Dagur - 14.03.1989, Blaðsíða 10

Dagur - 14.03.1989, Blaðsíða 10
íí - skéöíi - íþróttir Iiverpool nagar hæla toppliðanna - Arsenal tapaði - Norwich með sterka stöðu - West Ham að falla Neil Webb hefur hér betur í baráttu við Paul Davis hjá Arsenal og Forest sigraði óvænt í leiknum 3:1. Eftir leiki helgarinnar á Eng- landi er baráttan um Englands- meistaratitilinn nú galopin. Forskot Arsenal á Norwich er nú aðeins tvö stig og Norwich á leik til góða, gegn Southampt- on á útivelli. Millwall er einnig með sterka stöðu ásamt Man. Utd., Coventry og Nottingham For., en það er Liverpool sem hefur þotið upp töfluna að undanförnu og virðist vera að komast í sitt gamla, góða form. Arsenal varð fyrir áfalli er liðið tapaði á heimav.elli gegn Notting- ham For. Leikmenn Forest léku mjög vel í fyrri hálfleik og höfðu yfir í hléi 3:1 og sá munur hefði getað verið meiri. Fyrsta markið kom á 7. mín. Nigel Clough skor- aði eftir að Lee Chapman hafði skallað boltann til hans. Alan Smith jafnaði fyrir Arsenal á 13. mín. eftir hornspyrnu Brian Mar- wood. Forest komst aftur yfir á 20. mín. er Neil Webb sendi góða sendingu á Franz Carr er geystist fram, lék á Tony Adams miðvörð Arsenal og skoraði af öryggi. 10 mín. fyrir hlé urðu mistök Steve Bould til þess að Chapman slapp í gegn, markvörður Arsenal, John Lukic, braut á honum rétt utan vítateigs og fékk fyrir það gult spjald, en úr aukaspyrnunni skoraði Stuart Pearce fyrirliði Nottingham For. Mikil barátta var í síðari hálfleik, en hvorugu liðinu tókst að bæta við mörkum þó litlu munaði er Marwood átti skot í stöng á marki Forest. Á meðan Arsenal tapaði fyrir Staðan 1. deild Arscnal 28 16- 7- 5 53:28 55 Norwich 27 15- 8- 4 40:28 53 Millwall 27 13- 7- 7 40:31 46 Liverpool 25 11- 9- 5 36:20 42 Nott. Forest 25 10-11- 4 37:27 41 Coventry 27 11- 8- 8 35:27 41 Man. Utd. 26 10-10- 6 35:21 40 Dcrby 26 11- 6- 9 30:25 39 Wimbledon 26 11- 5-10 32:31 38 Tottenham 28 10- 9- 9 41:38 37 Everton 26 9- 9- 8 32:29 36 Middlesbro 27 8- 7-12 31:43 31 Aston Villa 27 7-11- 9 35:42 31 Q.P.R. 27 7- 9-11 26:25 30 Luton 26 7- 8-11 28:33 29 Southampton 27 6-12-10 39:51 29 Charlton 28 6-10-12 31:43 28 Sheff. Wed. 27 6- 9-12 22:36 27 Newcastle 26 5- 7-14 23:45 22 West Ham 25 4- 7-14 21:42 19 2. deild Man. City 33 18- 9- 6 52:28 63 Chelsea 32 17-11- 4 66:34 62 Blackhurn 33 16- 7-10 53:48 55 Watford 32 15- 8- 9 47:34 53 Bournemouth 32 16- 5-11 40:36 53 W.B.A. 3313-13- 7 50:32 52 Stoke 32 14- 9- 9 43:47 51 Ipswich 33 15- 5-13 51:44 50 Swindon 32 13-11- 8 47:38 50 Barnsley 33 12-11-10 44:43 47 Leeds Utd. 33 11-13- 9 42:36 46 C. Palace 31 12-10- 9 48:40 46 Portsmouth 33 12- 9-12 40:38 45 Sunderland 32 11-11-10 41:40 44 I.eieester 33 10-11-12 41:48 41 Plymouth 3311- 7-15 38:47 40 Oxford 33 10- 9-14 46:48 39 Hull 32 10- 8-14 41:48 38 Brighton 33 10- 7-16 45:50 37 Oldham 33 8-13-12 53:53 37 Bradford 33 8-12-13 34:44 36 Shrewsbury 32 5-13-14 26:48 28 Walsall 33 4-11-18 29:56 23 Birmingham 33 4- 9-2019:55 21 Forest tókst Norwich að leggja hörkutólin hjá Wimbledon að velli. í fyrri hálfleik hafði Wimbledon undirtökin og mark var dæmt af John Fashanu, en í þeim síðari náði Norwich tökum á leiknum og þeir Trevor Putney, Andy Linighan og Mike Phelan áttu allir stórleik fyrir Norwich. Það var Putney sem skoraði eina mark leiksins, er Roger Josheph varnarmaður Wimbledon datt um boltann og Putney lét tæki- færið sér ekki úr greipum ganga. Þetta var 1.000 leikur Norwich í deildakeppnl á heimavelli sínum og þrátt fyrir að hann hafi ekki verið fagur á að horfa gætu úrslit- in reynst Norwich dýrmæt. Liverpool er nú farið að blanda sér í baráttuna um efsta sætið