Dagur - 25.11.1989, Side 3
Laugardagur 25. nóvember 1989 - DAGUR - 3
-I
fréttir
Bílar og mengunarvarnir:
Hreinsibúnaður kostar
um 50 þúsund krónur
stjórnvöld verða að ákveða hvort bíleigendur greiði kostnaðinn
Hollustuvernd ríkisins hefur
gert athugasemdir við nokkur
atriði í áliti nefndar sem fjall-
aði um blýlaust bensín. Nefnd-
in lagði m.a. til að á íslandi
yrðu settar reglur um útblástur
bifreiða í samræmi við ECE
reglur og hún taldi að þau
mörk sem er að finna í meng-
unarvarnareglugerð væru of
ströng. í tilkynningu frá Holl-
Húsavík:
• /
i
Framhaldsskólanum
- sótt um Qárveitingu
vegna byggingar
Menntamálaráðherra hefur
verið sent bréf þar sem sótt er
um fjárveitingu til bygginga-
framkvæmda á fjárlögum árs-
ins 1990, til handa Framhalds-
skólanum á Húsavík. Mark-
miðið er að nýbyggingin verði
tilbúin til notkunar fyrir haust-
önn 1991 og er byggingakostn-
aður, miðaður við það, áætlað-
ur kr. 42 milljónir á næsta ári.
Mikil vandræði eru að skapast
vegna þrengsla í Framhalds-
skólanum á Húsavík, en
nemendum þar fjölgar örar en
von var á við stofnun skólans vor-
ið 1987. Gert var samkomulag
við Menntamálaráðuneytið 27.
maí 1988 um byggingu skóla-
húsnæðis vegna fyrirsjáanlegra
þrengsla í Framhaldsskólanum
sem fékk inni í húsnæði Gagn-
fræðaskólans. Þar stunda einnig
nám nemendur7., 8. og9. bekkj-
ar grunnskóla, sem ekki er rými
fyrir í Barnaskólanum. Þegar
hefur þurft að útvega kennslu-
rými fyrir framhaldsskóladeildir
úti í bæ.
Umræður um húsnæðisvanda
skólans, og fyrirhugaða breyt-
ingu á verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, urðu á fundi
Bæjarstjórnar Húsavíkur sl.
þriðjudag. IM
ustuvernd er hins vegar bent á
að í janúar sl. hafi félagsmála-
ráðherra skrifað undir sam-
norræna umhverfisáætlun þar
sem kveðið var á um að
Norðurlöndin tækju upp
bandarísku viðmiðunarmörkin
fyrir útblástur bifreiða.
Nefndin lýsti m.a. yfir undrun
á því að í mengunarvarnareglu-
gerð skuli fjallað um mengun frá
vélknúnum ökutækjum og sett
mengunarmörk, þar sem Dóms-
og kirkjumálaráðuneytið fjalli
skv. lögum um sérkröfur er
tengjast ökutækjum. Hollustu-
vernd hefur þetta að segja um
málið:
„Mengun frá bifreiðum er fyrst
og fremst umhverfismál. Það er
því eðlilegt að það ráðuneyti sem
með mengunarvarnir fer sjái um
þennan þátt og hvergi eðlilegra
að mengunarmörk birtist en ein-
mitt í mengunarvarnareglugerð.
1 okkar nágrannalöndum er þessi
þáttur í höndum umhverfismála-
ráðuneyta.
Það væri mjög óeðlilegt ef frá
Dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu kæmu mörk um leyfilegan
útblástur bifreiða og einungis til
þess fallið að auka enn á glund-
roða í umhverfismálum sem þó
er ærinn fyrir.“
1 áliti nefndarinnar kemur
einnig fram að kostnaðarsamt
verði að ná þeim mörkum sem
mengunarvarnareglugerð kveður
á um frá og með árinu 1992 og
ennfremur að gera þurfi breyt-
ingar á bílvélum ef ná eigi mörk-
um sem taka gildi frá næstu ára-
mótum.
Hollustuvernd segir að til að
ná þeim mörkum sem eiga að
gilda frá og með árinu 1992 þurfi
bifreiðar að vera búnar sérstök-
um hreinsi iúnaði, sem hefur í för
með sér kostnað upp á um 50
þúsund krónur. „Það hlýtur að
vera ákvörðun stjórnvalda hvort
þessi kostnaður leggst á
bíleigendur eða hvort þau taka,
með lækkun á aðflutningsgjöld-
um, þátt í þeim kostnaði.
