Dagur - 14.03.1989, Page 2
2 - OAGUR -■Þriðjudagur 14. mars 1989
þegar
Svarfdælskir vélsleðamenn
í sunnudagsralli á Tröllaskagahálendinu:
Hreint stórkostieg ferð
- segir Guðmundur Jónsson
vélsleðamaður og „olíufursti“
Sjö knáir vélsleðamenn ur
Svarfaðardal og Dalvík gerðu
góða ferð upp á Tröllaskaga-
hálendið inn af Skíðadal og
Svarfaðardal sl. sunnudag.
„Þetta var hreint stórkostleg
ferð,“ sagði Guðmundur
Jónsson, einn sjömenninganna
Gúmmívinnslan
Akureyri:
Eldur í vegg
Á laugardaginn klukkan 14.23
var Slökkvilið Akureyrar kall-
að að húsnæði Gúmmívinnsl-
unnar hf. við Réttarhvamm.
Eldur eða eldsglóð hafði þá
læst sig í timburvegg en fljót-
lega tókst að ráða niðurlögum
hans.
Tómas Búi Böðvarsson,
slökkviliðsstjóri, sagði að óhapp-
ið hefði orðið þegar menn voru
að rafsjóða í járn innan á tirnbur-
vegg. Hiti frá rafsuðunni leiddi
gegnum járnið og kviknaði þá
eldur í timbrinu. Ekki var nein
hætta á ferðum en starsfmenn
fyrirtækisins kölluðu þó í slökkvi-
lið eins og vera ber til að hafa
vaðið fyrir neðan sig. Slökkviliðs-
mennirnir þurftu að rífa nokkuð
af timbri af veggnum til að kom-
ast að glóðinni. Slökkvistarfið
gekk vel og tjón varð óverulegt.
EHB
Miðstjórn ASÍ:
í samtali við Dag.
Þeir lögðu af stað um kl. 12 og
óku fram Svarfaðardal og
Skíðadal og þar áfram inn
Sveinsstaðaafrétt og upp á
Tungnahryggsjökul. Þaðan lá
leiðin í vestur og niður Kol-
beinsdal og að Hólum í Hjalta-
dal. Ætlunin var að fara Unadal
og upp á Unadalsjökul en því var
ekki við komið vegna hríðarveð-
urs. Þess í stað brugðu þeir félag-
ar á það ráð að aka vestur að
Ketilási í Fljótum. Þaðan lá leið-
in upp á Lágheiði og Reykjaheiði
og síðan niður Böggvisstaðadal-
inn áleiðis til Dalvíkur. Þangað
var komið um kl. 20 á sunnudags-
kvöld.
Guðmundur segir að veður og
skyggni hafi yfirleitt verið stór-
kostlegt og færi til vélsleða-
aksturs hið ákjósanlegasta. Hann
segir þó eftirtektarvert að snjór
upp á hálendinu sé ekki eins mik-
ill og á sama tíma í fyrra. Sem
dæmi nefnir Guðmundur að gil á
Vesturárdal, inn af Skíðadal, hafi
verið sléttfult af snjó á sama tíma
í fyrra en nú hafi ekki verið
nokkur leið að þeysa yfir það á
vélsleðum. óþh
Sauðárkróksbær:
Vill byggja kaupleiguíbúðir nú
hönnun á 8 íbúðum að fara af stað
Mánaberg og Sigurbjörg lönduðu fyrir helgi:
45 milljónir á land í Ólafsfirði!
Bæöi Irystiskip Ólafsfiröinga,
Sigurbjörg ÓF-1 og Mána-
berg OF-42, lönduðu í Ólafs-
firði í liðinni viku. Sigur-
björgin, skip Magnúsar
Gamalíelssonar hf., landaði
ríflega 140 tonnum sl. föstu-
dag eftir 21 dags útiveru.
Verðmæti aflans er á bilinu
19-20 milljónir króna.
Mánabergið landaði sl. mið-
vikudag, einnig eftir 21 dag á
miðunum, 195 tonnum, að
stærstum hluta þorski. Aflverð-
mæti er 25 milljónir króna. Af
195 tonna afla vógu þorskflök
85 tonn, ýsan 19,2 tonn, karfinn
50 tonn og ufsi 40 tonn.
