Dagur - 25.11.1989, Side 6
6 - DAGUR - Laugardagur 25. nóvember 1989
Fjölmenni á
Akureyrardögum
í Knnglumri
Helgarferðir, skíðaferðir,
leikhúsferðir, skemmtiferðir,
ráðstefnur, árshátíðir og fleira.
Þessum ferðum til Akureyrar
hafa gestir Kringlunnar í
Reykjavík getað kynnst frá því
á fimmtudag á svokölluðum
„Akureyrar-ferðadögum.“
Yfir tuttugu fyrirtæki á Akur-
eyri tengd ferðaiðnaði hafa
kynnt starfsemi sína og þjón-
ustu og lýkur Akureyrardög-
um I dag, laugardag. Það var
samgöngumálaráðherra,
Steingrímur J. Sigfússon, sem
opnaði kynninguna með ávarpi
sínu.
Fjöldi gesta var staddur í
Kringlunni seinnipartinn sl.
fimmtudag og gat á margt að líta.
Ingimar Eydal lék létt lög á
píanóið eins og honum einum er
lagið og einnig leit Skúli rafvirki
við. Skúli tók lagið með Ingimari
og fór síðan í að dreifa kynning-
arbæklingum. Sjallinn kynnti
vetrardagskrá sína og tók Jón
Sigurðsson lagið ásamt Trausta
syni sínum og Hjördísi Geirs.
Einnig litu félagar úr Leikfélagi
Akureyrar við í Kringlunni.
Meðal þeirra sem voru að
dreifa bæklingum og merkjum
var Sigfús Jónsson bæjarstjóri
Akureyrar. Hvað hafði hann að
segja um Akureyrardaga í
Kringlunni? „Hér er verið að
kynna bæinn og fyrst og fremst
að vekja athygli Reykvíkinga á
Akureyri sem ferðamannabæ og
ýmsu því sem bærinn hefur uppá
að bjóða. Með þessari kynningu
væntum við fleiri ferðamanna og
þar með fleiri starfa og meiri
tekna af ferðamannaþjónustu.“
Þeir sem leið hafa átt í Kringl-
una síðustu tvo daga og kynnt sér
Akureyrardagana hafa getað tek-
ið þátt í ferðagetraun. í vinning
er helgarferð fyrir tvo til Akur-
eyrar. Dregið verður í getraun-
inni 7. desember nk.
Að lokum skal getið þeirra
aðila sem standa að Akureyrar-
dögum. Þeir eru, Ferðaskrifstofa
Akureyrar, Akureyrarbær, Ferða-
skrifstofan Útsýn/Úrval, Hlíð-
arfjall, Bílaleiga Akureyrar,
Bílaleigan Örn, Norðurleið, Sér-
leyfisbílar Akureyrar, Hótel
KEA, Hótel Norðurland, Hótel
Stefanía, Bautinn og Smiðjan,
Bautabúrið, Biti hf., Bláhvamm-
ur hf., Sjallinn, Uppinn, Strikið
og Leikfélag Akureyrar. -bjb
Köku- og munabasar
verður í Freyvangi, sunnudaginn 26. nóvember
kl. 15.00.
Kaffisala.
Kvenfélagið Aldan-Voröld.
Foreldrafélag G.A.
Áhugasamir foreldrar unglinga í Gagnfræða-
skóla Akureyrar boða til endurvakningar for-
eldrafélags við skólann, mánudaginn 27.
nóvember kl. 20.30 í sal skólans.
Foreldrar.
Hinn árlegi
hjóna- og
paradansleikur
verður í Árskógi Iaugardaginn 25. nóv.
Samkoman hefst kl. 22.00 með kaffi.
Ærskógsströndungar og gamlir
Ströndungar velkomnir.
Takið með ykkur gesti og góða skapið.
Nefndin.
bœkur
Skúli rafvirki leit viö í Kringlunni og
eyrar.
KUGGUR
M0SI 0G
MÆÐGURNAR
Kuggur, Mosi
og mæðgurnar
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér bókina Kuggur, Mosi og
fOKlA6SB
Sandkorn
tímans
- ný skáldsaga
Sidney Sheldon
Út er komin hjá Bókaforlagi
Odds Björnssonar á Akureyri
skáldsagan Sandkorn tímans, eft-
ir Sidney Sheldon.
Sandkorn tímans segir frá fjór-
um nunnum sem skyndilega
neyðast til að flýja verndað
umhverfi klaustursins í misk-
unnarlausan heim sem þær höfðu
yfirgefið. Án fyrirvara eru þessar
fjórar konur orðnar peð í
grimmilegri baráttu hreyfingar
Baska og spánska hersins.
