Dagur - 25.02.1989, Page 4
4 - DAGUR - 25. febrúar 1989
myndbandarýni
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (Iþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÓRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960),
EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
MARGRÉT PÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Steinar hf.:
Nýir myndbandatitlar
Steinar hf. gefa út 10 mynd-
bandatitla nú í febrúarmánuði.
Um er að ræða frumútgáfu á
sex titlum en fjórar af þessum
myndum hafa verið sýndar í
kvikmyndahúsum. Fyrst má
nefna Frantic, sem þegar hefur
verið tekin fyrir í myndbanda-
rýni Dags, en lítum á aðrar
myndir sem eru að koma á
myndbandaleigurnar.
Roots/The Gift er sjálfstætt
framhald af Roots (Rætur), sem
var mjög vinsæl þáttaröð, eins og
menn muna, gerð eftir metsölu-
bók Alex Haley. í þessari mynd
eru helstu aðalleikarar úr upp-
haflegu þáttunum, s.s. Lois
Gosset jr. og LeVar Burton.
Framleiðslu á Roots/The Gift
lauk síðla árs 1988 og tekur
myndin upp þráðinn þremur
árum eftir að Kunta Kinte reyndi
að flýja frá plantekrunni þar sem
hann var þræll.
Police Academy 5 er fimmta
myndin um lögregluskólaliðið
sem allir þekkja. Nú fara þessir
spaugarar í frí til Miami þar sem
heiðra á Lassard lögreglustjóra
áður en hann lætur af störfum.
Að sjálfsögðu fer allt úr böndun-
um í Miami.
Lögreglumyndir af öðrum toga
eru Saigon, eða Off Limits eins
og hún hét í kvikyndahúsum,
Shakedown on Sunset Strip og
Gauntlet. Saigon er saga tveggja
herlögreglumanna sem elta uppi
morðingja og nauðgara sem hald-
inn er kvalalosta og skilur eftir
sig óhugnanlega slóð stúlkna sem
hann hefur myrt. Shakedown on
Sunset Strip er sannsöguleg
mynd um spillingu í lögreglunni í
Los Angeles og tengsl hennar við
vændishúsarekstur. Gauntlet
fjallar hins vegar um harðsvírað-
an lögreglumann sem leikinn er
af Clint Eastwood.
Run till You Fall er lífsreynslu-
saga um foreldra sem eru að
skilja og átök sem hafa áhrif a
bæklaðan son þeirra er dreymir
um að verða hornaboltaleikari.
Max Dugan Returns er gaman-
mynd með Jason Robards, Matt-
hew Broderick og Donald Suther-
land. Pá má nefna ævintýri um
risann ógurlega, The Return of
the Incredible Hulk, og loks
eitthvað fyrir yngstu börnin;
Kærleiksbirnir í Undralandi. SS
Frábær árangur
í Frakklandi
Árangur íslenska handknattleikslandsliðsins í
B-heimsmeistarakeppninni, sem nú stendur yfir
í Frakklandi, er þegar orðinn betri en bjartsýn-
ustu menn þorðu að vona. ísland hefur þegar
tryggt sér sæti í A-heimsmeistarakeppninni
sem fram fer að ári og er því á ný komið í hóp
bestu handknattleiksþjóða heims. Auk þess
mun liðið leika úrslitaleik um 1. sætið í B-keppn-
inni á morgun. Þetta hefur strákunum okkar
tekist þrátt fyrir nokkurt mótlæti ytra, svo sem
óhagstæða dómgæslu og fleira.
