Dagur - 14.03.1989, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 14. mars 1989 - DAGUR - 3
Drangey SK-1 og Skagfirðingur SK-4:
Koma í fyrsta skiptið
til heimahafnar
úr slipp í Bretlandi
Nýju togarar Sauðkrækinga,
Drangey SK-1 og Skagfirðing-
ur SK-4, koma í fyrsta skiptið
til heimahafnar að öllum lík-
indum annað kvöld, en skipin
lögðu af stað úr slipp í Huli í
Bretlandi sl. laugardagskvöld.
Skagfirðingur lagði fyrst af
stað og Drangey sex tímum
síðar.
Að sögn Ágústs Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Út-
gerðarfélags Skagfirðinga, voru
skipin heldur lengur í slipp en
áætlað var upphaflega en að öðru
leyti hafi allt gengið vel. Ágúst
fór ásamt yfirmönnum skipanna
út til Hull til að fylgjast með
lokasprettinum í slippnum.
Sem sagt; Sauðárkróksbúar
geta fengið að berja þessi frægu
skip augum í fyrsta skiptið á
morgun, þegar þau munu sigla í
höfn. Ekki er enn vitað um ná-
kvæma tímasetningu en líklega
verður komið undir kvöld. -bjb
Húsavík:
Kolbeinsey landar
í Þýskalandi
Iif og flör á Öxnadalsheiðhmi
Það var líf og fjör á Öxna-
dalsheiöinni seinni partinn á
sunnudag. Þá var orðið nokk-
uð þungfært efst á heiðinni og
áttu nokkrir bílstjórar í vand-
ræðum með að komast yfir.
Ökumenn voru á misjafnlega
vel útbúnum bílum en þeir sem
ekki lentu í vandræðum, voru
duglegir að hjálpa öðrum vcg-
farendum. Á meðal þeirra sem
þarna voru á ferð, voru knatt-
spyrnumenn úr Þór ásamt
nokkrum fjölskyldumeðlimum.
Þeir voru að koma úr æfinga-
ferð úr Reykjavík en fengu
aukaæfingu á Öxnadalsheið-
inni, við að ýta og moka snjó,
cins og sést á myndinni.
Öxnadalsheiðin var á þessunt
tíma aðeins fær stórum bílum
og jeppum en að sögn vega-
gerðarmanna stóð til að opna
hana fyrir allri umferð um miðj-
an daginn í gær. -KK
Knattspymumenn úr Þór á heimleið úr Reykjavík, fengu
aukaæilngu á Öxnadalsheiðinni á sunnudag, við að ýta
rútunni sem þeir voru á og moka frá henni snjó. Á inn-
felldu myndinni tekur júgóslavneski leikmaðurinn Luca
KostÍC góða „rispu“ á skóflunni. Myndir: KK
Kolbeinsey ÞH-10 sigldi af stað
til Þýskalands á sunnudag með
165 tonn sem skipið fékk á
miðununum fyrir suður- og
suðausturlandi. Adinn er aðal-
lega karfi en einnig grálúða og
eitthvaö af ýsu og löngu. Kol-
beinsey mun selja afla sinn í
Þýskalandi föstudaginn 17.
mars.
„Maður dinglar í lausu lofti,
það er allt búið að vera svo
ruglað. Annars býst ég aldrei við
nema góðu meðan ég fæ ekki
annað í hausinn og ég spái því að
veðrið verði þokkalegt,“ sagði
Kristján Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Ishafs hf, aðspurð-
ur um hvaða verð hann héldi að
fengist fyrir aflann. Á ýmsu hefur
gengið á fiskmarkaði í Þýska-
landi undanfarna daga, vegna
mikils framboðs af karfa frá ís-
landi.
Rækjutogarinn Júlíus Havsteen
hefur verið á þorskveiðum til að
sjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur
fyrir hráefni, meðan Kolbeinsey
var að fiska fyrir siglinguna.
Júlíus landaði 26 tonnum sl föstu-
dag og mun landa aftur nú í vik-
unni en halda síðan til rækju-
veiða á ný. Sagðist Kristján
reikna með að þetta hengi
saman, þannig að vinna héldist í
fiskiðjusamlaginu fram að pásk-
um. IM
Þetta
VATM5RÚM
og mörg
fleiri f
Akureyrarbær:
Fiirnur Birgisson
vinnur að
endurskoðun
aðalskipulags
Finnur Birgisson, arkitekt og
fyrrverandi skipulagsstjóri
Akureyrarbæjar, vinnur að
endurskipulagi aðalskipulags
Akureyrar. Hér er um verk-
efni að ræða sem tekur nokkra
mánuði en vinna við það var
áður hafin hjá skipulagsdeild
bæjarins.
Finni var falið að vinna þetta
verkefni og gerður við hann sér-
stakur samningur þar að lútandi.
Undanfarin ár hefur verið unnið
við þetta verkefni á vegum emb-
ættis skipulagsstjóraembættisins.
Finnur sagði að vinna við endur-
skoðunina hefði ekki gengið
nógu vel á sínum tíma og væri
töluvert eftir af verkinu. Því
hefði verið samið við sig um að
ljúka endurskoðun aðalskipulags
bæjarins í haust eða fyrrihluta
næsta vetrar.
Þegar teikningar verða tilbún-
ar verður aðalskipulagið kynnt
opinberlega fyrir bæjarstjórn og
bæjarbúum. Um er að ræða
skipulag bæði eldri og nýrra
bæjarhverfa. Finnur hóf vinnu
við verkið í febrúarbyrjun. EHB