Dagur - 17.06.1989, Page 2

Dagur - 17.06.1989, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 17. júní 1989 „Það hlýturað vera druslulegur eða ræfilslegur maður“ í einvígi að þessu sinni mætast dýraiæknirinn Elfa Ágústs- dóttir og fjármálastjórinn og tónlistarmaðurinn Geirmund- ur Valtýsson. Þau eiga bæði glæstan feril að baki í einvíginu og hafa lagt mikla spekinga að velli. Þetta einvígi sker úr um hver verður sá fjórði í undan- úrslitum. Þrír hafa þegar tryggt sér þar sæti, Júlíus Kristjánsson, netagerðarmað- ur og kennari á Dalvík, Erling- ur Sigurðarson, menntaskóla- kennari á Akureyri og Bjarni Kr. Grímsson, bæjarstjóri í Ólafsfirði. En víkjum að ein- vígi þeirra Elfu og Geirmund- ar. Geirmundur var gripinn glóð- volgur einn morguninn í vikunni þar sem hann var að blaða í reikningum Kaupfélags Skagfirð- inga. Sama dag náðist í „skottið" á Elfu þegar hún var að fara út úr dyrunum til að lækna húsdýrin stór og smá. Þrátt fyrir annir gáfu þau sér bæði tíma til að svara 10 spurningum. Fyrsta spurningin vafðist ekki fyrir spekingunum, enda Schluter oft í fréttum fjölmiðla hér á landi. Hins vegar gekk öllu verr að töfra fram nöfn Seðlabanka- stjóranna þriggja. Nordal kom strax hjá báðum og Tómas fylgdi í kjölfarið hjá Geirmundi. „En það er þessi þriðji. Honum kem ég ekki fyrir mig,“ sagði Geir- mundur. Elfa velti mikið vöngum yfir hinurn tveimur bankastjórun- um, en svo loks opnuðust öll himins hlið og nöfn þeirra Geirs og Tómasar voru töfruð fram. Fjögur stig gegn þremur fyrir Elfu. Það stóð ekki í Geirmundi að nefna liðið sem Siggi Grétars. leikur með og varð svissneskur meistari á dögunum. Elfa upp- lýsti það hins vegar að hún fylgd- ist ekkert með íþróttum og því hefði hún ekki hugmynd um með hvaða knattspyrnuliði fyrrver- andi Breiðabliksmaðurinn spil- aði. Geirmundur jafnaði því metin, fjögur stig gegn fjórum. Geirmundur og Elfa voru bæði handviss um að Steingrímur J. væri yngstur ráðherra. Mikið rétt. En svo versnaði í því þegar spurt var um aldur hans. „Bíddu nú við,“ sagði Geirmundur. „Ég gæti trúað því að hann væri 36 ára.“ Elfa beitti vísindalegum aðferðum og sagði að Steingrím- ur hefði verið á síðasta ári í MA þegar hún var þar á fyrsta ári. „Hann hlýtur að vera fæddur 1955, þá verður hann 34 ára á þessu ári.“ Hárrétt svar og fyrir það fær Elfa 2 stig en Geirmund- ur 1. Staðan sex á móti fimm, Elfu í vil. Það tók tímann sinn fyrir kepp- endur að finna nöfn 10 frétta- manna. Tókst þó að lokum og báðir fengu 10 stig. Staðan því sextán gegn fimmtán. Sænski „kríminalinn" Petter- son stóð ekki í keppendum, enda hefur hann verið mikið í fréttum að undanförnu. Það kom hins vegar á daginn, eins og undirritaðan hafði grunað, að Norðlendingarnir Geirmundur og Elfa voru ekki vel að sér í landafræði Suður- lands. Þau gátu hvorugt upp á nafni Laugardalshrepps. Ólafur SÍS-stjórnarformaður Sverrisson var keppendum ljós- lifandi. Staðan nú orðin nítján/ átján fyrir Elfu. Breska poppsveitin Smokie vafðist ekki fyrir popparanum Geirmundi og dýralæknirinn stóð ekki heldur á gati. Trúlega ein- lægir aðdáendur Smokiel? Þá var komið að síðustu spurn- ingunni. „Drægjulegur?,“ spurði Geirmundur. „Það hlýtur að vera svona druslulegur eða ræfilslegur rnaður." „Ég