Dagur - 30.05.1989, Síða 6

Dagur - 30.05.1989, Síða 6
6 -v DAQ UBí-?, Þriðjudagur 30. ma(J989; V "" ......""...... Uppsalaætt 50. ættarmótið verður haldið 1.-2. júlí. Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir 3. júní. Mætum öll. Ættarráð. Þessir duglegu drengir afhentu Degi kr. 2020,- sem þeir söfnuðu handa Rauða krossi íslands með tombólu sem þeir héldu á dögunum. Þeir heita, f.v.: Jónas Þór Hafsteinsson, Vignir Stefánsson, Vagn Kristjánsson og Ólafur Órn Þorgrímsson. Kærar þakkir frá Rauða krossinum. Mynd: ehb Ástarsögurnar frá Snorrahúsi njóta sívaxandi vinsælda. N1 ú koma út tvær bækur mánaðarlega Tilboö tHnjrra áskrifenda! Útgáfan hefur ákveðið að bjóða nýjum áskrifendum eina bók ókeypis um leið og þeir gerast áskrifendur. Peir geta valið úr eftirtöldum bókum. Spennusöguflukkurinn: Morðið í Tauerngöngunum, Þeir dauðu drekka ekki Síðasta bónin, Líkið stjórnar leiknum. Ástarsöguflokkurínn: Hrakfallabálkur, Ómótstæðilegur karlmaður Sjúkrahúsið í frumskóginum, Indíánaprinsessan, 15. Landsþing LHS: Ákveðnar kröfur gerðar um bún- að, þjálfun og getu sveitanna SNORRAHUS Pósthólf 58 • 602 Akureyri • -s- 96-24222 Á 15. landsþingi Landssambands hjálparsveita skáta voru sam- þykktar tillögur að skipun hjálp- arsveitanna í flokka eftir aldri þeirra, búnaði, þjálfun og getu. Flokkunin er miðuð við að hún verði hvetjandi og einnig eiga stjórnendur björgunaraðgerða að sjá með skjótum hætti styrk við- komandi hjálparsveitar. Hingað til hefur ekki verið til í landinu ákveðin skilgreining yfir björgun- arsveitir önnur en sú, að það sé hópur manna sem ákveður að kalla sig björgunarsveit. Með samþykkt Landsþings hjálpar- sveitanna, 19.-20. maí 1989, hef- ur þessu verið breytt. Ferðamál á Nordurlandi Fimmtudaginn 29. júní nk. verður gefið út blað helgað ferðamálum á Norðurlandi. Þeir sem áhuga hafa á því að auglýsa í blaðinu, hafi samband við auglýsingadeild Dags fyrir 16. júní. Sérstakt ferðablað um Norðurland. D auglýsingadeild. Á þinginu var Ólafur Proppé kjörinn nýr formaður LHS og tók hann við af Tryggva Páli Friðriks- syni, sem nú gegnir starfi félags- málastjóra LHS. Auk Ólafs eru í stjórn LHS þeir Arnfinnur Jónsson, Páll Árnason, Ögmund- ur Knútsson og Bjarni Axelsson. Ólafur Proppé, nýkjörinn forntaður LHS, ásamt fulltrúum hjálparsveitann: á 15. landsjiingi LHS. Ungmennafélag íslands: * Askorun til íslendinga A fundi stjórnar UMFl, sem haldinn var á Laugarvatni helg- ina 20.-21. maí sl., var mikið rætt um íslenska framleiðslu og at- vinnumál. M.a. var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Með vaxandi atvinnuleysi eykst mikilvægi innlendrar fram- leiðslu og verðmætasköpunar. Pví skorar stjórn UMFÍ á Islend- inga að kaupa íslenskar vörur og láta innlenda framleiðslu hafa forgang á innflutta, enda er hún í flestum tilvikum fullkomlega samkeppnisfær. Á þennan hátt getur hver einstaklingur aukið atvinnuöryggi, stuðlað að bætt- um lífskjörum og tryggt þannig sjálfstæði íslensku þjóðarinnar. Jafnframt telur stjórn UMFÍ það vera skyldu stjórnvalda að tryggja innlendri framleiðslu við- unandi rekstrargrundvöll og sam- keppnisaðstöðu. Þá verður að gera sömu gæðakröfur til er- lendrar og innlendrar fram- leiðslu.14 Ungmennafélag íslands stóð fyrir umfangsmiklu átaki 1982 sem nefndist „Eflum íslenskt" og vakti mikla athygli á nauðsyn þess að styðja við íslenska fram- leiðslu. I haust er fyrirhugað að ungmennafélögin efni á ný til herferðar til styrktar íslenskri framleiðslu. Um þessar mundir tekur UMFÍ þátt í átaki með Félagi íslenskra iðnrekenda þar sem almenningur er hvattur til að „velja íslenskt".

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.