Dagur - 07.10.1989, Síða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 7. október 1989
ferðamál
Arnarflug á Húsavík:
Heimamönnimi geílnn val-
kostur með áætlunarílugið
Arnarflug heimsótti Húsavík sl. laugardag. Starfs-
fólk félagsins kynnti vetraráætlun þess í Félags-
heimili Húsavíkur, gestum var gert ferðatilboð,
boðið að taka þátt í ferðagetraun og hlusta á söng
Frúarinnar í Hamborg. Dorniervél félagsins var til
sýnis á Húsavíkurvelli. Bæjarfulltrúum og fleirum
var boðið í útsýnisflug með vélinni til að kynnast
henni ögn betur því Arnarflug hefur sótt um hluta
áætlunarflugsins á leiðinni milli Húsavíkur og
Reykjavíkur. í umsókninni felst að flogið verði
tvisvar á dag og í báðum ferðum án millilendingar,
sótt er um áætlunarflugið þrjá daga vikunnar, og
þá á móti Flugleiðum sem nú annast áætlunarflug-
ið. Flugleiðir fljúga níu sinnum í viku til Húsavík-
ur en millilenda á Sauðárkróki í hverri ferð, annað
hvort á leiðinni til eða frá Húsavík. Jörundur
Guðmundsson er sölu- og markaðsstjóri innan-
landsdeildar Arnarflugs og eftir útsýnisflugið yfir
dásemdir Þingeyjarsýslu var hann beðinn að segja
frá Dornier 228-201 flugvél félagsins.
„Vélin er framleidd í Þýska-
landi og Dornierverksmiðjurnar
eru búnar að smíða flugvélar síð-
an talsvert löngu fyrir stríð.
Dorniervélar voru fyrst notaðar
til áætlunarflugs 1982 en þá voru
þær búnar að vera í notkun fyrir
þýska herinn í nokkuð mörg ár.
Það sem gerir þessa vél svona
sérstaka, og fremri flestum öðr-
um vélum, er vængurinn á henni,
en það tók mörg ár að hanna
hann. Þessi vængur á sér enga
hliðstæðu, miðað við lyftigetu og
svo er hann frekar þunnur miðað
við vængi á öðrum vélum og
fremri hlutinn er massífur. Þessi
vél getur lent á mjög stuttum
flugbrautum, 7-800 metra löng-
um malarbrautum, og hún þolir
alveg rúmlega 30 hnúta hliðar-
vind sem engin önnur vél í flugi
hérna hefur þolað.“
- Var það ekki þessi vél sem
vakti mikla athygli á flugsýningu
í Reykjavík fyrir nokkrum árum,
þegar henni var flogið á öðrum
hreyflinum og velt í hringi í loft-
inu?
„Það var þessi vél og segir
kannski eitthvað um hvað hún
þolir, en þetta verður nú ekki
stundað í farþegaflugi."
- Hvað um öryggi vélarinnar?
„Af skrúfuvélum er þessi vél
talin með eitt mesta rekstrar-
öryggi í heimi, að öllum öðrum
vélum ólöstuðum. Öryggið skap-
ast af þessum sérstaka væng,
mótorunum og hönnuninni á vél-
inni sjálfri. Þetta er þýsk fram-
leiðsla, eins og kom fram áðan og
þýskar vörur eru þekktar vegna
gæða, t.d. Mersedes Bens, og
Bensverksmiðjurnar eiga einmitt
70% af Dornierverksmiðjunum.“
Dorniervélin tekur 19 farþega,
í áhöfn hennar eru tveir flug-
menn en engin flugfreyja. í vél-
inni eru einfaldar sætaraðir og
því gluggi við hvert sæti, rými
fyrir farþega er ágætt og snyrting
Arnarflugsmenn, bæjarstjóri og bæjarfulltrúar á Húsavík eftir flugferðina.
þóknanlegt að við fáum sérleyfið
allt eins og það leggur sig, þá
séum við tilbúnir til að sanna
okkur. Við skiljum það vel að þið
eruð búin að hafa Flugleiðir, sem
hafa staðið sig vel víða, svo við
erum tilbúnir að taka bara þrjá
daga í viku og Flugleiðir mættu
þá ráða hvaða fjórum dögum þeir
vilja halda, en við skulum sætta
okkur við þá daga sem þeir vilja
síst fá. Við erum að tala um að
gera þessa tilraun í eitt ár og ef
að fólki hér líkar þetta ekki eða
þetta kemur illa út erum við til-
búnir að bakka út og hætta þessu.
Við gerum þetta í því skyni að
bæta samgöngur hingað og ég
held að varla sé hægt að bjóða
betur. Við höfum einnig uppi
áform um það næsta sumar að
beina erlendum ferðamönnum
hingað í auknum mæli, ná samn-
ingum við aðila hér sem rekur
hópferðabíla og semja við hann
um ferðir frá Húsavík í Mývatns-
sveit, Ásbyrgi og víðar.“
- Nú eru farþegar til Húsavík-
ur oft með heilmikinn farangur
með sér og einnig er talsvert um
flugfrakt. Hvernig leysið þið þau
mál með ekki stærri vél?
„Með tveim ferðum á dag get-
um við alveg annað því miðað við
eðlilega umferð, en fyrir jól og
páska þarf að sjálfsögðu að bæta
við aukavélum. Það höfum við
alltaf gert á okkar staði, t.d. á
Vestfirðina þegar samgöngur á
landi hafa verið erfiðar, þá fer
iðulega vél sem er bara með frakt
samtímis í loftið og farþegavél-
in.“
- Ráða heimamenn einhverju
um það hverjum verður úthlutað
leyfi?
„Samgönguráðherra hefur sagt
mér að hann muni fyrst og síðast
fara eftir því sem heimamenn
vilja við veitingu leyfanna. Við
erum samkeppnisfærir hvað
verðin varðar og getum selt farið
fram og til baka fyrir vel innan
við 10 þúsund, og er þá flugvall-
arskattur talinn með. Ellilífeyris-
þegar sem eiga bókað far fá 50%
afslátt alla daga hjá okkur,“ sagði
Jörundur að lokum. IM
Myndir: IM
Dorniervél Arnarflugs á Húsavíkurflugvelli.
Jörundur Guðmundsson, sölu- og
markaðsstjóri innanlandsflugs.
er um borð. Jörundur sagði að
við eðlilegar aðstæður tæki flug
milli Húsavíkur og Reykjavíkur
52 mínútur. Hann var beðinn að
segja nánar frá umsókninni um
áætlunarflugið.
„Þessi leyfi eru veitt til fimm
ára í senn. Við fljúgum til mjög
smárra staða og það er orðið
okkur erfitt, t.d. eigum við í erf-
iðleikum með að endurnýja okk-
ar flugflota. Það er viðurkennd
staðreynd af yfirvöldum, sem
vilja náttúrlega umfram allt að
smástöðunum sé þjónað líka, að
það verði þá að láta aðila eins og
Arnarflug fá aðeins stærri skerf
af hinni kökunni, svo þeir geti
haldið áfram að þjóna minni
stöðunum. Við höfum ekki kynnt
okkar mál með neinu offorsi eða
látum, heldur segjum að ef það
sé ekki forsvarsmönnum hér