Dagur - 07.10.1989, Síða 7
í kýrhausnum
gamansogur, sannar og
uppdiktaðar
YZÖú'i- ' ‘Ui/-'.'tJlfj: ■.‘•J.i -
Laugardagur 7. oktober 1989 - DAGUR
Af tvennu illu . . .
Slökkviliðið í smábæ nokkrum í
Þýskalandi þurfti að endurnýja
ýmis tæki, en fé var ekki fyrir
hendi. Eftir nokkur heilabrot var
ákveðið hvernig afla skyldi
fjárins. Slökkviliðsmenn sendu
fjölritað ávarp til allra íbúa
bæjarins og í því stóð:
„Ef ekki safnast nægilegt fé til
þess að kaupa ný tæki, þá neyð-
umst við líklega til þess að halda
konsert."
Þeir fengu peningana.
Um miskunnsemina
Predikari nokkur var að segja
áheyrendum sínum frá því hve
hörmulega lítið væri til af anda
hins miskunnsama Samverja á
þessum síðustu og verstu tímum.
Til skýringar á máli sínu sagði
hann frá atviki, sem borið hefði
við, er hann var á ferð í Norður-
Afrfku fyrir skömmu:
„Ég ætlaði að borða á litlu veit-
ingahúsi með kunningja mínum,
og á leiðinni þangað gengum við
fram á mann, sem liðið hafði yfir
Borgarbíó
Laugard. 7. okt.
Kl. 9.00 og 11.00
Regnmaðurinn
Hún er komin Óskarsverölaunamyndin
Regnmaðurinn sem hlaut fern verðlaun
29. mars sl. Þau eru: Besta myndin,
besti leikur í aðalhlutverki: Dustin Hoffman,
besti leikstjóri: Barry Levinson,
besta handrit: Ronald Bass/Barry Morrow.
Regnmaðurinn er af mörgum talin ein besta
mynd seinni ára. Samleikur þeirra Dustin
Hoffman og Tom Cruise er stórkostlegur.
Frábær toppmynd fyrir alla aldurshópa!
....j;É
Kl. 9.00 og 11.00
Beint á ská
Sunnudagur 8. okt.
Kl. 3.00, 9.00 og 11.00
Regnmaðurinn
Kl. 3.00
Heiða
Kl. 9.00 og 11.00
Beint á ská
Mánud. 9. okt.
Kl. 9.00
Regnmaðurinn
Kl. 9.00
Beint á ská
í steikjandi sólarhitanum, og
hann lá þarna hjálparvana á jörð-
unni.“
Eftir hátíðlega þögn bætti
hann við: „Ekki einn einasti
maður hafði numið staðar til þess
að líkna vesalings manninum. En
þar með er ekki allt sagt. - Þegar
við komum aftur frá því að borða
lá vesalings maðurinn ennþá
hjálparvana á sama stað.“
Jósefína Baker
Blökkusöngkonan kunna Jósef-
ína Baker hitti Alphonse Juin
marskálk í fínni veislu í París, og
marskálkurinn horfði með mikl-
um óánægjusvip á hinar mörgu
vel búnu og skartgripum prýddu
konur í salnum.
„Hvað amar að yður, hr. mar-
skálkur?“ spurði Jósefína.
„Allt þetta óhóf fer í skapið á
mér,“ sagði marskálkurinn. „Vit-
ið þér að útgjöld franskra kvenna
til fata- og skartgripakaupa eru
að minnsta kosti helmingi meiri
árlega en öll útgjöld til hersins?!"
„Þetta má vel vera,“ svaraði
Jósefína Baker, „en vitið þér eitt,
hr. marskálkur? Franskar konur
vinna a.m.k. helmingi fleiri sigra
en franski herinn.“
Eftir blóðprufuna
Wallace Bcery, bandarískur
kvikmyndaleikari, var dag nokk-
urn að aka bíl sínum skammt fyr-
ir utan San Francisco. Óku þeir
þá hvor á annan, hann og Skoti
nokkur, Mac Intosh að nafni.
Bílarnir skemmdust mikið en
hvorugan bílstjórann sakaði.
Meðan þeir biðu eftir því að lög-
reglan kæmi til þess að taka af
þeim skýrslu þreif Wallace Beery
stærðar viskípela upp úr vasa sín-
um og rétti Skotanum
„Fáið yður nú einn góðan,“
sagði hann. „Við verðum að
halda upp á það, að við sluppum
lifandi."
Skotinn fékk sér drjúgan sopa
úr pelanum og rétti hann svo eig-
andanum. Beery stakk honum í
vasann.
„Hvað er þetta?“ spurði Skot-
inn undrandi. „Ætlið þér ekki
líka að fá yður einn?“
„Jú," ansaði Beery, „en ekki
fyrr en eftir blóðprufuna."
Hver er stúlkan?
Eftirlætisgoðið franska, Maurice
Chevalier, fékk einu sinni sent
bréf til búningsherbergis síns, og
þegar hann hafði lesið það varð
hann mjög áhyggjufullur á
svipinn.
„Hvað er að?“ spurði félagi
hans einn, samúðarfullri röddu.
„Æ, það er hérna maður sem
skrifar, að hann skuli skjóta mig
ef ég hætti ekki strax að vera með
dóttur hans.“
„Nú, svoleiðis. Þá er ekkert
um það að fást, þú verður bara
alveg að hætta að hitta stelpuna.“
„Ja, þú segir það, en það er nú
hægara sagt en gert,“ sagði
Chevalier og rétti félaga sínum
bréfið. „Getur þú kannski lesið
þessa undirskrift?"
Staðreyndir
úr rekstri
Dreifing útlána = dreifing áhættu
Sjávarútvegur
10,38%
Einstaklingar
19,45%
Þjónusta/
samgöngur
12,34%
Landbúnaður
17,14%
Opinberir aðilar
13,97%
Helstu flokkar útlána í ágúst 1989
MARKVISS STEFNA í 60 ÁR
SAMHENT STJÓRN í 60 ÁR
BUNAÐARBANKI
ÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI - RÍKISBANKI