get ímyndað mér að „drægjulegur" sé sá sem er seinn til verka,“ sagði Elfa eins og að drekka vatn. Við gefum henni rétt fyrir það svar en Geirmundur fær hálft stig fyrir sitt svar. Þar með liggja fyrir niðurstöð- ur þessa einvígis. Élfa dýralæknir náði 20 stigum og sigraði í einvíg- inu en Geirmundur hafði 18,5 stig upp úr krafsinu. Þetta vill segja að Elfa er kom- in í fjögurra manna úrslit og hún dróst þar, í votta viðurvist, á móti sjálfum bæjarstjóranum í Ólafsfirði, Bjarna Kr. Gríms- syni. í hinu undanúrslitaeinvíg- inu verða því Júlíus Kristjánsson og Erlingur Sigurðarson. óþh Elfa Ágústsdóttir Geirmundur Valtýsson Rétt svör 1. Hver er forsætisráðherra Danmerkur? (1) Poul Schluter Poul Schluter Poul Schluter 2. Nefnið þrjá bankastjóra Seðlabankans. (3) Jóhannes Nordal Jóhannes Nordal Geir Hallgrímsson Tómas Árnason Tómas Árnason Jóhannes Nordal Tómas Árnason Geir Hallgrímsson. 3. Sigurður Grétarsson varð á dögunum svissneskur meistari í knattspyrnu. Hvað heitir liðið sem hann leikur með? (1) Veit það ekki Luzern Luzern 4. Hver er yngstur núverandi ráðherra og hvað verður hann gamall á þessu ári? (2) Steingrímur J. Sigfússon Steingrímur J. Sigfússon Steingrímur J. Sigfússon hann verður 34 ára 36ára fæddur 4. ágúst 1955 og verður því 34 ára á þessu ári. 5. Nefnið 10 fréttamenn Ríkissjónvarpsins (íþróttafrm. meðtaldir) (10) Edda Andrésdóttir, Bogi Ágústsson, Bjarni Fel., Árni Þórður Jónsson, Helgi E. Helgason, Jón Valfells, Helgi H. Jónsson, Ingimar Ingimarsson, Arnar Björnsson, Bjarni Vestmann Unnur Úlfarsdóttir, Jón Valfells Bjarni Fel., Jón Óskar Sólnes, Arnar Björnsson, Gísli Sigur- geirsson, Friðrik Páll Jónsson, Ingimar Ingimarsson, Ólafur Sigurðsson, Helgi H. Jónsson Öil þessi nöfn eru rétt. 6. Christer nokkur Pettersson hefur verið í fréttum að undanförnu. Af hverju? (1) Hann er ákærður fyrir morðið á Vegna morðsins á Olof Palme Honum er gefið að sök að Palme hafa myrt Olof Palme 7. í hvaða hreppi er Laugarvatn? (1) Veitþaðekki Hef ekki hugmynd Laugardalshreppi. 8. Hvað heitir nýkjörinn stjórnarformaður SÍS? Ólafur Sverrisson Ólafur Sverrisson Ólafur Sverrisson. 9. Um síðustu helgi hélt þekkt bresk hljómsveit tónleika á Hótel íslandi. Hvað heitir hún? (1) Smokie Smokie Smokie 10. Hver er merking orðsins „drægjulegur“? Seinn til verka Druslulegur, ræfilslegur Seinlátur, seinn á sér Stig samtals 20 18.5 22 i heilsupósturinn I Umsjón: Sigurður Gestsson og Einar Guðmann vítamín og steineftii? Hvað eru Næringarfræðin er nokkuð ókönnuð vísindagrein þrátt fyrir allar þær kannanir sem hafa verið gerðar og er verið að gera. Það er ekki einu sinni séð fyrir endann á því að mannkynið komi til með að þekkja þessa grein til hlítar vegna hins ótrúlega margbreyti- leika sem felst í hinum mörgu líf- fræðilegu efnaskiptum sem eiga sér stað á hverjum degi í líkam- anum. Það er hins vegar ekki þar með sagt að við séum ekki þegar búin að afla okkur vitneskju um eðli og eiginleika hinna ýmsu þátta í umhverfi okkar. Vítamín og steinefni er nokkuð sem alltaf ber á góma þegar næringarfræði ber á góma og því væri viðeigandi að gefa örlitla úttekt á eiginleik- um og eðli vítamína og steinefna. Það eru 23 efni sem hægt er að flokka niður sem vítamín og talin eru mikilvæg