Dagur - 07.12.1989, Qupperneq 15
íþróftir
Fimmtudagur 7. desember 1989 - DAGUR - 15
2
Rósberg
í Reynl
- Hugur á Ströndinni
Rósberg Óttarsson markvörð-
ur í knattspyrnu hefur ákveðið
að ganga til liðs við Reyni á
Árskógsströnd. Hann var
varamarkvörður Leifturs-
manna í fyrra en lék þar áður
með UMSE-b og Þór.
Eiríkur Eiríksson, sem varið
hefur mark Reynismanna undan-
farin ár, hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna en hann mun
samt verða Reynismönnum inn-
an handar í sambandi við mark-
mannsþjálfun.
f>að er hugur í Reynismönnum
að standa sig í hinni nýju þriðju
deild. Þorvaldur Þorvaldsson
þjálfari Árskógsstrendinganna
sagðist vera feginn að breyting
hafi verið gerð á deildinni því
það verði gaman að fá ný lið í
baráttuna í stað þess að vera allt-
af að spila við sömu liðin. „Það
verður gaman að taka á þessum
sunnanliðum, m.a. Þrótti," sagði
hann og hló en það er vert að
geta þess að Þorvaldur er gamall
leikmaður Þróttaraliðsins.
Svona í lokin skal það tekið
fram að hinn nýi markvörður
Reynismanna, Rósberg Óttars-
son, er ólofaður.
Rósberg Óttarsson markvörður
Reynis.
Knattspyrna:
„Velkomiiin um borð“
- sagði Ron Fenton við Þorvald Örlygsson
að lokinni undirskrift
Þorvaldur Ö.rlygsson ásamt Ron Fenton aðstoðarframkvæmdastjóra Nott-
ingham Forest. Mynd: kl
„Velkominn um borð,“ sagði
Ron Fenton aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Nottingham
Fores brosandi við Þorvald
Örlygsson eftir að sá síöar-
nefndi hafði skrifað undir 2Vi
árs samning við þetta fræga
enska félag í KA-heintilinu í
gær.
Spurningunni hvers vegna For-
est væri að ná í leikmann til
íslands þegar nóg væri af ungum
og efnilegum leikmönnum í
Englandi svaraði Ron Fenton á
þá leið að Þorvaldur væri nú ekki
beint ungur leiktnaður heldur
þroskaður knattspyrnumaður og
það væru þannig menn sem For-
estliðið þyrfti á að halda. „Okkur
var bent á Þorvald og þess vegna
buðum við honum að koma til
félagsins. Á æfingum og í leikjum
sýndi hann að þarna var mjög
góður knattspyrnumaður á ferð-
inni og stjórn félagsins taldi því
akk í því að fá hann til Notting-
ham,“ sagði Fenton.
- En á Þorvaldur raunhæfa
möguleika að komast í liðið?
„Það er ekki spurning að Þor-
valdur hefur alla burði til þess að
standa sig í ensku knattspyrn-
unni. Hann er fljótur, teknískur
og umfram allt er hann áræðinn
Blak:
Stefán blakmaður ársins
- annað árið í röð sem KA-maður hlýtur titilinn
Stefán Jóhannesson blakmað-
ur í KA hefur verið útnefndur
blakmaður ársins af Blaksam-
bandi íslands fyrir árið 1989.
Þetta er annað árið í röð sem
KA hlýtur þennan titil en í
fyrra var Haukur Valtýsson
kosinn blakmaður ársins.
Blakmaður ársins var að von-
Spilað golf
góða veðrinu
- mót að Jaðri um helgina
Þótt komið sé fram í desember
eru kylfingar enn á fullu með
golfkylfur sínar á Akureyri.
Um síðustu helgi var haldið 18
holu mót og um næstu helgi er
ráðgert að halda tvö 18 holu
mót, svokölluð Kóka-kóla
Jólamót.
Ef veðurguðirnir verða kylf-
ingunum hagstæðir um næstu
helgi mun verða slegið á sumar-
flötunum, en einungis þó ef þurrk-
ur verður. Mótin byrja kl. 11.00
og eru öllum opin.
