Dagur - 08.03.1989, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 8. mars 1989
Frá miðvikudegi í síðustu viku fram á laugardag fóru fram
opnir dagar hjá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki. Dagskrá
var fjölbreytt og óhætt að segja að nemendur, kennarar og
aðrir hafi getað fundið eitthvað við sitt hæfi. Frá kl. 8 á mið-
vikudagsmorgun fram á laugardagskvöld má segja að hafi
verið nær látlaus dagskrá. Opnu dagarnir þóttu takast mjög
vel og á meðal þeirra sem að þeim stóðu var mikil ánægja að
þeim loknum. Dagar sem þessir eru orðnir fastur punktur í
starfi skólans og hafa undanfarin ár verið að taka á sig stærri
og betri myndir. Blaðamaður Dags fylgdist með opnu dögun-
um, eftir því sem kostur gafst, og verður hér stiklað á stóru,
dagskráin var það viðamikil að ekki verður hægt að greina
ítarlega frá öllu því sem fram fór.
Ef við byrjum á að renna yfir
helstu dagskrárliði og hefjum
yfirferð okkar á miðvikudeginum
1. mars, þá er fyrst til að taka að
um morguninn hófust útsending-
ar hjá útvarpsstöðinni Rás FáS á
FM 93,7 MHz og skólablaðinu
Molduxa var dreift í öll hús á
Sauðárkróki. 'Um var að ræða
afmælisútgáfu af Molduxa í
tilefni 10 ára afmælis skólans, hið
merkilegasta rit í ritstjórn Kára
Gunnarssonar, en alls tóku 12
nemendur þátt í vinnslu á blað-
inu. Meðal efnis í blaðinu er ítar-
legt viðtal við Jón F. Hjartarson
skólameistara, viðtöl við tvo fyrr-
verandi nemendur skólans, ferða-
saga hljómsveitarinnar Herra-
manna frá hljómleikaferð til
Danmerkur, ljóð og margt fleira.
Sem fyrr segir hófust útsend-
ingar hjá Rás FáS á miðvikudeg-
inum, með ávarpi útvarpsstjóra,
Ragnars Guðjónssonar, og
aðstoðarskólameistara, Ólafs
Arnbjörnssonar. Eftir það tóku
við stanslausar útsendingar til kl.
24 á miðvikudeginum og einnig
næstu þrjá daga. Nánar verður
sagt frá útvarpinu síðar í þessari
samantekt.
Afar fjölbreytt dagskrá
Af öðrum dagskrárliðum á mið-
vikudag má nefna áttavitanám-
skeið á vegum útivistarhóps, þar
sem leiðbeinandi var Bragi Þór
Haraldsson. í beinu framhaldi af
námskeiðinu var farið í ratleik
eftir hádegi, þar sem reyndi á
kunnáttu þátttakenda á áttavit-
ana. Þá byrjaði umhverfishópur á
umferðarkönnun í samvinnu við
lögregluna, við gatnamót Skag-
firðingabrautar, Hegrabrautar og
Sæmundarhlíðar. Nánar verður
komið að þessari könnun síðar. í
íþróttahúsinu fór fram keppni í
afbrigðilegum íþróttum á vegum
íþróttahóps og einnig var byrjað
á kennslu í hniti, þar sem Helgi
Magnússon frá Badmintonsam-
bandi íslands og Alfreð Guð-
mundsson íþróttakennari leið-
beindu.
A miðvikudag var haldinn
fyrirlestur um Amnesty Inter-
national, sem Geirlaugur Magnús-
son sá um og sýndi hann einnig
myndband um samtökin. Þá var
haldin kynning á Iðnsveinafélagi
Skagafjarðar og Iðnnemasam-
bandi íslands og þeir Gunnar
Guðjónsson og Georg Skúlason
frá INSÍ voru með fyrirlestur.
Samtengd útsending
Rásar 2 og Rásar FáS
Fimmtudagurinn hófst á umferð-
arkönnun á vegum umhverfis-
hóps frá kl. 7.30-8.30. Kennsla í
hniti hélt áfram, en þátttaka þar
varð ekki eins og menn höfðu
vonað í fyrstu. Rúmlega 8 var
lagt af stað í gönguferðir á fjallið
Molduxa og í Hegranesvita.
Ferðir þessar voru á vegum úti-
vistarhóps og tókust með ágæt-
um, enda veður hið besta.
