Dagur - 25.11.1989, Page 9
Laugardagur 25. nóvember 1989 - DAGUR - 9
Borðhald af hefjast í Bláa lóninu. Ef myndin er mjög ógreinileg, verður að kenna gufumekkinum um en ekki Ijós-
myndaranum.
Helgarupplyfting
í höfuðborginm
Fyrir stuttu brá Dagur sér með
hópi kátra Norðlendinga til
höfuðborgarinnar í létta helg-
arupplyftingu. Ferðin sem um
ræðir var svokallaður „helg-
arpakki“ sem er markaðssettur
undir nafninu „Helgarupplyft-
ing í höfuðborginni“. Það eru
Flugleiðir í samstarfi við Hótel
Loftleiðir, Hótel Esju, Hótel
Island og Bláa Lónið sem
standa að „pakkanum“.
„Et, drekk ok ver glaðr“
Flogið var suður á föstudegi og
um kvöldið brá hópurinn sér á
fyrsta lið dagskrárinnar, sérstakt
víkingakvöld á skemmtistaðnum
Hollywood. Skemmtidagskráin
ber heitið „Et, drekk ok ver
glaðr“. Hann var þéttur á velli,
útsmoginn og röggsamur víkinga-
höfðinginn sem stjórnaði
skemmtidagskránni með hjálp
ambátta og vinnuhjúa þetta
föstudagskvöld í Hollywood.
Kvöldið leið hratt við mat og
drykk og leiki, þar sem allir voru
þátttakendur og höfðu hina
mestu skemmtun af. Ekki
skemmdi fyrir að nokkrir fjall-
hressir Vestmannaeyingar höfðu
brugðið sér í „Hollý“ þetta kvöld
og tóku þeir virkan þátt í gleð-
inni.
Bláa lónið
Næst á dagskránni var að fara
suður með ströndinni eins og leið
lá til að baða sig í hinu víð- og allt
að heimsfræga Bláa lóni þeirra
Suðurnesjamanna. í þá ferð var
lagt á laugardeginum. Nú er það
svo að jafnvel hin besta skemmt-
un getur af sér á stundum erfiðan
ntorgundag. En hvernig sem
heilsan er, þá er hrein nautn að
svamla um í Bláa lóninu. Hópn-
um var borinn hádegisverður í
Lóninu og var matast við all-
óvenjulegar aðstæður. Endur-
nærðir héldu menn aftur til
Reykjavíkur, tilbúnir í ný ævin-
týri.
Rokk og ról
Um kvöldið var sfðan haldið á
Hótel ísland til að fylgjast með
söngleik sem nefnist „Rokk-
ópera“. Söngleikur þessi er
byggður á frægustu söngleikjum
allra tíma. Öhætt er að segja að
Hótel ísland býður gestum sínum
upp á öndvegismat og þjónustu. í
kjölfarið fylgdi Rokkóperan, sem
reyndist stórgóð sýning. Það vill
brenna við að slíkar skemmtanir
séu of langar og spennufall verði
meðal gesta. Slíku er ekki til að
dreifa með þessa sýningu. Rósa
Ingólfsdóttir, húsmæðraskelfir og
stórþula, var líflegur kynnir og
brá sér í ólíklegustu gervi meðan
á sýningunni stóð.
Daginn eftir hélt hópurinn
norður yfir heiðar á ný, eftir
ánægjulega upplyftingu í höfuð-
borginni. HB.
Eitt af mörgum gervum Rósu Ingólfsdóttur í sýningunni.
Magnús Ólafsson, vígalegur ásýndum, stjórnar einni fjölmargra keppna sem
fram fóru í Hollywood á víkingakvöldinu.
Margir dansarar koma fram í Rokkóperunni á Hótel íslandi.
Heilræði
Sjómenn!
Meðferö gúmbjörgunarbáta er einföld
og fljótlærð. Þó geta mistök og van-
þekking á meðferð þeirra valdið fjör-
tjóni allra á skipinu á neyðarstundu.
Lærið því meðferð og notkun gúm-
björgunarbáta.
HOLLUSTA I HVERJUM
ROPA
i* ir ip
vwwi/rf/A *5iC*rmýc>m
jaro<rrberjum
Mé& hnetum
on kammtllutn
Með'kM
.
iSS- ?
Miólkursamla
Sauðárkróki-Sími 95-35200