Útblástursmörkum fyrir kolmón-
oxíð og kolvetni, sem taka gildi
um næstu áramót, er hægt að ná
fyrir flestar bílvélar með vélastill-
ingu. Hugsanlegt er að hluti
fólksbíla standist ekki þau mörk
sem sett eru fyrir köfnunarefnis-
oxíð. Þau mörk verða þá endur-
skoðuð,“ segir í fréttatilkynningu
frá Ólafi Péturssyni, forstöðu-
manni mengunarvarna. SS
Sauðárkróksbæ var færð að gjöf á fimmtudaginn var þessi forláta fallbyssa
sem Jón Nikodemusson lauk við að smíða árið 1967. Er hún smíðuð úr
kopar, en pallurinn undir hana er gerður úr viði. Það var ekkja Jóns, Anna
Friðriksdóttir, sem afhenti gjöfina. Byssan er til sýnis á bæjarskrifstofunum.
Póstur og sími:
Flakkarinn fluttur frá
Dalvík til Blönduóss
- mun þjóna um 800 símnotendum á Blönduósi
og í nærsveitum
í fyrrinótt var unnið að því að
flytja Flakkarann, stafrænu
símstöð Pósts og síma, frá Dal-
vík til Blönduóss. Flakkarinn
hefur síðustu 11 mánuði verið
starfræktur á Dalvík en eins og
komið hefur fram í Degi hefur
þar nú verið tekin í notkun ný
stafræn símstöð.
Flakkarinn verður tengdur á
Blönduósi í janúar og mun þjóna
þar í kringum 800 símanotend-
um, á Blönduósi, í Áshreppi,
Sveinsstaðahreppi, Torfulækjar-
hreppi, Svínavatnshreppi, Ból-
staðarhlíðarhreppi og Engihlíð-
arhreppi. Símnotendur á þessu
svæði munu jafnframt yerða
tengdir inn á ljósleiðarasamband-
ið frá sama tíma.
Á meðan Flakkarinn verður í
notkun á Blönduósi, verður unn-
ið að því að rífa gamla símakerf-
ið út úr húsi Pósts og síma á
staðnum og koma þar fyrir nýrri
stafrænni stöð.
Flakkarinn sem er með 1024
númer, hefur verið notaður víða.
Hann var fyrst notaður á Sauðár-
króki en var síðan fluttur til
Húsavíkur, þaðan til Egilsstaða,
loks til Dalvíkur og nú í nótt til
Blönduóss eins og fyrr sagði.
-KK
Fjórar stúlkur á Skagaströnd:
Söftiuðu 73 þúsundum til
styrktar Hallbirni Frey
Fjórar stúlkur úr grunnskólan-
um á Skagaströnd gengu á
dögunum í hús á Skagaströnd
og söfnuðu 73 þúsund krónum
sem þær síðan afhentu kántrí-
söngvaranum Hallbirní Hjartar-
syni til styrktar barnabarni
hans, Hallbirni Frey Ómars-
í
bridds
i
Bikarkeppni Norðurlands í bridds:
Dregið um hvaða s veitir leika saman
syni. Eins og fram hefur komið
hyggst Hallbjörn eldri afhenda
nafna sínum ágóða af sölu
plötunnar, Kántrí 5, til kostn-
aðarsamrar heyrnaraðgerðar
erlendis.
Þá hefur Thorvaldsenfélagið í
Reykjavík látið 50 þúsund krón-
ur af hendi rakna til Hallbjarnar
yngri og Kvenfélagið Eining á
Skagaströnd hefur gefið 20 þús-
und krónur í söfnunina. Þá hef-
ur fjöldi einstaklinga gefið minni
upphæðir til styrktar Hallbirni
Frey.
í samtali við Dag í fyrradag
sagði Hallbjörn Hjartarson að
hann vildi koma á framfæri kær-
um þökkum til allra sem sýndu
hug sinn til drengsins með þess-
um hætti.
