Dagur - 08.03.1989, Síða 3
Miðvikudagur 8. mars 1989 - DAGUR - 3
Akureyri:
Bæjar-
mála-
punktar
■ Á fundi bæjarráðs 2. mars
voru lögð fram drög að úthlut-
unarreglum fyrir almennar
kaupleiguíbúðir, sem félags-
málastjóri og hagsýslustjóri
hafa tekið saman. Bæjarráð
gerði smávægilegar breytingar
á drögunum og ieggur. til að
úthlutunarreglurnar verði
samþykktar þannig af bæjar-
stjórn. Jafnframt samþykkir
ráðið að auglýstar verði til
úthlutunar 10 almcnnar kaup-
leiguíbúðir.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá bæjarfógeta þar sem óskað
er umsagnar bæjarstjórnar um
umsókn Lindarinnar við
Leiruveg og Hótels Stefaníu
hf. um leyfi til vínveitinga.
Fyrir lá urnsögn áfcngisvarna-
nefndar um erindið þar sem
fram kemur að meiri hluti
nefndarinnar leggst ekki gegn
vínveitingaleyfi til Hótels
Stefaníu hf. en mælir í hcild
sinni eindregið gegn leyfisveit-
ingu til Lindarinnar. Með hlið-
sjön af bókun áfengisvarna-
nefndar, mælir meiri hluti
bæjarráðs gegn veitingu leyfis
til Lindarinnar en mælir ekki
gegn veitingu leyfis til Hótels
Stefaníu hf.
■ Skipulagsnefnd barst í
sumar bréf frá Sjálfsbjörg
félagi fatlaðra á Akureyri og
nágrenni um bifreiðastæðamál
fyrir fatlaða við Sundlaug
Akureyrar. í framhaldi af því
hefur nefndin samþykkt að tvö
bifreiðastæði við Sundlaug
Akureyrar verði sérmerkt
fötluðum og felur tæknideild
nánari útfærslu þeirra.
■ Stjórn veitustofnanna hef-
ur samþykkt að hækka taxta
Rafveitu Akureyrar um 11%
frá 1. mars, nema hitataxta C1
og C2 sem hækka í samræmi
við hækkun á töxtum hitaveit-
unnar.
■ Með hliðsjón af markaðs-
átaki hitaveitunnar, hefur
stjórn veitustofnana sam-
þykkt að mynda nýjan taxta
Cll hjá Rafveitu Akureyrar
sem verði 20% hærri en C1 og
gildi frá og með 1. apríl n.k.
Þeir sem hita hús sín með raf-
hituðu vatni en eiga þess kost
að tengja þau hitaveitu skulu
greiða samkvæmt þessum
taxta. Bæjarráð hefur sam-
þykkt liðinn.
■ Á fundi skólanefndar þann
1. rnars, var m.a. rætt um
kennararáðningar fyrir næsta
skólaár. Fram kom hjá skóla-
stjórum að alls þyrfti að aug-
lýsa eftir kennurum í um 27
stöður. Skólafulltrúa var falið
að koma upplýsingum um
lausar kennarastöður til
fræðsluráðs og óska eftir að
þær verði auglýstar.
■ Skólancfnd hefur sam-
þykkt að verða við erindi frá
Árna Þórðarsyni tannlækni,
þar sem óskað er heimildar til
að gera faraldsfræðilega könn-
un á tíðni og nýgengi tann-
skemmda hjá 12 ára börnum á
Akureyri.
■ Á fundi skólanefndar vakti
skólastjóri Gagnfræðaskóla
Akureyrar athygli á auknum
fjarvistum nemenda vegna
keppnisferðalaga í ýmsum
íþróttagreinum og lýsti
áhyggjum sínum með þróun
þessara mála.
Hvað kostar að láta ferma barn?:
„Um fjórðung af árstekjum verkamanns!"
- lágmark 65 þúsund, í meðallagi 150 þúsund og
Um þessar mundir, þegar sól
hækkar á lofti og það fer að
rofa til í sálarkytrunni, líður
senn að fermingunum árvissu
með tilheyrandi umstangi og
umgjörð. Undanfarin ár hefur
almennt verið rætt um hvað
fermingartilstandið og þá ekki
síst gjafirnar sem gefnar eru
hafa farið úr böndum, því ekki
er lengra síðan en 10-15 ár að
það fínasta sem fermingarbörn
fengu frá foreldrum var fyrsta
úr viðkomandi.
Nú er öldin önnur. Ekki er
óalgengt að börnin fái óhemju
dýrar gjafir a.m.k. ef marka má
auglýsingar í fjölmiðlum þar sem
verið er að auglýsa fermingar-
gjafir sem kosta nálægt eitt
hundrað þúsund krónum. Þegar
kröfurnar eru orðnar þetta
miklar, er ein fermingarveisla
sennilega orðin mörgum foreldr-
um ofviða á þessum síðustu og
verstu tímum.
