Dagur - 21.03.1989, Page 1

Dagur - 21.03.1989, Page 1
72. árgangur Akureyri, þriðjudagur 21. mars 1989 56. tölublað JW HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Bæjarráð Akureyrar: Samþykkti skuldbreyt- ingu við Álafoss hf. Bæjarstjórinn á Akureyri greindi Bæjarráð fyrir skömniu frá viðræðum sem hann hefði átt ásamt bæjar- ráðsmönnunum Sigurði Jóhanncssyni og Frey Ófeigs- syni við forsvarsmenn Álafoss hf. Bæjarráð samþykkti hinn 16. þ.m. skuldbreytingu á skuldum Álafoss hf. við Bæjarsjóð og stofnanir bæjar- Húsavík: Slökkviliðið gabbað - útkallið kostar 50-100 þúsund Um gabb var að ræða er krakki setti brunaboða í gang á Húsavík á laugardagskvöld kl. 22.30, með þeim afleiðingum að 14 slökkviliðsmenn mættu á slökkvistöðina. Slíkt útkall kostar Húsavíkurbæ 50-100 þúsund krónur. Þetta er í þriðja sinn síðan í haust sem brunaboðinn fer í gang án þess að um eldsvoða sé að ræða, í eitt skiptið fór brunaboðinn í gang vegna bilunar en þetta er í annað sinn sem slökkviliðið er gabbað á aðeins örfáum mánuðum. Gísli Salómonsson slökkviliðs- stjóri sagði í samtali við Dag að æskilegt væri að foreldrar brýndu fyrir börnum sínum að láta brunaboðann í friði. Það var aðeins örfáum klukkutímum eftir gabbið sem Slökkvilið Húsavíkur var kallað út, og var þá alvara á ferðum eins og frá segir á öðrum stað í blaðinu. Annars var tíðindalítið á Húsavík um helgina, að sögn lög- reglu sem ekki vissi um nein önn- ur óhöpp eða vandræði. Lögreglan á Egilsstöðum átti náðuga helgi, nema hvað einn ökumaður var tekinn vegna gruns um ölvun við akstur, er það sá þriðji í þessum mánuði. IM ins í gegnum Atvinnutrygg- ingasjóö. Erfiðleikar útflutningsgreina og ullariðnaðar sérstaklega hafa verið mikið til umræðu á undan- förnum mánuðum. í bókun Bæjarráðs segir að Álafoss hafi að undanförnu átt í viðræðum við helstu lánardrottna sína um skuldbreytingar þar sem þær eru liður í fjárhagslegri endurskipu- lagningu fyrirtækisins. Fulltrúar Akureyrarbæjar í þessum við- ræðum hafi kynnt sér þessi áform og sannfærst um nauðsyn þess fyrir áframhaldandi rekstur Ála- foss að slík endurskipulagning nái fram að ganga. Bæjarráð samþykkkti skuldbreytinguna í ljósi þessa, jafnfram var viðræðu- nefnd Bæjarráðs falið að halda áfram samningaviðræðum við fyrirtækið um kaup á Austurhúsi Gefjunar. EHB Það er gott að fá eitthvað heitt í kroppinn eftir skíðafcrð, ekki síst þegar veðrið er rysjótt eins og á Dalvík sl.laug- ardag. Mynd: TLV Jón Sæmundur Siguijónsson á fimdi með innkaupastjóra Aldi Sud: Aldi hefltr nú þegar uppfyllt gerða samninga um kaup á íslenskri rækju - gæðavandamál standa í vegi fyrir frekari viðskiptum við íslendinga „Ég tel mig hafa fengið staö- festingar á þeim fullyrðingum sem ég hef verið að halda á lofti hér heima. Og þar að auki nefndu Aldi-menn allt aðra ástæðu fyrir riftun samninganna en mig hafði órað fyrir, þ.e.a.s. gæðamálin,“ sagði Jón Sæm- undur Sigurjónsson, alþingis- maður í gær, þá nýkominn úr Þýskalandsferð þar sem hann m.a. hitti Seute, innkaupa- stjóra Aldi Sud, að máli. „Við verðum að taka okkur tak í sambandi við gæðamálin. Ef við ætlum að vinna nýja markaði fyrir lagmetið og halda þeim þá verðum við að hafa gæðamálin í lagi. Og ég vona að í þessu aðstoðarátaki sem fara á fram fyrir lagmetisiðnaðinn, sem ég ætla að fari nú fram á réttum forsendum, þá muni þessi gæða- vandamálin verða tekin til athug- unar. En það er á hreinu að hvalamálið spilar mjög litla „rullu“ í riftun samninganna,“ Búist við að Súlnafell fari til Hríseyjar seinna í dag Rækjuverksmiðjan Dögun, Sauðárkróki: Hilmir Q með 20 tonn af rækju - eftir fyrsta veiðitúrinn