Dagur - 17.03.1989, Side 4
c..HU04CJ - 68er aism .VI miggbi^öH
4 - DAGUR - Föstudagur 17. mars 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 80 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÓRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
S álfsákvörðunarréttur
)jóðarmnar er í húfi
Miklar umræður hafa skapast um hvalveiðar íslendinga
eftir að myndin „Lífsbjörg í Norðurhöfum" var sýnd í
Sjónvarpinu á þriðjudagskvöld. Skiptar skoðanir eru um
ágæti myndarinnar og verður ekki tekin afstaða til
hennar hér. Hins vegar má fullyrða að myndin hefur
orðið til þess að vekja menn til alvarlegrar umhugsunar
um stöðu okkar gagnvart samtökum á borð við Græn-
friðunga og fá almenning til að taka skýrari afstöðu
með eða á móti starfsaðferðum þeirra.
Segja má að ef málið snerist eingöngu um það hvort
Islendingar ættu að hætta hvalveiðum í vísindaskyni
eða ekki, lægi hin rétta ákvörðun í augum uppi: Okkur
bæri að hætta þeim þegar í stað, til að koma í veg fyrir
að fjárhagslega vel stæð alþjóðasamtök á borð við
Grænfriðunga ynnu tjón á útflutningsmörkuðum okkar.
Fórna sem sagt minni hagsmunum fyrir meiri. En málið
snýst bara ekki um það. Það snýst þvert á móti um
stærsta hagsmunamál þjóðarinnar, þ.e. sjálfsákvörðun-
arrétt íslendinga til að ráða sjálfir stærstu auðlindum
sínum - fiskimiðunum kringum landið og sókninni í
þau. Þetta kom skýrt fram í myndinni „Lífsbjörg í
Norðurhöfum" og er tvímælalaust mikilvægasti boð-
skapur hennar.
í myndinni fékkst óyggjandi staðfesting þess að
Grænfriðungar hafa þegar tekið fiskverndunarmál á
dagskrá hjá sér. Þar segir Michael G. Nielsen, talsmað-
ur Grænfriðunga, orðrétt: „Grænfriðungar hafa lengi
barist fyrir verndun sela og hvala en við verðum að fara
að líta á vistkerfið í heild sinni. Þess vegna verðum við
að líta nánar á fiskveiðar. Við hefjum bráðlega aðgerðir,
ekki gegn íslendingum, heldur einbeitum okkur í
fyrstu að veiðum í Barentshafinu. “ Það er sem sagt
opinberlega staðfest að Grænfriðungar ætla að hafa
afskipti af fiskveiðum og þótt þeir taki Barentshafið
fyrst, hafa þeir boðað að þeir ætli að líta á ísland í fram-
haldinu. íslendingar munu ekki og geta ekki sætt sig
við slíka íhlutun. Þess vegna má hvergi hopa í hvala-
málinu nú.
Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, var
spurð að því í umræðuþætti eftir sýningu myndarinnar
„Lífsbjörg í Norðurhöfum“, hvort hún teldi að svo gæti
farið að Grænfriðungar eða önnur ámóta samtök færu
að hlutast til um fiskveiðar okkar. Hún taldi það ólík-
legt, þrátt fyrir það sem talsmaður Grænfriðunga sagði
í myndinni. En síðan bætti forseti sameinaðs þings við:
„En ég skal ekki segja ef íslendingar fara að haga sér á
þann veg að sameiginlegir þorskstofnar væru í hættu,
þá getur vel verið að Greenpeace kæmi til skjalanna
eða einhver önnur umhverfisverndarsamtök. “ Það er
með ólíkindum að einn af handhöfum forsetavalds skuli
tilbúinn til að leyfa útlendingum að hlutast til um
stjórnun þeirrar auðlindar sem íslendingar byggja lífs-
afkomu sína fyrst og fremst á. Reyndar er það regin-
hneyksli og hefur ekkert með þjóðrækni að gera.
Það er deginum ljósara að íslendingar mega ekki gefa
þumlung eftir í baráttunni um að fá sjálfir að ráða sókn-
inni í stofnana í hafinu kringum ísland. Við stöndum í
enn einu landhelgisstríðinu og verðum að vinna sigur
-rrú sem fyrr. BB.
