Dagur - 21.11.1989, Blaðsíða 6

Dagur - 21.11.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 21. nóvember 1989 /' DAGS-ljósinu íl— Þingmaður og varaþingmaður í Norðurlandskjördæmi eystra í pólitískum hanaslag á landsfundi Alþýðubandalagsins: Máleftialegt eða persónulegt uppgjör? Ekki er séð fyrir með afleiðingar umróts á landsfundi Alþýðubandalagsins um helg- ina. Gríðarlegur ágreiningur milli arma Ólafs Ragnars annars vegar og Svavars Gests- sonar hins vegar var þar staðfestur. Deilt var mjög harkalega í flestum málum og há- punkti náði uppgjör flokksarmanna í kosningu milli þingmanns og varaþingmanns í Norðurlandskjördæmi eystra, Steingríms J. Sigfússonar, landbúnaðar- og samgöngu- ráðherra, og Svanfríðar Ingu Jónasdóttur, aðstoðarmanns fjármálaráðherra, um embætti varaformanns í flokknum. Svanfríður sóttist eftir endurkjöri eftir tveggja ára setu í varaformansstólnum en Steingrímur ákvað, að eigin sögn, að sækjast eftir kjöri eftir mikinn þrýsting fjölda flokksmanna. Steingrímur er fulltrúi arms Svavars Gests- sonar og hafði betur í kosningunni, hlaut um 56 prósent atkvæða. Ógjörningur er að spá um afleiðingar þessarar niðurstöðu uppgjörs fuíltrúa tveggja stríð- andi fylkinga í flokknum. Við- mælendur Dags telja að Ólafs- armurinn svokallaði þurfi nokk- urn tíma til að meta stöðuna í ljósi niðurstöðu landsfundar. Sumir segja fullum fetum að þessi atlaga Svavars og hans manna að formanninum og fylg- ismönnum hans hljóti að leiða til útgöngu fjölda þeirra síðamefndu úr flokknum. Aðrir telja að með kjöri Steingríms J. í embætti varaformanns sé forystan styrkari og breiðari og nú sé tryggt að í henni séu fulltrúar ólíkra skoð- ana og áherslna í flokknum. Sumir orða það svo að ekki hafi verið tilviljun að Steingrímur J. sóttist eftir kjöri til embættis varaformanns. Heimildir Dags herma að eftir þá yfirlýsingu Svanfríðar hér í Degi 7. október sl. að hún færi ekki aftur í annað sæti á lista flokksins í Norður- landskjördæmi eystra hafi Stein- grímur J. reiknað dæmið þannig að hún hefði í hyggju að keppa við sig um fyrsta sæti listans í næstu alþingiskosningum. Pessar sömu heimildir segja að Stein- grímur hafi ályktað sem svo að ef hann sigraði Svanfríði í kjöri um varaformann flokksins styrkti hann stöðu sína svo mjög í Norðurlandskjördæmi eystra að Svanfríði væri nánast ýtt út af borðinu, að minnsta kosti um hríð. Dalvíkingar eru fokreiðir Alþýðubandalagsfólk í fremstu víglínu í Norðurlandskjördæmi eystra er sammála um að uppgjör þingmanns og varaþingmanns flokksins í kjördæminu á lands- fundinum hafi verið mjög óheppilegt. Hins vegar eru skipt- ar skoðanir um hvort það komi niður á flokksstarfi í kjördæm- inu. Svavars-, og þar með Stein- grímsarmurinn, telur að kosning landbúnaðarráðherrans í vara- formannssæti hafi engin áhrif á starf flokksins í kjördæminu. Fylgismenn Ólafs Ragnars og Svanfríðar eru á annarri skoðun. Dagur hefur fyrir því traustar heimildir að hópur flokksbund- inna Alþýðubandalagsmanna í kjördæminu hyggist segja sig úr flokknum til að mótmæla þessari „atlögu", eins og það er kallað, að Svanfríði. Meðal annars mun ríkja mikil og almenn reiði meðal Alþýðubandalagsfólks á Dalvík sem þykir að með þessari skipan mála hafi verið mjög nærri sér höggvið. Þóra Rósa Geirsdóttir, fulltrúi Alþýðubandalagsins í bæjarstjórn Dalvíkur og vara- maður Svanfríðar Ingu Jónas- dóttur þar, segist líta svo á að Steingrímur J. hafi vegið mjög ómaklega að Svanfríði. „Ég spyr einfaldlega. Af hverju var ráðist beint gegn Svanfríði? Af hverju stigu menn ekki skrefið til fulls og fóru í slaginn gegn Ólafi Ragnari? Ég óttast mjög fyrir hönd Steingríms að þessi aðför hans gegn Svanfríði hafi alvarleg- ar pólitískar afleiðingar fyrir hann. Þær raddir heyrast frá fólki sem ekki þekkir vel til klofnings í Alþýðubandalaginu að þessi framkoma þingmannsins gagn- vart sínum varamanni sé lágkúru- leg og honum ekki sæmandi. Ég hlýt að álíta að þetta kunni að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir flokksstarf í kjördæminu." Krafa um sterkari vinstri stefnu Menn eru ekki sammála um hvort beri að líta á þá ákvörðun Steingríms J. að bjóða sig fram gegn Svanfríði sem hreina persónulega atlögu gegn henni. Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfull- trúi Alþýðubandalagsins á Akur- eyri og fulltrúi Svavars-armsins í formannskjöri í flokknum fyrir tveim árum, telur kjör Stein- gríms vera staðfestingu á óánægju fjölda flokksmanna með pólitískar áherslur forystu flokks- ins frá síðasta landsfundi, málið hafi alls ekki snúist um persónur. „Það að Steingrímur kemur þarna inn sýnir að mínum dómi vilja flokksmanna til að skerpa pólitískar áherslur. Okkur hefur fundist flokksforystan hafa fært sig í mörgum veigamiklum mál- um inn að miðju. Ég nefni stór- iðjumál, utanríkismál, viðhorf til Evrópubandalagsins og ekki síst byggðamál. í stórum dráttum lít ég á kjör Steingríms sem kröfu fjölda flokksmanna um sterkari vinstri stefnu.“ Sigríður telur að kjör Stein- gríms í varaformannsstól hafi engin áhrif á starf Alþýðubanda- lagsins á Norðurlandi eystra. „Ljóst er að það hafa orðið mjög glögg skil milli Svanfríðar og sjónarmiða sem hún stendur fyrir og þeirra sjónarmiða sem mikill meirihluti flokksmanna hér stendur fyrir. Þessi skil voru Svanfríður Inga Jónasdóttir. Bakari hengdur fyrir smið? mjög greinileg á þeim eina degi sem hún kom á kjördæmisþing okkar á Húsavík í haust. Að mínu áliti lýsti það dómgreindar- leysi Svanfríðar ef hún ætlaði sér að keppa við Steingrím um fyrsta sæti á lista flokksins í kjördæm- inu í næstu alþingiskosningum. Ég veit auðvitað ekkert hvort hún ætlar sér það. Mér finnst það þó mjög ósennilegt." Úr leik í Alþýðubandalag- inu á Norðurlandi eystra Þorgrímur Starri Björgvinsson, bóndi Garði í Mývatnssveit, seg- ist vera ánægður með þessa niðurstöðu landsfundarins. Hann segist yfirleitt vera ánægður með öll störf Steingríms J. Sigfússonar og af því leiði að hann hljóti að fagna kjöri hans til embættis varaformanns. Þorgrímur Starri telur að Steingrímur hafi með framboði til varaformanns lagt sína pólitísku framtíð undir. „Ef hann hefði tapað kosningunni er einsýnt að hann hefði orðið að ganga út úr ríkisstjórninni. Hefðu tillögur Birtingar um land- búnaðarstefnu og byggðamál náð fram að ganga er augljóst að Steingrími hefði ekki lengur ver- ið rótt í’ ríkisstjórninni. Með því að vinna þennan slag tel ég að hann hafi styrkt verulega stöðu sína hér í kjördæminu." Þorgrímur Starri segir það að sama skapi jafn slæmt fyrir Alþýðubandalagið á Norðurlandi eystra að til uppgjörs milli þing- manns og varaþingmanns skyldi koma með þessum hætti eins og fyrir tveim árum þegar Sigríður Stefánsdóttir tapaði í for- mannskosningu fyrir Ólafi Ragn- ari og Svanfriður Jónasdóttir gerðist síðan aðstoðarmaður hans. „Ég met það svo að Svan- fríður sé úr leik í Alþýðubanda- laginu í þessu kjördæmi, að minnsta kosti að sinni. Hún hefur þann möguleika, eins og Ólafs- armurinn allur, að ganga til liðs við Alþýðuflokkinn og kljúfa Alþýðubandalagið. Það teldi ég að væri í raun manneskjulegasta aðferðin fyrir þetta fólk. Sú niðurstaða væri gremjulaus frá minni hendi. Það verður hver að liggja þar sem hann hefur lund til.