Dagur - 08.03.1989, Blaðsíða 11
íþróttir
Miðvikudagur 8. mars 1989 - DAGUR - 11
F
íslandsmótið í vaxtarrækt:
Sigurður Gestsson frá Akureyri er ekki hress með nýjar regiur í sambandi
við íslandsmótið í vaxtarrækt.
Sigurður ekki með
- vegna óánægju með nýjar reglur
Sigurður Gestsson frá Akur-
eyri, margfaldur íslandsnieist-
ari í vaxtarrækt, hefur ákveðið
að taka ekki þátt í næsta
íslandsmóti í þeirri íþrótt.
Astæðan er sú að stjórn
Landssambands vaxtarræktar-
manna hefur ákveðið að ekki
verði keppt í opnum flokki á
því Islandsmóti.
„Ég er ekki sáttur við þessa
ákvörðun og tel að með henni sé
haldið aftur af framförum í þess-
ari íþróttagrein," sagði Sigurður í
samtali við Dag í gær.
Ástæðan sem stjórnin gefur
upp fyrir þessari ákvörðun er sú
að mjög erfitt sé að dæma í þess-
um opna flokki vegn þess að
keppendur séu misjafnir að
þyngd og að undanfarin ár hafi
komið upp leiðindi í sambandi
við val á sigurvegara. Einnig tel-
ur stjórnin að athyglin beinist of
mikið að þessum opna flokki á
kostnað þyngdarflokkanna.
Sigurður er ekki sammála þess-
um rökum. Hann segir að í einni
stærstu vaxtarræktarkeppni í
heimi, Mr. Olympía, sé eingöngu
keppt í opnum flokki og þar sigri
ekki eingöngu þyngstu kepp-
Pepsi-mótið á skíðum:
Mikið Qör í Fjallmu
- stór hópur frá Akureyri og Dalvík keppti
Á vegum Skíöaráös Akureyrar
var haldið í Hlíðarfjalli svo-
kallað Pepsi-skíðamót fyrir
krakka á aldrinum 7-12 ára.
Keppendur voru frá Akureyri
og Dalvík en krakkar frá Siglu-
firði, sem áttu einnig að taka
þátt í mótinu, komust ekki
vegna veðurs.
Mjög góð þátttaka var í mótinu
og voru keppendur hátt á þriðja
hundrað. Yngstu þátttakendurnir
renndu sér í þrautabrautum en
frá níu ára aldri var keppt í svigi
hjá bæði strákum og stelpum. En
lítum þá á úrslit hjá einstökum
aldursflokkum:
Stúlkur 9 ára - Svig:
1. Halla Hafbergsdóttir, Ak.
2. Sigríður Jóna Ingadóttir, Ak.
3. María Benediktsdóttir, Ak.
Piltar 9 ára - Svig:
1. Sturla Már Bjarnason, Dalv.
2. Óðinn Árnason, Ak.
3. Gísli Hilmarsson, Ak.
Stúlkur 10 ára - Svig:
1. Eva Bragadóttir, Dalv.
2. Aðalheiður Reynisdóttir, Ak.
3. Auður Karen Gunnlaugsd., Ak.
Piltar 10 ára - Svig:
1. Leifur Sigurðsson, Ak.
2. Benedikt Sigurbjörnsson, Dalv.
3. Hannes Steindórsson, Dalv.
Stúlkur 11 ára - Svig:
1. Brynja Þorsteinsdóttir, Ak.
2. Gígja Hjaltadóttir, Ak.
Piltar 11 ára - Svig:
1. Fjalar Úlfarsson, Ak.
2. Ásgeir H. Leifsson, Ak.
