Dagur - 21.03.1989, Page 3
Þriðjudagur 21. mars 1989 - DAGUR - 3
Hegranes SK-2:
Mjög góð sala
í Þýskalandi
- meðalverð 91 króna
fyrir kílóið
Hegranes SK-2, togari Útgerð-
arfélags Skagfirðinga, seldi sl.
laugardag á Þýskalandsmark-
að tæp 180 tonn af karfa. Afla-
verðmætið var 16,2 milljónir
króna og meðalverð um 91
króna, sem er mjög gott miðað
við að undanfarnar vikur hefur
verðlag á karfanum ekki verið
hátt á Þýskalandsmarkaði.
Á sama tíma og Hegranesið
var með svona góða sölu seldi
togari Reyðfirðinga, Snæfugl SU,
karfa í Þýskalandi fyrir 12 krón-
um lægra méðalverð, þannig að
fiskurinn í Hegranesinu hefur
verið mjög góður. Skipstjóri á
Hegranesi er Júlíus Skúlason.
-bjb
Sigló hf.:
Byija á rækjunni
eftir páska
„Við erum á fullu við að undir-
búa verksmiðjuna svo við get-
um byrjað eftir páska,“ sagði
Guðmundur Skarphéðinsson,
framkvæmdastjóri Sigló hf.
Guðmundur sagði að þegar
eftir páska ætti að fara að vinna
frysta rækju sem kæmi frá Noregi.
Sigló hf. hætti niðurlagningu á
síld í fyrra, eins og kunnugt er,
en mun sjóða niður rækju til út-
flutnings.
Fyrirtækið stendur illa fjár-
hagslega og sagði Guðmundur að
stjórn þess stæði í samningavið-
ræðum við lánardrottna og aðra
sem við sögu kæmu. „Þetta á að
takast, að mínu mati, ég er
bjartsýnn. Ég býst við því að
margir séu verr staddir en við,“
sagði hann. EHB
Leifur K. Jóhannesson, forstjóri Stofnlánadeildar landbúnaðarins:
Að sögn Leifs K. Jóhannes-
sonar, forstjóra Stofnlána-
deildar landbúnaðarins, lítur
út fyrir að í sumar verði bygg-
ingaframkvæmdir til sveita
með minnsta móti. Hann segir
þetta ekki liggja endanlega fyr-
ir en samkvæmt þeim fjölda
umsókna sem deildinni hafa
borist bendi allt til að lítið
verði byggt í sveitum landsins í
sumar.
Leifur segir að enn gæti nokk-
urar óvissu með hversu mikið
fjármagn Stofnlánadeild land-
búnaðarins hefur úr að spila á
þessu ári. Hann segir margt
benda til að henni verði nokkuð
þröngur stakkur skorinn á árinu,
ekki síst vegna þess að endur-
greiðslur lána muni að öllum lík-
indum ekki skila sér eins og ráð
var fyrir gert. Þetta helgast af því
að loðdýrabændur hafa fengið
frestað afborgunum lausaskulda.
Þarna er um verulegar fjárhæðir
að ræða. Um síðustu áramót nam
þessi tala tæpum 4% af heildar-
útlánum Stofnlánadeildar, eða
rúmum 186 milljónum króna.
Jósavin Gunnarsson, hjá bygg-
ingafulltrúa Eyjafjarðarsýslu,
segir að heilt yfir megi búast við
búist við dauflegri byggingavertíð í eyfirskum sveitum í sumar
lakari byggingavertíð í eyfirskum
sveitutn í sumar miðað við fyrri
ár. Síðasta ár var niðursveifluár í
byggingaframkvæmdum og að
öllum líkindum verður áfram-
haldandi samdráttur á þessu ári.
Á síðasta ári voru byggð nokkur
fjós og hlöður svo og vélageymsl-
ur. Þá var byggt eitt fjárhús á
svæðinu í fyrra en slík hús hafa
vart verið byggð allt frá árinu
1980. Jósavin segir að í fyrra hafi
verið tekinn grunnur af einu
minkahúsi en líkur bendi til að
það verði ekki byggt upp á þessu
ári. Nokkuð öruggt er að ekki
verði ráðist í byggingu nýs refa-
húss á svæðinu. „Það taiar ekki
nokkur inaður um ref á þessum
síðustu og verstu tímum," segir
Jósavin.
Hvað varðar íbúðarhúsabygg-
ingar segist Jósavin búast við að
þær verði færri í sumar á Eyja-
fjarðarsvæðinu en oft áður. „Það
hefur verið mjög mikið um íbúð-
arhúsabyggingar til sveita á
undanförnum árum. Það voru
kannski í gangi 5-6 íbúðarhús á
sama árinu. En mér sýnist sem
þau verði færri í sumar,“ segir
Jósavin Gunnarsson. óþh
Með spariskírteinum ríkissjóðs
getur þú tvöfaldað
sparifé þitt að raungildi
á aðeins 10 árum
Fyrir utan traust og öryggi ber sparifé þitt
einnig ríkulega ávöxtun með spariskírteinum ríkis-
sjóðs.
Þau eru verðtryggð og raunvextir eru 7,0% til
fimm ára og 6,8% til átta ára. Þú getur á öruggan
hátt tvöfaldað raungildi sparifjár þíns á aðeins 10
árum með spariskírteinum ríkissjóðs.
Það vegur enn meira þegar tekið er tillit til
þess að spariskírteinin eru tekju- og eignaskatts-
frjáls séu þau umfram skuldir eins og á við
um innstæður í innlánsstofnunum.
Þótt lánstíminn sé ekki liðinn getur
öryggi þeirra leikur
enginn vafí.
Að baki spariskír-
teinunum stendur
ríkissjóður og þú getur því verið viss
um fulla endurgreiðslu sparifjár þíns, ásamt
vöxtum, á gjalddaga.
Þú færð spariskírteini ríkissjóðs í bönkum,
sþarisjóðum og pósthúsum um land allt og hjá
helstu verðbréfamiðlurum, svo og í Seðlabanka
-v íslands. Einnig er hægt að panta þau í
..................... , ... síma 91-699600, greiða með C-gíróseðli
þú selt sparisldrteinin með mjög stutt- I ^ og fá þau síðan send í ábyrgðarpósti.
um fyrirvara fyrir milligöngu yfír 100
afgreiðslustaða banka, sparisjóða og > ^
annarra verðbréfamiðlara. Og um — ríkuleg ávöxtunarleið.
Sparisldrteini ríkissjóðs
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
Má ætla að verði lítið byggt
í sveitum landsins sumarið ’89