Dagur - 24.10.1989, Side 7
Þriðjudagur 24. október 1989 - DAGUR - 7
Bandaríkjamaðurinn í liDi Þórs, Dan Kennard, treður hér með miklum til-
þrifum. IR-ingurinn, Björn Stcphensen, fylgist með skelfingarsvip með til-
þrifum Dans. Mynd: KL
Uppskeruhátíð KRA:
Þorvaldur valinn
- Knattspyrnumaður Akureyrar 1989
Það kom engum á óvart að
Þorvaldur Örlygsson var val-
inn Knattspyrnumaður Akur-
eyrar 1989 á Uppskeruhátíð
KRA á sunnudaginn. Hann
átti mjög gott tímabil í sumar
sem endaði með íslandsmeist-
aratitli KA og Þorvaldur var
síðan valinn Knattspyrnumað-
ur ársins 1989 á lokahófi sam-
taka 1. deildarleikmanna.
Þorvaldur er nú heitna í stuttu
leyfi en hann æfir nú sem kunn-
ugt er með enska stórliðinu Nott-
ingham Forest og það eina sem
strandar á að hann fari að leika
með liðinu er að ekki fæst
atvinnuleyfi fyrir Þorvald í Bret-
landi. Hann sagði að hann yrði
að bíða rólegur og að það færi
vonandi að koma hreyfing á það
mál fljótlega.
Það var því vel klappað þegar
Þorvaldur tók við verðlauna-
gripnum, sem Gullsmiðir Sig-
tryggur og Pétur gáfu til keppn-
innar.
Nánar er fjallað unt Uppskeru-
hátíðina á bls. 8. en keppnin var
mjög jöfn og spennandi milli
Þórs og KA í flestum flokkum á
Akureyrarmótinu.
Isirni brotirm
- sagði Dan Kennard þjálfari Þórs eftir að liðið
vann ÍR 97:92 í fyrsta sigri vetrarins
Þórsarar unnu langþráðan sig-
ur í Úrvalsdeildinni í körfu-
knattlcik á sunnudagskvöldið.
Andstæðingarnir voru ÍR-ing-
ar og voru lokatölur í íþrótta-
höllinni 97:92 eftir að Þórsarar
höfðu verið komnir með 17
stiga forskot á tímabili.
„Það var gott að brjóta loksins
ísinn með sigri. Þetta voru
ánægjuleg úrslit og gefa aukið
sjálfstraust fyrir framhaldið. Við
verðum hins vegar að læra að
halda haus betur í lok leikja því
það var ekki langt frá því að við
glopruðum þessu niður líkt og
gegn Njarðvík í síðasta heima-
leik,“ sagði Dan Kennard þjálfari
Þórs eftir leikinn.
ÍR-ingar skoruðu fyrstu körf-
una en Þórsarar svöruðu með fjór-
um körfum í röð. Gestirnir náðu
að jafna 10:10, en þá kom vægast
sagt hræðilegur leikkafli hjá báð-
um liðum. Reynd voru skot frá
vonlausum stöðum og menn
brenndu af úr upplögðum færum.
A þessum tíma söfnuðu Þórsar-
arnir villum í gríð og erg og var
aðdáendum Þórs . ekki um sel
þegar þeirra menn voru komnir
með tíu villur en ÍR-ingar eina.
En öll él birtir upp um síðir og
Þórsarar tóku sig heldur betur
saman í andlitinu. Þeir fóru að
leika eins og englar og röðuðu
stigum á gestina. Áður en varði
voru þeir komnir með 13 stiga
forskot, 35:24.
