Dagur - 14.03.1989, Blaðsíða 1

Dagur - 14.03.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, þriðjudagur 14. mars 1989 51. tölublað Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599^ Akureyri: Iikamsárás í Hafiiarstræti - Rannsóknarlögreglan óskar eftir vitnum Ráðist var á mann á Akureyri milli klukkan eitt og tvö aðfaranótt laugardags og hann sleginn í andlitið. Atvikið átti sér stað í Hafnarstræti nálægt pylsubarnum. Rannsóknarlög- reglan á Akureyri óskar eftir vitnum að árásinni. Maðurinn sem ráðist var á er aðkomumaður á Akureyri, á fertugsaldri. Hann skarst nokkuð í andliti þegar sá sem lýst er eftir réðist á hann. í gær slasaðist ungur maður er hann var við vinnu sína í skinna- verksmiðju Sambandsins á Akur- eyri. Hann var að hreinsa hverfi- stein í gæruslípun fyrirtækisins þegar lítill steinn, sem notaður er við hreinsun vélarinnar, kastaðist af afli í kinnbein hans. Prír piltar hafa játað innbrot í Hólabúðina á Akureyri aðfara- nótt föstudags. Þar stálu þeir sælgæti en viðurkenndu einnig innbrot í annað fyrirtæki í bænum. Þar stálu þeir rúmum 40 þús. kr. EHB Verðkönnun NAN: ,*mk ■^m Sumar sælgætisteg- undir hækka daglega Neytendafélag Akureyrar og nágrennis framkvæmdi nýlega könnun á verði ýmissa vara í söluturnum og þremur „Nest- um“ á Akureyri. I greinargerð með könnuninni frá NAN kem- ur fram að hækkanir á ýmsum sælgætistegundum séu að sögn verslunareigenda daglegur við- burður um þessar mundir. Auk sælgætis, var kannað verð á svokölluðu „sjoppufæði“ svo sem samlokum, frönskum og pylsum. Það var Nætursalan sem oftast var með lægsta verð á sín- um vörum, eða í sjö tilfellum af átján en þar á eftir kom Shell- inesti við Hörgárbraut með lægsta verð í sex tilfellum. Nánar er greint frá verðkönnun NAN á bls. 15 í blaðinu í dag. VG Sprett úr spori í ískappreiðum íþróttadeildar Léttis á laugardag. ískappreiðarnar áttu að fara fram á Leirutjörn en ísinn þar var ekki nægilega traustur. Kappreiðarnar fór því fram á Eyjafjarðará. Mynd: tlv Akureyri: Slæmt útlit með sumar- Róleg helgi ogengiim ölvunarakstur - á Húsavík og Egilsstöðum Lögreglan á Húsavík og á Egilsstöðum vissi ekki ann- að en helgin hefði verið óhappalaus og fremur róleg á Norðaustur- og Austur- landi. Enginn var tekinn fyr- ir ölvun við akstur á þessum stöðum um hlegina, eða í síðustu viku, þrátt fyrir mik- ið cftirlit. Lögreglan á Húsavík sagði að hclgin hefði verið mjög róleg, þrátt fyrir þrjár sam- komur í héraði á laugardags- kvöld. Munu allar samkom- urnar hafa farið mjög vel fram en það voru; árshátíð hesta- manna á Breiðimýri, frumsýn- ing hjá Leikfélagi Húsavíkur og jazztónleikar í Félagsheim- ili Húsavíkur. Lögreglan á Egilsstöðum sagði helgina hafa verið frem- ur góða, þó hefði verið hald- inn unglingadansleikur og þeim vildu alltaf fylgja leið- indi, fyllirí og þref. Lögreglan sagðist ekki sjá neina megin- breytingu á ölvun við tilkomu bjórsins og enginn hefði verið tekinn fyrir ölvun við akstur í síðustu viku, þrátt fyrir mikiö eftirlit. IM vinnu íyrir skólafólk Atvinnuástandið á Akureyri er með þeim hætti um þessar mundir að mjög illa horfir með sumarvinnu skólafólks. Aðal- tekjumöguleikar barna og hátt í 100 manns um hver 10 störf sem bjóðast unglinga eru fólgnir í sumar- vinnunni en Ijóst er að nú munu mörg fyrirtæki halda að sér höndum í mannaráðning- um. Vinnuskólinn tekur við krökkum upp að 15 ára aldri en það er spurning hvaða möguleika skólafólk frá 16 ára aldri hefur á atvinnu í sumar. „Það er verulega slæmt útlit með Loðnuveiðar: Orninn KE á eftir einn túr 2200 tonn til Krossaness á 3 dögum „Það er slæmt að vera búinn með kvótann ef önnur törn er að byrja núna. Þá sitja þeir einir eftir sem eiga afgangs- kvóta,“ sagði Helgi Her- mannsson, stýrimaður á Ernin- um KE 13, en Örninn lagði í gær af stað í sína síðustu veiði- ferð á þessari loðnuvertíð. I Krossanesverksmiðjunni fóru Örninn KE með fullfermi. Loðnukvóti skipsins er á þrotum og er það nú í sinni síðustu veiðiferð á vertíðinni. hjólin að snúast af krafti um hclg- ina. Þórður Jónasson EA 350 landaði 675 tonnum á laugardag og seinna sama dag kom Súíán EÁ 300 til verksmiðjunnar með 790 tonn. í gærmorgun klukkan sjö kom Örninn KE svo til Krossa- ness með 750 tonna loðnufarm. Örninn veiddi loðnuna um átta mílur frá landi, austan við Stokksnes. Þaðan var um sól- arhrings sigling til Eyjafjarðar. Rétt fyrir helgina og á laugar- dag fannst mikil loðna skammt austan við land. Segja má að nú hafi það gerst sem margir óttuð- ust; veruleg uppsveifla kemur í veiðarnar rétt þegar margir feng- sælustu bátarnir eru búnir með kvótann. Örninn KE 13 mun að öllum líkindum fara á rækjuveið- ar eftir yfirstandandi loðnutúr. EHB vinnu skólafólks í sumar. Ég held að það sé ekki of fast að orði kveðið. Ég veit um einn vinnu- stað sem ræður 6-8 unglinga í vinnu í sumar, en þangað höfðu borist 80 umsóknir um vinnu,“ sagði Björn Snæbjörnsson hjá Einingu. Jóna Steinbergsdóttir, formað- ur Félags verslunar- og skrif- stofufólks á Akureyri, tók í sama streng og sagði að útlitið væri dökkt. Hún hafði spurnir af því frá KEA að þar væru ábyggilega um 100 krakkar um hver 10 störf, þannig að útlitið væri allt annað en bjart. Þau voru sammála um að sveit- arfélögin þyrftu að fara að hug- leiða þessi mál í fullri alvöru og kanna rækilega hvort ekki væri beinlínis hægt að skapa einhverja atvinnu fyrir skólafólk. Hvað Akureyri varðar nefndu þau umhverfisfegrun, gróðursetningu og aukna þjónustu við íbúa bæjarins. „Bærinn hefur útvegað yngri krökkunum vinnu í Vinnuskólan- um en ástandið er mjög alvarlegt hjá 16-20 ára krökkum. Fæstir hafa rétt á atvinnuleysisbótum og þeir sem ekki fá vinnu hafa ekki að neinu að hverfa. Skólafólk má teljast mjög heppið ef það fær vinnu í sumar,“ sagði Björn. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.