Dagur - 14.03.1989, Síða 9
Þriðjudagur 14. mars 1989 - DAGUR - 9
Göngumót á Ólafsfirði:
Þrefalt hjá Ólafsfirðingum
- í flokki 13-14 ára drengja
- Haukur Eiríksson fyrstur í karlaflokki
startað var við Tjarnarborg og
gengið í sveig upp fyrir norðan
Barnaskólann og til baka suður
að Tjarnarborg. Tími keppenda
var ekki tekinn en síðasti í hverj-
um riðli féll úr keppni. Þannig
þurftu efstu menn að ganga
nokkra hringi áður en úrslita-
hringurinn var genginn. Keppni
var geysilega hörð í sumum
flokkunum og gáfu keppendur
ekki tommu eftir. Síðasta hring-
inn gengu keppndur í flokki full-
orðinna, 17 ára og eldri, og
reyndist Haukur Eiríksson,
Akureyri, sterkastur eins og í
bikarmótinu daginn áður. Hann
virðist ósigrandi um þessar
mundir en Sigurgeir Svavarsson,'
Ólafsfirði, verður þó að teljast
líklegur til að veita honum harða
keppni á íslandsmótinu í Siglu-
firði um páskana.
Úrslit í útsláttarkeppninni
voru sem hér segir:
Stúlkur
1. Hulda Magnúsdóttir S
2. Lena Rós Matthíasdóttir Ó
3. Guðbjörg Sigurðardóttir í
4. Thelma Matthíasdóttir Ó
Drengir 13-14 ára
1. Gísli Árnason í
2. Tryggvi Sigurðsson Ó
3. Kristján Hauksson Ó
4. Árni Elíasson í
Piltar 15-16 ára
1. Daníel Jakobsson í
2. Guðmundur Óskarsson Ó
3. Bjarni Brynjólfsson í
4. Kristján Ólafsson A
Karlar 17 ára og eldri
1. Haukur Eiríkssson A
2. Sigurgeir Svavarsson Ó
3. Ólafur Valsson S
4. Sölvi Sölvason S
óþh
Norðurlandsmót öldunga í blaki:
Óðinn sigraði í karlaflokki
og Völsungur í kvennaflokki
- í allt tóku 13 lið þátt í mótinu
Blakdeild Óðins stóð fyrir
Norðurlandsmóti Öldunga, 30
ára og eldri, á laugardaginn.
Keppt var í íþróttahöllinni á
Akureyri á laugardaginn og
tóku 13 lið þátt í mótinu. I
karlaflokki sigraði lið Óðins en
í kvennaflokki sigraði lið
Völsunga frá Húsavík.
Mótið hófst kl. 15.30 og var
því ekki lokið fyrr en nokkru eft-
ir miðnætti. Góður rómur var
gerður að þessu móti og er stefnt
að því að þetta geti orðið árlegur
viðburður og flytjist þá mótið á
milli staða hér Norðanlands.
Það voru sjö lið í karlaflokki
og sex í kvennaflokki sem þátt
tóku í mótinu.
í karlaflokki kepptu:
UNÞ frá Kópaskeri
Blakfélagið Rimar á Dalvík
Krókur á Sauðárkróki
Hyrnan, Siglufirði
Snepill í Stórutjarnarskóla
Blakdeild Óðins á Akureyri og
Skautafélag Akureyrar
í kvennaflokki kepptu:
Eik, Akureyri
Blakfélagið Rimar frá Dalvík
Krækjur frá Sauðárkróki
Súlur frá Siglufirði
Völsungur frá Húsavík
Óðinn, Akureyri
Lið Völsungs frá Húsavík sigraði í kvennaflokki.
Allt sterkasta göngufólk lands-
ins mætti til leiks í Ólafsfirði
um helgina, en á laugardag var
þar haldið bikarmót SKÍ í
göngu í flokki stúlkna 13-15
ára og flokki karla 13-14 ára,
15-16 ára, 17-19 ára og 20 ára
og eldri. Á sunnudag fór fram
stórskemmtileg útsláttar-
keppni í göngu.
Veður var eins og best verður á
kosið á laugardag og fylgdust
fjölmargir áhorfendur með
göngugörpunum. Til leiks mættu
30 keppendur frá Siglufirði,
Ólafsfirði, Akureyri, ísafirði og
Fljótum. Úrslit voru sem hér
segir:
13-15 ára stúlkur (2,5 km) mín.
1. Hulda Magnúsdóttir S 10,35
2. Guðbjörg Sigurðard. í 11,46
3. Sólveig H. Valgeirsd. A 12,02
13-14 ára piltar (5 km) mín.
1. Kristján Hauksson Ó 17,46
2. Tryggvi Sigurðsson Ó 18,02
3. Ásgrímur S. Þorsteinss. Ó 18,08
15-16 ára piltar (7,5 km) mín.
1. Daníel Jakobsson í 22,35
2. Sigurður Sverrisson S 24,12
3. Guðmundur Óskarsson Ó 24,30
17-19 ára piltar (10 km) mín.
1. Sölvi Sölvason S 32,45
2. Sveinn Traustason F 34,05
3. Óskar Jakobsson í 36,02
20 ára og eldri (15 km) mín.
1. Haukur Eiríksson A 43,24
2. Sigurgeir Svavarsson Ó 45,47
3. Baldur Hermannsson S 46,14
Á sunnudag var stórskemmti-
leg göngukeppni með útsláttar-
fyrirkomulagi. Keppendur voru
fjölmargir og mátti m.a. sjá
gamlar kempur eins og Björn Þór
Ólafsson, Ólafsfirði, og Magnús
Eiríksson, Fljótum, taka léttar
„Gunde Svan-skautasveiflur“.
Gönguhringurinn var stuttur,
u
Gömlu brýnin Magnús Eiríksson frá Siglufirði og Haukur Sigurðsson frá
Ólafsflrði kepptu á Ólafsfirði og stóðu sig vel. Mynd: óþh
Aðalfundur
Aðalfundur Funa verður haldinn í Frey-
vangi, fimmtudaginn 16. mars n.k. ki. 21.00.
Dagskrá:
1. Lagabreytingar.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Lausar stöður
Með skírskotun til 3. og 6. gr. laga nr. 18/1988, um Háskól-
ann á Akureyri, eru eftirtaldar stöður við skólann hér með
auglýstar lausar til umsóknar:
1. Staða rektors.
2. Staða skrifstofustjóra.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegum upplýsingum um menntun og
störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík, fyrir 5. apríl n.k.
Menntamálaráðuneytið, 7. mars 1989.
Leikfélag Dalvíkur
„Dysin“
Úr aldarannál
Eftir Böðvar Guðmundsson.
Leikstjóri Þráinn Karlsson.
3. sýning þriðjudaginn 14. mars kl. 21.00.
4. sýning föstudaginn 17. mars kl. 21.00.
5. sýning laugardaginn 18. mars kl. 21.00.
Miðapantanir í síma 96-61397 milli kl. 5
og 7 sýningardagana.
Eldridansa-
klúbburinn
Dansleikur
í Lóni Hrísalundi 1,
laugardaginn 18. mars kl. 22.00-03.00.
Hljómsveit Bigga Mar sér um fjörið.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
----------------------------------------------------------------------------\
AKUREYRARB/ER
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Fimmtudaginn 16. mars 1989 kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Bergljót Rafnar og Sigríður Stef-
ánsdóttir til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra,
Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.