Dagur


Dagur - 25.11.1989, Qupperneq 19

Dagur - 25.11.1989, Qupperneq 19
bœkur í jaðri bæjarins Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út bókina / jaðrí bæjaríns eftir Jónas Þorbjarnarson. Petta er fyrsta ljóðabók hans en áður hafa birst eftir hann ljóð í tímaritum. Á liðnu ári hlaut Jónas einnig fyrstu verðlaun í ljóðasamkeppni Morgunblaðsins. „Svo glæsilegt byrjandaverk sem þetta ljóðasafn sætir vissu- lega tíðindum í íslenskum bók- menntaheimi," segir í kynningu Forlagsins. „Þó að augum sé beint að jarðneskum veruleika, þá er sá veruleiki hér þéttar ofinn jarðneskum þáttum en við eigum að venjast. Hér er eins og land, sjór og himinn renni eðlilega saman við hugsun skáldsins og ljóðmálið er svo lífrænt og þokkafullt að lesandinn fær strax aðgang að ljóðunum án þess að vera krafinn um skilning. Hann gengur inn í ljóðheim höfundar, hlustar þar og horfir í kringum sig - á mann og náttúru. Þetta er í senn fágaður og íhugull skáld- skapur.“ I jaðrí bæjaríns er 48 bls. Guðrún Ragnarsdóttir hannaði kápu. Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér ævintýrið Feiti strákurínn eftir Sól Hrafnsdóttur. Söguna hefur hún sjálf myndskreytt. Sól stundar nú nám í 2. bekk Mela- skólans en söguna samdi hún í fyrra þegar hún var 7 ára og er þetta ein af mörgum sögum sem hún hefur samið og myndskreytt, sér og vinum sínum til skemmt- unar. Svo mikið er víst að Sól mun vera yngsti rithöfundur á ís- landi sem sendir frá sér bók á þessu ári. Eins og heiti sögunnar ber með sér, segir hún frá stórum og feit- um strák sem átti litla mömmu og lítinn pabba. Strákurin var sí- svangur og alltaf þurfti mamma hans að vera að búa til mat. Á meðan mamma hans var að búa til matinn, varð strákurinn alltaf svengri og svengri - alveg þangað til hann varð svo svangur að hann . . . Nei, nú segjum við ekki meira, en svo mikið er víst að Feiti strákurinn er ekkert venjulegt ævintýri. Feiti strákurinn er 12 bls. Ragnheiður Kristjánsdóttir hannaði útlit bókarinnar. Draumur þínn rætist tvisvar Út er komin hjá Örlaginu í Reykjavík skáldsagan Draumur þinn rætist tvisvar eftir Kjartan Árnason. Þetta er fyrsta skáld- saga höfundar en jafnframt hans þriðja bók. Hann hefur áður sent frá sér smásögur og ljóð. Bókin skiptist í fjóra hluta sem hver lýsir ákveðnu skeiði í lífi aðalpersónunnar. Á bókarkápu segir: „Draumur þinn rætist tvisvar er skáldsaga um glaðværð lífsins og hina óumflýjanlegu skugga, þroskasaga þar sem sér- staka athygli vekur nærfærin lýs- ing á sambandi drengs við ömmu sína. Aðalpersóna sögunnar er þátttakandi í leik lífsins uns henni er varnað þess. Sársaukinn flæðir inn og hið kyrra yfirborð sögunnar, kunnuglegt umhverfi, fær allt í einu annan lit. Sagan er sögð af hógværð, raunsæi einkennir hana, en aldrei fjarri er grunur um aðra og dýpri merkingu hversdagslífsins líkt og örn fljúgi yfir og varpi skugga á veröld sem í fljótu bragði virðist áhyggjulaus. Látlaus frásagnarstíll höfundar er trúverðugur og leynir einatt á sér. Undir lok sögunnar opnast lesandanum ný sýn og hann er reynslunni ríkari.