Dagur - 21.11.1989, Síða 16
v erðlækkun!
Ert þú félagsmaður?
Vel búinn til vetraraksturs. Hvað skyldi Ingi Ú. segja við þessu? Mynd: kl
Húsavík:
Rúmlega 7500 atvinmileysis-
dagar fyrstu tíu mánuðina
- tæpar 11 milljónir greiddar í bætur
UIA og UMSB:
Sækja stíft eftir að
halda Landsmót 1996
- ákvörðun UMFÍ væntanleg í janúar
Horfur eru ekkert sérlega
glæsilegar í atvinnumálum á
Húsavík og atvinnuástand er
fremur slakt eins og er. Það fer
að nálgast að 100 manns hafí
komið inn á atvinnuleysisskrá,
sumir þeirra hafa einhverja
íhlaupavinnu en aðrir enga, að
sögn Snæs Karlssonar hjá
Verkalýðsfélagi Húsavíkur.
Fiskkvóti ársins er að verða
búinn, en samt er vinna í Fisk-
iðjusamlaginu og líkur á að hún
endist fram undir jól. Þeir sem
atvinnulausir eru koma úr ýms-
um starfsgreinum, margir úr
verslun og þjónustu og augljós
merki eru um almennan samdrátt.
Heldur fleiri konur en karlar eru
án vinnu, en atvinnuleysið er þó
verulega farið að bitna á körlum
líka, þó það hafi mest bitnað á
konunum í fyrstu. Að sögn Snæs
bendir ýmislegt til þess að ekki sé
aðeins um tímabundið atvinnu-
leysi að ræða, heldur að ein-
hverju leyti atvinnuleysi sem sé
komið til að vera, þar til við lend-
um aftur í einhverri uppsveiflu,
atvinnulega og tekjulega. Trú-
lega lagast málin þó eitthvað með
nýju kvótatímabili, ef fiskast.
Venjulega hafa flestir á atvinnu-
leysisskrá fengið vinnu þegar
kemur fram í janúar, en Snær
sagðist ekki vera viss um að svo
yrði að þessu sinni, vegna þeirra
breytinga sem virðast vera á
skráðu atvinnuleysi.
í október í fyrra varð uppihald
í fiskvinnslu sem ekki varð á
þessu ári, af þessum sökum var
töluvert atvinnuleysi í október í
fyrra en atvinnuleysi af því tagi
var ekki til að dreifa í haust. í
október 1988 voru skráðir 807
atvinnuleysisdagar og námu
greiddar bætur 1.092 þúsundum,
en í okt. ’89 voru atvinnuleysis-
dagar 736 og greiddar bætur
1.049 þúsund. Fyrstu tíu mánuði
ársins 1988 voru atvinnuleysis-
dagar 2099 og greiddar bætur
2.730 þúsund en fyrstu tíu mán-
uði þessa árs voru 7576 atvinnu-
leysisdagar og greiddar bætur eru
10.905 þúsund. IM
Fljótlega eftir áramót mun
stjórn Ungmennafélags íslands
taka ákvöröun um hvar Lands-
mót 1996 verður haldið. Tveir
aðilar hafa sótt um að halda
landsmót þetta ár, en það eru
Ungmenna- og íþróttasam-
band Austurlands og Ung-
mennasamband Borgarfjarð-
ar. Bæði félögin sækja stíft að
fá að halda Landsmótið þetta ár
og því ríkir mikil spenna um
hver endanleg ákvörðun
UMFÍ verður.
Magnús Stefánsson fram-
kvæmdastjóri UÍA sagði í sam-
tali við Dag að sambandið hafi
sótt um að halda mótið strax um
haustið 1988. í haust ritaði stjórn
sambandsins bréf til bæjarstjórn-
ar Egilsstaða þar sem spurt var
hvort hún væri tilbúin að hug-
leiða Landsmót á Austurlandi
1996. Fékk UÍA jákvætt svar við
því hjá bæjarstjórn og hefur nú
óskað eftir sameiginlegum fundi
með bæjarstjórn og stjórn UMFÍ
þar sem m.a. verður rætt um
aðstöðu til landsmótshalds. „Við
væntum þess að fundurinn verði
haldinn bráðlega því báðir aðilar
hafa samþykkt að halda fundinn.
Á honum verður fyrst og fremst
farið yfir stöðu okkar varðandi
aðstöðu en samkvæmt fram-
kvæmdaáætlun Egilsstaðabæjar
til 1996, komum við til með að
standa mjög vel þegar að mótinu
kemur,“ sagði Magnús.
Varðandi samkeppnisaðilana í
Borgarnesi, sem sækja sömuleið-
is mjög sterkt að halda þetta mót,
tóku þeir t.d. nýjan grasvöll í
notkun sl. sumar og eru að
byggja upp alla íþróttaaðstöðu.
Sem kunnugt er var síðasta
landsmót ungmennahreyfingar-
innar haldið á Húsavík árið 1988.
