Dagur - 14.03.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 14. mars 1989
Úrslitakeppnin í blaki:
KA fór létt með HK
- sigraði 3:0 í skemmtilegum leik
KA átti í litlum erfíðleikum með
HK í úrslitakeppninni í blakinu í
IþróttahöIIinni á sunnudagskvöld-
ið. Það tók Akureyrarpiltana að-
eins tæpan klukkutíma að leggja
Kópavogsbúana í þremur hrinum
gegn engri.
Allt annað var að sjá til KA-liðsins
en í síðasta leik gegn Þrótti. Nú var
liðsheildin í lagi, varnarleikurinn
sterkur og sóknarleikurinn fjöl-
breyttur og skemmtilegur. HK-pilt-
arnir áttu ekkert svar við þessu og
urðu að sætta sig við enn eitt tapið
gegn KA í vetur.
KA kom ákveðið til leiks í fyrstu
hrinunni og virkuðu gestirnir dálítið
úti á þekju. Hávörnin var ekki nógu
sterk hjá þeim og smössuðu þeir
Stefán Magnússon og Gunnar Garð-
arsson hvað eftir annað á glæsilegan
hátt í gólfið hjá Kópavogsbúunum.
Það tók því KA aðeins rúmar
fimmtán mínútur að klára þessa
fyrstu hrinu og voru lokatölur í henni
15:3.
Næsta hrina var mun jafnari. HK-
liðið hresstist til muna og var mikil
barátta hjá báðum liðum. KA skor-
aði fyrstu stigin en HK jafnaði og
jafnt var á flestum tölum fram í
miðja hrinu. Þegar staðan var 8:8 var
komið að Fei að gefa upp fyrir KA
og á nokkrum mínútum innsigluðu
heimamenn sigurinn 15:8 í þessari
hrinunni.
Þriðja lotan var hin besta skemmt-
un fyrir, hina þó nokkuð mörgu,
áhorfendur sem leið sína lögðu í
íþróttahöllina á sunnudagskvöldið.
KA virtist ætla að rúlla yfir gestina í
byrjun og komust þeir í 9:2. Þá tók
HK-liðið góðan sprett og sáust marg-
ar gullfallegar sóknarlotur hjá báð-
um liðum.
Einkum vakti góð samvinna
Hauks, Sigurðar Arnar og Stefáns
Magnússonar í sókninni athygli.
Haukur fékk boltann og bæði Stefán
og Sigurður Arnar stukku upp þann-
ig að hávörn HK vissi ekki hvorn ætti
að dekka. Haukur spilaði síðan á
þann sem frír var og þannig skoraði
KA tvö gullfalleg stig í lotunni. Þetta
kunnu áhorfendur vel að meta og
klöppuðu þeim lof í lófa.
HK saxaði á forskot KA en tókst
aldrei að ógna því að neinu ráði. Það
var síðan Stefán Jóhannsson sem
innsiglaði sigur KA með fallegri
laumu 15:10.
Varla er hægt að gera upp á milli
leikmanna KA í þessum leik. Þetta
var sigur liðsheildarinnar en vert er
að geta stórleiks Fei þjálfara í síð-
ustu hrinunni. En sem sagt KA virð-
ist á leið úr lægð og gefur það góða
von að liðið geti tryggt sér íslands-
meistaratitilinn í leiknum gegn Þrótti
í næstu viku fyrir sunnan.
Hjá HK bar mest á bræðrunum
Geir og Vigni Hlöðverssyní og var
Geir raunverulega sá eini sem gat
skorað fram hjá sterkri vörn KA-
liðsins.