Árangur íslendinga á handknattleikssviðinu
hefur verið ótrúlega góður á undanförnum árum
og þrátt fyrir fámennið höfum við skipað okkur á
bekk meðal þeirra bestu í heiminum í þessari
vinsælu íþróttagrein. Það hefur handknattleiks-
landsliðið sannað enn einu sinni með frammi-
stöðunni í Frakklandi. Þessi árangur er með ólík-
indum miðað við fámennið hér heima. Engu að
síður gengur þjóðin út frá því sem sjálfsögðum
hlut að ísland haldi sér í hópi allra bestu hand-
knattleiksþjóða heims um ókomin ár. Vænting-
arnar eru gífurlegar og gleðin því mikil þegar vel
gengur á sama hátt og vonbrigðin eru sár þegar
eitthvað fer úrskeiðis.
Mikill og almennur áhugi landsmanna svo og
afar öflugt uppbyggingarstarf íþróttafélaganna
og Handknattleikssambandsins á mestan þátt í
því hversu vel hefur til tekist, auðvitað að
ógleymdu framlagi landsliðsmannanna sjálfra.
Sami áhugi og sama elja ríkir í fleiri íþróttagrein-
um hér á landi og árangurinn lætur ekki á sér
standa. Nægir í því sambandi að nefna skákina.
Þar hafa íslendingar náð lengra en hægt er að
ætlast til með nokkurri sanngirni. Samt gerum
við okkur eflaust vonir um enn stærri sigra á
komandi árum. En við skulum ekki gleyma því
að starfsemi sem þessi kostar mikla peninga.
Fram hefur komið að Handknattleikssambandið
vantar nokkrar milljónir króna til að ná endum
saman og þarf, eins og ávallt áður, að reiða sig
á stuðning almennings í landinu. Fjársöfnun fyr-
ir HSÍ stendur nú yfir á ljósvakafjölmiðlunum og
eru velunnarar handknattleikslandsliðsins
hvattir til að sýna stuðning sinn í verki.
Það er ástæða til að óska handknattleiks-
mönnum okkar til hamingju með frammistöð-
una, sem jafnframt er frábær kynning á landi og
þjóð. Þeir eiga þakkir skildar. Síðast en ekki síst
er vaskleg framganga þeirra gott fordæmi fyrir
æsku þessa lands og hvatning til hennar um að
verja tíma sínum vel til jákvæðra athafna. BB.
Hver er sekur?
Videoland: Su.specl (Illur grunur)
Útgefandi: JB hcildverslun
Leikstjóri: Pelar Yates
Aðalhlutverk: Cher, Dennis Quaid
Sýningartími: 122 mínútur
Aldurstakmark: Biinnuð yngri en 16 ára
Suspect gengur jafnt og þétt á
myndbandaleigunum og kemur
mér það ekki á óvart. Þetta er
fantagóð mynd, spennandi,
handritið slungið og frammistaða
leikara með ágætum. Myndin er
löng, losar tvo tíma, en þó ekki
langdregin. Það verður að teljast
leikstjóranum, hinum kunna
Peter Yates, til hróss.
Söguþráðurinn er á þá leið að
illa útleikið lík af ungri konu
finnst nálægt bifreiðastæði í
Washington. Lögreglan handtek-
ur flakkara í grenndinni sem
hugsanlega tengist morðinu.
Hnífur sem hann ber á sér styður
þá kenningu og líka það að hann
svarar engum spurningum en
berst um á hæl og hnakka. Hann
er ákærður fyrir morðið á
konunni og Cher er skipuð verj-
andi hans, þvert gegn vilja
hennar. Hún sannfærist þó brátt
um sakleysi flakkarans og þá
fer málið að taka á sig ógnvæn-
lega mynd.
Ýmislegt bendir til þess að hátt
settir menn séu flæktir í málið og
Cher berst óvænt hjálp. Hjálpar-
kokkurinn er leikinn af Denis
Quaid og á hann sæti í kvið-
dómnum. Það gerir þeim erfitt
fyrir að þau mega ekki sjást
saman, sem verður enn erfiðara
þegar ástin kemur í spilið.
Það er best að segja ekki
frekar frá gangi mála en hætt-
urnar eru á hverju strái og kemst
Cher oft í hann krappann.
