Dagur - 08.03.1989, Síða 9
Miðvikudagur 8. mars 1989 - DAGUR - 9
Nýr sumarbæklingur
Samvinnuferða-Landsýnar
Samvinnuferðir-Landsýn er
stærsta ferðaskrifstofa landsins,
hvort sem litið er til farþegafjölda
eða annars umfangs. Á sl. ári, en
þá fagnaði skrifstofan 10 ára far-
sælu starfi, ferðuðust tæplega
15000 íslendingar með skrifstof-
unni í skipulögðum hópferðum
til útlanda, auk rúmlega 14000
farþega í áætlunarflugi og 7500
útlendinga sem Innanlandsdeild
tók á móti.
Eins og þessi nýi bæklingur
ber með sér hefur fjölbreytni
ferðamöguleika aldrei verið
meiri. Skrifstofan býður lang
fjölbreyttasta úrval skipulagðra
sumarleyfisferða frá íslandi.
Stærstu áfangastaðir skrifstof-
unnar í sumar verða Mallorca og
Benidorm á Spáni.
í sumar verða vikuleg flug til
Palma, höfuðborgar Mallorca, og
til að anna eftirspurn verður m.a.
notast við DC8 vélar Flugleiða.
Á Mallorca munu flestir farþegar
dvelja í strandbænum Santa Ponsa
skammt frá Palma en einnig mun
stór hópur dvelja í Cala d’Or á
austurströnd eyjunnar, sem fyrst
var kynntur í fyrra og var vel
tekið.
Samvinnuferðir-Landsýn bauð
ferðir til Benidorm í fyrsta sinn á
sl. sumri og það var ekki fyrr en
upphafleg áætlun hafði verið ríf-
lega tvöfölduð að fyrirtækið hafði
undan bókunum. Og nú um
páskana verður haldið áfram
þar sem frá var horfið á sl. hausti.
Loks er vert að minna á hin
glæsilegu Sæluhús í Frakklandi,
sem er ein skrautfjöðrin í sumar,
en þau bætast við Sæluhúsin í
Hollandi og Englandi, sem slegið
„Ernir eiga mjög í vök að verj-
ast í heiminum og hvíthöfða
ameríski örninni er nú í útrým-
ingarhættu,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Fuglaverndarfé-
lagi íslands.
1 tilkynningunni kemur fram
að fimmtán hafarnarhjón hafi
komið upp 21 unga sumarið 1988
og að önnur 24 pör hafi haldið sig
við óðöl, ekki orpið eða að varp-
ið hafi af einhverjum orsökum
misfarist. Pá sáust 29 ernir á
árinu, ungir eða stakir fullorðnir
og hræ af einum fullorðnum erni
fannst, dánarorsök er ókunn.
Gera má ráð fyrir að stofninn sé
hafa í gegn sl. sumur.
Auk þeirra nýjunga, sem getið
er um að ofan, má finna ýmislegt
nýtt og forvitnilegt, m.a. hóp-
ferðir til Asíu og rútuferð um
ísland.
stærri þar sem öll arnarsvæði í
landinu voru ekki könnuð.
í fréttatilkynningunni segir
ennfremur að hér á landi eigum
við því láni að fagna að eiga vel
menntaða bændur sem góðan
skilning hafi á náttúruvernd; ef
svo væri ekki myndi íslenski arn-
arstofninn löngu liðinn undirlok.
í lokin segir að aðrir fuglar sem
eru í útrýmingarhættu séu m.a.
Keldusvín, sem minkur og fram-
ræsla mýrlendis hafi líklega
útrýmt og Pórshana hafi einnig
fækkað mjög. Þá er og nefnt að
Haftyrðill og Snæugla séu að
hverfa úr íslensku lífríki.
Tónlistarfélag Akureyrar:
Tónleikar
í Davíðshúsi
Emir í hættu
Stjórn BSRB:
Mótmælir
verðhækkunum
Stjórn BSRB mótmælir harðlega
þeim verðhækkunum sem nú
dynja á landsmönnum og vekur
athygli á að ríkisvaldið hefur þar
forgöngu. 1 kjölfar langvarandi
frystingar launa og í upphafi
samningaviðræðna við BSRB og
aðildarfélög þess ríður ríkis-
stjórnin nú á vaðið með taxta-
hækkanir til stofnana sinna og er
þetta síst til þess fallið að bæta
andrúmsloft þeirra samningavið-
ræðna sem nú standa yfir.
Þolinmæði launafólks er tak-
mörk sett og það er kominn tími
til að ríkisstjórn íslands átti sig á
því að heimilin í landinu sætta sig
ekki lengur við gegndarlausar
verðhækkanir og tillitsleysi í garð
landsmanna.
Seinni dagskráin sem Tónlist-
arfélag Akureyrar stendur fyr-
ir í Davíðshúsi verður flutt í
kvöld, miðvikudagskvöld, kl.
20.30. Dagskráin er samansett
af sönglögum akureyrskra tón-
skálda og má þar nefna
Björgvin Guðmundsson, Birgi
Helgason, Áskel Jónsson,
Áskel Snorrason og Jóhann Ó.
Haraldsson.
Flytjendur verða söngvararnir
Margrét Bóasdóttir, Hólmfríður
Benediktsdóttir, Puríður Bald-
ursdóttir og Michael J. Clarke,
ásamt Guðrúnu A. Kristinsdótt-
ur sem leikur undir á píanó.
