Dagur - 07.12.1989, Síða 3
Fimmtudagur 7. desember 1989 - DAGUR - 3
fréttir
í-
Svarfdælingar og Árskógsstrendingar senda Steingrími J. bréf:
Myrkraverk þola ekki dagsins ljós.
Mynd: KL
Augljós þörf fyrir starfrækslu
stórgripasláturhúss á Dalvík
- atvinnusjónarmiðin einnig
augljós
Hreppsnefndir Árskógs- og
Svarfaðardalshrepps og bún-
aðarfélögin í Árskógs-, Svarf-
aðardalshreppi og Dalvík hafa
sent bréf til landbúnaðarráð-
herra, dagsett 1. desember sl.,
þar sem þeirri áskorun er beint
til hans að tekið verði fullt tillit
til sjónarmiða heimamanna
áður en gengið verði til þess
verks að leggja sláturhús
Kaupfélags Eyfirðinga á Dal-
vík niður. Afrit af bréfinu var
sent til útibússtjóra K.E. Dal-
vík og stjórnar Kaupfélags
Eyfirðinga.
í bréfinu, sem er undirritað af
Sveini Jónssyni, oddvita Ár-
Virðisaukaskatturinn og launþeginn:
Skiptir mestu máli hvað
nauðsynjavörur munu kosta
skógshrepps, Garðari Sverris-
syni, formanni Búnaðarfélags
Árskógshrepps, Birni Þórleifs-
syni, oddvita Svarfaðardals-
hrepps, Óskari Gunnarssyni, for-
manni Búnaðarfélags Svarfdæla
og Baldvini Magnússyni, for-
manni Búnaðarfélags Dalvíkur,
er bent á að full þörf sé fyrir að
halda úti stórgripaslátrun á
Dalvík. Orðrétt segir: „Meðan
áætlað er að sláturhús á Akureyri
taki að sér alla slátrun á stóru
svæði, virðist það vera að korna í
ljós að það annar engan veginn
þörf fyrir stórgripaslátrun. Slík
slátrun fer því sívaxandi á
Dalvík. Sem dæmi má nefna, að í
liðinni viku var slátrað þar grip-
um úr Fnjóskadal og innanverð-
um Eyjafirði, sem ekki var hægt
að taka við á Akureyri fyrr en í
jan. nk. Á Dalvík mun nú vera
slátrað allt að 35 gripum á viku
og fara 70-80 tonn af stórgripa-
kjöti um húsið að ári. Að þessu
skoðuðu ætti að vera augljós
þörfin fyrir að halda Dalvíkur-
sláturhúsinu opnu sem stórgripa-
sláturhúsi. Varla þarf að benda á
hagræði af þessu fyrir bændur í
sveitum við vestanverðan Eyja-
fjörð. Atvinnusjónarmiðin eru
einnig augljós."
Pá er ennfremur í bréfi oddvit-
anna og formanna búnaðarfélag-
anna bent á sjónarmið Rögnvald-
ar Friðbjörnssonar útibússtjóra
K.E. á Dalvík í bréfi til landbún-
aðarráðherra í október sl. og
sjónarmið Ármanns Gunnars-
sonar, dýralæknis, um sláturhús-
ið á Dalvik frá því í mars sl. Þá er
vitnað til eftirfarandi samþykktar
hreppsnefndar Svarfaðardals-
hrepps varðandi þetta mál 27.
apríl sl.: „Hreppsnefnd Svarfað-
ardalshrepps beinir þeirri áskor-
un til stjórnar og forráðamanna
Kaupfélags Eyfirðinga, að slátur-
húsið á Dalvík verði starfrækt
áfram og nú sem stórgripaslátur-
hús, sem hugsanlega gæti þjónað
meginhluta Eyjafjarðarsvæðis-
ins." óþh
- segir Þóra Hjaltadóttir formaður AN
„Það er strax bót í máli að
virðisaukaskatturinn verður
lægri en söluskatturinn því
annars er ég hrædd um að
verðhækkanir hefðu orðið
meiri en tilefni er til,“ sagði
Þóra Hjaltadóttir formaður
Alþýðusambands Norðurlands
aðspurð um áhrif væntanlegs
virðisaukaskatts á hinn
almenna launþega. Hún sagði
að það myndi skipta mestu
máli hvað nauðsynjavörur
koma til með að kosta og skipti
þá litlu hvað skatturinn er í
mörgum þrepum.
„Að sjálfsögðu hefðum við
viljað sjá virðisaukaskatt í tveim-
ur þrepum þar sem lægra þrepið
væri núll á nauðsynjavörum, en
þar á ég ekki aðeins við innlendar
matvörur heldur allar nauðsynj-
ar. í framkvæmd væri hægt að
tengja þetta niðurgreiðslum því
þetta kemur jú allt úr sama kass-
anum.“
Því hefur verið spáð að algeng-
ustu nauðsynjar komi til með að
lækka um 7-8% í verði og
almennar vörur um 2% og segir
Þóra nauðsynlegt að fylgja þessu
eftir með miklu eftirliti. „Auðvit-
að er maður vantrúaður á að vör-
ur lækki í verði en mínar björt-
ustu vonir eru þær að þær muni
a.m.k. ekki hækka,“ sagði hún.
