Dagur - 17.03.1989, Side 9
Föstudagur 17. mars 1989 - DAGUR - 9
Frá Svalbarðseyri - þar starfaði lengi eitt af eistu kaupfélögum landsins.
Á Svalbarðseyri var lengi starfrækt
nautgripaslátrun.
Skömmu eftir stofnun Pöntun-
arfélags KSÞ var Þórður í Höfða
spurður: „Hver er munur á að
versla við KSP eða verslun á
Akureyri?“ - Og Pórður svarar
og „segir 43% hagnað að versla
við KSÞ næstliðið ár miðað við
að versla við kaupmenn á Akur-
eyri, og mun sú niðurstaða hafa
verið ærið umhugsunarefni
fátækum bónda með lítinn gjald-
eyri- (Egill Áskelsson Byggðir
og bú 1963.)
Svalbarðseyri varð löggiltur
verslunarstaður árið 1894, og
einnig var „Eyrin“ valin til
útskipunar á sauðum úr Þingeyj-
ar- og Eyjafjarðarsýslum - en
sauðir voru þá gjaldeyrir bænda
og fluttir lifandi til Englands.
„Sauðasalan lagðist hér niður
1906. Varð þá félagið að taka
upp sauðfjárslátrun og kjötsölu.
- Fyrstu árin var ekkert hús að
slátra í, en kjötið saltað í eldri
skúrnum. Árið 1908 var byggt
sláturhús norðan við skúrana.
Fyrstu árin var þó kjöt saltað í
gamla skúrnum, þar til byggt var
við sláturhúsið, en gærur saltaðar
í skúrnum. Árið 1911 keypti
félagið verslunar- og íbúðarhús
Guðmundar Péturssonar. (Síðar
útgerðarm. á Ak. - O.L.) Tók
það þá vörubúðina fyrir kram-
vöru, en í kjallaranum var höfð
kornvara. Þegar sláturhúsið var
komið, var formaður, - sem allt-
af hafði haft á hendi vöruafhend-
ingu, - enn fremur bundinn við
sláturhúsið. Varð ekki komist hjá
að taka honum til aðstoðar mann
um sláturtímann. Síðan var ráð-
inn afhendingarmaður um tvo
daga í viku.
Árið 1933 keypti „Svalbarðs-
eyrarfélagið" að hálfu móti KEA
Svalbarðseyrina, frystihúsið,
(Byggt af Birni Líndal. - O.L.)
tvö hús og tvær síldarsöltunar-
bryggjur með plönum. Frystihús-
kaupin voru félaginu mesta lyfti-
stöng vegna kjötsölunnar." -
(Svalbarðsstrandarbók.)
Það syrti mjög í álinn fyrir
félaginu á kreppuárunum eftir
1930. Skuldir manna voru orðnar
of miklar við félagið og. víðar
hversu sparlega sem lifað var. En
vegna þess hve þetta var almennt
ástand í landinu var Kreppulána-
sjóður stofnaður að tilhlutun
stjórnvalda. Fékk félagið þá
greiddar skuldir manna að %
hlutum en 'A varð að greiðast af
sjóðum þess, og þannig flaut
reksturinn fram að stríðsárunum.
Eins og fyrr segir var Baldvin í
Höfða fyrsti formaður pöntunar-
félagsins, og jafnframt voru for-
menn framkvæmdastjórar þess.
Aðrir formenn KSÞ sem pöntun-
arfélagsins voru: Friðbjörn
Björnsson, Sigurður Sigfús
Bjarklind, Ingólfur Bjarnason og
Guðni Þorsteinsson. Langlengst
var Ingólfur formaður - í 30 ár.
Árið 1939 verða þáttaskil í
sögu KSÞ. Þá er einstaklings-
pöntunum hætt og opnuð dagleg
verslun með allar vörur. Finnur
Kristjánsson frá Halldórsstöðum
er þá ráðinn kaupfélagsstjóri og
umbótaframkvæmdir hefjast.
Á starfstíma Finns hjá félag-
inu, sem mun hafa verið um 14
ár, voru byggð útibú við Vagla-
skóg og á Fosshóli, vöruskemmur
á Svalbarðseyri, Lómatjörn og
Krossi, kartöflugeymsla á Sval-
barðseyri og íbúðarhús fyrir
kaupfélagsstjóra og fjölskyldu -
og er þá það helsta talið.
Næstur tók við kaupfélagsstjóra-
starfinu Skúli Jónasson frá Húsa-
vík, sem hélt áfram framkvæmd-
um. Voru þessar helstar á hans
starfstíma: Byggðar tvær vöru-
skemmur á Svalbarðseyri, slátur-
hús, fjárrétt og gærugeymsla á
Svalb. og loks verslunarhúsið.
Skúli var kaupfélagsstjóri í 16
ár, eða til 1969, en þá tók við í
tvö ár Valtýr Kristjánsson í Nesi.
Árið 1972 var Karl Gunnlaugs-
son á Svalbarðseyri ráðinn kaup-
félagsstjóri og var hann það til
loka féíagsstarfseminnar 1985. í
hans stjórnartíð voru þessar
framkvæmdir helstar: Byggð
kartöfluverksmiðja, byggt skrif-
stofuhúsnæði ofan á verslunar-
húsið og skrifara- og hreinlætis-
aðstaða við sláturhúsið. Byggt
stórt bogaskemmuhús í tengslum
við sláturhúsið og byggt við og
endurbætt Jakobshús fyrir mötu-
neyti og starfsfólk. Kartöflu-
geymslur voru endurbættar og
kétiðnaðaraðstaða innréttuð við
frystihúsið. Þá kostaði kaupfélag-
ið malbikun á eyrinni við öll
helstu hús þess, en aðal aksturs-
leiðin um eyrina var malbikuð á
vegum hreppsins.
