Dagur - 04.01.1989, Síða 15
4. janúar 1989 - DAGUR - 15
íþrótfir
Handknattleikur:
Karfa:
Friðjón og félagar verða í eldlínunni
í kvöld gegn FH.
Þórsarar
með
„kóngamót“
- fyrir 40 ára og eldri
Körfuknattleiksdeild Þórs
stendur fyrir „Kóngakeppni“ í
körfubolta á Akureyri 25.
febrúar. Keppnin er ætluð lið-
um skipuðum leikmönnum 40
ára og eldri. Hún er opin hvort
sem er formlegum liðum eða
áhugamannahópum sem tekið
hafa sig til og æfa körfubolta.
Jón Már Héðinsson, sem hefur
veg og vanda að undirbúningi
þessarar keppni, segir að margir
hafi lýst áhuga að taka þátt í
„Kóngakeppninni" og búist sé
við að þó nokkuð mörg lið frá
Reykjavík taki þátt í þessari
keppni.
Að lokinni keppninni verður
vegleg verðlaunaafhending og
lofa Þórsarar því að hún muni
verða eftirminnileg.
Þeim sem áhuga hafa á að taka
þátt í keppninni eða fá nánari
upplýsingar um fyrirkomulag
hennar er bent á að snúa sér til
Jóns í síma 25486 eða Kristínar í
vinnusíma 26777 eða heimasíma
26256.
Sigurður Matthíasson spjótkastari frá Dalvík og aðrir félagar hans í UMSE
njóta leiðsagnar Jóns Sævars Þórðarsonar a.m.k. fram yfir landsmótið 1990.
Frjálsar íþróttir:
Jón Sævar þjálfar UMSE
- næstu tvö árin
Jón Sævar Þóröarson hefur
verið ráðinn Irjálsíþróttaþjálf-
ari hjá UMSE til næstu tveggja
ára. Hann kennir nú á Egils-
stöðum en kemur til starfa í
byrjun maí.
Að sögn Kristins Kristinssonar
framkvæmdastjóra UMSE er
mikill hugur í Eyfirðingum og
búast þeir við góðu af starfi Jóns
á Eyjafjarðarsvæðinu. Kristinn
segir að ekki hafi margir af fé-
lagsmönnum UMSE skipt yfir í
hið nýja félag á Akureyri. UFA,
og viti hann ekki um marga sem
hyggi á slíkt. „Við höfum sett
stefnuna á Landsmótið í Mos-
fellsbæ árið 1990 og teljum að
með ráðningu Jóns Sævars muni
UMSE geta sent öfluga sveit á
það Landsmót," segir Kristinn
Kristinsson framkvæmdastjóri
UMSE.
„Þetta verður mjög erfitt“
- segir Friðjón Jónsson fyrirliði KA
um leikinn gegn FH í kvöld
KA leikur sinn fyrsta leik í 1.
deild á nýja árinu í kvöld í
íþróttahöllinni kl. 20.30. And-
stæðingarnir eru ekki af verri
endanum, FH-ingar, sem hafa
verið í mikilli sókn að undan-
förnu. KA sigraði í fyrri leikn-
um með einu marki og vilja
Hafnfirðingar því sjálfsagt
hefna harma sinna. Það má því
búast við spennandi leik í Höll-
inni í kvöld.
Friðjón Jónsson fyrirliði KA-
liðsins segir að leikurinn við FH
sé mjög mikilvægur. „Við lékum
ekki vel undir lok fyrri umferðar-
innar og það er tími til kominn að
við hristum af okkur slenið og
sýnum hvað í okkur býr. Hins
vegar er því ekki að leyna að FH-
liðið er mjög sterkt og þetta verð-
ur mjög erfiður leikur," segir
Friðjón Jónsson fyrirliði KA-
liðsins.
Nokkur röskun verður á
íslandsmótinu vegna þáttöku
íslendinga í B-heimsmeistara-
keppninni í Frakklandi í febrúar
og var m.a. umferðinni sem leik-
in er í kvöld flýtt um eina viku.
Aðrir leikir í kvöld eru Fram
og Valur, Grótta og Breiðablik,
IBV og Víkingur, og Stjarnan og
KR.
