Dagur - 25.02.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 25.02.1989, Blaðsíða 7
25. febrúar 1989 - DAGUR - 7 Aumingja Birna frænka (Kafli úr dagbók drengs:) Kæra dagbók. Dagurinn er búinn að vera skemmtilegur og ég er bara hress og kátur núna. Ég var ekkert sendur í rúmið án þess að fá kvöldmat. Ég hlýt þá að hafa hagað mér vel. Ekki fannst Birnu frænku það, en hún hef- ur ekki ennþá fyrirgefið mér þetta með hamsturinn. Hún kom í heim- sókn til mömmu í morgun en fór eig- inlega strax aftur. Það var nefnilega svoleiðis að þegar hún hringdi dyra- bjöllunni þá fór ég til dyra. Ég var búinn að gleyma því að ég var með ófreskjugrímuna sem ég notaði á öskudaginn og þegar ég opnaði rak Birna upp skerandi gól og ætlaði að hlaupa í burtu en datt með hausinn ofan í snjóskafl. Hún hélt víst að ég væri grimm ófreskja. Mamma kom hlaupandi þegar hún heyrði hávaðann og ég get svarið það að ég sá hana brosa dálítið áður en hún skammaði mig fyrir að fara til dyra með ófreskjugrímuna fyrir and- litinu. Hún bauð Birnu upp á kaffi- sopa en frænka var svo stressuð að bollinn skalf og kaffið slettist út um allt borð. Ég benti henni á að nota smekk og plastdúk en þá varð hún ævareið og sagðist ekki vilja vera í sama húsi og þetta krakkagerpi. Hún átti víst við mig. Pabbi kom heim í hádegismat þegar Birna var að fara. Hann var voðalega mikið að flýta sér og svo utan við sig að hann kyssti Birnu í staðinn fyrir mömmu. Aumingja Birna roðnaði og blánaði en mamma hló bara að þessu. Ég held að Birna hafi síðan farið til Stínu í næsta húsi til þess að segja henni frá þessum óþekku feðgum, mér og pabba. Eftir mat kom Gummi í heimsókn til mín og við lékum okkur allan daginn. Það var gaman. Mamma sagði að það væri gaman að sjá svona góða drengi en við vorum víst ekki sérlega góðir þegar litla systir vildi vera með okkur. Hún er bara eins árs og rífur allt og tætir. Hún tók af okkur bílana og þegar við ætluð- um að taka þá af henni fór hún að Skæla. Við vildum fá að leika okkur í friði. í helgarblaðinu 11. febrúar lögðum við fram nokkrar spurningar, óskuð- um eftir svörum og bröndurum og jafnframt eftir teikningum sem tengdust Emil í Kattholti. Fallegar Ijósmyndir af Emil og ídu voru í boði en vegna dræmrar þátttöku þurfum við ekki að hugsa frekar um þessar viðurkenningar. Sjálfsagt hafa for- eldrar haft margt annað að gera en að benda börnum sínum á þessa barnasíðu. Okkur barst þó svarbréf frá Hörpu Halldórsdóttur í Þelamerkurskóla ásamt brandara. Harpa, sem verður 9 ára á morgun, var með svörin við öllum spurningunum rétt nema hvað Annars er litla systir ósköp skemmtileg stundum, sérstaklega þegar hún sefur. hún gataði á fyrstu spurningunni. Rétt svör voru þessi: 1. Emil kallaði húfuna sína pottlu. 2. ída vildi fara upp í fánastöngina til þess að sjá til Maríönnulundar. 3. Flestir borða saltkjöt og baunir á sprengidaginn. 4. Bommi (Hjálmar Hjálmarsson) stjórnar Töfragluggan- um. 5. 17 plús 18 er 35. 6. Bæjar- stjórinn á Akureyri er langhlaupari. 7. Borgarstjórinn í Reykjavík er ekki kraftlyftingamaður. 8. Ritstjóri Dags er knattspyrnudómari. 9. Blikkljós lögreglubíla eru blá. Við gátum grafið upp fáeinar myndir sem tengjast Emil í Kattholti en við óskum enn eftir teikningum til birtingar í blaðinu. Svör við spurningum Haukur 4ra ára teiknaði þessa mynd. Hann gaf þá skýringu að þetta væri Óli prik sofandi. Hér er teikning eftir Brynhildi Eggertsdóttur 7 ára. Emil er búinn að hífa ídu upp í fánastöngina og nú sér hún yfir til Maríönnulundar. GDÍMHÍ LWS Á GÖMLUM MERG VOLVO BM micHiGnn uc Stofnað hefur verið eitt stærsta fyrirtæki í heiminum í framleiðslu á þungavinnuvél- um. Fyrirtækið heitir VME og er samsteypa VOLVO BM - MICHIGAN og EUCLID sem allt eru þekkt merki í vinnuvélaiðn- aðinum. AKERMANS gröfufyrirtækið er einnig í samsteypunni. VME er því nýr risi á gömlum merg. Vinnuvélar af öllum stærðum til allra nota. Veitum fúslega allar nánari upplýsingar. Brimborg hf. Skeifunni 15, sími 91-685870. Traust fyrirtæki í sókn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.