Dagur - 08.03.1989, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 8. mars 1989
Pt4
garn og munstur
/ÉRVER/LUn p
HfinnVRÐflVÖRUR Ctnna iicvaa
™ ® Cimmikli
Sunnuhlíð 12 • Sími 25752.
Skrifs toíxitækiii
í takt við tímann
Viltu skara fram úr á
hörðum viiinn m arkaði ?
Við bjóðum þér hagnýta kennslu í viðskipta- og
tölvugreinum, ásamt því lielsta scm gcrir þig að
liæfum og dugandi starfski'afti.
Að námskeiðinu loknu útskrifast þú sem
skrifstofutæknir.
Innritun og upplýsingar færðu á skrifstofu
okkar eða í síma 27899.
Hákon Hákonarson:
„Pegar ég sá auglýsingu frá Tölvufræöslunni ákvaö ég aö slá til
og fara í skólann, til að rifja upp og læra nýtt.
Óhætt er aö fullyrða að skólinn hefur ekki brugðíst mlnum vonum.
Hér er hægt aö læra heilmikið nytsamlegt, kennarar eru liflegir og
þægilegir og nemendahópurinn mjög viðfelldlnn. Vinnir þú við
skrifstofustörf og viljir bæta pig skaltu drífa þig I skóla hjá Tölvu-
fræðslunni.
Pað er engin spurning!”
Tölvufræðslan Akureyrl hf.
Glerárgötu 34 • síml 27899.
15 daga rútuferð
frá Húsavík
1.-16. júní n.k.
Færeyjar - Danmörk - þýskaland - Noregur
Fyrirhuguð hópferð frá FHúsavík til Evrópu
með rútu heiman og heim
Áhugasamir hafi samband í síma 96-42100
FERÐASKRIFSTOFA
HÚSAVÍKUR Simr 96-42100
Björn Sigurðsson sími 96-42200.
Steinunn Geirsdóttir nýkrýnd Fegurðardrottning Norðurlands, leikur handknattleik með 1. dciidar liði Þórs. Dag-
inn eftir krýninguna heimsótti Aðalsteinn Sigurgeirsson, formaður Þórs, Steinunni og færði henni blómvönd frá
félaginu, um leið og hann óskaði henni til hamingju með titilinn. Mynd: tlv
Mælingar Hafrannsóknastofnunar á sjávarhita og -seltu:
Sjór úti fyrir Norðurlandi
er nú einungis 0-2 gráður
- kuldinn er álíka og árið 1988
Hafrannsóknastofnun mældi
nýverið hitastig og seltu sjávar
hringinn í kringum landið og
kemur í Ijós að sjávarkuldi er
mjög mikill um þessar mundir
bæði fyrir Norður- og Austur-
landi. Hitastig sjávar er 0-2
gráður, sem er mjög álíka hiti
og á sama tíma í fyrra.
Hafrannsóknastofnun hefur
gert út leiðangur til að mæla
ástand sjávar á þessum tíma árs
allar götur frá árinu 1970 og því
hafa menn nú góðan samanburð
á hita sjávar í hartnær 20 ár. Á
þessu árabili hafa verið um-
talsverðar sveiflur í hitastig-
inu. Á áttunda áratugnum var
hiti sjávar mjög skaplegur en árin
1981-1983 fór að síga á ógæfu-
hliðina. Það hlýnaði síðan aftur
árið 1984 en síðasta ár og árið
1989 eru einkar köld ár.
Að sögn Sven-Aage Malmberg,
haffræðings á Hafrannsókna-
stofnun, eru margir þættir sem
ráða ástandi sjávar á hverjum
tíma. „Þarna ráða m.a. lofthring-
rásir og við erum á kuldaskilum í
hafinu, hlýr sjórinn flæðir inn á
norðurmið annars vegar og hins
vegar Austur-íslandsstraumur og
Austur-Grænlandsstraumur úr
norðri. Þessir tveir pólar takast á
um yfirráðin og sá kaldi hefur
ráðið ríkjum nú í tvö ár,“ segir
Sven.