Næsti leikur KA-liðsins er gegn
Þrótti á laugardaginn kemur í
Reykjavík en sá leikur er í 4-liða úr-
slitum í Bikarkeppninni
íþróttir
Samvinna Sigurðar Arnars og Stefáns Magnússonar í sókninni vakti mikla athygli í leiknum gegn HK. M>'nd: TLV
Punktamót á Dalvík:
Anna María með tvö gull
- Valdimar og Helgi sigruðu í karlaflokki
Þór tapaði
fyrir Seifossi
Þór varð að sætta sig við tap gegn
Selfossi 24:22 í 2. deildinni í hand-
knattleik á Iaugardaginn í Iþrótta-
höllinni. Leikurinn var jafn og
spennandi og með smá heppni
hefðu stigin tvö getað orðið eftir á
Akureyri.
Jafnt var á flestum tölum í fyrri
hálfleik en Þórsarar höfðu undirtök-
in framan af hálfleiknum. Þeir náðu
m.a. tveggja marka forskoti 10:8, en
misstu dampinn rétt fyrir leikhlé og
létu gestina skora þrjú síðustu mörk-
in í hálfleiknum.
Þórsarar byrjuðu síðari hálfleikinn
mjög illa og náðu Selfyssingar
þriggja marka forskoti 14:11 og virt-
ust ætla að rúlla yfir heimamenn. En
þá var komið að Sævari Árnasyni og
skoraði hann þrjú mörk í röð og
jafnaði leikinn.
Liðin skiptust nú á að skora og
stefndi í æsispennandi lokamínútur.
En öfugt við það sem oftast hefur
verið í vetur, þá fór Þórsliðið á taug-
um í sókninni undir lok leiksins,
ótímabær skot, vafasamar sendingar
og misheppnuð hraðaupphlaup.
Gestirnir gengu því á lagið og
tryggðu sér sigur 24:22.
Þetta var ágætur leikur á margan
hátt og sýndu bæði liðin á köflum
góðan handknattleik. Selfyssingar
tryggðu sér með þessum sigri öruggt
sæti í 2.deildinni en Þórsarar eru enn
í bullandi fallhættu.
Hjá Þór bar mest á Páli Gíslasyni
og skoraði hann falleg mörk í sókn-
inni. Gamla kempan Árni Stefáns-
son spilaði nú aftur með Þórsurum
og stóð sig vel í vörninni. Hins vegar
lét hann verja tvisvar hjá sér í sókn-
inni á mikilvægum augnablikum, en
á heildina litið styrkir hann liðið mik-
ið og vonandi að hann haldi áfram í
hinum mikilvægu leikjum sem fram-
undan eru hjá liðinu. Sævar var seinn
í gang en sýndi hvað í honum býr í
síðari hálfleik.
Hjá Selfossi var Magnús Sigurðs-
son atkvæðamestur og réðu Þórsarar
lítið við hann í sókninni. Einnig
varði Ólafur Einarsson markvörður
vel undir lok leiksins og réði það
miklu um sigur Selfyssinga.
Mörk Þórs: Páll Gíslason 9, Sævar Árnason
5, Ingólfur Samúelsson 4, Atli Rúnarsson 2,
Árni Stefánsson I og Kristinn Hreinsson 1.
Mörk Selfoss: Magnús Sigurðsson 9,
Sigurður Þórðarson 6. Smári Stefánsson 3.
Grímur Hergeirsson 3, Einar Gunnar Sig-
urðsson 2, Sverrir Einarsson 1.
Um helgina fór fram punktamót í
stórsvigi í flokki fullorðinna í
Böggvisstaðafjalli við Dalvík.
Keppt var bæði á laugardag og
sunnudag og er alveg óhætt að
segja að veðrið hafi leikið við
bæði keppendur og þá fjölmörgu
skíðamenn sem skemmtu sér kon-
unglega í bráðskemmtilegum
skíðabrekkum í Böggvisstaða-
fjalli.
Á laugardag var glaðasólskin og
hlýtt í veðri. Sólin lét einnig sjá sig á
sunnudag, en eilítið var þá kaldara í
veðri.
