráðstafana
sé ekki eins gagnleg. „Hins vegar
er ég sammála Víglundi í því að
við þurfum að sjá 15-20% breyt-
ingu á raungengi.“ óþh
Skagafiörður:
Óhappalaus áramót