fyrir Dögun SU, skipið sem til Sauðárkrókshafnar sl. mánudagsmorgun með 20 tonn af rækju eftir fyrsta veiðitúrinn fyrir Dögun. Þykir þetta góður túr miðað við árstíma. Veitir þessi afli starfsfólki Dögunar næga vinnu næstu daga, og mun Hilmir halda rækjuveið- unum áfram fyrir fyrirtækiö. Hilmir II Rækjuverksmiðjan Dögun hf. á Sauðárkróki tók á leigu, kom - áhöfrdn á Sólfelli flyst yfir á Súlnafellið Stefnt er að því að Súlnafell ÞH-361 fari einhvern næstu daga í sína fyrstu veiðiferð eftir að Kaupfélag Eyfirðinga festi kaup á því. Guðmundur Krist- jánsson, skipstjóri á Sólfelli EA-640, tekur við Súlnafellinu og reiknað er með því að aðrir í áhöfn Sólfellsins fari einnig yfir á Súlnafellið. Guðmundur segist reikna með að líta á nýja skipið í dag, en það er bundið við bryggju í Slippstöð- innni á Akureyri. „Ég býst við að fara með skipið út í Hrísey seinnipartinn á morgun (dag). Þar verður tekinn ís og kassar um borð og skipið undirbúið fyrir veiðar. Ef allt gengur að óskum verðum við að veiðum um pásk- ana,“ segir Guðmundur. Ekki er frágengið hvort 9 eða 11 manna áhöfn verður á Súlna- fellinu. Guðmundur hefur gert tillögu um að á skipinu verði 9 menn en ekki hefur verið ákveð- ið hvort það verður niðurstaðan. „Það kemur mun betur út fyrir okkur að vera bara 9. Staðreynd- in er sú að vegna þess hve tekjur sjómanna hafa minnkað vill mannskapurinn leggja meira á sig til þess að fá stærri hlut.“ Guðmundur var á landstíminu á Sólfellinu í gær þegar Dagur náði tali af honum. Hann hefur verið með það skip í um tvö ár og segir það afburðagott og af því sé mikil eftirsjá. „Það er mikið eftir í því skipi. Ég hefði viljað eiga það,“ segir Guðmundur. -óþh í febrúar var leyft að veiða 50 tonn af innfjarðarrækju í Skaga- firði og veiddu þrír bátar rækju fyrir Dögun. Fram að þeim tíma var lítið sem ekkert að gera hjá Dögun. Núna er búið að klára þennan 50 tonna kvóta og Hilmir II því tekinn til við veiðarnar. Tíu manns eru núna í vinnu hjá Dögun. Sem kunnugt er þurfti Dögun að leggja rækjuskipi sínu, Röst SK-17, með útrunnið haffæris- skírteini og bíður skipið hinstu örlaga sinna. Hefur það nú legið við bryggju í Sauðárkrókshöfn um hríð og telst varla til mikillar prýði. -bjb segir Jón Sæmundur. Er Jón Sæmundur lagði þá spurningu fyrir Seute hvort Aldi muni standa við gerða samninga, þ.e. að kaupa rækju af íslending- um fram til mánaðamóta maí- júní, svaraði innkaupastjórinn því til að fyrirtækið hafi þegar staðið við þann samning. Jón Sæmundur hefur eftir honum að fyrirtækið hafi samið um kaup á ákveðnu magni í hverjum mán- uði en hins vegar hafi fyrirtækið tekið við allri þessari rækju nú þegar. Aðspurður segir Jón Sæmundur að þetta skýri hversu háar sölutölur séu á lagmeti á Þýskalandsmarkaði fyrir fyrstu mánuði þessa árs. Aldi Sud hefur tekið þá ákvörðun að selja hér eftir rækju í gegnsæjum dósum en í þessum dósum liggur rækjan í saltupp- lausn. Geymsluþol hennar er 4 vikur og þannig telst hún fersk. Innkaupastjóri Aldi telur, að sögn Jóns Sæmundar, að ekkert standi í vegi fyrir að fyrirtækið kaupi slíka vöru af íslendingum, sýni þeir fram á meiri gæði en hingað til. Þar komi hvalamálið hvergi nærri. „Ég er eindregið þeirrar skoðunar að við eigum að koma lagmetisiðnaðinum á legg, enda eigum við völ á góðu hráefni. En gæðin verða að vera í lagi. Ég hef kynnst þeim aðferðum sem lag- metismenn beita við sölu á sinni vöru og starf þeirra er til fyrir- myndar. En ef þeir eru með slæma vöru í höndunum þá er verið að gera þeim lífið erfiðara en þeir eiga skilið," segir Jón Sæmundur. JÓH

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.