Dagur - 08.03.1989, Side 12
Kodak
Express
Gæóaframköllun
Akureyri, miðvikudagur 8. mars 1989
Snjórinn veldur erfiðleikum:
Allt að 40 sentimetrar
ofan á brunnana
★ Tryggðu f ilmunni þinni
Jbesta ^Peáíoniyndir
S^x. Haf narstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Óhætt er að segja að margar
íbúðagötur á Akureyri séu erf-
iðar umferðar af völdum snjó-
komunnar undanfarna daga.
Heflar og önnur tæki Akureyr-
arbæjar hafa undanfarið verið
notuð til að halda aðalgötum
bæjarins opnum og er ágæt-
lega fært um helstu strætis-
vagnaleiðir. Ekki er sömu sögu
að segja um sumar þrengri göt-
ur bæjarins. Stórvirkar vinnu-
vélar voru að hreinsa Norður-
götu síðari hluta dags í gær en
hún er búin að vera nokkuð
torfær síðustu vikur.
Færð hefur undanfarið verið
sérstaklega slæm í Hafnarstræti,
neðri hluta Brekkugötu, Munka-
þverárstræti, Helgamagrastræti,
Byggðavegi og víðar. í syðsta
hluta Norðurgötu; frá Eyrarvegi
að Strandgötu, hefur verið erfitt
fyrir bílstjóra að mæta öðrum
ökutækjum. Snjómokstur vinnu-
véla er auðvitað nauðsynlegur en
hann skapar einnig vandamál því
á mörgum stöðum myndast háir
ruðningar fyrir innkeyrslur húsa.
Miklir skaflar eru víða með-
fram girðingum og á gangstétt-
um. Bílstjórar hafa því neyðst til
að leggja bílum sínum lengra út á
götum en venjulega og þrengist
þá fyrir umferð.
Bílstjórar hafa undanfarið
þurft að stríða við fleira en óslétt-
ar götur og djúp hjólför. Víða í
götum eru brunnar sem lokað er
með járnlokum. Lokin hitna og
bræða ofan af sér snjó og ís. Eftir
verða misdjúpar holur, frá tíu
upp í fjörutíu sentimetrar að
dýpt. Þess munu nokkur dæmi að
bílar hafa setið fastir í slíkum
holum, einkum minni bílar sem
lenda með annað hvort drifjól-
anna ofan í „brunnana.“
Gífurlegir snjóruðningar eru
víða við mestu umferðargötur
Akureyrarbæjar. Brunahanar og
umferðarmerki eru sums staðar á
kafi, sömuleiðis tengiskápar raf-
veitunnar. Hugsa margir með
kvíða til vatnsflóða sem gætu
komið í mikilli og skyndilegri
hláku. EHB
Það voru 35 sentimetrar ofaná þennan brunn í Brekkugötunni á Akureyri
Mynd: TLV
Gosdrykkjaframleiðendur reiðir iðnaðarráðherra
vegna afskipta af störfum endurvinnslunefndar:
„Krataapparatið" væri út í hött
og eingöngu bruðl með peninga
Gosdrykkjaframleiðendur eru
ákaflega óhressir þessa dagana
vegna seinagangs og afskipta
iðnaðarráðherra af störfum
Byggðastofnun og Ferðamálasjóður
stærstu kröfuhafar í bú Svartfugls?:
Fjórir aðilar vilja vekja
veitmgastaðinn tíl lífsins
Þó kröfulýsingarfrestur í þrota-
bú Svartfugls hf á Akureyri
sem m.a. rak veitingastaðinn
Fiðlarann renni ekki út fyrr en
24. mars nk., er þegar Ijóst
hverjir stærstu kröfuhafar bús-
ins verða.
Það eru Byggðastofnun ríkis-
ins og Ferðamálasjóður sem lík-
lega verða stærstu kröfuhafar í
búið. Næstir á eftir þeim koma
aðilar eins og Kaupfélag Eyfirð-
inga, Akureyrarbær og Húsfélag
Alþýðuhússins.
Það er Húsfélagið sem á hús-
næðið sem fyrirtækið var rekið í
og á það jafnframt stærsta veðið.
Það hefur orðið að samkomulagi
milli félagsins og skiptaráðanda
að leigja veitingaaðstöðuna til
bráðabirgða til aprílloka. Sam-
kvæmt heimildum Dags hafa
fjórir aðilar þegar sýnt áhuga á
að hefja veitingarekstur í húsinu
Leifur Hallgrímsson, mótstjóri vélsleðakeppninnar,
um „Pólaris-málið“:
„Það voru engrn brögð í tafli“
„Það
segja
er skemmst frá því að
að niðurstaða þeirra
manna sem tóku umræddan
Pólarissleða í sundur var sú að
á honum hafi engar þær breyt-
ingar verið gerðar sem ekki
voru heimilar. Það voru engin
brögð í tafli,“ segir Leifur
Hallgrímsson, mótstjóri á
íslandsmeistaramóti vélsleða-
manna um síðustu helgi, vegna
þeirra orða umboðsmanna
Arctic Cat að kraftur í sleða
sigurvegarans í flokki AA í
kyartmflu, Eyþórs Tómasson-
ar, væri óeðlilega mikill.
.Leifur segir að ásamt fulltrúum
mótshaldara hafi sérstakir skoð-
unarmenn fylgst með sundurtekt
sleðans og ekkert óeðlilegt hafi
komið í ljós. „Ég get nefnt sem
dæmi að blöndungarnir eiga að
vera 38 mm sverir en þeir voru
einungis 37,5 mm. Þá reyndist
portlengd vera nákvæmlega sú
sem hún átti að vera,“ segir Leif-
ur.