Erfitt er að segja til um hversu
lengi núverandi kuldaskeið
stendur. Því getur lokið á þessu
ári en næstu eitt eða tvö ár kunna
einnig að verða jafnköld. Duttl-
ungar náttúrunnar eru með þeim
hætti að ekki er hægt að spá fyrir
um þá. En jafnframt er ljóst að
slíkt ástand kemur illa við Iffríki
sjávar. Það dregur úr öllum vexti
vegna minnkandi fæðuframboðs.
Kaldur sjór hefur einnig áhrif á
rek seiða frá hrygningarslóð til
uppeldisslóða. „Þetta er kaldasti
tími ársins og við veljum hann
sérstaklega til mælinga af því að
þá er myndin hvað greinilegust,
engin upphitun af völdum sólar
og sjórinn sýnir sitt rétta andlit,"
segir Sven-Áage Malmberg. óþh
Hita-, Vatns- og Rafveita Sauðárkróks:
Fjárhagsáætlanir lagðar fram
- góð útkoma hjá Hitaveitunni sem fyrr
Á fundum Veitustjórnar Sauð-
árkróks fyrir skömmu voru
kynnt drög að fjárhagsáætlun-
um fyrir árið 1989 fyrir Hita-,
Vatns- og Rafveitu Sauðár-
króks. Þar kemur Hitaveitan
nokkuð vel út sem fyrr, með
mikinn tekjuafgang, en Vatns-
veitan og Rafveitan skila ekki
jafn miklum afgangi, þó hann
sé nokkur. Veitustjórnin sam-
þykkti að vísa þessum fjár-
hagsáætlunum til fyrri umræðu
í bæjarráði, sem síðan sam-
þykkti að vísa þeim til fyrri
umræðu í bæjarstjórn, en hún
fór fram sl. þriðjudag.
Áætlaðar rekstrartekjur Hita-
veitunnar eru rúmar 43 milljónir
króna og rekstrargjöldin rúmar
18,8 milljónir. Til eignabreytinga
frá rekstri verða því um 24,5
milljónir. Hjá Vatnsveitunni eru
áætlaðar rekstrartekjur kr.
12.650.000 og rekstrargjöldin kr.
6.135.000. Til eignabreytinga frá
rekstri verða kr. 6.515.000.
Hjá Rafveitu Sauðárkróks eru
tekjurnar áætlaðar upp á 76 millj-
ónir króna. Rekstrargjöldin
verða nokkur, eða 69,2 milljónir
króna, og til eignabreytinga frá
rekstri 6,8 milljónir.
Veitustjórnin hefur einnig
samþykkt að hækka gjaldskrár
Hitaveitunnar og Rafveitunnar
frá og með 1. mars sl. Gjaldskrá
Hitaveitu hækkar um 6% og um
5% hjá Rafveitunni. Hækki
heildsöluverð rafmagns mun
gjaldskráin hækka um sömu
prósentur til viðbótar. -bjb
Húsavík:
Bæjarstjóm samþvkkir
gjaldskrárhækkanir
Tillögur um gjaldskrárhækkan-
ir lágu fyrir fundi Bæjarstjórn-
ar Húsavíkur fyrir skömmu og
voru þær allar samþykktar
með sjö atkvæðum.
Samþykkt var að hækka
gjaldskrá íþróttahallar um
15,79%. Hækkunin tekur gildi 1.
mars og kostar nú hver klukku-
stund í heilum sal 2.200.- kr. en
kostaði áður 1.900,- kr.
Einnig voru eftirtaldar hækk-
anir samþykktar, með fyrirvara
um heimild verðlagsyfirvalda, og
skyldu þær taka gildi 1. mars:
Gjaldskrá Sundlaugar, 10%
hækkun, gjaldskrá Bestabæjar,
10% hækkun, gjaldskrá Raf-
veitu, 8% hækkun og gjaldskrá
Hitaveitu, 10% hækkun. IM