Kántrí 5 hefur gengið mjög vel
og segir Hallbjörn að nú sé búið
að selja á fjórða þúsund eintök af
plötunni. Hann segist gæla við þá
hugmynd að platan fari eitthvað
yfir 4000 eintök en salan til þessa
hafi farið fram úr björtustu
vonum. „Ég er mjög ánægður
með viðtökurnar og þakka öllum
þeim sem hafa keypt plötuna,“
segir Hallbjörn. óþh
NAN og Kaupmannafélag Akureyrar:
Gangast fyrir fimdi
með kaupmönnum
Dregið hcfur verið um það á
skrifstofu BSÍ, hvaða sveitir
spila saman í fyrstu umferð
Bikarkeppni Norðurlands í
bridds. Alls taka 19 sveitir þátt
í keppninni en 13 sveitir sitja
yfír í 1. umferð. 1. umferð skal
lokið fyrir 15. desember en
Keppni á Akureyrarmóti
Bridgefélags Akureyrar er nú
rúmlega hálfnuð en lokið er 10
umferðum af 18. Spiluð er tvö-
föld umferð hvert spilakvöld,
alls 16 leikir.
Hermann Tómasson og félagar
halda enn efsta sætinu en Dags-
menn tóku góðan kipp á síðasta
spilakvöldi og eru nú í 2. sæti.
Ánnars er röð efstu sveita þessi:
eftirtaldar sveitir hefja leikinn.
1. Stefán Vilhjálmsson Akur-
eyri-Gylfi Pálsson Eyjafirði.
2. Tengiliðir Akureyri-Asgrímur
Sigurbjörnsson Siglufirði.
3. Þorsteinn Friðriksson Eyja-
firði-Stefán Beneditksson
Fljótum.
siig
1. Hermann Tómasson 206
2. Dagur 184
3. Grettir Frímannsson 181
4. Gunnar Berg 169
5. -6. Stefán Vilhjálmsson 157
5.-6. Örn Einarsson 157
7. Ormarr Snæbjörnsson 120
Næstu tvær umferðir verða
spilaðar í Félagsborg næstkom-
andi þriðjudag, 28. nóv. kl.
19.30. -KK/FF
1 aðra umferð drógust saman
eftirtaldar sveitir.
1. Björn Friðriksson Blönduósi-
Kristján Guðjónsson Akur-
eyri.
2. Hermann Tómasson Akur-
eyri-Þosteinn F./Stefán B. úr
1. umferð.
3. Ingibergur Guðmundsson
Skagaströnd-Stefán V./Gylfi
P. úr 1. umferð.
4. Dagur Akureyri-Guðlaugur
Bessason Húsavík.
5. Gunnar Berg Akureyri-Örn
Einarsson Akureyri.
6. Guðmundur H. Sigurðsson
Hvammstanga-Ormarr Snæ-
björnsson Akureyri.
7. Tengiliðir A/Ásgrímur S. úr
1. umferð-Grettir Frímanns-
son Akureyri.
8. Jóhann Pálsson Akureyri-Jón
Berndsen Sauðárkróki.
Annarri umferð skal vera lokið
fyrir 1. janúar. Spilaðir verða 40
spila leikir, 10 spil í 4 iotum og á
fyrrnefnda sveitin heimaleik.
-KK/FF
í dag, laugardaginn 25. nóv.,
munu Neytendafélag Akureyrar
og nágrennis og Kaupmannafélag
Akureyrar gangast fyrir fundi
með kaupmönnum og þeim sem
reka ýmsa þjónustu fyrir neyt-
endur. Tilgangur fundarins er að
kynna fyrir þessum aðilum ýmis
lög og reglur sem við koma
atvinnugreininni.
Starf okkar að neytendamálum
í gegnum tíðina hefur gert okkur
æ ljósara hve brýnt er að koma á
fræðslu fyrir marga þá sem
stunda verslun og ýmsa þjónustu.
Með þessum fundi hyggjumst við
bæta þar örlítið úr.
Fyrirlesarar á fundinum verða
þeir Jóhannes Gunnarsson starfs-
maður hjá Verðlagsstofnun og
formaður Neytendasamtakanna
og Jón Magnússon lögmaður.
Þeir munu gera grein fyrir lögum
og reglum sem gilda almennt í
verslun. Á fundinum verður
einnig fjallað um það hvort ekki
sé ástæða til þess að NAN og
verslunarmenn (þjónustuaðilar)
stofni með sér samstarfsnefnd
með svipuðu sniði og Kaup-
mannasamtök íslands og Neyt-
endasamtökin hafa stofnað með
sér.
Neytendafélag Akureyrar og
nágrennis og Kaupmannafélag
Akureyrar skora á alla þá sem
hafa fengið bréf okkar að fjöl-
menna á fundinn. Eins eru allir
þeir sem telja sig hafa hag af því
að mæta velkomnir.
Akureyrarmót Bridgefélags Akureyrar:
Sveit Hermanns heldur
enn efsta sætinu