og eins og sjónvarpsáhorfendur sáu á laugardag leikur liðið nú mjög góða knattspyrnu. Middles- brough átti ekki möguleika í leiknum eftir að Peter Beardsley hafði skoraði fyrsta mark Liver- pool á 19. mín. John Barnes sendi mjög góða sendingu innfyr- ir vörn Boro og Beardsley skor- aði af öryggi. Næsta mark var það besta í leiknum, Steve Staunton vann boltann í vörn- inni, Beardsley og Ray Hough- ton léku í gegn en Stephen Pears í marki Boro hálfvarði skot Beardsley, Houghton kom þá aðvífandi og sendi boltann í netið. John Aldridge bætti þriðja markinu við úr mjög þröngu færi og lagði síðan upp það fjórða fyr- ir Steve McMahon. Liverpool hefði hæglega getað unnið stærri sigur og alls ekki útilokað að liðið verji titil sinn í vor. West Ham leikur enn sinn netta og skemmtilega fótbolta, en árangurinn er dapurlegur. Coventry sótti liðið heim á laug- ardag og tók forystu snemma í leiknum er dæmd var vítaspyrna á Phil Parkes markvörð fyrir að fella David Bennett og Brian Kilcline skoraði úr vítinu. West Ham hafði undirtökin í leiknum allan tímann, en spilið var of þröngt og skot framherjanna ekki nógu nákvæm. Leikmenn Coventry drógu sig til baka og reyndu að halda fengnum hlut sem virtist ætla að takast. 15 mín. fyrir leikslok tókst heimamönn- um þó að jafna, 'Stuart Slater vann boltann sem hann síðan sendi til Paul Ince er skoraði af stuttu færi. Það verður eftirsjá að West Ham úr 1. deild ef liðið fell- ur sem margt bendir til að verði. Paul Gascoigne leikmaður Tottenham var yfirburðamaður á vellinum í leik Tottenham og Derby. Áhorfendur bauluðu á hann í hvert sinn er hann snerti boltann, en hann lét það ekkert á sig fá. Það virtist þó hafa áhrif á dómarann sem bókaði Gascoigne fyrir litla sök, en þetta var fyrsti leikur hans eftir leikbann. Hann átti frábæra sendingu inn á Paul Stewart sem fór illa með færið og Peter Shilton í marki Derby varði glæsilega frá Gary Mabbutt. Dean Saunders náði forystu fyrir Derby 'eftir hálftíma leik er snerpan kom honum að góðum notum. Tottenham tókst þó að jafna er 15 mín. voru liðnar af síðari hálfleik, Gascoigne skor- aði beint úr aukaspyrnu sem Shilton réð ekki við og þar við sat. Everton sigraði Sheffield Wed. í hundleiðinlegum og lélegum leik þar sem erfitt var að sjá hvort liðið léki verr. Þetta var fyrsti leikurinn sem Everton vinn- ur síðan um áramót og aðeins þeir Kevin Ratcliffe, Trevor Steven og lan Snodin, þar til hann fór meiddur útaf, léku af eðlilegri getu. Sheffield liðið var þó slakara með Sigurð Jónsson sem sinn skásta mann. Eina mark leiksins kom á 5. mín., Stuart McCall vann boltann við vítateig, Á sunnudag gerðu Aston Villa og Manchester Utd. marka- laust jafntefli í 1. deild og fyrir vikið er Utd. nú í 7. sæti í 1. deild, en með sigri hefði liðið komist í 4. sætið. Man. Utd. getur þó ekki kvart- að undan úrslitum leiksins því lið Aston Villa var betri aðilinn í leiknum. Mikil barátta og kraftur í leikmönnum í upphafi, en sú barátta fór að mestu fram á miðj- unni og ekki oft sem leikmönnum tókst að brjótast út úr þeirri hringiðu. Jim Leighton lék mjög vel í marki Utd. og getur liðið þakkað honum stigið. Hann varði mjög vel frá David Platt á 8. mín., Steve Sims miðvörður Villa átti skalla í þverslá og Mart- in Keown og Ian Ormondroyd sendi á Tony Cottee sem skoraði sigurmark Everton. Millwall er í þriðja sæti deild- arinnar og vann góðan sigur á gervigrasinu í Luton. Jimmy Carter skoraði bæði mörk Mill- wall áður en Danny Wilson lag- aði aðeins stöðuna fyrir Luton með marki úr vítaspyrnu. Charlton komst í 2:0 á heima- velli gegn Southampton, Robert Lee og Paul Williams skoruðu mörk liðsins. Rodney Wallace og Paul Rideout jöfnuðu fyrir Southampton. Jim Smith framkvæmdastjóri Newcastle fékk sitt gamla félag Q.P.R. í heimsókn og það var ekki góð sending fyrir hann. Col- in Clarke sem Q.P.R. keypti fyrir £800.000 frá Southampton skor- aði í sínum fyrsta leik með liðinu og Mark Stein bætti öðru marki Q.P.R. við. Ray Ranson skoraði eina mark Newcastle í leiknum. 