Dagur - 07.06.1989, Qupperneq 7
Miðvikudagur 7. júní 1989 - DAGUR - 7
Falleg hellulögn við Akureyrar-
kirkju.
við íbúðarhús og á fleiri stöðum.
Nú er ný framleiðsla að koma á
markað frá okkur, við nefnum
þetta umferðarstólpa eða polla.
Þetta eru sérstakir steinar sem
ætlaðir eru til að hefta umferð
ökutækja eða beina henni í
ákveðna átt o.s.frv."
- En jarðvegsvinnan, er hún
ekki umtalsverður þáttur í starf-
seminni?
„Jú, nú er komið vor og jarð-
vinnan komin á fulla ferð. Verið
er að vinna í nokkrum grunnum á
vegum fyrirtækisins, má þar
nefna grunna fyrir Harald og
Guðlaug, Svein Jónsson o.fl.
Nýlokið er jarðvegsskiptum fyrir
stúdentagarða sem eru að rísa í
Glerárhverfi auk smærri verk-
efna sem eru á dagskrá.
Jarðvegsvinna hefur verið fast-
ur þáttur í starfseminni frá árun-
um 1973-4, þ.e. vegagerð, til-
boðsverkavinna, grunnvinna og
margt fleira á því sviði. Fyrirtæk-
ið hefur á að skipa fullkomnum
vélakosti í jarðvinnu með
nýtískulegum og hraðvirkum
tækjum. I þessu sambandi get ég
greint frá því að við eigum alls 36
tæki, vinnuvélar, steypubíla,
malarflutningabifreiðar, krana,
steypudælu o.þ.h.“
Húseininga- og
strengjasteypuframleiðsla
- Möl og sandur er þekkt fyrir
húseiningaframleiðslu sína?
„Hjá Strengjasteypunni hf fer
fram framleiðsla á hvers kyns
steyptum húseiningum, bæði
útveggja- og innveggjaeiningum
ásamt forspenntum gólf og lofta-
plötum.
Nýlokið er framleiðslu á tveim-
ur einbýlishúsum, annað þeirra
er á Árskógssandi en hitt er í
Hörgárdal. Þessa dagana er verið
að framleiða gólfplötur í fjölbýl-
ishús sem Híbýli hf er að reisa við
Helgamagrastræti 53 á Akureyri.
Einnig er framleiðsla á gólf og
veggeiningum komin á fullan
skrið í áðurnefnda stúdenta-
garða. Unnið verður sex daga
vikunnar við þá framleiðslu fram
í júlímánuð, vegna mikillar tíma-
pressu á því verki. Þess má einnig
geta að Möl og sandur og Strengja-
steypan buðu í það verk ásamt SS
Byggi sem er aðalverktaki
verksins."
- Hvað er annars helst á döf-
inni hjá ykkur?
„Við erum að vinna í samvinnu
við Iðntæknistofnun að úttekt á
rekstri fyrirtækjanna. Um er að
ræða stefnumótun fyrir fyrirtæk-
in, en það er nauðsynlegt að
endurskoða reksturinn sífellt,
breytingarnar eru örar.
Áf öðrum málum er það að
frétta að innan nokkurra ára
munum við flytja hörpunarstöð-
ina héðan og framleiða efni í fær-
anlegum hörpunarstöðvum í
námunum sjálfum. Þá verður
aðeins steypustöðin hér við Súlu-
veg, ásamt Strengjasteypunni og
viðhaldsmannvirkjum tækja.
Steypustöðin verður öll endur-
nýjuð frá grunni, ef efnissílóin
eru undanskilin. Það verður að
endurnýja þessi mannvirki miðað
við kröfur tímans. Við eigum
aðra og færanlega steypustöð
sem stendur á hinni gömlu lóð
Malar og steypustöðvarinnar.
Hana munum við flytja og setja
við hlið stóru stöðvarinnar til að
auka rekstraröryggið meðan á
breytingunum stendur, a.m.k.“
EHB
á svalimar og í garðinn
ÚrvalafgarðáhöMum
nestin
Til sölu
International Cargostar 1950 B vörubifreið árg.
’81, skráð 1983, lítið ekin og í góðu lagi.
Til sýnis og upplýsingar veittar hjá Bifreiðadeild
KEA, Óseyri 1, sími 21400.
Bændur
Svarfaðardal og nágrenni
Verðum með vélasýningu við Bílaverkstæði
Dalvíkur laugardaginn 10. júní frá kl. 10-17.
Sýnum meðal annars það nýjasta í rúllutækni
og nýja gerð ÁLÖ-ámoksturstækja á dráttarvélar.
G/obusf
véladeild. Sími: 91-681555.
Plöntusala
Þú ert á grænni grein meö sumarblóm frá Rein
Við höfum mikið úrval af
ódýrum sumarblómum.
Einnig bjóðum við Dalíur í öll-
um mögulegum litum og flestar
tegundir víði-plantna í limgerði
og skjólbelti.
^Garðyrkjustöðin Rein
Öngulsstaðahreppi.
Opið aila daga frá kl. 10-22, sími 31327.
Um þessar mundir er unnið af fullum krafti við uppsteypu á nýjum stúdenta-
görðum við Skarðshlíð.
SKAMMTIMABREF
-^KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 1 • Akureyri • Sími 96-24700
Gengi Einingabréfa 7. júní 1989.
Einingabréf 1 3.894,-
Einingabréf 2 ..... 2.165,-
Einingabréf 3 2.549,-
Lífeyrisbréf 1.958,-
Skammtímabréf .. 1,343
Skammtímabréf
— skynsamleg
fjárfesting.
Hagkvæm ávöxtun skammtímafjár
★ 7-9% vextir umfram verðbólgu
★ Alltaf laus og án aukakostnaðar.
Skammtímabréfin eru ætluð þeim sem þurfa að
nota fé sitt innan skamms tíma en vilja
jafnframt ávaxta það á sem hagkvæmastan
hátt.