Mánabergið hélt úr höfn sl.
laugardag en Sigurbjörgin í
gær. óþh
SICURBJÖRC
amrsriROi
Vill afturkalla
verðhækkaniraar
Á fundi Alþýðusambands
íslands nýlega var sam-
þykkt ályktun þar sem mót-
mæit er harðlega þeim miklu
verðhækkunum sem dunið
hafa yfir almenning á undan-
förnum dögum.
Segir í ályktuninni að í kjölfar
verðstöðvunar beri brýna nauðsyn
til að stjórnvöld gefi gott fordæmi
með ströngu aðhaldi. Verðhækk-
anir á brýnustu nauðsynjar bitni
harðast á láglaunafólki og komi
til með að spilla fyrir komandi
sanmingagerð.
„Miðstjórn lýsir ábyrgð á
hendur stjórnvöldum vegna stór-
felldra hækkana undanfarna daga
og gerir kröfu til að ríkisstjórnin
afturkalli nú þegar allar verð-
hækkanir á vöru og þjónustu og
komi í veg fyrir frekari hækkan-
Á fundi sínum fyrir skömmu
samþykkti bæjarráð Sauðár-
króks að leitað verði leiða til
að hægt verði að hefja nú þeg-
ar byggingu kaupleiguíbúða.
Sem kunnugt er fékk Sauðár-
krókur á sínum tíma leyfi frá
Húsnæðisstofnun um byggingu
8 kaupleiguíbúða og í kjölfar
þess voru lögð drög að stofnun
Togarar hafa rótfiskað síðustu
daga, bæði fyrir vestan og á
Austfjarðamiðum. Björgúlfur
EA-312 landaði 160 tonnum í
gær eftir viku veiðitúr og Dal-
félags meðal helstu atvinnufyr-
irtækja í bænum um byggingu
íbúðanna. Ekkert hefur svo
gerst í þessum málum um hríð
og á nú að láta til skarar
skríða. Að sögn Snorra Björns
Sigurðssonar bæjarstjóra ætlar
bærinn að stíga fyrsta skrefið
núna og láta fara af stað hönn-
un á íbúðunum, þannig að
borg EA-317 er væntanleg í
dag til Dalvíkur með fullfermi,
um 100 tonn.
Snorri Snorrason, skipstjóri á
Dalborgu, sagði að síðustu dagar
hafi verið sérstaklega góðir á
framkvæmdir geti hafist í
sumar.
Þegar búið var að leggja drög
að stofnun fyrrgreinds félags,
sem Sauðárkróksbær var aðili að,
var Húsnæðisstofnun sent bréf í
von um að hún kæmi fljótlega
með staðfestingu eða athuga-
semdir. Ekkert hefur hins vegar
heyrst frá stofnuninni. „Við get-
um einfaldlega ekki beðið lengur
Vestfjarðamiðum og fiskurinn
geti vart veriö betri. „Það er ekki
hægt að segja annað en að sé
nokkuð bjart yfir þessu, a.m.k.
miðað við það sem oft er á þess-
um tíma,“ sagði Snorri. „Að vísu
hefur ekki glaðnað að marki yfir
fiskeríinu fyrir norðan land. Þó
hafa menn eitthvað orðið varir
við fisk við Norð-Austurlandið.“
eftir svari frá Húsnæðisstofnun.
Ég geri ráð fyrir því að bærinn
taki þetta mál upp á sína arma, í
bili. Við munum setja hönnun í
gang og síðan sjáum við til hvort
við fáum samþykki fyrir þessu
félagi, sem yfirtaki þá fram-
kvæmdirnar eins og þær standa
þegar þar að kemur,“ sagði
Snorri Björn í samtali við Dag.
íbúðirnar átta sem Sauðár-
krókur fékk vilyrði fyrir mega
ekki vera yfir 130 fermetrar að
stærð, samkvæmt reglugerðum.
Staðsetning þessara íbúða er
fyrirhuguð í efstu götu Túna-
hverfisins, sem ekki er farið að
gera, en á að koma fyrir ofan
götuna Hólatún. Sú gata hefur
gengið undir nafninu J-tún, en
hún er á skipulagi sem eftir er að
samþykkja í bæjarkerfinu, og
hefur ekki fengið formlegt nafn.