“ Draumur þinn rætist tvisvar er 133 blaðsíður að stærð. Vilhjálmur Hjálmarsson K onráðs föðurbróðir minn Æviminningar Hefmanns Vilhjálmssonar Frændi Konráðs - föðurbróðir minn Út er komin bókin Frændi Konráðs, föðurbróðir minn. í henni segir Vilhjálmur Hjálmars- son fyrrverandi ráðherra ævisögu Hermanns Vilhjálmssonar frá Mjóafirði, föðurbróður síns. Margir Reykvíkingar þekktu Hermann undir nafninu Hemmi, oft með viðurnefni er dregið var af því að hann togaðist stundum á við stráka um krónu eða túkall og hirti þær myntir úr götu ef þeir hentu. í inngangskafla bókarinnar, Lesandinn leiddur að efninu, seg- ir höfundur: „Það er best að segja hverja sögu eins og hún gengur. Og það var einmitt það sem Hermann langaði til að gera. Að segja, eða öllu heldur skrifa, ævisögu sína allt frá bernsku og draga ekkert undan, taka allt með, allar kúnst- irnar líka, sagði hann einhverju sinni. Og af þeim átti hann ærið því hann var engum manni líkur fremur en Kári forðum." Vilhjálmi fannst föðurbróðir sinn eiga hjá sér viðvik; að hon- um bæri að safna saman og raða minningabrotunum - og tengja eftir mætti. Bókin er 195 blaðsíður að stærð. Útgefandi er Æskan. Laugardagur 25. nóvember 1989 - DAGUR - 19 helgorkrossgátan /j 9 S„ r ■SJ1' O Fðrfnn Risö b<jnpd Tveir h esiar fijrir ragnl KvÓl Skoriur Mavtn Til - biójCL r ^ i Pressah Viíur- nefrxi l Ve rílurt 'a f\hure<jri 2. o Kona VeUliny- ataui Opirí þrep Frysia sk ti i n Shafur Frjáls komrrta FiaU J a Sudu landi H. í eyjinu Madur [Úbl-frlí) Klifrar Sja ef i i r 5. Poía Greinir Simniir 7. þó-fi Hlfcó - ftntih Fátak- Legt Utan Uoqq 3.V Fljói Félaq þtáóur Flýti -r* a Plrtar Bruól SpiL \ 1 Y Upphr. Sctmt ■ ► Drara Kallaó Ot. Baug Lo. Y Hlupu Ala Skiiug Tré dr-erf t Járn \/ Ktrvnsl' u hók & r*a i A T Kí . fiulinn Siuíd -T- - > Kcmas t Tala Drepi Ðýrtó 10. > Tekið skal fram að skýr greinarmunur er gerður á grönnum og breiðum sérhljóðum. Þegar þú hefur ráðið gátuna, skaltu skrifa stafina í tölusettu reitunum á lausnarseðilinn hér að neðan. Klipptu síðan lausnarseðilinn út og sendu til Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri, merktan: „Helgarkrossgáta nr. 102.“ Árni Friðjónsson, Ásvegi 24, 600 Akureyri, hlaut verðlaunin fyrir helgarkrossgátu nr. 99. Lausnarorðið var Sápulöður. Verðlaunin, skáldsagan „Valdaklíkan“, verða send vinnings- hafa. Verðlaunin fyrir krossgátuna að þessu sinni er bókin „Franc- is Drake - landkönnuður, sæfari og sjóræningi", eftir Neville Williams. í kynningu á bókarkápu segir m.a.: „Sir Francis Drake var einn stórbrotnasti athafnamaður allra tíma. Flann er fulltrúi og tákn Englands á síðari helmingi 16. aldar eigi síður en drottningin sem hann þjónaði. Hann var mikill sægarpur og leiðtogi sem jöfnum höndum var knúinn sterkri trúarhvöt og girnd eftir ránsfeng . . .“ Útgefandi er Örn og Örlygur. £ 17 M/Mit "7 fail*. 1 s £ 5 S U fl ¥ Sior M I k I L e r! w ''fl k r G L I T j n i Urg., •rtfáJ fzf p L L 1 V M i fl u S T a V V i r I i w>*« Tait s ? fl e k f) r £J9 Hov, r I T 1 Skr.t s 'p e O k “wú* e r p o kait, fí & L t) t> I A B lT PcHa M A L S koi.r \J n M T H.iti A rt,a- latui M e R s A V o s k Umkl ð V L M fí bJ aJ St.,. Upfkr o L H e V t> u R N r R lu„ s k A £ V r o I e. y Urnia T fí 'u T fí 5 T u u fí þ) Htidi ft f & X p T 'e A 'D IL, Helgarkrossgátan nr. 102 Lausnarorðið er ................ Nafn ....... Heimiiisfang Póstnúmer og staður

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.