“ Þorgrímur Starri segist viður- kenna að honum hefði fundist það hreinlegri aðferð að í stað slags um varaformann flokksins hefðu menn stigið skrefið til fulls og boðið fram á móti Ólafi Ragn- ari. Hins vegar segir hann að sú aðgerð hafi ekki notið stuðnings innan flokksins, menn hafi viljað halda friðinn um embætti for- manns. „Ég skal viðurkenna að Steingrímur J. Sigfússon. Gerði yfirlýsing Svan- fríðar í Degi útslagið? það var óhugnanlegt að skyldi þurfa að stilla þessu svona upp. Þetta lítur óneitanlega þannig út að nauðsynlegt hafi verið að stjaka þessari konu út úr vara- formannssætinu. Ég er ekki sæll með þá niðurstöðu. Hún geldur þess blessuð stúlkan að það var ekki margra kosta völ til þess að láta skerast þarna í odd, sem ég tel að Ólafsarmurinn hafi nánast skorað á okkur að gera. Svanfríð- ur er ekki endilega sú persóna sem var spursmálslaust að yrði fórnað. Ég vil taka fram að hún er að mörgu leyti hæf manneskja og við erum ágætir kunningjar." „Þetta kemur á óvart“ Þingmenn annarra flokka í Norðurlandskjördæmi eystra, sem Dagur hefur rætt við, eru sammála um að erfitt sé að spá fyrir um afleiðingar þessara svipt- inga í Alþýðubandalaginu. Arni Gunnarsson, þingmaður Alþýðu- flokksins, segir að tíminn verði að leiða í ljós til hvers þessi átök leiði. Hins vegar sé nokkuð aug- ljóst að þau muni frekar skerpa andstæður í Alþýðubandalaginu en hitt. Hann telur að tap Svan- fríðar fyrir Steingrími hljóti að vera alvarlegt mál fyrir stöðu kvenna í Alþýðubandalaginu. Guðmundur Bjarnason, heil- brigðisráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, segir lík- legt að átök eins og komu upp á yfirborðið um helgina í röðum Alþýðubandalagsmanna hljóti að hafa áhrif á starf Alþýðubanda- lagsins. „Við framsóknarmenn á Norðurlandi eystra þekkjum það úr okkar starfi. Það virðist ljóst að einhver innbyrðis átök áttu sér þarna stað sem mér finnst ekki hafa verið áberandi. Þetta kemur því á óvart. Ég sé það fyrir mér að þetta hljóti að hafa nokkur áhrif á starfsemi Alþýðubanda- lagsins í Norðurlandskjördæmi eystra." Guðmundur segist vænta þess að þessar breytingar í forystu Alþýðubandalagsins hafi ekki áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, telur hins veg- ar einsýnt að þær muni veikja stöðu formanns Alþýðubanda- lagsins og um leið ríkisstjórnar- innar verulega. „Ég held að sá vængur Alþýðubandalagsins sem varð ofan á á landsfundinum hafi viljað fá Steingrím J. Sigfússon sem formann flokksins fyrir tveim árum og ég hygg að í því ljósi beri að skoða þetta uppgjör á yfirborðinu milli hans og Svan- fríðar. Undir niðri eru þetta hins vegar augljóslega átök milli Ólafs Ragnars Grímssonar og Svavars Gestssonar. óþh Akureyringar! Munið borgarafundinn um atvinnumál í Sjallanum í kvöld þriðjudaginn 21. nóvember kl. 20.00. Fórnið einu kvöldi í þágu atvinnuuppbyggingar á Akureyrar og mætið á fundinn. Kaupmannafélag Akureyrar. 0 m Frá Bændaskólanum á Hvanneyri BÚNAÐARNÁMSKEIÐ - endurmenntun - Bændaskólinn á Hvanneyri býður upp á ýmis búnaðarnámskeið við skólann. Nú á haustmiss- eri verða m.a. eftirtalin námskeið í boði: 1. Málmsuða. 23.-25. nóvember. Námskeiðið er ætlað bændum og markmiðið er að þátttakendur kynnist notagildi raf- og logsuðutækja. 2. Kanínurækt. 4.-6. desember. Byrjendanám- skeið ætlað þeim, sem hafa hug á að fara út í kanínurækt. Kennslan er bæði bókleg og verkleg. 3. Skattskil. 7.-9. desember. Fjallað er m.a. um undirstöðuatriði í færslu landbúnaðarskýrslu og persónuframtals auk umfjöllunar um virðisaukaskatt. 4. Tölvunotkun. 11.-13. desember. Byrjendanám- skeið, þar sem farið verður í grundvallaratriði svo sem stýrikerfi, ritvinnslu og töflureikna. Framleiðnisjóður landbúnaðarins styrkir þau námskeið, sem ætluð eru bændum. Nánari upplýsingar um námskeiðin eru veittar á skrif- stofu skólans kl. 8.20-17.00 mánudaga-föstudaga í síma 93-70000 og þar fer skráning þátttakenda einnig fram. Skólastjóri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.