Dagur - 21.03.1989, Page 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 21. mars 1989
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Sandgerðisbót v/húseign, talinn
eigandi Kristján Sigurðsson, föstu-
daginn 31. mars 1989 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er Bæjarsjóður
Akureyrar.
Smárahlíð 18b, Akureyri, þingl. eig-
andi Óðinn Magnússon o.fl., föstu-
daginn 31. mars 1989 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóð-
ur Akureyrar, Benedikt Ólafsson
hdl. og Gunnar Sólnes hrl.
Smárahlíð 9I, Akureyri, talinn eig-
andi ívar Sigurjónsson, föstudaginn
31. mars 1989 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóð-
ur Akureyrar og Guðmundur Pét-
ursson hrl.
Strandgötu 6, Akureyri, þingl. eig-
andi Samkaup sf., föstudaginn 31.
mars 1989 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er Bæjarsjóður
Akureyrar.
Vestursíðu 5e, Akureyri, talinn eig-
andi Sigríður Jóhannesdóttir, föstu-
daginn 31. mars 1989 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er Bæjarsjóður
Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsai embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Bakkahlíð 20, Akureyri, þingl. eig-
andi Kristján Þórðarson, föstudag-
inn 31. mars 1989 kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Björn Ólaf-
ur Hallgrímsson hdl., Ólafur Birgir
Árnason hdl., Sveinn H. Valdimars-
son hrl., Gunnar Sólnes hrl. og
Landsbanki íslands.
Bjarkastíg 2, Akureyri, þingl. eig-
andi Fjóla Traustadóttir, föstudag-
inn 31. mars 1989 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóð-
ur Akureyrar, Ingvar Björnsson hdl.,
innheimtumaður ríkissjóðs og
Byggðastofnun.
Eyrarlandsvegi 8, n.h., Akureyri, tal-
inn eigandi Stefán Sigurðsson,
föstudaginn 31. mars 1989 kl.
16.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild
Landsbanka íslands, Brunabótafé-
lag íslands og Gunnar Sólnes hrl.
Eyrarvegi 4, Akureyri, þingl. eigandi
Vébjörn Eggertsson, föstudaginn
31. mars 1989 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Kristján
Ólafsson hdl. og Bæjarsjóður Akur-
eyrar.
Norðurbyggð 12, Akureyri, þingl.
eigandi Birgir Stefánsson, föstudag-
inn 31. mars 1989 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Eggert B.
Ólafsson hdl., innheimtumaður
ríkissjóðs, Brunabótafélag íslands
og Ólafur Birgir Árnason hdl.
Óseyri 8, Akureyri, þingl. eigandi
Fjölnismenn, föstudaginn 31. mars
1989 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er Iðnlánasjóður.
Skarðshlíð 25a, Akureyri, þingl. eig-
andi d.b. Sigurbjörns Þorsteinssonar,
föstudaginn 31. mars 1989 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Iðnaðar-
banki íslands hf. og innheimtumað-
ur ríkissjóðs.
Skíðabraut 11, Dalvík, þingl. eig-
andi Svavar Marinósson, föstudag-
inn 31. mars 1989 kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Trygginga-
stofnun ríkisins, Ólafur Birgir Árna-
son hdl. og Jón Ingólfsson hdl.
Sunnuhlíð 12, f-hl., Akureyri, þingl.
eigandi Bernharð Steingrímsson,
föstudaginn 31. mars 1989 kl.
15.15.
Uppboðsbeiðandi er Iðnlánasjóður.
Sunnuhlíð 13, Akureyri, þingl. eig-
andi Kjartan Bragason o.fl., föstu-
daginn 31. mars 1989 kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar
Sólnes hrl. og innheimtumaður rík-
issjóðs.
Öldugötu 14, Dalvík, þingl. eigandi
Friðrik Gígja, föstudaginn 31. mars
1989 kl. 15.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Árni Ein-
arsson hdl. og Búnaðarbanki ís-
lands.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á eignunum sjálfum,
á neðangreindum tíma:
Baldurshaga, 3.h. og ris, Dalvík,
þingl. eigandi Þórir Jakobsson o.fl.,
miðvikudaginn 29. mars 1989 kl.
14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild
Landsbanka fslands, Gunnar Sól-
nes hrl., Ólafur Birgir Árnason hdl.
og Guðmundur Kristjánsson hdl.
Brekkugötu 3, íb. 4. hæð, Akureyri,
talinn eigandi Pálmi H. Björnsson,
miðvikudaginn 29. mars 1989 kl.
16.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar
Sólnes hrl., Bæjarsjóður Akureyrar,
Brunabótafélag islands og Ásgeir
Thoroddsen hdl..
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Minning:
Svanfríður Sigurgeirsdóttir
frá Hofteigi, Arnarneshreppi Eyjafirði
Fædd 14. sept. 1898 - Dáin 10. mars 1989
„Meinið er að flestir af oss eru
fullir óróleika og geta ekki kom-
ist af án hávaðans í kringum oss.
Vér hefðum ekkert eftir nema
einskær leiðindi ef vér fengjum
ekki færi á að lesa, masa, hugsa
og hamast óaflátanlega.