Þessum mun héldu þeir að
mestu leyti fram að leihléi nema
að undir lok hálfleiksins kom
þessi venjulega niðursveifla og
IR-ingar minnkuðu muninn í 9
stig. En tvær góðar körfur frá
Konráði og Jóni Erni tryggðu
Staðan í
úrvalsdeildinni A-riðill:
ÍBK 6 4-2 580:515 8
Grindavík 6 3-3 451:451 6
ÍR 6 3-3 507:511 6
Valur 6 2-4 492:501 4
Reynir B-riðill: 6 0-6 440:582 0
UMFN 6 6-0 534:471 12
KR 6 5-1 435:398 10
Haukar 6 4-2 541:433 8
UMFT 6 2-4 531:541 4
Þór 6 1-5 477-585 2
heimadrengjunum gott forskot er
gengið var til búningsherbergja,
45:32.
IR-ingar komu með miklum
látum inn á völlinn og skoruðu
fyrstu sex stigin í síðari hálfleikn-
um. Þá tók Jón Örn góða syrpu
og skoraði tvær 3 stiga körfur
með stuttu millibili og það gaf
Þórsliðinu byr undir báða vængi.
Reyndar voru villuvandræði
farin að gera vart við sig sig hjá
liðinu og voru allir fastamennirn-
ir komnir með þrjár villur og
Guðmundur fjórar mjög snemma
í hálflerknum. Þar að auki snéri
Jón Örn sig og þurfti að fara af
leikvelli.
Bandaríkjamaðurinn í liði ÍR,
Thomas Lee, fór þá í gang og
skoraði hvert stigið á fætur öðru,
og á sama tíma var mikið um
ótímabær skot og vitlausar send-
ingar hjá Þór.
Þá kom Jón Örn aftur inn á og
Konráð Óskarsson sýndi skemmti-
lega takta er hann plataði ÍR-
vörnina og gaf Globetrotters-
sendingu á Dan Kennard sem
skoraði örugglega. Síðan tróð
Kennard með tilþrifum og Þórs-
arar náðu að halda 10-12 stiga
mun fram á síðustu mínútu.
Þá virtust Þórsara fara á taug-
um og allt í einu var munurinn
kominn niður í 5 stig, 95:90. En
heimapiltarnir náðu að halda
haus og tryggðu sér sigur ineð
síðustu körfu leiksins.
Bestu menn Þórs í leiknum
voru þeir Konráð Óskarsson og
Jón Örn Guömundsson. Eiríkur
Sigurðsson var sterkur í vörninni
og Kennard mjög sterkur í frá-
köstunum. Hins vegar var nýting-
in hjá Bandaríkjamanninum
vægast sagt mjög slök í lang-
skotunum. Ungur ieikmaður,
Davíð Hreiðarsson, kom inn á í
síðari hálfleik og gerði góða
hluti.
Hjá ÍR voru þeir Björn
Stephensen og Jóhannes Sveins-
son atkvæðamestir. Lítið bar á
þjálfaranum, Thomas Lee, fyrr
en undir lok leiksins en þá skor-
aði hann grimmt.
Áhorfendur voru um hundrað
og létu vel í sér heyra. Með batn-
andi gengi Þórsara má búast við
að áhorfendum fjölgi og þá verða
Þórsarar erfiðir heim að sækja.
Dómarar voru þeir Sigurður
V. Halldórsson og Kristján
Möller og dæmdu þeir ágætlega.
Stig Þórs: Konráð Óskarsson 27, Dan
Kennard 24, Jón Örn Guðnnindsson 20,
Guðmundur Björnsson 10, Eiríkur Sig-
urðsson 9, Björn Svcinsson 3, Davíð
Hreiðarsson 2, Þórir Guðlaugsson 2.
Stig ÍR: Thomas Lcc 26, Jóhannes
Sveinsson 22, Björn Stcphensen 20,
Bragi Reynisson 12, Karl Guðlaugsson
10, Björn Leósson 2.
Hér sést Þorvaldur með þcnnan glæsilega verðlaunagrip sem Gullsmiðir Sig-
tryggur og Pétur gáfu. Mynd: ap
Góðarfréttirfyrir verslun og iðnað á Norðurlandi
Sambandsskip að sunnan á Akureyri alla mánudagsmorgna.
Takið vikuna snemma með
M SKIPADEILD SAMBANDSINS AKUREYRI
Hafnarstræti 91-95, sími 27797