3. Sveinn Torfason, Dalv.
Piltar 12 ára - Svig:
1. Magnús Magnússon, Ak.
2. Elvar Óskarsson, Ak.
3. Ingvar Már Gíslason, Ak.
Stúlkur 12 ára - Svig:
1. Helga B. Jónsdóttir, Ak.
2. Regína Gunnarsdóttir, Ak.
3. Ásta Bragadóttir, Dalv.
endurnir. í sambandi við athygl-
ina sem beinist að opna flokkn-
um segir Sigurður að hún sé
nauðsynleg til þess að auglýsa
upp keppnina. „Við erum í mikilli
santkeppni við aðrar íþrótta-
greinar unt athygli fjölmiðla og
þar með almennings og fólk vill
sjá hörkukeppni. Vaxtarræktin
er ung keppnisgrein og þar er á
brattan að sækja þannig að enn
sem komið er eru frekar fáir
toppkeppendur í hverjum þyngd-
arflokki," segir Sigurður.
Sigurður segist alls ekki van-
meta andstæðinga sína í 90 kg
flokkinum, en þar keppir Sigurð-
ur. „Hins vegar tel ég eðlilegt að
sigurvegari í hverjum flokki fái
að halda áfram til þess að etja
kappi við þá efstu í hinum flokk-
unum," bætti hann við.
Ekki hefur frést um fleiri sem
ákveðið hafa að hætta við þátt-
töku á mótinu en vaxtarræktar-
menn á Akureyri eru flestir
ósammála þessari ákvörðun
stjórnarinnar.
Sigurður segir að mál sín séu í
biðstöðu á þessari stundu og ekk-
ert sé ákveðið með neinar keppn-
ir á næstunni. Hann býst þó við
því að keppa á móti erlendis síð-
ar á þessu ári eða í byrjun næsta
árs.
Visa-Bikarmót 15-16 ára:
Kristinn sigraði
í stórsvigi
á ísafirði
Vetur konungur setti strik í
reikninginn á Visa-Bikarmót-
inu fyrir 15-16 ára skíðanienn á
Isafirði um síðustu helgi. Ein-
ungis tókst að Ijúka keppni í
svigi stúlkna og stórsvigi
drengja á laugardag en ekkert
var keppt á sunnudeginum.
En lítum þá á úrslitin:
Svig stúlkna:
1. Sara Halldórsdóttir í. 92.47
2. Unnur Valdimarsdóttir Ó. 94.76
3. Harpa Hauksdóttir A. 100.68
Stórsvig drengja:
1. Kristinn Björnsson Ó. 85.11
2. Jóhann B. Gunnarsson í. 88.04
3. Magnús M. Karlsson A. 88.40
Fimm efstu menn í flokki 9 ára pilta. Sturla Már Bjarnason D, Óðinn Árnason A, Gísli Hilmarsson A, Rúnar Frið-
riksson A og Egill Einarsson D. Mynd: tlv
Hér sjást Kristinn Björnsson og Unnur Valdimarsdóttir, frá Ólafsflrði,
kampakát eftir mótið. Mynd: jb
Skíði á Húsavík:
Skóbúð Húsavíkur sigraði
- í firmakeppni Völsungs
Fyrsta skíðamót vetrarins á
Húsavík var haldið í Skálamel
á laugardaginn. Um var að
ræða firmakeppni og tóku 66
keppendur á aldrinum 6-12 ára
þátt í mótinu.
Sigurvegari á mótinu var Arn-
grímur Arnarsson sem keppti
fyrir Skóbúð Húsavíkur. Heldur
leiðinlegt veður var á laugardag-
inn en skíðafæri sæmilegt. IM
Handknattleikur/1. deild:
KR-KA í kvöld
- í Laugardalshöllinni
KA keppir í 1. deildinni í
handknattleik við KR-inga í
Laugardalshöllinni í kvöld kl.
20.15. KA liðið vann góðan
sigur á Fram á sunnudaginn og
er til alls líklegt í leiknum í
kvöld.
KR-liðið vann nauman sigur ;'f
KA á Akureyri fyrr í vetur og má
því búast við spennandi viáur-
eign í Höllinni í kvöld.