„Þetta er ógleymanleg atburð-
arrás þar sem ástir og spenna
binda lesandann við lesturinn frá
upphafi til enda,“ segir m.a. í
frétt frá útgáfunni.
kepptist við að segja viðstöddum hvað það væri nú gaman að koma til Akur-
Mynd: -bjb
mæðgurnar eftir Sigrúnu Eld-
járn. Þetta er þriðja bókin sem
Sigrún semur um snáðann Kugg,
en bókina prýða rúmlega 40 lit-
myndir eftir höfundinn. Barna-
bækur Sigrúnar Eldjárn njóta
mikilla vinsælda yngstu kynslóð-
arinnar og árið 1987 hlaut hún
Barnabókaverðlaun Reykjavík-
urborgar.
„Kuggur á sér góða vini sem
jafnan eru í för með honum,“
segir í kynningu Forlagsins. „Það
eru þær Málfríður og mamma
hennar, kostulegar kerlingar sem
ekki kalla allt ömmu sína þegar
taka þarf til hendinni, að
ógleymdum Mosa - glaðlyndu og
hrekkjóttu kríli sem býr yfir
ótrúlegum hæfileikum. í þessum
nýju sögum bregða þau sér á
skauta og vinda sér í kökubakst-
ur með óvæntum afleiðingum.
Dag nokkurn er svo friðurinn á
Þjóðminjasafninu rofinn þegar
þau birtast þar í heimsókn og
ekki tekur betra við þegar þau
hefja tónlistariðkanir sínar í mið-
borg Reykjavíkur ..."
Kuggur, Mosi og mæðgurnar
er 32 bls.
Óvænt
heimsókn
- fyrsta bók
Barnabókaútgáfunnar
Óvænt heimsókn nefnist ný frum-
samin barnabók sem Barnabóka-
útgáfan gefur út. Höfundur texta
er Ámi Ámason en Anna Cynthia
Leplar höfundur mynda.
Sagan greinir frá því hvernig
hallarbúar í Skuggabjörgum
hrökkva upp við það að Hugi
kóngssonur hefur horfið á dular-
fullan hátt. Frá örófi alda hafa
þeir búið um sig innan múra hall-
arinnar í þeim tilgangi að verjast
hugsanlegum óvinum. Sagan
fjallar um leitina að Huga og
hvað gerist þegar brotist er úr
einangruninni, en umfram allt er
þetta saga Huga og hvernig gerð-
ir hans verða til þess að koma
ráðamönnum ríkisins í samband
við annað fólk. í bókinni kemur
margt forvitnilegt fólk við sögu
og í henni er mikill orðaforði og
þörf umhugsunarefni sem eiga
erindi til flestra. Vandaðar lit-
myndir prýða hverja opnu bókar-
innar.
Óvænt heimsókn er fyrsta bók-
in sem Barnabókaútgáfan í
Reykjavík gefur út. Bókin er 64
síður í þægilegu broti.
Ráðgátan á
Klukknahvoli
Iðunn hefur gefið út bókina Ráð-
gátan á Klukknahvoli sem er
þriðja bókin í hinum spennandi
flokki Ráðgátubóka eftir Enid
Blyton, hinn sívinsæla barna- og
unglingabókahöfund sem um
áratuga skeið hefur skemmt
börnum um allan heim með skrif-
um sínum.
Krakkarnir Reynir, Dóra og
Snúður eru send til dvalar í litlum
bæ sem heitir Klukknaþorp.
Brátt slæst flökkustrákurinn
Bjarni í hópinn ásamt apanum
Míröndu. En Bjarna vantar þak
yfir höfuðið svo hann ákveður að
gista á Klukknahvoli, gömlu ætt-
arsetri sem nú stendur mannlaust
til sýnis fyrir almenning. Ekki
líður á Iöngu þar til skrýtnir
atburðir eiga sér þar stað. Klukk-
urnar í tuminum hringja án þess
að nokkur hafi hreyft við þeim,
undarleg hljóð berast frá
gömlum, lokuðum leynigöngum
og einhverjir ruddalegir náungar
eru á stjái í nágrenninu. Eitthvað
dularfullt og ógnvekjandi er á
seyði og krakkarnir eru staðráðn-
ir í að grafast fyrir um leyndar-
málið.
Við bláa
I v°Sa á
II m
Við bláa voga
- ný bók eftir Ingibjörgu
Sigurðardóttur
V7ð bláa voga nefnist ný skáld-
saga Ingibjargar Sigurðardóttur,
sem Bókaforlag Odds Björnsson-
ar á Akureyri hefur sent frá sér.
Ingibjörg Sigurðardóttir er án
efa ein af vinsælustu skáldkonum
landsins. Nú fá aðdáendur henn-
ar enn eina spennandi ástarsögu
frá hennar hendi. Bókin fjallar
um fórnfýsi, heitar ástir og vonir
og þrár ungu elskendanna Ásrún-
ar ljósmóður og Frosta kennara.
Prentun og bókband annaðist
Prentverk Odds Björnssonar hf.