Þá segir Þóra að þar sem skattur-
inn verði auðveldari í innheimtu
og minna um undandrátt, komi
meira til með að komast í ríkis-
kassann en raun ber vitni í sölu-
skattskerfinu.
Aðspurð um tekjuskattshækk-
unina sagði Þóra það bölvanlegt
að persónuafsláttur skuli ekki
fylgja verðlagi. „Það er í raun í
lagi að hækka tekjuskattshlutfall-
ið en þá þurfa skattleysismörkin
líka að vera hærri. Ég hefði þess
vegna viljað sjá hærra skatthlut-
fall á móti meiri persónuafslætti
og í framtíðinni horfi ég til
tveggja skattþrepa á tekjur.“
VG
★ FataleÖur
★ Föndurleöur
★ Bókbandsskinn
★ Rússkinn
JÓN BRYNJÓLFSSON HF
BOLHOLTI 6, REYKJAVÍK - SÍMI 686277
HEILDVERSLUN
Verðbreytingar í kjölfar virðisaukaskattsins:
Verð á helstu innlendum mat-
vælum lækkar um áramót
- tekjuskattur hækkar en einnig skattleysismörk
og persónuafsláttur
Fjármálaráðuneytið hefur sent
frá sér tilkynningu um fyrir-
hugaðar breytingar á tekju-
skatti í tengslum við skattkerf-
isbreytingu úr söluskatti í
24,5% virðisaukaskatt.
Persónuafsláttur og barnabæt-
ur hækka um tæp 7,5%, og kem-
ur hækkun tekjuskatts fyrst og
fremst við aðila sem eru með
tekjur vel yfir meðallagi, segir í
tilkynningu ráðuneytisins. Lág-
tekjufólk og barnafjölskyldur
borga svipað eða ívið minna eftir
breytinguna en fyrir hana. Ef
miðað er við væntanlega vöru-
verðslækkun vegna lækkunar
skatthlutfalls virðisaukaskattsins
frá söluskatti hafa breytingarnar í
för með sér nokkra kjarabót fyrir
þessa hópa.
í frumvarpi um virðisaukaskatt
verður gert ráð fyrir einu skatt-
þrepi með 24,5% skatthlutfalli,
en það er 1,5% lægra en áður var
ráðgert. Helstu innlend matvæli
svo sem mjólk, kjöt og fiskur
bera ígildi 14% skatts með
endurgreiðslu sem bundin verður
í lögum. Vöruverð í framan-
greindum flokkum mun því
lækka um 7 til 8 prósent eftir ára-
mótin.
Af öðrum breytingum má
nefna að tekjuskattshlutfall
hækkar úr 30,8% í 32,8% um
áramót. Persónuafsláttur hækkar
úr 19.419 kr. í kr. 20.850, og
skattleysismörk úr kr. 51.455 í
kr. 52.466. „Að þessum breyting-
um samþykktum verður skatt-
byrði lágtekjufólks og barnafjöl-
i skyldna svipuð á fyrri helmingi
þess árs og hún er nú, jafnvel
ívið lægri. Hlutfall tekjuskatta af
heildartekjum launafólks verður
samkvæmt þessu um 0,9% hærra
en í ár. Skattbyrðin þyngist mest
hjá fólki með háar tekjur, allt
upp undir 2%. Hins vegar lækkar
skattbyrðin beinlínis hjá lág-
tekjufólki, en auk þess kemur
lægra matvöruverð þessu fólki
sérstaklega til góða,“ segir í
fréttatilkynningu ráðuneytisins.
EHB
Bremerhaven:
Skafti SK-3 seldi
157 tonn í gær
Skafti SK-3 seldi 157 tonn
Bremerhaven í V-Þýskalandi í
gær. Fyrir aflann fengust 12,8
milljónir króna, meðalverð
81,3 krónur.
Seld voru 139 tonn af karfa fyr-
ir 11,9 milljónir króna, meðal-
verð 85,9 krónur, 13 tonn af
blönduðum fiski fyrir 399
þúsund, meðalverð 29,35 krónur.
Fyrir 2,4 tonn af þorski fengust
222,3 þúsund, meðalverð 90,9
krónur, og 1,6 tonn af ufsa var
selt fyrir 168 þúsund, meðalverð
103 krónur. óþh
STOÐUGLEIKI
OGTRAUST
—™.——- —-#——-—-————— -
Undirstaða
arðbærs sparnaðar
Fj árfestingarf élag íslands h.f. var stofnað 1971
skv. lögum frá Alþingi.
- ,— —-—«—— ----—
Hluthafar í Fjárfestingarfélagi íslands h.f. eru yfir
400 talsins. Þeirra stærstir eru: HF. EIMSKIPA-
FÉLAG ÍSLANDS, VERSLUNARBANKI
ÍSLANDS HF. og LÍFEYRISSJÓÐUR
VERSLUNARMANNA.
FJÁRFESTINGARFÉLAG
ÍSIANDS HF.
Ráðhústorgi 3, Akureyri, sími 25000