Dagur kannaði lauslega hvað
fermingarveisla á Akureyri kost-
aði með öllu. Kannað var verð á
nokkrum algengum fermingar-
gjöfum, fermingarfatnaði, leigu
samkomusala og aðkeyptan mat
og kaffi. Það allra lægsta sem
virðist vera hægt að komast af
rneð ef rniðað er við 40 manna
veislu er um 65-70 þúsund
krónur. Þar er miðað við að for-
eldrar gefi ferðahljómtæki sem
kostar um 16-18 þúsund krónur.
Kaffiveisla fyrir fjörtíú manns í
leigðum sal með þjónustu kostar
um 22-24 þúsund og meðal föt,
pils og jakki, eða buxur og jakki
fyrir stúlkur, 7-13 þúsund; buxur,
skyrta og jakki fyrir drengi um 9-
15 þúsund. Við þetta bætast
e.t.v. skór og svo auðvitað þókn-
un prestsins fyrir athöfnina sem
aðeins er lítið brot af öllu hinu.
Ef leitast er við að finna út
hvað það sem virðist vera algeng
fermingarveisla kostar, byrjum
við á að gefa barninu 35-40 þús-
und króna græjur. Kaldur matur
kostar um 60 þúsund fyrir 40
manns sé hann tekinn heim, en ef
uppúr
leiga bætist við kostar það um 70-
75 þúsund að halda veisluna.
Verð á fötunum er svipað, nema
fólk fari út í að kaupa skinnflíkur
t.d. jakka sem virðist vera all
algengt, en þá hækkar fata-
kostnaðurinn um a.m.k. 6-8 þús-
und krónur. Með skóm og þókn-
un prestsins kostar þessi veisla
um 145-150 þúsund krónur. Þar
er komin 3ja vikna sólarlanda-
ferð fyrir þrjá auk um 60 þúsund
króna í gjaldeyri, en þessa leið
kjósa margir að fara. Því meiri
sem íburðurinn er, því meira
kostar þetta, t.d. ef foreldrarnir
kaupa sér nýjar flíkur fyrir veisl-
una og svo mætti áfram telja.
VG
Landsbyggðarþingmenn vilja menningarráðgjafa í hvern landshluta og segja:
íslensk menning þarfhast mótvægís
við ofurþunga Reykjavlkursvæðisms
Sex þingmenn landsbyggðar-
innar hafa lagt fram á Alþingi
þingsályktunartillögu um
menningarráðgjafa í Iandshlut-
um.'I tillögunni er gert ráð fyr-
ir að Alþingi kjósi nefnd full-
trúa allra þingflokka til að
undirbúa og koma á fót starfi
menningarráðgjafa í öllum
landshlutum.
í greinargerð með. tillögunni
segir Valgerður Sverrisdóttir,
fyrsti flutingsmaður, að flótti
fólks af landsbyggðinni eigi sér
að stórum hluta skýringu í því að
Betur má ef duga skal:
Um 78% mæting
í brj óstamyndatöku
- konur hvattar til að bregðast skjótt við
Nú er um mánuður liðinn síð-
an Krabbameinsfélag Akur-
eyrar og nágrennis aflienti
röntgendeild FSA nýtt brjósta-
Litli-Árskógssandur:
Dæmalaus ótíð
- segir Rafn Gunnarsson
hjá G. Ben. sf.
„Þetta hefur verið alveg
dæmalaus ótíð. Eg man ekki
eftir öðru eins gæftaleysi í svo
langan tíma,“ segir Rafn
Gunnarsson hjá G.Ben. sf.
fiskverkun á Litla-Árskógs-
sandi, en hún gerir út bátana
Sæþór EA-101 og Arnþór EA-
16.
Báðir eru þeir á netaveiðum og
hefur verið reitingsafli frá ára-
mótum. Sæþór byrjaði á netun-
um um 10. janúar en Arnþór um
mánaðamótin janúar-febrúar. í
febrúar náðu þeir hvor um sig á
milli 80 og 90 tonnum og hefur
allur aflinn verið saltaður. „Við
ætlum að reyna þrauka eitthvað
áfram og verka sem mest af kvót-
anum okkar hér heima,“ sagði
Rafn. Bátarnir hafa undanfarin
ár farið á rækju á sumrin og
reiknaði Rafn með að svo yrði
einnig nú, „að minnsta kosti ef
við verðum búnir með þorsk-
kvótann á skikkanlegum tíma.“
Þrír aðrir bátar gera út á net
frá Árskógsströnd, Særún EA-
251, Naustavík EA-151 ' og
Heiðrún EA-28. óþh
myndatökutæki, en það var
formlega tekið í notkun þann
21. janúar sl. Þegar er búið að
senda 420 konum bréf um boð-
un í myndatöku og hafa 330
þeirra mætt til skoðunar.