1 Hvað er oð gerast
„Bigband“-
tónleikar
á Akureyri
og á Húsavík
Léttsveit Tónmenntaskóla
Reykjavíkur heimsækir Akureyri
og Húsavík um næstu helgi.
Hljómsveitin er skipuð 18
nemendum á aldrinum 14-17 ára
og er Sæbjörn Jónsson stjórnandi
hljómsveitarinnar. Léttsveit Tón-
menntaskólans var stofnuð fyrir
þremur árum og hefur komið all-
víða fram í Reykjavík að undan-
förnu og lék m.a. í sjónvarpsút-
sendingu á Stöð 2 nýverið.
Á Akureyri heldur Léttsveit
Tónmenntaskólans sameiginlega
tónleika með Stórsveit Tónlistar-
skólans á Akureyri, laugardaginn
18. mars kl. 17, í Möðruvalla-
kjallara Menntaskólans á Akur-
eyri. Stjórnandi Stórsveitar Tón-
listarskólans á Akureyri er
Robert C. Thomas. Sunnudaginn
19. mars heldur Léttsveit Tón-
menntaskólans til Húsavíkur og
leikur þar ásamt Léttsveit Húsa-
víkur á tónleikum kl. 15.
Stjórnandi Léttsveitar Húsa-
víkur er Keith R. Miles.
Nú hefur vélfrysta skautasvæðið
við Krókeyri verið rekið frá því í
byrjun nóvember. Á þessum
fjórum og hálfa mánuði hafa að-
eins fallið úr um 25 dagar vegna
veðurs, þó að tíðarfar hafi mik-
inn hluta tímans verið mjög
rysjótt. Alls hefur svellið því ver-
ið opið rúmlega 100 daga á þessu
tímabili. Yfirleitt hefur aðsókn
almennings að svellinu verið
mjög góð, ef veður hefur verið
gott.
Það hefur háð nokkuð starf-
semi þeirra sem æft hafa íshokkí
í vetur að ekki hefur verið unnt
að fá neina til að keppa við,
hvorki hér í bæ eða annars staðar
frá. Fjöldi iðkenda í yngri flokk-
um hefur samt aukist verulega í
vetur.
Nú er kominn sá tími árs, þeg-
ar sól er komin það hátt að á
heiðskírum dögum gætir veru-
Iegrar sólbráðar. Það hefur sýnt
sig að á slíkum dögum er sólbráð-
in það sterk, að engin frysting
virðist ráða við slíkt.
Laugardagsmorguninn 18.
mars verður haldinn stofn-
fundur samtaka um gróður-
vernd, landgræðslu og land-
nýtingu í Hlíðskjálf, Hótel
Húsavík kl. 10:30.
Stofnfundinum var frestað
vegna tímaskorts á fjölsóttri ráð-
stefnu sem haldin var á Húsavík
4. mars. Á fundinum verður
kjörin undirbúningstjórn sem
semja mun lög og gera fjárhags-
áætlun fyrir aðalfund samtak-
anna. Bæði einstaklingar og fé-
lagasamtök geta gerst aðilar að
samtökunum en tilgangur þeirra
er að sameina krafta áhugaaðila
Léttiskonur
með kökubasar
Kvennadeild hestamannafélags-
ins Léttis á Akureyri hyggst
standa fyrir kökubasar um helg-
ina. Þangað verður upplagt að
koma og gera góð kökukaup fyrir
páskana því úrvalið verður glæsi-
legt, að sögn þeirra Léttis-
kvenna. Kökubasarinn verður
haldinn í Slysavarnafélagshúsinu
við Laxagötu 5 á morgun, laugar-
dag og hefst kl. 14.00.
Norðurlandsdeild Landssamtaka
áhugafólks um flogaveiki
(LAUF) stendur fyrir kökubasar
Því hefur verið ákveðið, að nú
frá miðjum mars og fram yfir
páska verði aðeins opið fyrir
almenning á kvöldin milli kl.
