Dagur - 21.03.1989, Side 11
hér & þar
i
Þriðjudagur 21. mars 1989 - DAGUR - 11
Verslunin verður
lokuð
laugardaginn 25. mars
Byggingavörur
Lónsbakka
Sími 96-21400
Reynið að
skilja hvort annað!
Kötturinn og músin þeirra Soffiu og Fanneyjar, en þær hrepptu 3. verðlaun
fyrir sitt framlag.
Frístælkeppni í hárgreiðslu:
Akureyringar
stóðu sig vel
Nýlega var haldin keppni í
frjálsri hárgreiðslu á Hótel ís-
landi í Reykjvík. Þar komu
Norðlendingar nokkuð við
sögu og unnu til verðlauna.
Þrír keppendur frá Akureyri
tóku þátt í þessari keppni, öll
starfandi á Rakarastofu Sigvalda.
Öll hafa þau áður tekið þátt í
frístæl keppnum og unnið þar til
verðlauna.
Það er skemmst frá því að
segja að Akureyringarnir stóðu
sig með prýði. Inga Lóa Birgis-
dóttir hlaut 2. verðlaun hár-
skurðarnema, en hún greiddi
módeli sínu í líkingu við frelsis-
styttu Bandaríkjanna. Soffía
Jónsdóttir og Fanney Gunpars-
dóttir kepptu saman í há'rskurði
meistara og voru-njéð tvö módeJ
sem búin voru, sem köttur og
mús. Þær Soffía óg Fanney
hrepptu 3. verðlaun fyrir sitt
framlag. VG
Frelsisstytta Bandaríkjanna?
Karlar og konur ætlast ekki til
hins sama hvort af öðru í hjóna-
bandi. - Þessi staðreynd getur
skaðað sambúð fólks, því ef
væntingar þess til hvors annars
eru ekki sambærilegar er voðinn
vís.
Bandarískur vísindamaður,
Dr. Warren Farrell, sendi fyrir
nokkru frá sér bók sem kallast
„Hvers vegna karlmenn eru eins
og þeir eru,“ á ensku er titillinn
„Why Men Are the Way They
Are.“ í bókinni kemur fram að
karlar vilja fallega vaxnar og kyn-
þokkafullar konur. Þeim finnst
mikilvægt að þær séu skilnings-
ríkar á ábyrgarmiklu hlutverki
eiginmannsins gagnvart fjöl-
skyldunni sem hann sér farborða.
Þá gera flestir þá kröfu til kon-
unnar að hún annist um heimilið
á þrifalegan hátt og sjái um að
þörfum barnanna sé fullnægt.
Konur vilja, samkvæmt niður-
stöðum Dr. Farrells, hlýlega og
skilningsríka eiginmenn sem vilja
verja frítíma sínum með fjöl-
skyldunni. Þær vilja einnig að
mennirnir sjái um helminginn af
húsverkunum.
Margir karlmenn reyna að
breyta sér til að uppfylla þessar
væntingar. Þeim tekst þó oftast
ekki að gera annað en sjá fjöl-
skyldunni farborða. Kröfur
vinnumarkaðarins eru miklar og
karlarnir eiga oft fullt í fangi með
að sinna sinni vinnu.
Þessi fallega bjalla minnir okkur á lykilatriði hjónabandssælunnar: Skilning,
kærleika og umburðarlyndi.
Hver er afleiðingin? Konurnar
verða óánægðar með mennina
sem sýna heimilinu svo litla rækt-
arsemi. Karlarnir verða súrir á
svip og óhressir með eigin frammi-
stöðu. Sumum finnst líka að
þeir hafi ekki uppskorið afrakst-
ur erfiðis síns með því að fórna
öllum öðrum áhugamálum fyrir
fjölskylduna.
Hver er lausnin? Ef vandinn
orsakast af of löngum vinnutíma
karlsins getur konan leyst málið
með því að gera minni kröfur til
veraldlegra gæða. Eiginmaðurinn
getur þá hætt að vinna yfirvinnu.
Karlinn getur líka lagt sitt af
mörkum með því að reyna að
uppgötva nýjar hliðar á eigin-
konu sinni sem gera hana sér-
staka. Aðalatriðið er að hjónin
eiga að ræða vandann og reyn’a
að skilja hvort annað af einlægni.
Ijöld ★ Sveínpokar ★ Balqxíkar
Sjónaukar ★ Myndavélar
Stúdentagarðar -
Alútboð
Féiagsstofnun stúdenta (F.S.) á Akureyri óskar eftir
tilboöum í hönnun og byggingu á stúdentagöröum á
lóö viö norðanverða Skaröshlíö á Akureyri.
Lóðin er um 4860 fm aö stærö. Nýtingarhlutfall á lóö-
inni er hámark 0,3.
Verkinu skal lokið 1. okt. 1989.
Útboösgögn veröa afhent á Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen hf., Glerárgötu 30, 600 Akureyri frá og
með 20. mars 1989 gegn 5000,- kr. skilatryggingu.