Menn grunar það ekki vitund
að þeir hrinda mestu lífsgildun-
um út úr tilverunni með masi og
handagangi. Eða hvers vegna
skyldi mestur hluti nútímatónlist-
ar vera jafnrislítil og hljómlaus
og einber hávaði? Eða hvers
vegna reynist allt það feikilega
starf sem unnið er í vísindum,
iðnaði og stjórnmálum og alltaf
er lofsungið í blöðunum og alls
staðar blásið út á öllum heims-
sýningum - hvers vegna skyldi
það allt vera eins ófrjótt og lít-
isvert fyrir sálarlífið og það reyn-
ist vera. Er það af öðru en því að
nú er orðið svo lítið um þann
gróður sem nærður af ósýnilegum
lindum umhverfisins, vex hægt og
óafvitandi upp úr jarðvegi þagn-
arinnar og kyrrðarinnar?“
Valdimar Vedel.
Mig langar að minnast yndislegr-
ar konu, persónuleika sem ég
mun aldrei gleyma. Minningarn-
ar eru hlýjar og af mörgu að taka.
Fagur sumardagur í Eyjafirðin-
um, sjórinn sléttur, ég 14 ára
með Svönu frænku í litla garðin-
um sunnan við gamla bæinn. Það
var yndislegt að upplifa hvað
náttúran gaf henni mikið, að
horfa á hana hlúa að blómum og
jurtum, óhreinar hendur af mold,
hlusta á fuglasönginn í kyrrðinni,
sjá hamingusvipinn á andlitinu.
Hún var ein af þeim manneskjum
sem sagði fátt en hugsaði þess
meira, bar höfuðið hátt, þó að á
móti blési og mun hennar einkunn
úr skóla lífsins á jörðinni örugg-
lega veita henni inngöngu inn í
æðri heima, þar sem hún mun
halda áfram að nema af brunni
viskunnar.
Ég gæti skrifað heila bók um
Svönu frænku, hún var svo sér-
stök manneskja og kenndi mér
svo margt án þess að vita sjálf
hverju hún sáði.
Þakka þér fyrír allt,
og góður guð geymi þig.
Ég votta Hreini, Sólveigu,
Hörpu og Svönu og öllum öðrum
ættingjum og vinum mína dýpstu
samúð.
Björg.
Siglu^ örður/Sauðárkrókur:
Þorvaldur Hafldórsson með tón-
leika og samkomur um páskana
Þorvaldur Halldórsson mun
heimsækja Siglufjörð og Sauð-
árkrók nú um páskana og
halda þar tónleika og samkom-
ur ásamt nokkrum félögum úr
samtökunum Ungt fólk með
hlutverk, sem eins og kunnugt
er starfa innan íslensku þjóð-
kirkjunnar.
Þau sem syngja með Þorvaldi
eru: Margrét Scheving, eigin-
kona hans og Páll Magnússon og
einnig kemur þar fram Þorvaldur
DAGUR
Akurevri
S96-M
Norðlenskt dagblað
Þorvaldur Halldórsson verður með
tónleika og samkomur á Siglufirði
og Sauðárkróki um páskana.
Kr. Þorvaldsson, sem er aðeins 9
ára. Á skírdagskvöld verður tón-
listarsamkoma í Siglufjarðar-
kirkju, í samvinnu við sóknar-
prestinn og á laugardagskvöldið
25. mars verða kvöldtónleikar í
Nýja bíói á Siglufirði.
Áð kvöldi páskadags verður
svo tónlistarsamkoma í Sauðár-
krókskirkju, í samvinnu við
sóknarprestinn þar. Efnisskráin á
þessum samkomum er fjölbreytt.
Flutt verða andleg lög, negra-
sálmar og nýsamin tónlist þeirra
félaga sem flytja tónlist sína í
margskonar útsetningum við
allra hæfi.
Þetta er ágætis tækifæri fyrir
alla fjölskylduna að fara saman
og njóta tónlistar og boðskaps
páskanna.
Frá Náttúru-
gripa-
saíiiinu á
Akureyri
JA, HVER ÞREFALDUR!
neiiuarviriiiiiiybuppiitíBu var m.
Enginn var með 5 tölur réttar.
1. vinningur var kr. 5.336,742,- og færist hann yfir á 1. vinning næsta laugardag.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 553.068-
Skiptist á 4 vinningshafa og fær hver þeirra kr. 138.267.-
Fjórar tölur réttar, kr. 954.016,- skiptast á 112 vinningshafa, kr. 8.518.- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 2.223.900.- skiptast á 5.295 vinningshafa, kr. 420.- á mann.
Sölustaðir eru opnirfrá mánud. til laugard. og er lokað 15 mín. fyrir útdrátt. Lokað föstudaginn
langa Sími 6851 11. Upplýsingasímsvari 681511.
Gestir á sýningarsal Náttúru-
gripasafnsins voru árið 1988 alls
3684. Það er 30% aukning frá
árinu áður. Öll aukningin var um
aðalferðamannatímann í júlí og
ágúst. Að hluta til má rekja það
til lengri opnunartíma frá 1. júlí
til 15. ágúst en áður hefur verið. í
júlímánuði einum sóttu safnið
1590 manns. Oft eru mikil
þrengsli í salnum á þeim tíma.
Um páskana verður salurinn
opinn á skírdag og annan í pásk-
um kl. 1-3 e.h. Eftir fyrstu helgi í
apríl standa fyrir dyrum endur-
bætur á salnum, og verður hann
því lokaður nokkrar helgar í
þeim mánuði.
í vor er fyrirhugað að efna til
náttúruskoðunarferða um næsta
nágrenni bæjarins, eins og stund-
um hefur verið gert áður, og
verða þær auglýstar nánar síðar.