Upphaflega var stefnt að því
að taka brjóstamyndir hjá þeim
konum sem komu í leghálsskoðun
síðastliðið haust, en það tókst því
miður ekki. Því er nú byrjað að
boða allar konur 40 ára og eldri
sem komu í leghálsskoðun á
árinu 1988 og þær konur sem
urðu 35 ára á árinu 1988 án tillits
til þess hvort þær hefðu komið í
leghálsskoðun eða ekki. Alls eru
þetta um 650 konur og þeim sem
enn hafa ekki fengið bréf um
mætingu verða send bréf.í byrjun
mars þess efnis, að panta sér tíma
í myndatöku. Vonast er til að
þær panti sér tíma strax og þær fá
bréfin sem og þær sem áður hafa
fengið bréf og enn hafa ekki mætt
til myndatöku.
Framvegis munu allar konur
sem verða 35 ára á þessu ári og
konur 40 ára og eldri fá tíma í
brjóstamyndatöku um leið og
þær panta sér tíma í leghálsskoð-
un.
Um 70-75% kvenna á aldrin-
um 20-70 ára koma nokkuð
reglulega í skoðun, eða á tveggja
til þriggja ára fresti. Urn þessar
mundir er verið að reyna að ná til
þeirra kvenna sem aldrei hafa
komið í leghálsskoðun eða liðin
eru meira en 5 ár síðan þær komu
síðast. Þessi hópur er að sögn allt
of stór en vonast er til að þær
bregðist nú rétt við og mæti til
skoðunar. VG
menningu- og Iistalíf skorti.
„Þjóð þolir illa ofurvald fárra yfir
menningu, félagslífi og-listum.
Líf þegnanna verður fábreytt og
iðulega innantómt. íslensk
menning þarfnast mótvægis við
ofurþunga þeirra álirifa sem stafa
frá Reykjavíkursvæðinu. Það
mótvægi er unnt að skapa í hin-
um dreifðari byggðum með
aðstoð menningarráðgjafa,“ seg-
ir í greinargerðinni.
Um»kostnað af starfi menning-
arráðgjafa á landsbyggðinni segja
tlutningsmenn að eðlilegast sé að
ríkissjóður beri kostnaðinn.
Benda þeir á að samkvæmt
frumvarpi um breytta verkaskipt-'
ingu ríkis og sveitarfélaga sé gert;
ráð fyrir að félagsheimilasjóður
falli niður og þar með hlutdeild
hans í skemmtanaskatti. Saní-
kvæmt frumvarpinu muni 20%
tekna af skemmtanaskatti renna-
til Sinfóníuhljómsveitar íslands
og menningarsjóðs félagsheimila
en afgangnum verði fjármálaráö-
herra heimilt að ráðstafa til
menningarstarfsemi. Telja flutn-
ingsmenn tillögunnar að hluta
skemmtanaskattsins mætti eyrna-
merkja til að koma á fót menn-
ingarráðgjöfum í landshlutunum.
JÓH
Sigluijörður;
Sinawik-konur gefa tæki til lungnamælinga
Fyrir skömmu afhentu Sinawik-konur á Siglufiröi, heilsugæslustöðinni á staðnum
tæki til lungnamælinga. Það var Bettýjarsjóður þeirra Sinawik-kvcnna sem fjár-
magnaði kaupin á tækinu sem kostaði um 180 þúsund krónur en peningunum hafa
þær einungis safnað á fundum hjá félaginu. Á myndinni sést er Orri Einarsson yfir-
læknir heilsugæslustöðvarinnar þakkar Halldóru Kagnarsdóttur formanni Bettýjar-
sjóðsins fyrir gjöfina. Með þeint á myndinni eru þær Halldóra Kagnarsdóttir formað-
ur Sinawik og Elín Gestsdóttir sem á sæti í stjórn Bettýjarsjóðs. Mynd: Ás
Útgerðarfélag Akureyringa:
HnúturkomáKaldbakEA
Kaldbakur EA, togari Útgerö-
arfélags Akureyringa, fékk á
sig hnút á laugardag. Stöng í
mastri togarans brotnaöi og
olli skemmdum þegar hún féll
ofan á brúna.
Aðalsteinn Jóhannsson, verk-
stjóri vélaverkstæðis Ú.A., sagði
að ís hefði sest á stag úr mastr-
inu. Hnútur kom á skipið með
þeim afleiðingum að stagið slitn-
aði og stífa brotnaði.
Lítill radar á brúarþakinu
brotnaði af og fór beint í sjóinn.
Stóri „skannerinn“ ofan á brúnni
beyglaðist og tvær loftnetsstangir
sópuðust sömuleiðis af. Starfs-
menn Ú.A. vinna nú að viðgerð-
um en ekki er alveg ljóst hvenær
Kaldbakur heldur á veiðar.
EHB