Dagur - 08.03.1989, Síða 7
Miðvikudagur 8. mars 1989 - DAGUR - 7
'ölbrautaskólanum á Sauðárkróki
iðureign nemenda og kennara í blaki. Eins og sjá
oru sýnd mikil tilþrif.
, var vel sóttur, enda um mjög fróðlegan fund að
in bar sigur úr býtum á tónlistarkvöldi skólans á
iri matargesti en hún gerði þetta lokakvöld opnu
til að geta hér, en varla verður
sleppt að greina frá lokaorðum
fundarins, sem komu frá Ólafi
Henriksen: „Tími mjúka manns-
ins er runninn upp“!
Að loknum fundinum um bjór-
inn byrjaði skömmu seinni fund-
ur um umferðar- og skipulagsmál
í skólahverfinu. Sá fundur var
fróðlegur mjög og margt gott sem
þar kom fram. Nánar verður sagt
frá þeim fundi í blaðinu á
morgun.
Vel heppnuð árshátíð í
lok opnu daganna
Laugardagur, síðastur opnu dag-
anna, byrjaði á því að tölvuver
skólans og verknámsdeildir;
grunndeildir málmiðna og raf-
iðna og iðnnámsbraut tréiðna,
voru almenningi til sýnis. Þar gat
m.a. að líta á ýmis verk
nemenda.
I hádeginu á laugardag var
gestakokkur í mötuneyti Heima-
vistar Inga Rún Pálmadóttur frá
Heilsuvöruversluninni Fersku og
bauð hún upp á heilsufæði margs
konar. Alla opnu daganna voru
tilvonandi stúdentar með kaffi-
stofu í anddyri Verknámshússins,
þar sem gestum og gangandi var
boðið upp á dýrindis kaffiveiting-
ar. Á laugardag var svo spiluð lif-
andi tónlist í kaffistofunni, sem
mæltist vel fyrir.
Lokapunktur opnu daganna
var árshátíð nemenda og kennara
skólans á laugardagskvöldið í
Bifröst. Þar byrjaði dagskráin á
miklu borðhaldi, þar sem þétt var
setið, en ljúffengur matur fékk
menn til að gleyma öllum
þrengslum. Að loknu borðhaldi
voru nokkur skemmtiatriði flutt,
sem sum liver voru á heimsmæli-
kvarða og fengu geysigóðar
undirtektir viðstaddra. Að síð-
ustu var slegið upp balli með
Herramönnum og dansað og
trallað fram á rauða nótt. Par
með var opnum dögum lokið.
Vel skipulögð útvarpsstöð
Það sem vakti einna mesta
athygli á opnu dögunum, þ.á.m.
hjá bæjarbúum, var Rás FáS.
Útvarpsstöðin sendi út margt
mjög svo athyglisvert efni. Ber
þar hæst útvarpsleikritið Úr
Áradal, sem flutt var í þrem
þáttum. Fjallaði það um ástir og
átök í óbyggðum og var einkar
vel flutt. Þá voru nemendur í
barnabókmenntum með barna-
efni á Rás FáS, sem var vinsælt á
meðal yngri kynslóðarinnar. Síð-
an var fjöldinn allur af góðum
þáttum, sem varla gefst pláss til
að telja upp. Til að forvitnast
nánar um Rás FáS tók blaðamað-
ur Dags útvarpsráð tali, og þrátt
fyrir miklar annir tókst að smala
því saman í smá spjall.
Það kom fram hjá þeim félög-
um að undirbúningur að Rás FáS
hófst rúmum mánuði fyrir
útsendingu. í útvarpshóp skráðu
sig um 30 nemendur og byrjað
var á að skipta þeim fjölda upp í
4 deildir, dægurmála-, menning-
ar-, tónlistar- og tæknideild. Síð-
an var skipaður forsvarsmaður
fyrir hverri deild. Deildirnar skil-
uðu síðan inn tillögum að
dagskrá til útvárpsráðs, sem síð-
an réð endanlegri niðurröðun.
„Viðbrögð voru góð“
Aðspurðir um viðbrögð við Rás
FáS, sagði Ragnar Guðjónsson
útvarpsstjóri: „Viðbrögðin hafa
bara verið góð. T.d. leist Ævari
Kjartanssyni mjög vel á þetta hjá
okkur. Hann var alveg gáttaður á
vinnubrögðunum og fannst þetta
skemmtilega vel útfært hjá
okkur." Við Rás FáS starfaði
mjög fullkomin plötudeild, með
allar upplýsingar um innsendar
plötur í tölvu. Skráning á plötum
var skipuleg og sögðust útvarps-
menn vera stoltir með þessa
plötudeild og vildu koma á fram-
færi þakklæti til umsjónarmanna
hennar, þeirra Péturs Inga
Björnssonar og Óla Arnars
Brynjarssonar.
Að lokum vildi útvarpsráð
koma á framfæri þakklæti til allra
þeirra sem að útsendingum stóðu
á Rás FáS, m.a. kennurunum
Jóni Gauta Jónssyni og Jóni
Árna og Leikfélagi Sauðárkróks.