Að sögn Snorra Björns mun sú
tillaga verða afgreidd á næstunni
í byggingarnefnd, þannig að ekk-
ert geti staðið í vegi fyrir fram-
kvæmdum þegar þar að kemur.
„Við ætlum ekki að láta sumarið
líða án þess að þetta fari í gang, “
sagði Snorri Björn að lokum.
ír.
Þingsályktunartillaga um aðstoð við leigjendur:
Góður aíli togara síðustu daga:
Björgúlfur og Dalborg með
um 260 tonn til Dalvíkur
Ríkisvaldið hefur ekkert aðhafst
til að létta byrðar leigjenda
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
Borgaraflokki, flutti í gær á
Alþingi þingsályktunartillögu
fjögurra þingmanna Borgara-
flokksins um aðstoð við leigj-
endur. Samkæmt tillögunni
verður ríkisstjórninni falið að
undirbúa breytingar á lögum
um tekjuskatt og eignarskatt
þannig að greidd húsaleiga
lágtekjufólks verði annað
hvort frádráttarbær frá tekju-
skatti eða bætt með húsaleigu-
styrkjum.
Aðalheiður sagði þegar hún
mælti fyrir tillögunni að ekkert
hafi verið gert af hálfu ríkisvalds-
ins á undanförnum árum til að
létta byrðar þess fólks sem
greiddi mikla húsaleigu og eygði
þar af leiðandi litla von til að
kaupa húsnæði. Hún sagði að
með því að gera húsaleigu frá-
dráttarbæra frá skatti vinnist
tvennt. Annars vegar verði kom-
ið til móts við það fólk sem
standi undir hárri húsaleigu og
hins vegar verði með þessu tryggt
að leigusalar telji húsaleigu rétt
fram. Mikil brögð séu að því að
húsaleiga sé svikin undan skatti
enda hafi skattayfirvöld ekki haft
uppi aðgerðir til að hvetja leigu-
taka til að gera grein fyrir liúsa-
leigugreiðslum.
Aðalheiður segir að gera megi
húsaleigu frádráttarbæra frá
tekjuskatti líkt og gert er með
sjómannafrádrátt eða að leigu-
tökum verði greidd ákveðin fjár-
hæð í formi styrkja, líkt og hús-
næðis- og vaxtabætur. Stjórnvöld
þurfi að meta frá lagatæknilegum
sjónarmiðum hvor leiðin sé betri.
JÓH
Sólberg ÓF-12 hefur gert það
gott á Austfjarðamiðum undan-
farna daga. A þremur sólarhring-
um hafa náðst um 120 tonn, að
sögn Þorbjarnar Sigurðssonar,
skipstjóra. „Þetta er ágætis
þorskur, en kannski ekki eins
góður og hefur fengist fyrir vest-
an að undanförnu,“ sagði
Þorbjörn. Hann reiknaði með að
leita að skraptegundum til að
fylla í kassana. „Við verðum að
gera okkur ánægða með það sem
við fáum. En við verðum auðvit-
að ánægðari eftir því sem við
fáum meira. Vandamálið í þessu
er kvótinn. í landi eru menn
ánægðastir þegar við erum með
lítið. Þetta er allt hálf öfugsnú-
ið,“ bætti Þorbjörn við og hló.
Ef allt gengur að óskum landar
Sólbergið í Ólafsfirði nk. föstu-
dag. óþh
-bjb
Athugasemd frá
félagsmálastjóra
Nýverið afgreiddi bæjarstjórn
Akureyrar fjárhagsáætlun fyrir
árið 1989. Að gefnu tilefni vill
undirritaður að fram komi, að
samkvæmt þessari áætlun mun
Akureyrarbær verja kr. 15.000
þús. til nýbyggingar dagvistar á
árinu, kr. 2.800 þús. til sérstaks
frágangs á heimreiðum og bíla-
stæðum eldri dagvista og um það
bil 11.500 þús. kr. til nýrra leik-
valla, viðhalds og endurbóta dag-
vista og leiksvæða.
Með þökk fyrir birtinguna.
Jón Björnsson, félagsmálastjóri
Akureyrarbæjar.