Dagur - 24.10.1989, Síða 4
5 - HUOAQ ■= 888 í' ladoWo luoBbuiöiid
4 - DAGUR - Þriöjudagur 24. október 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
KARL JÓNSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Há slysatíðni
í umferðinni
Nú er skammdegið gengið í garð; sá árstími
sem hvað hættulegastur er í umferðinni. Það
er ekki einungis birtuskilyrðin sem versna,
heldur akstursskilyrði öll þegar hálka mynd-
ast á vegum vegna frosta og snjóa.
Það er ekki að ófyrirsynju sem ástæða er
til að hvetja ökumenn til að fara að öllu með
gát og haga akstri með tilliti til aðstæðna.
Skýrslur Umferðarráðs um fjölda umferðar-
óhappa og yfirlit yfir fjölda slasaðra og lát-
inna í umferðinni verða æ ískyggilegri ár frá
ári. Til marks um það má nefna að í fyrra lét-
ust 33 íslendingar í umferðarslysum og árið
1987 létust 26. Flest bendir til þess að dán-
artíðnin í umferðinni verði ekki lægri í ár og
reyndar er ekkert sem bendir til þess að
umferðaróhöppum né umferðarslysum fari
fækkandi frá því sem verið hefur, þrátt fyrir
stóraukna fræðslu og áróður ýmissa aðila
um umferðarmál. Þvert á móti stefnir allt í
að yfirstandandi ár verði eitthvert mann-
skæðasta ár íslandssögunnar í umferðinni.
Þessar staðreyndir eru þess eðlis að við
þeim verður að bregðast og leita orsaka.
Einhverra hluta vegna eru umferðarslys
hlutfallslega mun tíðari á íslandi en í öðrum
löndum þar sem bifreiðaeign og umferðar-
þungi er svipaður og hér.
Vafalaust er ekki hægt að setja fram neina
einhlíta skýringu á hárri slysatíðni í íslenskri
umferð. Þar spila margir þættir saman. Öku-
menn hafa ekki næga þekkingu á þeim lög-
um og reglum sem gilda í umferðinni og
óvíða ríkir jafnmikið tillitsleysi í umferðinni
og hér á landi. Á stundum eru það einnig
hönnunargallar í skipulagi og slælegar eða
engar merkingar sem valda slysum. En í
flestum tilfellum er fyrst og síðast við öku-
mennina sjálfa að sakast.
Umferðar„menningin“ hér á landi er ein-
hverra hluta vegna afar vanþróuð. Skýrslur
Umferðarráðs síðustu árin staðfesta það
ótvírætt. Við þessu verðum við öll að
bregðast. Það getur sérhver vegfarandi gert
með því að strengja þess heit að lækka
slysatíðnina í umferðinni og haga síðan ferð-
um sínum um götur og vegi landsins eftir
því. BB.
Það var mikið um dýrðir í Vík-
urröst á Dalvík að kvöldi fyrsta
vetrardags. Tekið var á móti um
200 gestum með kokteil og að því
búnu settust menn að snæðingi.
Borin var fram þrírétta máltíð að
hætti Sæluhússins á Dalvík sem
kitlaði óspart bragðlauka sam-
komugesta. Undir börðum voru
skemmtiatriði af ýmsum toga,
söngur, tískusýning, grfn og
glens og síðast en ekki síst krýn-
ing á Ungfrú Dalvík. Sex bráð-
myndarlegar dalvískar blóma-
rósir tóku þátt í keppninni og var
það samdóma álit gesta að þær
hafi staðið sig með mikilli prýði.
Andrúmsloftið var rafmagnað
þegar Arnar Sínionarson,
kynnir, greindi frá niðurstöðu
dómnefndar, skipaðri Ólafi
„Laufdal“ Árnasyni, Einari Arn-
grímssyni, Friðbjörgu Jóhanns-
dóttur, Halldóri Guðmundssyni,
Jóhönnu K. Óskarsdóttur og Sig-
ríði Haraldsdóttur. Fyrst var til-
kynnt val vinsælustu stúlkunnar,
þar næst stúlkunnar í öðru sæti
og rúsínan í pylsuendanum var
val dómnefndar (70% vægi) og
samkomugesta (30% vægi) á
Ungfrú Dalvík. Vinsælasta stúlk-
an var kjörin Bergþóra Rós Lár-
usdóttir, í öðru sæti keppninnar
um sæmdarheitið Ungfrú Dalvík
lenti Kristín Sveinbjörnsdóttir og
Ungfrú Dalvík 1989. Árndís Guðný Grétarsdóttir. Hún er 17 ára gömul,
fædd 4. júní 1972, og er 179 cm á hæð. Ámdís Guðný lauk 1. bekk á almennri
bóknámsbraut við MA sl. vor. Hún hyggur á frekara nám við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Hún segist hafa áhuga á ferðalögum og draumalandið
er Grikkland. í framtíðinni hefur Árndís Guðný hug á námi í snyrtifræðum.
Ungfrú Dalvík krýnd að kvöldi fyrsta vetrardags:
MiMð um dýrðir í „RöstinnT
Ungfrú Dalvík var kjörin Árndís
Guðný Grétarsdóttir.
Blaðamaður Dags var við-
staddur þessa glæsilegu hátíð
Víkurröst og festi nokk'ur augna-
blik á filmu. Sýnishorn af þeim
gefur hér að líta. óþh
Stúlkurnar í keppninni komu fyrst
fram í klæðnaði frá Álafossi hf. Síð-
an sáu þær um að kynna tískufatnað
frá verslunun á Dalvík og í Olafs-
fírði. Frá vinstri Bergþóra Rós Lár-
usdóttir, Kristín Sveinbjörnsdóttir,
Ragnheiður Valdimarsdóttir, Árn-
dís Guðný Grétarsdóttir, Björk
Sturludóttir og Freydís B. Antons-
dóttir.
Að lokinni krýningu. Frá vinstri Kristín Sveinbjörnsdóttir, sem lenti í öðru
sæti keppninnar um Ungfrú Dalvík, fegurðardrottningin Árndís Guðný
Grétarsdóttir og vinsælasta stúlkan Bergþóra Rós Lárusdóttir. Myndir: óþh
„Lambada“ er nafn á nýjasta
dansinum, sem gerir allt vitlaust
hér á landi um þessar mundir.
Dansarar frá Danskóla Sibbu á
Akureyri sýndu þennan vinsæla
dans á fjölum Víkurrastar við mik-
inn fögnuð viðstaddra.
Bergþóra Rós Lárasdóttir var kjör-
in vinsælasta stúlkan. Hér er Frið-
björg Jóhannsdóttir, sem sat í
dómnefnd, að staðfesta það val með
tilheyrandi borða.
Slysavarnakonur tóku lagið svo heyrðist um nærliggjandi sveitir. Heimir
Kristinsson, kennari og gamalkunnur „spillemann“, þandi dragspilið af
miklum þrótti.