Atriðin eru mörg hver mjög vel
útfærð, leikstjórnin öguð og
kvikmyndataka góð, þannig að
Suspect nær flugi eftir rólega
byrjun. Þau Cher og Quaid eiga
bæði góðan dag og gera persón-
ur, sem eru að sumu leyti
ótrúverðugar, sannfærandi.
Mynd sem heldur manni við
efnið. . SS
Tíðindalaust
í lögreglu-
skólanum
Videoland: Police Academy 5
Útgefandi: Stcinar hf.
Leikstjóri: Alan Myerson
Aðalhlutverk: Bubba Smith, David
Graf, Leslie Easterbrook o.fl.
Sýningartími: 87 mínótur
Hér er komin fimmta myndin í
eilífðarframleiðslunni um
lögregluskólaliðið. Sömu týp-
urnar, sömu brandararnir, allt
við það sama. Aldrei gat ég
hlegið að þessari mynd, en hún er
samt alls ekki leiðinleg, þvert á
móti er í góðu lagi að glápa á
þessa glópa ef maður hefur
ekkert þarfara að gera.
Lassard er ennþá með gullfisk-
inn og golfkylfurnar, Harris er
sama fíflið og áður, Hooks með
sömu veiku röddina, Hightower
alltaf jafn stór, félagi hans er með
sömu óhljóðin og áður, Tackel-
berry skotóður sem fyrr og Jones
flaggar enn sínum rosalega
barmi. Hann er eiginlega
hápunktur myndarinnar!
Þessi mynd gerist á Miami
Beach en þar á að heiðra Lassard
sem lögreglumann áratugarins.
Demantsþjófar og valdabarátta
blandast í spilið en auðvitað
kemur ekkert á óvart. Umhverfið
er oft fallegt og eltingaleikurinn á
vatnatryllitækjunum býsna
skemmtilegur, en ofleikurinn og
einhæfnin hljóta að fara að drepa
þessar lögregluskólamyndir. Fólk
horfir ekki endalaust á sömu
vitleysuna, jafnvel ekki Banda-
ríkjamenn þótt vissulega megi
bjóða þeim ýmislegt. Eg legg til
að þessari framleiðslu verði hætt,
en eins og ég sagði þá er Police
Academy 5 ekki leiðinleg, ekki
sérlega skemmtileg heldur, en
svona la la í hallæri. SS
Samtök íslenskra myndbandaleiga:
„Topp 20“
-vikuna 15/2-22/2 1989
Sæti Áður Mynd (Útgefandi)
1. (2) Frantic ......................................... (Steinar)
2. (3) Wall Street ..................................... (Steinar)
3. (1) Fatal Attraction ............................. (Háskólabíó)
4. (3) Vice Versa ....................................... (Skífan)
5. (-) Police Academy - 5 .............................. (Steinar)
6. (4) Baby Boom ....................................... (Steinar)
7. (8) Colors ....................................... (Háskólabíó)
8. (9) Moonstruck ................................ (J.B. Heildsala)
9. (15) Leiðsögumaðurinn ............................. (Myndbox)
10. (N) Planes, Trains and Automobiles ............... (Háskólabíó)
11. (6) Þrír menn og barn .............................. (Bergvík)
12. (-) Hero and the Terror ............................ (Myndbox)
13. (10) Shakedown ....................................... (Skífan)
14. (7) Suspect ................................ (J.B. Heildsala)
15. (23) Amazing stories - 8 ........................ (Laugarásbíó)
16. (11) Casual sex? ................................ (Laugarásbló)
17. (12) Time after time ................................ (Steinar)
18. (18) Cryfreedom ................................. (Laugarásbló)
19. (16) The untouchables ............................ (Háskólabíó)
20. (-) Date with and Angel .................... (J.B. Heildsala)
(-) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er nýtt á listanum.
(*) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er að koma inn á listann á nýjan
leik.