Næsta mót verður haldið að
Varmá í Mosfellsbæ á næsta ári
og þar á eftir að Laugarvatni
1993. VG
Húsavík:
Piltur hlaut
áverka í
slagsmálum
Sautján ára unglingur fékk
töluverða áverka í ryskingum í
heimhúsi á Húsavík síðastliðið
laugardagskvöld. Lögreglan
var kölluð á staðinn og flutti
hún piltinn á sjúkrahús en
árásaraðilann tók hún í sína
vörslu.
Að sögn varðstjóra hjá lögregl-
unni kom til slagsmála milli
tveggja pilta í heimahúsi með
þeim afleiðingum að annar þeirra
fékk skurð á augabrún, glóðar-
auga og snert af heilahristingi.
Ekki hafði lögreglunni borist
kæra vegna þessa atburðar síð-
degis í gær.
Helgin var annars róleg hjá
lögreglu víðast hvar á Norður-
landi og eftir því sem varðstjóri
hjá lögreglunni á Akureyri sagði
gerðist ekkert þar „sem tíðindum
sætir“. SS
Lífeyrissjóður fyrir Dalvík og Ólafsíjörð:
„Fyrsta skrefið að fá laga-
breytingu fyrir sjómeraiina“
- segir Þorsteinn Porvaldsson, sparisjóðsstjóri í Ólafsfirði
Sameiginlegur fundur Siglfirðinga
og Sauðkrækinga:
Mest rætt um skóla-
mál og gjaldheimtu
FuIItrúar frá bæjarstjórnum
Siglufjarðar og Sauöárkróks
hittust á fundi í síðustu viku
samkvæmt, ósk þeirra fyrr-
nefndu. Á fundinum voru
rædd samskipti þessara sveit-
arfélaga almennt.
Mest bar þó á góma skólamál
og gjaldheimtumál. Einnig voru
atvinnumálin rædd, svo og sam-
göngumál og aukin samvinna
þéttbýlisstaða á Nl-vestra. Að
sögn Björns Sigurbjörnssonar
formanns bæjarráðs Sauðárkróks
var þessi fundur mjög gagnlegur.
Mestur tíminn fór í að ræða
skólamál og gjaldheimtuna.
Bæjarstjórn Sauðárkróks leitar
um þessar mundir eftir sam-
stöðu sveitarfélaganna um að
taka þátt í uppbyggingu á Bók-
námshúsi Fjölbrautaskólans.
„Á fundinum kom fram áhugi
manna á því að taka gjaldheimtu-
málið upp að nýju og leysa það í
samvinnu við öll sveitarfélög á
Nl-vestra þannig að þessi gjald-
heimta geti orðið að veruleika.
Það þarf bara að finna einhvern
flöt á málinu sem að allir gætu
orðið sáttir við, “ sagði Bj örn. kj
„Af þessum fundi var ekki
ákveðin niðurstaða heldur var
þessi fundur fyrst og fremst
okkur til fróðleiks. Áfram
verður hins vegar unnið að
þessum málum,“ segir Þor-
steinn Þorvaldsson, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Olafsfjarðar
um fund Péturs H. Blöndals,
framkvæmdastjóra Kaupþings,
með undirbúningsnefnd um
stofnun lífeyrissjóðs fyrir Dal-
vík og Ólafsfjörð síðastliðinn
föstudag.
Þorsteinn segir ljóst að laga-
breytingu þurfi til að sjómönnum
á þessum stöðum verði heimilt að
greiða í þennan lífeyrissjóð í
heimahéraði þar sem þeir þurfi
nú lögum samkvæmt að greiða til
Lífeyrissjóðs sjómanna. Þorsteinn
segir að þetta atriði hljóti að
skipta verulegu máli hvað varðar
stofnun lífeyrissjóðs fyrir þessi
byggðarlög enda greiði t.d. sjó-
menn í Ólafsfirði um 45 milljónir
króna í lífeyrissjóði á þessu ári.
„Hjá okkur er það fyrsta skref-
ið að fá sjómennina inn og að
mörgu leyti er það frumskilyrði
Forseti Islands hefur að tillögu
landbúnaðarráðherra, skipað
Einar Otta Guðmundsson hér-
aðsdýralækni á ísafiröi, í
embætti héraðsdýralæknis í
Skagafjarðarumdæmi.
Embætti héraðsdýralæknis í
Skagafjarðarumdæmi var auglýst
laust til umsóknar þann 11. sept.
sl. og rann umsóknarfrestur út
hjá okkur að fá þá með enda er
meðal þeirra mikill áhugi fyrir
stofnun slíks sjóðs,“ segir Þor-
steinn. JÓH
15. okt. Tólf dýralæknar sóttu
um embættið.
Samkvæmt breytingu á lögum
um dýralækna nr. 77 1981, sem
samþykkt var á Alþingi 26. maí
sl., skal hæfnisnefnd skipuð
þremur dýralæknum, meta hæfni
umsækjenda í stöðu héraðsdýra-
læknis. Einar Otti Guðmundsson
var efstur í uppröðun nefndar-
innar. -KK
SkagaQarðarumdæmi:
Einar Otti ráðinn
héraðsdýralæknir