Dagur - 21.03.1989, Page 5
Þriðjudagur £1. mars 1989 - D/\GUR - 5
Mynd: óþh
TILBOÐ
á svínakjöti
og nautakjöti
fram að páskum
HAGKAUP
Akureyri
AKUREYRARBÆR
Útboð
Tilboð óskast i frágang innanhúss 5. áfanga *
V.M.A. (miðálma, þ.e. múrverk, pípulögn, loft- -
ræsti og lofthitunarkerfi, raflagnir, trésmíði,
málningu o.fl.
Áfanginn er um 144 fm á 1. hæð og um 720 fm í
kjallara.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu
Norðurlands, Skipagötu 18, frá 22. mars 1989
eftir hádegi gegn 20.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu fulltrúa skóla-
nefndar V.M.A. í Kaupangi við Mýrarveg 2. hæð,
7. apríl 1989 kl. 14.00.
Trausti Þorsteinsson
Aldur: 39 ára, fæddur 27.12 1949. Heimili: Böggvisbraut 7 Dalvík. Maki: Anna Bára Hjaltadóttir.
Börn: Kristín 17 ára, Helga Rún 14 ára, Valur 12 ára og Steinþór 8 ára. Menntun: Próf frá
Kennaraskóla íslands 1970. Störf: Skólastjóri Grunnskólans á Dalvík frá 1977. Áöur kennari viö
þann skóia í tvö ár. Kennari við Oddeyrarskóla 1970-1972. Næstu þrjú ár kennari viö Húsabakka-
skóla í Svarfaðardal. Starfsmaöur fræösluskrifstofu Norðuriandsumdæmis eystra 1984-1985.
Skólanefnd V.M.A.
sannfærður um að skólaskyldan
sé nauðsynleg. Hins vegar er
fræðsluskylda nauðsynleg, en á
henni og skólaskyldu er veruleg-
ur munur. Ég er á þessu stigi ekki
svo mikill byltingarsinni að vilja
afnema skólaskylduna í lægri
bekkjum grunnskóla. En hins
vegar teldi ég það rétt skref að
fella niður skólaskyldu í áttunda
og níunda bekk grunnskólans.
Umræðan um skólaskylduna
hefur sjálfsagt komið upp vegna
þess að grunnskólinn, og þá
kannski sérstaklega tveir efstu
bekkir hans, höfða ekki til
ákveðins hóps nemenda. Það er
spurning hvort skólinn getur ekki
mætt honum með því að gefa
honum tækifæri til atvinnuþátt-
töku.“
Vond Iykt af Sturlumálinu
Trausti þekkir vel til fræðsluskrif-
stofunnar á Akureyri því þar
starfaði hann við hlið Sturlu
Kristjánssonar sem skrifstofu-
stjóri árið 1984-1985. Trausti
vann m.a., ásamt fleiri starfs-
mönnum fræðsluskrifstofunnar,
við gerð áætlunar fyrir árið 1986.
Þessi áætlun var m.a. rót brott-
viknar Sturlu úr embætti fræðslu-
stjóra árið 1987. Trausti segist
auðvitað hafa litið svo á að
ákvörðun Sverris Hermannsson-
ar, fyrrverandi menntamálaráð-
herra, að víkja Sturlu úr emb-
ætti, hafi að hluta til verið stefnt
gegn sér. „Ég hef alltaf litið svo á
að Sturla hafi ekki einn verið
dæntdur. Fræðsluráð var einnig
dæmt vegna þess að Sturla var
framkvæmdastjóri þess. Þá stóðu
skólastjórar í umdæminu, þar á
meðal ég, mjög við bakið á
Sturlu í þessu máli. Að sjálf-
sögðu beindi Sverrir spjótum sín-
um að nokkru leyti að okkur. Að
því leyti má líta svo á að ég hafi
verið dæmdur líka.“
Þær raddir hafa heyrst að með
ráðningu Trausta í stöðu fræðslu-
stjóra hafi skólamenn í Norður-
landsumdæmi eystra endanlega
unnið sigur á ráðuneyti mennta-
mála í Sturlumálinu, þarmeð hafi
verið settur punktur yfir i-ið í því
umdeilda máli. Þessu til stuðn-
ings er á það bent að Trausti hafi
verið einn af lykilmönnum í
stuðningshópi Sturlu í baráttunni
gegn Sverri Hermannssyni og
menntamálaráðuneytinu. Trausti
segist ekki geta litið svo á að
Sturlumálið sé afgreitt með ráðn-
ingu hans í stól fræðslustjóra.
„Ég vonast þó til þess að með
þessari skipan mála hafi skapast
friður um fræðslustjóraembættið.
Það er auðvitað mjög mikilsverð-
ur áfangi. En ég vil þó taka fram
að ég er þess fullviss að ýmislegt
eigi eftir að koma á daginn í
Sturlumálinu. Eftir því sem tím-
inn líður og mál setjast tel ég að
menn fari að horfa rökrænna á
þetta mál. Sturlumálið hefur mér
alla tíð þótt mjög vont og af því
hefur lyktað mjög. Ég hygg að
séu ekki komin öll kurl til grafar
í því.“ óþh
IUU
LÍKAMSRÆKT ER í UMSJÓN SJÚKRAWÁLFARA.
ALLIR ERU METNIR VIÐINNRITUN OG FÁ ÆFINGAKERFIVIÐ HÆFI.
ÆFINGAKERFININNIHALDA LlÐKANDl OG STYRKJANDIÆFINGAR.
ÚTHALDSÆFINGAR, OG KENNSLU Á VÖÐVATEYGJUM.
LEIKFIMISALUR - NÝIUNG - NÝR SALUR.
MÚSIKLEIKFIMI. EINNIG LEIKFIMI
FYRIR VINNUSTAÐIOG AÐRA HÓPA.
HEFUR FÚ PRÓFAÐ? EF EKKl. LÍTTU VIÐ: KENNARIÁ STAÐNUM.
ÞRIÐJUDAGA OG FÖSTUDAGA FRÁ KL. 20.00. ÆFINGAR VEGGTENNIS-
KLÚBBSINS ERU Á PRIÐJUD. OG FÓSTUD. FRÁ KL. 20.00-21.30.
NÝIR FÉLAGAR VELK0MN1R. VEGGTENNISVÖRURNAR FÁST HJÁ 0KKUR.
ENDURHÆFINGARSTOÐ
SJÁLFSBJARGAR
BUGÐUSÍÐU1
SÍM196-26888