Ekki man ég hve lengi Karl
hafði verið kaupfélagsstjóri þeg-
ar hann á aðalfundi félagsins ósk-
aði eftir að láta af starfinu því
reksturinn yrði æ erfiðari með
vaxandi skuldum og síauknum
fjármagnskostnaði. Ekki leist fé-
lagsmönnum vel á þetta og mælt-
ust til að hann héldi starfinu
áfram því ekki mundi verða til
bóta að maður öllu ókunnugur
tæki við.
Það er auðvelt að hafa úrræðin
á reiðum höndum eftir á, en
þarna virðist að þurft hefði að
stinga við fótum og taka rekstur
félagsins til rækilegrar umfjöllun-
ar. Ljóst var að tekjurnar uxu
ekki til jafns við kostnaðinn og
það gat ekki endað nema á einn
veg - gjaldþroti. Iðnaðarvinnslan
brást sem tekjustofn og sauð-
fjárslátrunin fór að dragast sam-
an og kartöfluuppskeran brást
sum árin.
Nú er saga KSÞ öll. Það fékk
ekki staðist - frekar en fjöldi
annarra atvinnu- og þjónustufyr-
irtækja - þenslu og okursfjár-
magnskerfi auðmangaranna í
þjóðfélaginu.
Samvinnu- og sameignarfyrir-
tæki eins og kaupfélögin eru
tengd lífi og starfi hvers félags-
manns, og styrkur þeirra og vel-
gengni byggist á skilningi og holl-
ustu félagsmanna, og svo efna-
legri velgengni hvers og eins
þeirra. Af sögu KSÞ má draga
vissa lærdóma um þetta.
Miklar vegalengdir á verslun-
arstað voru áþján sveitamanna
um aldir, og þess vegna var það
einn helsti kostur verslunar og
afurðastöðvar á Svalbarðseyri að
þangað var styttra að sækja fyrir
félagsmenn KSÞ en til Akureyr-
ar, sérstaklega þó þeirra austan
Vaðlaheiðar. -TClyfjaburðurinn
yfir heiðina var hestunum mikil
þolraun um vegleysur og oft í
svartamyrkri. Menn báru líka
þungar byrðar, en höfðu þann
kost umfram hestana að geta tyllt
sér niður til hvíldar.
Félagsmenn KSÞ voru flestir
félagar í Kaupfélagi Eyfirðinga
einnig, og þangað hefur nú bú-
fjárslátrun og fleiri viðskipti
KSÞ-bænda flust. Jafnframt hef-
ur flutningskostnaður þeirra á
búfé og rekstrarvörum aukist
sem munar vegalengdinni Sval-
barðseyri-Akureyri.
I lokin þarf ég að geta þess að
Svalbarðsdeild og Höfðahverfis-
deild gengu aftur í KSÞ, og auk
þeirra stóðu að félaginu þegar
það hætti störfum þrjár deildir í
Fnjóskadal og tvær við austan-
vert Ljósavatnsskarð.
Þessi grein er aðeins lauslegt
yfirlit um sögu Kaupfélags Suð-
ur-Þingeyinga, skrifuð af per-
sónulegu þakklæti til félagsins
sem ég naut góðs af við rninn
búskap um fleiri áratugi. Ég tel
að það hafi verið lán fyrir bændur
í strangri lífsbaráttu að hafa með
sér þessi samtök um verslun og
afurðasölu.
í þessu yfirliti kann eitthvað að
vera missagt og þætti mér gott að
sá sem betur veit leiðrétti það.
Vatnsleysu, 4/3. 1989,
Olgeir Lútersson.
Einingarfélagar
athugið!
Vegna væntanlegs kjörs stjórnar og trúnaöarmanna-
ráðs Verkalýðsfélagsins Einingar, hefur uppstill-
ingarnefnd félagsins ákveðið að gefa fólki kost á að
koma með ábendingar um félaga til þessara trúnað-
arstarfa.
Skriflegar tillögur skal senda skrifstofu Einingar
merkt „Uppstillingarnefnd“ fyrir 23. mars 1989.
Uppstillingarnefnd
Verkalýðsfélagsins Einingar.
Viðskiptavinir
athugið
Breyttur opnunartími 18. og 22. mars.
Laugard. 18. mars opið frá kl. 10-16.
Miðvikud. 22. mars opið frá kl. 9-21.
Verið velkomin.
HAGKÁUP
Akureyri
FRAMSÖKNARMENN |||I
IIII AKUREYRI
Bæjarmálafundur
verður að Hafnarstræti 90, mánudaginn 20. mars kl. 20.30 '
stundvíslega.
Félagar fjölmennið. Stjórnin.
II
’aili!! % ÍÍÍOÚ iii ^
nuil
HÓTEL KEA
Laugardagskvöldið 18. mars
Dansleikur
Hin sívinsæla hljómsveit
INGIMARS EYDAL
leikur fyrir dansi
★
Fyrir fermingarveisluna:
Rjómatertur, smurbrauðstertur eða snittur
Nánari upplýsingar og pantanir
teknar í síma 22200
Borðapantanir í sima 22200