20.15 og 22.15. Eftir sem áður
geta einstaklingar og hópar pant-
að svellið á öðrum tímum, eftir
því sem aðstæður leyfa. Yfirleitt
er t.d. svellið í góðu lagi á
morgnana, þó að sólin skíni og
einnig á öðrum tímum ef það er
sólarlaust.
Hægt er að panta slíka tíma
með því að lesa skilaboð inn á
símsvara svæðisins, 27740.
Skautafélag Akureyrar.
Steingrímur Th. Sigurðsson
opnar málverkasýningu í
um átak í umhverfismálum á
Húsavík. IM
Háskólinn á Akureyri, Mennta-
skólinn á Akureyri og Vísinda-
félag Norðlendinga efna til opin-
bers fyrirlestrar á laugardag og
sunnudag í Möðruvöllum, húsi
Menntaskólans, stofu M 2. Björn
Jónsson, læknir frá Swan River í
Leikfélag Akureyrar:
Virgmía
og
Emil
Leikfélag Akureyrar sýnir Emil í
Kattholti á sunnudaginn kl. 15 og
kl. 18. Þetta eru allra síðustu sýn-
ingar á barnaleikritinu vinsæla.
Þá fer sýningum fækkandi á
leikritinu Hver er hræddur við
Virginíu Woolf?
Næstu sýningar á Virginíu
verða föstudaginn 17. mars, laug-
ardaginn 18. mars, fimmtudaginn
23. mars, laugardaginn 25. mars
og mánudaginn annan í páskum.
Sýningar hefjast kl. 20.30. Látið
þetta áhrifamikla verk ekki
framhjá ykkur fara.
á morgun, laugardaginn 18. mars
kl. 14 í Lóni við Hrísalund.
Ágóði mun væntanlega renna til
starfsemi deildarinnar.
Tveir fundir verða haldnir á
vegum deildarinnar í næstu viku
á Hótel KEA. Sigríður Ólafs-
dóttir þjóðfélagsfræðingur í
Reykjavík stendur fyrir fræðslu á
báðum þessum fundum. Hún
mun fjalla um félagsleg réttindi
flogaveikra, segja fréttir af
LAUF-félaginu í Reykjavík,
segja frá nýjum rannsóknarað-
ferðum við greiningu á flogaveiki
og einnig svara fyrirspurnum.
Fyrri fundurinn verður mánu-
daginn 20. mars kl. 20 að Hótel
KEA. Sá fundur er eingöngu ætl-
aður flogaveikum einstaklingum.
Síðari fundurinn verður þriðju-
daginn 21. mars kl. 20 að Hótel
KEA. Hann er eingöngu ætlaður
aðstandendum flogaveikra og
öðrum sem áhuga hafa á floga-
veiki. Nýir félagar eru velkomnir
á fundina.
Gamla Lundi við Eiðsvöll á
Akureyri í dag, föstudaginn
17. mars.
Þetta er 66. sýning Steingríms
og sú fimmta á Ákureyri en hann
sýndi þar fyrst árið 1967. Þessi
sýning er sérstaklega tileinkuð
fóstra Steingríms og vini, Vern-
harði Þorsteinssyni, sem fæddist
eimitt í Lundi.
Sýningin er opin föstudag kl.
18.00-23.30, laugardag og sunnu-
dag kl. 14.00-23.30, mánudaginn
20. mars kl. 18.00-23.30 og
þriðjudaginn 21. mars kl. 14.00-
23.30.
Manitóba, Kanada, mun flytja
fyrirlestra um stjarnvísi í Eddum.
Fjalla þeir um stjarnfræðilegar
skýringar á ýmsum goðsögnum í
Snorra-Eddu. Báðir fyrirlestr-
arnir hefjast klukkan 14.00. Allir
áhugamenn velkomnir.
Skautasvæðið við Krókeyri:
Opið á kvöldin
Húsavík:
Átak í
umhverfismálum
- stofnfundur samtakanna
Norðurlandsdeild LAUF:
Heldur kökubasar
Akureyri:
Steingrímur sýnir
í Gamla Lundi
Stjamvísi í Eddum
- opinber fyrirlestur á Akureyri