2. deikl • Man. City og Chelsea höfðu sætaskipti á toppi 2. deildar. City sigraði Leicester 4:2 í átakaleik þar sem Paul Lake varnarmaður City var lífgaður við eftir að hafa gleypt tungu sína í upphafi leiks. Neil McNab misnotaði víta- spyrnu fyrir City, en þeir Trevor Morley þrjú og sjálfsmark Tony Spearing sáu um mörkin fyrir misnotuðu góð tækifæri. Mark- tækifæri Utd. voru ekki mörg né hættuleg og Lee Butler sem lék í marki Aston Villa hafði ekki mikið að gera. Minnstu munaði að Alan Mclnally hinum mark- sækna miðherja Villa tækist að skora 5 mín. fyrir leikslok, með viðstöðulausu skoti af 18 metra færi, en Leighton varði frábær- lega vel. Þegar dómarinn var í þann mund að flauta til leiksloka fékk Brian McClair færi fyrir Utd., en Butler sá við honum. Aston Villa sýndi í leiknum að liðið er of gott til að falla í 2. deild, en Man. Utd. verður áreiðanlega að bíða að minnsta kosti til næsta keppnistímabils eftir hinum langþráða Englands- meistaratitli. Þ.L.A. City. Gary McAllister og Paul Jaws skoruðu fyrir Leicester. • Watford komst í 2:0 á útivelli gegn Chelsea með mörkum Paul Wilkinson og Iwan Roberts. Tony Dorigo og Graham Roberts úr vítaspyrnu jöfnuðu fyrir Chelsea. • Blackburn hefur örugglega fengið nóg af Tommy Tynan hjá Plymouth, í fyrri leik liðanna skoraði hann öll fjögur mörk Plymouth í 4:3 sigri liðsins og hann skoraði sigurmark Ply- mouth gegn Blackburn á laugar- dag. • W.B.A. náði aðeins jöfnu gegn Oxford, Colin West skoraði mark liðsins, en Martin Foyle skoraði fyrir Oxford. • Bournemouth sigraði Brad- ford 3:0 þar sem Luther Blissett skoraði tvö mörk. • Gamli jálkurinn John Wark sem lengi lék með Liverpool skoraði tvö af mörkum Ipswich í óvæntum sigri liðsins á Elland Road í Leeds. Leeds Utd. hefur gefið eftir í baráttunni að undan- förnu og verður að fara að taka sig á ef liðinu á að takast að kom- ast í úrslitakeppnina. • Duncan Shearer skoraði sigur- mark Swindon gegn Hull City og Swindon á möguleika á 1. deildar sæti eftir aðeins einn vetur í 2. deild. Þ.L.A. Úrslit l.deíld Arsenal-Nottingham For. 1:3 Aston Villa-Manchester Utd. 0:0 Charlton-Southampton 2:2 Derby-Tottenham 1:1 Everton-Sheffield Wed. 1:0 Luton-Millwall 1:2 Middlesbrough-Liverpool 0:4 Newcastle-Q.P.R. 1:2 Norwich-Wimbledon 1:0 West Ham-Coventry 1:1 2. deild Barnslcy-Crystal Palace 1:1 Blackburn-Plymouth 1:2 Bournemouth-Bradford 3:0 Chelsea-Watford 2:2 Leeds Utd.-Ipswich 2:4 Mancbester City-Leicester 4:2 Oxford-W.B.A. 1:1 Portsmouth-Birmingham 1:0 Shrewsbury-Brighton 1:1 Stoke City-Sundcrland 2:0 Swindon-Hull City 1:0 Walsall-Oldhain 2:2 3. deild Aldershot-Port Vale 2:2 Blackpool-Fulham 0:1 Bolton-Bristol City 2:0 Brentford-Reading 3:2 Bristol Rovers-Chcsterfield 2:1 Gillingham-Cardiff City 1:2 Mansfield-Preston 0:3 Northampton-Wigan 1:1 Notts County-Bury 3:0 Sheffield Utd.-Huddersfield 5:1 Southend-Wolves 3:1 Swansea-Chester 1:1 4. deild Burnley-Scunthorpe 0:1 Colchester-Crewe 2:1 Doncaster-Darlington 1:0 Exeter-Cambridge 0:3 Grimsby-Stockport 2:0 Hartlepool-Halifax 2:0 Lincoln-Rotherham 0:1 Peterborough-Leyton Orient 0:1 Rochdale-Tranmerc 3:1 Scarborough-Cariislc 0:1 Wrexham-Hereford 1:1 Jafnt á Villa Park - Aston Villa 0 - Man. Utd. 0

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.