fyrir næringu manna. Öll vítamín eru lífræn fæðuefni - þau finnast einungis í lifandi verum. Öll eru þau lífs- nauðsynleg fyrir eðlilegan vöxt og heilsu og líkaminn verður að fá þau í gegnum fæði eða frá utanaðkomandi þáttum, vegna þess að hann getur ekki framleitt þau sjálfur (með örfáum undan- tekningum sem eru varla eftir- tektarverð vegna þess hve lítið magn þarf af þeim). Vítamín hafa ekki hitaeining- ar. Þau eru ekki heldur bygging- arefni líkamans. Þau hjálpa hins vegar til við að byggja hann upp með því að aðstoða við hin marg- víslegu efnaskipti og ensímastarf- semi sem aftur á móti sjá um uppbyggingu og viðhald líkam- ans. Þau eiga þátt í að breyta fitu og kolvetnum yfir í orku og hjálpa við uppbyggingu vefja lík- amans. Þörf manna fyrir vítamín velt- ur á nokkuð mörgum þáttum. Nokkrir mikilvægir þættir eru: Veðurfar, aldur, kyn, líkams- stærð, erfðaeiginleikar, heilsufar og hreyfing. Það er nokkuð algeng trú að við fáum öll þau vítamín sem við þurfum í gegn- um fæðuna. En jjað er ekki ör- uggt ef hafðir eru í huga þættirnir hér að ofan sem hafa áhrif á víta- mínþörfina og sú staðreynd að það fæði sem við borðum í dag er oft mikið soðið eða unnið á ýms- an hátt og eru því næringarminni en okkur er talin trú um. Hins vegar bæta ofurskammtar af vítamínum ekki endilega heils- una. Umframmagn af vítamín- um er annað hvort geymt í líkam- anum eða sent út með þvagi. Og reyndar geta sum vítamfn sem eru fituleysanleg, verið hættuleg í miklu magni. Fituleysanlegu vítamínin eru yfirleitt mæld í alþjóðaeiningum (UI) en vatns- leysanlegu vítamínin eru mæld í milligrömmum (Mg). En hvað eru þá steinefni? Það eru 17 efni sem eru ýmist í lífræn- um eða ólífrænum samböndum sem talað ei um sem steinefni. Samanlagt mynda þau um 5% þyngdar líkamans. Hlutverk steinefna í líkamanum eru óend- anlega mörg - hvatar í líffæra- starfsemi, beinum, tönnum, hári, öllum líkamsvefjum, taugavið- brögð, hjarta og vöðvastarfsemi, hormóna og vökvajafnvægi, melting og andleg starfsemi. Þetta er huti af því sem þau eiga þátt í og er ekki svo lítið. Óll verða þau að koma í gegnum fæðuna því líkaminn getur ekki framleitt þau. Einu steinefnin sem dagsþörfin hefur verið mæld á, eru kalk, zink, járn, joð, mangan og fosfór. Hægt er að benda á hugsanlega dagsþörf á hinum en það er ekki hægt að gera með eins mikilli nákvæmni. Mun fleiri steinefni en þetta eru í líkaman- um, en það eru meðal annars klór, kalíum, salt og kopar svo eitthvað sé nefnt. Þau eru yfir- leitt mæld í milligrömmum. Til eru fleiri nauðsynleg steinefni sem kallast snefilefni sem mæld eru í míkrógrömmum vegna þess að einungis mjög lítið finnst af þeim í líkamanum eins og nafn þeirra bendir til. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að skortur á einu steinefni gerir hin að verulegu leyti gagnslaus þrátt fyrir að nóg sé af þeim í líkamanum. Starf- semi steinefna er mjög innbyrðis tengd og verða því öll að vera til staðar til þess að þau virki. Það er svipað með vítamínin og stein- efnin að það eru margir þættir sem hafa áhrif á dagsþörfina og því er ekki annað hægt að ætla en að menn verði að vanda fæðuval- ið eða taka bætiefni ef þörfinni á að fullnægja.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.