Hann tekur fram að eigandi
sleðans hafi bent mótshöldur-
um á tvær breytingar á sleðanum
sem báðar reyndust vera leyfileg-
ar. Annars vegar að kveikju var
flýtt um eina gráðu og hins vegar
að belti sleðans var snúið við
þannig að spyrnurnar vísa á móti
snúningsáttinni. Leifur segir að
- segir Ragnar Birgisson forstjóri Sanitas
svokallaðrar endurvinnslu-
nefndar sem skipuð var af fyrr-
verandi iðnaðarráðherra og
fjalla skyldi um endurvinnslu
einnota drykkjarumbúða.
Þegar nefndin skilaði áliti lagði
hún til að lagt yrði 5 króna skila-
gjald á allar umbúðir og var
ákveðið að styðjast við uppskrift
frá frændum vorum Svíum sem
nefnist „Retour-pak“. Stofnað
yrði fyrirtæki sem bæri nafnið
Endurvinnsla hf. og væru gos-
drykkjaframleiðendur stærstu
eigendur fyrirtækisins. Tillögur
nefndarinnar líkuðu vel og voru
samþykktar hjá ýmsum aðilum
sem rætt var við t.d. Félagi
íslenskra iðnrekenda og Kaup-
mannasamtökunum í janúar sl.
Fulltrúi iðnrekenda í nefndinni
var Ragnar Birgisson forstjóri
Sanitas og segir hann, að nú hafi
starf nefndarinnar verið gert að
engu, því núverandi iðnaðarráð-
herra, Jón Sigurðsson, hafi síðan
komið starfi nefndarinnar yfir á
einn mann, Ágúst H. Jónsson
verkfræðing, sem m.a. hannaði
hið nýja kerfi Bifreiðaskoðunar
íslands.
„Þessi maður fékk öll okkar
gögn, valdi allt sem honum líkaði
best úr þeim og lagði fram nýja
skýrslu til iðnaðarráðherra,
byggða á sama grunni og sú fyrri.
Hins vegar eru veigamiklar
breytingar á forsendum, t.d.
hvað varðar eignaraðild,“ sagði
Ragnar. Samkvæmt tillögum
Ágústs á ríkið að eiga stærsta
hlutann og stofnkostnaður er
áætlaður 45 milljónir á meðan
hann var áætlaður 16 milljónir
hjá fyrri nefndinni. Þá var rekstr-
arkostnaður áætlaður 77 milljón-
ir sem er helmingi meira en hjá
þeim, en þess ber að geta að áætl-
að var á sínum tíma að það kost-
aði um 75 milljónir að reka vara-
flugvöli. „Þarna kemur ýmislegt
til sem ég vil kalla bruðl, t.d. vilja
þeir nú byggja hús yfir starfsem-
a ny, en umsóknirnar hafa enn
ekki verið afgreiddar. Reiknað er
með að fundur í hússtjórn verði
haldinn mjög fljótlega þar sem
afstaða til umsóknanna verði tek-
in.
Skiptafundur um bú Svartfugls
verður haldinn 12. apríl. Þáverð-
ur tekin ákvörðun um ráðstöfun
eigna, en einu eignir búsins eru
húsbúnaður, tæki, borðbúnaður
o.fl. VG
samkvæmt reglum séu þessar
tvær breytingar leyfilegar en hins
vegar sé sjálfsagt fyrir menn að
ræða hvort eigi að gera á þeim
breytingar.
Tómas Eyþórsson, umboðs-
maður Pólaris sleðanna, segir að
breytingarnar á Pólaris sleðanum
hafi verið fullkomlega löglegar
og varðandi kveikjuna hafi ein-
ungis verið um að ræða stillingu
fyrir keppnina. „Það má orða
það svo að það sé kúnst að kunna
að tapa. Við viljum fyrir alla
muni halda friðinn og kærum
okkur ekki um að slík illindi
endurtaki sig,“ sagði Tómas
Eyþórsson. óþh
ina en við vildum leigja, þeir vilja
kaupa bíla en við ætluðum að
leggja aukið álag á okkar eigin
bíla, rándýr tölvu- og ráðgjafa-
þjónasta var inni í kostnaðarliðn-
um. Við sögðum að þetta væri út
í hött; þetta þýddi að strax yrði
að hækka gjöld og skatta á gos-
drykkjaframleiðendur til að
standa undir þessu „krata-
apparati". Málið fór því í keng
vegna þessa og nú hefur iðnaðar-
ráðherra skipaði enn eina nefnd-
ina sem ekki er skipuð neinum af
fyrrverandi nefndarmönnum.
Það hefur ekkert gerst í mánuð
núna og ég er sannfærður um að
ef hann hefði ekki farið að
krúnka í þetta, værum við búnir
að stofna fyrirtækið og skilagjald-
ið væri komið á.“ VG
Sana á Akureyri:
Bruggað allan
sólarhringmn
Nú er unnið allan sólarhring-
inn hjá Sana á Akureyri við
bruggun og átöppun bjórs og
eru forráðamenn fyrirtækisins
hæstánægðir með viðtökurnar
sem þeirra tegundir hafa feng-
ið hjá landanum.
Þeir hjá Sana telja sig koma til
með að geta annað eftirspurn eft-
ir þeim tegundum sem á boðstól-
um eru, en vart hefur orðið við
skort á Egilsbjórnum. Þá hafa
erlendu tegundirnar verið að ber-
ast til landsins síðustu daga og
sagði Ragnar Birgisson hjá Sanitas
það eitt geta sett strik í þeirra
reikning ef skortur væri á flestum
öðrum tegundum.
Einhverju hefur verið bætt við
af starfsfólki hjá Sana á Akur-
eyri, en Birgir sagði ekki hafa
verið þörf á að bæta við mörgum,
þar sem sjálfvirknin sé nær alls-
ráðandi við bruggunina. VG