Að síðustu sögðu þeir allir í kór:
„Lifi Rás FáS, megi sendirinn
senda sem allra lengst."
„Þaö er líka nám sem fram
fer á opnum dögum“
Til að ræða opnu dagana og það
sem um þá snýst fékk blaðamað-
ur þá Árna Þór Þorbjörnsson,
forseta Nemendafélagsins,
Guðmund S. Ragnarsson,
nemanda og Ólaf Arnbjörnsson
aðstoðarskólameistara, í stutt
spjall. Það fór fram er aðeins árs-
hátíðin var eftir á opnu dögun-
um, en samt var í mörgu að snú-
ast fyrir þá félaga. Þeir voru fyrst
spurðir hvernig opnir dagar
kæmu þeim fyrir sjónir.
Guðmundur svaraði fyrstur:
„Þetta er náttúrulega frí frá
hversdagslegu námi, en ekki
beint frí í sjálfu sér. Tilgangurinn
er að fólk vinni og leyfi sköpun-
argleðinni að ríkja, læri að vinna
sjálfstætt og almennt læri hvernig
er að vinna í félagsmálum. Þegar
út í lífið sjálft er komið, þá skipta
þessi félagsmál svo miklu máli,
nemendur verða að ia að þroska
eigið mat á hlutunum.“
Ólafur: „Ég held að þetta
hugtak; nám, hafi fengið mjög
þröngan farveg. Það er komin
ákveðin hefð á það hvernig nám
á að fara fram, en þetta hefur
verið of þröngt. Það er líka nám
sem fram fer á opnum dögum,
við reyndar leggjum til hliðar
þetta hefðbundna nám, en
nemendur og kennarar glíma við
önnur verkefni sem eru engu að
síður menntandi. í þeim skilningi
að þjálfa, að þroska sjálfstæð
vinnubrögð og frumkvæði
nemenda.“
„Yerið að uppgötva
nýja krafta“
- Svona opnir dagar í framhalds-
skóla, hver eru áhrif þeirra útá-
við?
Ólafur: „Opnir dagar eru alltaf
kynning, kynning á skólastarfinu
en ekki eins og það er hefðbund-
ið. Það er ekki laust við að fólk
hafi haldið að við værum bara að
leika okkur, en það er svo langt
frá því. Það er stór hópur fólks
sem leggur gífurlega vinnu í opnu
dagana.“
- Hvað með áhrif innávið?
Nú var komið að Árna: „Þetta
þjappar fólki saman, það kynnist
betur. Það er enginn vafi á því að
fólk á auðveldara með að vinna
saman í hópum í námi. Ég er
alveg klár á því að félagslífið á
eftir að batna í skólanum, eftir
þessa daga. Fólk kynnist á annan
hátt heldur en í tímum." Guð-
mundur bætti við: „Krakkarnir
sjá að það er í raun gaman að
þessu, sjá að starfa í félagslífi er
engin tímasóun, það er eitthvað
sem gefur.“ Árni: „Maður er
meira að segja að sjá nýtt fólk
hérna í skólanum, ég rakst á
stúlku um daginn sem ég hafði
ekki hugmynd um að væri í
skóla.“ Ólafur: „Það er líka verið
að uppgötva nýja krafta, nýjar
hliðar á fólki sem ekki hefur get-
að sýnt þær í hefðbundnu skóla-
starfi."
„Markmiðið að láta
áhugann ráða þátttökunni“
Þeir félagar voru almennt ánægð-
ir með þátttöku nemenda á opnu
dögunum, þó hægt væri að
finna fólk sem lítið sem ekkert
gerði. „Markmiðið er að láta
áhugann ráða þátttökunni,“
sagði Ólafur. Þegar þeir voru
spurðir að því hvað þeim fyndist
standa upp úr að loknum opnum
dögum, voru þeir nokkuð sam-
mála um að einna best hafi tekist
með útvarpið, svo og hafi margir
fyrirlestrar verið mjög góðir.
- Eitthvað að lokum drengir?
Guðmundur: „Ég ætla bara að
vona það að þessir opnu dagar
hafi opnað augu einhverra
nemenda fyrir ágæti þess að
starfa í félagslífi og geti nýst þeim
í framtíðinni.“ Árni Þór: „Ég er
sammála því sem Guðmundur
segir. Fólk þarf líka að gera sér
grein fyrir því hvað það er mikils-
vert að vinna fyrirfram, opnir
dagar eru mánuði á undan. Það
er þá sem undirbúningur á að
byrja. Ég held að opnu dagarnir
hafi aldrei tekist eins vel og
núna.“ Ólafur: „Ég vil koma á
framfæri innilegu þakklæti til
allra þeirra sem komu nálægt
opnu dögunum; nemendum,
kennurum, gestafyrirlesurum og
leiðbeinendum og bara öllum
þeim sem lögðu hönd á plóginn."
Látum þetta vera lokaorð þeirra
félaga og er þeim þakkað
spjallið. Þar með er þessari
samantekt um opna daga hjá
Fjölbrautaskólanum á Sauðár-
króki lokið. -bjb
aúXjörbúdir