Útvarpsmaðurinn kunni, Ævar
Kjartansson frá Dægurmáiadeild
Rásar 2, heimsótti skólann á
fimmtudeginum og byrjaði á að
vera með fyrirlestur um fjöl-
miðla, sem var vel sóttur og
athyglisverður. Síðar um daginn
leit hann við hjá Rás FáS og tók
útvarpsmenn tali í samtengdri
útsendingu þáttanna Dagskrár á
Rás 2 og Síðdegissyrpu á Rás
FáS, báðir í umsjón dægurmála-
deilda þessara útvarpsstöðva. Frá
Rás FáS fór Ævar í annað hús-
næði skólans og hélt fyrirlestur
um ’68 kynslóðina. Andmælandi
Ævars á þeim fundi var Geirlaug-
ur Magnússon og voru ýmsar há-
fleygar skoðanir viðraðar, m.a.
hvort menn á borð við Ólaf
Ragnar Grímsson og Davíð
Oddsson gætu talist gjaldgengir
sem ’68 kynslóðarmenn.
Námskeið í táknmáli
líkamans, bókmennta-
kvöld, tónlistarkvöld
Fleira var á dagskrá á fimmtudag.
Má þar nefna námskeið í tákn-
máli líkamans, þar sem leiðbein-
andi var Einar Rafn Haraldsson
frá Egilsstöðum. Námskeiðið var
vel sótt og vakti athygli mikla. Þá
var kynning á Sambandi
íslenskra námsmanna erlendis og
Lánasjóði íslenska námsmanna,
sem Páll Þórhallsson sá um. Af
íþróttum á fimmtudegi má nefna
keppni um sterkasta mann og
konu skólans.
Á fimmtudagskvöldið var
haldið bókmenntakvöld í matsal
Heimavistar. Þar lásu Geirlaugur
Magnússon, ísak Harðarsson,
Guðmundur St. Ragnarsson,
Kjartan H. Grétarsson og Skúli
B. Gunnarsson, upp úr verkum
sínum. Síðar um kvöldið var svo
tónlistarkvöld í Félagsheimilinu
Bifröst. Þar komu fram margar
hljómsveitir af öllum gæðaflokk-
um og hljómsveit kvöldsins var
kosin af áheyrendum. Það var
hljómsveitin AFREG úr Gagn-
fræðaskólanum sem hlaut þann
mikla heiður.
„Tími mjúka mannsins
er runninn upp“
Föstudagur rann upp heiður og
bjartur og fyrstur á fætur var
umhverfishópurinn með umferð-
arkönnun sína við aðal gatnamót
bæjarins. íþróttahópur stóð fyrir
keppni í blaki og körfubolta í
fþróttahúsinu um morguninn,
þar sem m.a. nemendur og kenn-
arar leiddu saman hesta sína í
blaki. Nemendur á verknámsbraut
í vélvirkjun fóru í kynnisferð til
Akureyrar í Verkmenntaskólann
og heimsóttu einnig Landsvirkj-
un.
Eftir hádegi á föstudag fóru
fram tveir opnir fundir í matsal
Heimavistar. Fyrst var það mál-
fundur um bjórinn undir heitinu
„Bjór á bjóröld". Upphaflega
áttu frummælendur á þessum
fundi að vera Guðmundur Ólafs-
son, pistlahöfundur á Rás 2 með
meiru, og nafni hans Jóhannson
ættfræðingur á Sauðárkróki, en
báðir forfölluðust á síðustu
stundu. Þá voru fengnir til aðrir
menn, Hilmir Jóhannesson sem
andmælandi bjórsins og tveir
nemendur sem meðmælendur,
þeir Ólafur Henriksen og Einar
E. Einarsson. Umræður urðu all
fjörugar, frummælendur fóru á
kostum og gagnyrtar fyrirspurnir
komu úr sal, auk þess sem margir
stigu í pontu og tjáðu sig um
þennan nýja gest okkar, bjórinn,
og sýndist sitt hverjum. Hilmir
endaði sína fyrstu ræðu á þessari
vísu sinni:
Pað var slys fyrir þetta land,
þá kom bjórinn sterkur.
Utkoman er aukið hland
og illsku höfuðverkur.
Margt snilldarlegt kom frá
ræðumönnum sem vart er pláss
Ævar Kjartansson utvarpsmaður heimsótti Rás FáS og tók nokkra útvarps-
menn tali á samtengdri útsendingu Rásar 2 og Rásar FáS.
Málfundurinn um bjórinn, „Bjór á bjóröld“
ræða.
Hljómsvcitin A.F.R.E.G. í „action'
opnu dögunum.
Árni Þór Þorbjörnsson, forseti Nemendafélagsins, Guðmundur Stefán Ragnarsson, nemandi, og Ólafur Arnbjörns- Miklar kræsingar voru á boðstólum á árshátíð nemenda og gat Bifröst vart rúmað flei
son, aðstoðarskólameistari, ræða opnu dagana í Dags-viðtali, all spekingslegir. daganna í F.á S.