Keppni var mjög jöfn og spenn-
andi bæði í karla- og kvennaflokki og
var mjótt á munum í baráttunni um
verðlaunasæti. Flestir bestu skíða-
menn landsins voru mættir til leiks,
en óneitanlega söknuðu menn þeirra
Örnólfs Valdimarssonar, Reykjavík,
og nýkjörins íþróttamanns Norður-
lands, Guðrúnar Kristjánsdóttur,
Akureyri. Skíðaáhugafólk verður
væntanlega að bíða eftir landsmótinu
um páskana, sem haldið verður að
þessu sinni í Siglufirði, til að sjá alla
bestu skíðamenn landsins saman-
komna.
Anna María Malmquist, Akur-
eyri, virðist í geysilega góðri æfingu
um þessar mundir og hún keyrði
báða dagana af miklu öryggi. Hún
náði sigri á laugardag með nokkrum
yfirburðum en María Magnúsdóttir,
Akureyri, veitti henni harða keppni
á sunnudag og náði öðru sætinu með
aðeins lakari tíma. María varð einnig
í öðru sæti stórsvigskeppninnar á
laugardag og Margrét Rúnarsdóttir
ísafirði varð þriðja báða dagana.
Tímar fjögurra efstu í kvennaflokki
voru sem hér segir:
Laugardagur:
1. Anna María Malmquist A 158,84
2. María Magnúsdóttir A 160,17
3. Margrét Rúnarsdóttir í 161,49
4. Sara Halldórsdóttir í 164,21
Sunnudagur:
1. Anna María Malmquist A 153,13
2. María Magnúsdóttir A 153,60
3. Margrét Rúnarsdóttir í 156,60
4. Þórunn Pálsdóttir í 158,85
Keppni var ekki síðri í karlaflokki.
Sömu fjóru kapparnir röðuðu sér í
fjögur efstu sætin báða dagana.
Valdimar Valdimarsson, Akureyri,
keyrði glæsilega á laugardag og
tryggði sér sigur en Helgi Geirharðs-
son, Ármanni, náði öðru sæti. Þeir
félagar höfðu sætaskipti á sunnudag.
Valdimar var með forystu eftir fyrri
ferð og stefndi ótrauður á tvöfaldan
sigur. Helgi keyrði af miklu öryggi
og krafti í seinni ferð og náði bestum
tíma, sem nægði honum til að vinna
sigur. Gamli kappinn Daníel Hilm-
arsson, Dalvík, varð að sætta sig við
þriðja sætið báða dagana. í vetur
hefur skíðamaðurinn Daníel þurft að
víkja nokkuð fyrir trésmiðnum Dan-
íel. Trésmiðurinn er því ekki í sama
toppforminu og á gullárunum, þegar
hann var nánast ósigrandi. En svo
mikið er víst að Daníel hefur ekki
sagt sitt síðasta orð og það heyrðist
hvíslað í Böggvisstaðafjalli að aflok-
inni keppni á sunnudag að „Danni
myndi sko sína klærnar á landsmót-
inu í Siglufirði."
Tímar fjögurra efstu manna í stór-
sviginu voru eftirfarandi:
Laugardagur
1. Valdimar Valdimarsson A 146,07
2. Helgi Geirharðsson Árm. 147,03
3. Daníel Hilmarsson D 147,87
4. Vilhelm Þorsteinsson A 148,85
Sunnudagur
1. Helgi Geirharðsson Árm. 141,69
2. Valdimar Valdimarson A 142,18
3. Daníel Hilmarsson D 142,97
4. Vilhelm Þorsteinsson A 143,30
Sérstaka athygli vakti góður
árangur unga skíðafólksins, bæðí í
kvenna- og karlaflokki. Akureyring-
ar virðast ekki þurfa að kvíða fram-
tíðinni með keppnisfólk í alpagrein-
unum og fulltrúar bæði Ólafsfirðinga
og Dalvíkinga verða örugglega í eld-
línunni á næstu árum. Það verður
t.d. gaman að fylgjast með Kristni
Björnssyni, Ólafsfirði, og Jóni Áka
Bjarnasyni, Dalvík, í framtíðinni.
óþh
Svipmynd frá keppni í karlaflokki á Dalvík á sunnudaginn. Mynd: óþh