Dagur - 30.05.1989, Síða 10

Dagur - 30.05.1989, Síða 10
10- DÁGtÍlFÍ - Þriðjudagur 3Ó. mðí ^1)89 1. deild kvenna: Jafntefll hjá KA - gegn Stjörnunni 2:2 KA og Stjarnan gerðu jafntefli 2:2 í 1. deild kvenna á KA- vellinum á laugardaginn. Það voru Hjördís Ulfarsdóttir og Inga Birna Hákonardóttir sem settu mörk KA-stúlknanna. Frekar leiðinlegt veður, hávaða- rok og kuldi, settu svip sinn á leikinn og gerði stúlkunum frekar erfitt um vik að spila knatt- spyrnu. Fyrsta markið var líka gert með hjálp Kára. Stjörnu- stúlkan Kristín Þorleifsdóttir átti sendingu langt utan af kanti fyrir mark KA og inn fór boltinn með vindinum. KA-stúlkurnar gáfust ekki upp og fóru að sækja í sig veðrið. Skömmu fyrir leikhlé gaf það síð- an ávöxt er Inga Birna Hákonar- Hjördís Úlfarsdóttir. dóttir jafnaði leikinn með lausu skoti eftir ágætan samleik í gegn- um Stjörnuvörnina. Hjördís Úlfarsdóttir kom síð- an heimastúlkunum yfir 2:1 með fallegu skoti af 25 metra færi. En KA-stúlkurnar gleymdu sér í fagnaðarlátunum og tæplega tveimur mínútum síðar jöfnuðu gestirnir með marki Rósu Daggar Jónsdóttur. Eftir markið dofnaði yfir leikn- um og var eins og bæði lið sættu sig við jafnteflið. Það varð líka raunin og voru sóknir beggja liða það sem eftir lifði leiks frekar máttlausar og lausar við þann kraft sem hafði einkennt stúlk- urnar í fyrri hálfleik. Næsti leikur KA í 1. deild kvenna er á sunnudaginn á Akra- nesi og má þar búast við hörku- leik því Skagastúlkurnar eiga á að skipa mjög góðu liði. Þórsar- ar halda suður um heiðar og leika gegn Stjörnunni í Garðabæ næsta laugardag. Þess má svo geta í lokin að dómari leiksins var ekki alveg með á nótunum í sambandi við hve leiktíminn átti að vera langur. Fyrri hálfleikur var 45 mínútur hjá honum, en í meist- araflokki kvenna eru einungis leiknar 40 mínútur. Dómaranum var bent á þetta í leikhléi og tók hann þeim ábendingum vel. En hann gerði sér þá lítið fyrir og stytti síðari hálfleikinn í 35 mínútur og harðneitaði að láta leikinn halda lengur áfram, þrátt fyrir áköf mótmæli beggja liða. 1. deild kvenna: Blikarnir lögðu Þór - 3:1 á Akureyri Þórsarar urðu að sætta sig við 3:1 tap gegn Blikastelpunum í 1. deild kvenna á Þórsvellinum á sunnudaginn. Það var Ellen Óskarsdóttir sem skoraði mark Þórs undir lok leiksins en hún hafði komið inn á sem vara- maður eftir leikhlé. Bæði lið komu upp úr 2. deild í fyrra en það var greinilegt á öllu að Kópavogsstelpurnar voru mun sterkari. Þórsstelpurnar börðust hins vegar vel og höfðu í fullu tré við gestina úti á vellinum. Ef eitthvað var þá sóttu þær öllu meira í fyrri hálfleiknum, enda höfðu þær vindinn í bakið. En það vantaði broddinn í sóknina og fór því leikurinn að mestu fram á miðju vallarins. Ellen Óskarsdóttir kom inn á sem varamaður og skoraði mark Þórs. Breiðabliksstúlkurnar náðu hins vegar að skora eitt mark í fyrri hálfleik og var það frekar slysalegt, eins og reyndar öll mörk liðsins. Eftir hornspyrnu mistókst varnarmönnum Þórs að hreinsa frá og Sigrún Ásbergs- dóttir náði að skora með föstu skoti frá markteig 1:0. Þannig var staðan í leikhléi. Fljótlega í síðari hálfleik bættu Blikastelpurnar við öðru marki. Það kom einnig eftir hornspyrnu og var það sjálfsmark Þórs eftir að Kristrún Daðadóttir hafði skallað að markinu. Eftir þetta ^óttu Blikarnir nokkuð að marki Þórs en fyrirliðinn Kolbrún Jóns- dóttir í vörninni og Eva Eyþórs- dóttir í markinu voru öruggar og stöðvuðu þær allar sóknir gest- anna. Undir lok leiksins komu síðan tvo mörk. Ellen Óskarsdóttir fékk góða stungusendingu inn fyrir vörnina, lék á markmanninn og skoraði örugglega í markið úr þröngu færi. En Adam var ekki Íengi í Paradís. Blikarnir tóku miðju og Kristrún Daðadóttir skoraði þriðja mark þeirra græn- klæddu. Margir vildu meina að brotið hefði verið á Evu í mark- inu en dómarinn var á öðru máli og dæmdi mark. Þrátt fyrir tapið var margt gott hjá Þórsstelpunum í þessum leik og var allt annað að sjá til liðsins en í leiknum gegn KA á dögun- um. Kolbrún var sterk í vörninni og einnig átti Eva ágætan leik í markinu. Ellen kom inn á sem varamaður og ógnaði vel með hraða sínum. íþróttir Tindastóll Tindastólsmenn töpuðu fyrsta leiknum sínum í 2. deildinni nú um helgina. En á laugardaginn taka þeir á móti Einherja frá Vopnafirði og þá má búast við að Sauðkrækingarnir sýni klærnar. Árni Ólason 25 ára, 41 leikur Björn Björnsson 24 ára, 0 leikir Gísli Sigurðsson 25 ára, 68 leikir Hólmar Ástvaldsson 22 ára, 59 leikir Magnús Jóhannesson 21 árs, 0 leikir Stefán Pétursson 20 ára, 40 leikir Árni Stefánsson 35 ára, 53 leikir Eyjólfur Sverrisson 21 árs, 76 leikir Guðbjartur Haraldsson 19 ára, 28 leikir Ingvar Guðfinnsson 24 ára, 21 leikur Marteinn Guðgeirsson 22 ára, 0 leikir Sverrir Sverrisson 19 ára, 51 leikur Bjarni Jóhannsson 31 árs, þjálfari Eysteinn Kristinsson 24 ára, 22 leikir Guðbrandur Guðbrandsson 25 ára, 83 leikir Ingvar Magnússon 29 ára, 4 leikir Ólafur Adolfsson 22 ára, 15 leikir Þórhallur Ásmundsson 36 ára, 145 leikir

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.