KA spilar síðan við Víking í
Reykjavík á sunnudagskvöldið
en síðan verður ekki leikið í 1.
deildinni fyrr en í mars. Þetta er
því seinasta tækifærið í þó nokk-
urn tíma fyrir Norðlendinga að
fylgjast með 1. deildar leik. Það er
því um að gera að drífa sig í Höll-
ina og fylgjast með heimastrák-
unum úr KA eiga við létta og
lipra fimleikadrengi úr Hafnar-
firði.
Þórsarar héldu innanfélagsmót í handknattleik milli jóla og nýárs. Það voru ineistaraflokkur, 2. flokkur, 3.
flokkur og síðast en ekki síst öðlingaflokkur, sem þátt tóku í mótinu. Þorbjörn Jensson var „keyptur" sérstak-
lega norður fyrir þetta mót og keppti hann að sjálfsögðu með öðlingaflokki og varð markahæsti maður mótsins
í þokkabót. En það var meistaraflokkurinn sem sigraði á mótinu, en allar skýrslur uni árangur öðlinganna
týndust. Svona í sárabót birtum við mynd af þessu síunga liði sem hyggur jafnvel á fleiri landvinninga á næst-
unni. Þess má svo geta að það var vcrslunin JMJ scm gaf bikar og verðlaunapcninga í þessa keppni og þess
vegna fékk Ragnar kaupmaður að vera fyrirliði og byrja inn á í öllum leikjunum.
Hver verdur valinn
“íþróttamaður
Norðurlands“?
- fyrir árið 1988
hlýtur „Iþróttamaður Norður-
lands 1988“ glæsilegan farandbik-
ar til varðveislu í eitt ár.
I dag og næstu daga verður
þátttökuseðill í blaðinu og eiga
lesendur að skrifa fimm nöfn á
hann og senda blaðinu fyrir 18.
janúar næstkomandi. Þrír þátt-
takendur verða dregnir út og
hljóta eigendur þeirra hljóm-
plötuvinning að launum. Það er
því til einhvers að vinna urri leið
og áhrif eru höfð á valið á
„íþróttamanni Norðurlands
1988“.
Lesendur eru hvattir til þess að
bregðast skjótt við og senda seð-
ilinn útfylltan til blaðsins fyrir 18.
janúar.
íþróttamaður
Norðurlands 1988
Nafn íþróttamanns: íþróttagrein:
1.
2.
3.
4.
5.
Eins og undanfarin ár mun
Dagur útnefna „Iþróttamann
Norðurlands“ og er þetta í
fjórða skiptið sem blaðið
stendur að þessari útnefningu.
I fyrra hlaut Halldór Áskels-
son knattspyrnumaður titilinn,
en aðrir sem hlotið hafa þenn-
an titil eru þeir Daníel Hilm-
arsson skíðamaður frá Dalvík
og Kári Elíson lyftingakappi
frá Akureyri.
Eins og áður hafa lesendur
Dags áhrif á val „íþróttamanns
Norðurlands" og gera þeir það
með því að senda inn atkvæða-
seðil sem fylgir með blaðinu.
Fimm íþróttamönnum verður
veitt viðurkenning og auk þess
Nafn:
Sími
Heimilisfang:
Sendið til: íþróttamaður Norðurlands 1988
c/o Dagur Strandgötu 31 600 Akureyri
Skilafrestur er til 18. janúar 1989.
Pétur sigraði á
veggtennismóti
- Bjargs og Sportbúðarinnar
Jólaveggtennismót á vegum
Sportbúðarinnar og Bjargs var
haldið milli jóla og nýárs. Það
voru 15 manns sem tóku þátt í
þessu jólamóti og það var hinn
fjölhæfi íþróttamaður Pétur
Bjarnason sem stóð uppi sem
sigurvegari.
Pétur sigraði Guðmund Jóns-
son í úrslitaleik og var það hin
fjörugasta viðureign. Guðmund-
ur Sigurðsson sigraði síðan
Harald Ringsted í leik um 3.
sætið.
Eftir þetta mót var búinn til
áskorendalisti og verður keppt á
næstu mótum eftir þeim lista.
Einnig er í bígerð að stofna sér-
stakan veggtennisklúbb á Akur-
eyri og mun stofnfundurinn
verða auglýstur fljótlega.
Það var Sportbúðin sem gaf
bikar og verðlaunapeninga til
keppninnar og stefnt er að því að Hinn fjölhæfi íþróttamaður Pétur
þetta jolamot verði aö arlegum Bjarnason mundar hér spaðan af
vtðburðt. snilld.