Margrét Bóasdóttir hefur
skipulagt þessa dagskrá í Davíðs-
húsi, sem og hina fyrri, en sú
dagskrá var byggð upp á ljóðum
Davíðs Stefánssonar. Nú verða
tónskáld frá Akureyri hins vegar
í öndvegi.
SS
Safnamál 1988
komin út
Safnamál 1988, kynningarrit
Héraðsskjalasafns Skagfirð-
inga og Héraðsbókasafns
Skagfirðinga á Sauðárkróki, er
nýlega komið út og er þetta 12.
árgangur. I ritinu eru m.a.
O.A. samtökin á íslandi:
Kyrniingarfimdiir
í Glerárkirkju
Laugardaginn 11. mars kl. 16.30,
verður haldinn 1 klst. langur
kynningarfundur í Glerárkirkju.
Dagskrá:
1. Félagi úr O.A. samtökunum í
Reykjavík kemur og skýrir frá
starfsemi samtakanna og
reynslu sinni af þeim.
2. Fyrirspurnir: Fundargestum
gefst kostur á að spyrja við-
komandi félaga spjörunum úr.
Fundurinn er opinn öllum sem
áhuga hafa á leið O.A. til heil-
brigðis.
Stofnfundur O.A. deildar
á Akureyri
Á eftir kynningarfundi, eða kl.
17.30, verður haldinn fyrsti fund-
ur í Akureyrardeild O.A. og
stendur hann yfir í eina klst.
Þangað eru allir velkomnir,
sem eiga við átvandamál að
stríða, eða hafa af einhverjum
ástæðum áhuga á leið O.A.
félaga til bata.
O.A. eru samtök kvenna og
karla sem eiga við átvandamál að
stríða. Þau samhæfa reynslu sína,
styrk og vonir til að leysa þetta
vandamál og til að hjálpa hvert
öðru.
ársskýrslur bokasafnsins og
skjalasafnsins fyrir árið 1987
og skrá yfir gefendur til Hér-
aðsskjalasafnsins.
í Safnamálum er greinargerð
um Hálfdán Kristjánsson á Sel-
hólum í Gönguskörðum, rituð af
Jóhanni Ólafssyni í Miðhúsum.
Einnig eru birtar margar vísur
eftir Hálfdán, en hann var hag-
yrðingur góður. Þá eru birtar
nokkrar lausavísur eftir Bjarna
Gíslason í vísnaþætti í umsjón
Sigurjóns Björnssonar.
Aftast í Safnamálum er síðan
myndagetraun, sem er fastur lið-
ur í ritinu, og eru alls birtar 57
myndir. Góð þátttaka hefur verið
hjá fólki að geta sér til um hverjir
eru á myndunum.
Umsjón með útgáfu Safnamála
höfðu Hjalti Pálsson, Kári Jóns-
son og Kristmundur Bjarnason.
Ritið er gefið út með styrk úr
Menningarsjóði Magnúsar
Bjarnasonar kennara. Safnamál
er 32 síður og aðgengilegt rit
alla staði.
-bjb
Tfl leigu eða sölu!
420 fm verslunarhúsnæði að Glerárgötu 34, 1. hæð.
Húsnæðinu er nú skipt í 200 og 220 fm einingar.
Upplýsingar í síma 91-688888.
Haraldur Gunnarsson.
ATVINNA!
Getum bætt við starfsfólki
við saumaskap og fleira.
Hálfsdagsstarf kemur til greina.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra í síma 21900
(220).
/
*
Alafoss hf., Akureyri
Bankastarf
Við leitum að starfsmanni til starfa hjá
sparisjóði við alhliða bankastörf.
Verslunarmenntun og eða reynsla við sambærileg
störf æskileg.
Vinnutíminn er frá kl. 11 til 17 (81%).
Nánari upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni.
FELL hf. Tryggvabraut 22, simi 25455.
Hjúkrunarfræðingar
Kristnesspítali óskar að ráða hjúkrunarfræðinga
til sumarafleysinga.
Hafið samband við hjúkrunarforstjóra í síma
96-31100 og leitið upplýsinga um hvað þessi áhuga-
verði vinnustaður hefur upp á að bjóða auk fagurs
umhverfis.
Kristnesspítali.
Vantar blaðbera
frá 1. apríl í:
Fjólugötu, Fróðasund, Geislagötu,
syðri hluta Glerárgötu, Lundargötu og
efri hluta Strandgötu.
iÝ
Systir okkar,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Skjaldarvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 6. mars.
Brynhildur Jónsdóttir,
Dýrleif Jónsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, bróður, afa og langafa,
JÓHANNS FRÍMANNSSONAR,
Oddeyrargötu 14, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks B-deildar FSA tyrir góða
umönnun í veikindum hins látna.
Stella Jóhannsdóttir,
Edda Jóhannsdóttir, Kristján Ragnarsson,
Matthildur Jóhannsdóttir, Jón Matthíasson,
Kristbjörg Jóhannsdóttir, Vilhelm Sverrisson,
Herdis Jóhannsdóttir,
Elínborg Jóhannsdóttir,
Frímann Jóhannsson, Guðrún Valgarðsdóttir,
Soffía Jóhannsdóttir, Hannes Hafsteinsson,
Magnþór Jóhannsson, Friðrikka Valgarðsdóttir,
Halldór Jóhannsson, Hulda Einarsdóttir,
Óttar Jóhannsson, Þorgerður Einarsdóttir,
Bergfríður Jóhannsdóttir,
Sigurnías Frfmannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.