Það er Vífilfell h.f. sem styrkir
mótin og verður fjöldi aukaverð-
Staðan
2. deild kvenna
Selfoss 3 3-0-0 66:51 6
ÍR 3 1-1-0 60:54 5
UMFA 4 2-0-2 68:66 4
ÍBK 4 1-1-2 67:70 3
Þróttur 4 1-0-3 65:79 2
Þór 2 0-1-1 34:36 1
ÍBV 2 0-1-1 29:33 1
launa í boði. Það er því eftir ein-
hverju að slægjast og eru kylfing-
ar hvattir að nýta sér veðurblíð-
una til þess að taka þátt í þessu
jólamóti GA.
Á mótinu um síðustu helgi
sigraði Magnús Jónatansson en
þeir Ólafur Gylfason og Sveinn
Rafnsson voru jafnir í 2. og 3.
sæti.
Stöðugur straumur kylfinga
hefur legið að Jaðri að undan-
förnu enda veður með afbrigðum
hagstætt til þess að stunda golf.
um ánægður þegar honum voru
færð þessi tíðindi. „Ég átti nú alls
ekki von á þessum titli og var
reyndar búinn að gleyma að hon-
um er venjulega úthlutað á þess-
um árstíma. Ég lít nú á titilinn
sem heiður fyrir allt KA-liðið en
ekki eingöngu fyrir sjálfan mig.
Blak er hópíþrótt og ekkert lið er
sterkara en veikasti einstakl-
ingurinn í því. Þetta er því alveg
eins viðurkenning til félaga
minna í KA því án þeirra hefði
ég ekki getað náð mér þetta vel á
strik,“ sagði Stefán Jóhannesson.
„Það er mikill heiður og
ánægja fyrir okkur KA-menn að
hafa hlotið þennan titil tvö ár í
röð. Þetta sýnir að við erum á
réttri leið í okkar starfi og ýtir
undir okkur að sýna enn meiri
metnað en hingað til,“ sagði
Stefán Magnússon formaður
blakdeildar KA eftir að honum
bárust þessi tíðindi.
Um næstu helgi halda KA-
strákarnir á Laugarvatn og keppa
þar við nemendur úr Iþrótta-
kennaraskólanum en þeir keppa í
1. deildinni undir nafni HSK.
Það lið er sýnd veiði en ekki gefin
og er skemmst frá því að segja að
Stúdentar lentu í hinu mesta basli
með Laugvetninga og rétt unnu
þá 3:2. Það má því búast við
hörkuviðureign og hefst leikur-
inn kl. 13.30 á laugardaginn ef
einhver skyldi eiga leið fram hjá
íþróttahúsinu að Laugarvatni.
leikmaður með nægjanlegt sjálfs-
álit og sjálfsaga til þess að standa
sig í 1. deildinni.
Það verður hins vegar að taka
tillit til þess að það tekur tíma
fyrir erlenda leikmenn að aðlaga
sig að aðstæðum. Sumir þeirra
hafa ekki gert það en aðrir, sér-
staklega hollenskir leikmenn,
hafa staðið sig með sóma. Við
búumst ekki við miklu af Þor-
valdi næstu þrjá mánuðina og
raunverulega búumst við ekki við
neinum stórafrekum frá honum
fyrr en á næsta keppnistímabili.
En eigum við ekki að vona að
hann geti spilað gegn Liverpool
1. janúar en sá leikur verður
sýndur beint í Englandi,“ sagði
Ron Fenton aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Nottingham
Forest.
Þorvaldur Örlygsson sjálfur
var að vonum ánægður með að
þessum áfanga skyldi hafa verið
náð. „Nú er biðtíminn úti og nú
er það bara að standa sig. Það
tekur að sjálfsögðu tíma að kom-
ast í leikæfingu aftur og ég stefni
á að spila eftir áramótin. Ekki er
raunhæft að ætlast til þess að ég
vinni mér fast sæti í liðinu á þessu
keppnistímabili en ef ég næ
nokkrum leikjum þá verð ég
ánægður. Síðan er stefnan auð-
vitað að vinna sér öruggt sæti á
næsta keppnistímabili,“ sagði
Þorvaldur Orlygsson.
Þorvaldur fær ekki leyfi til að
fara heim um jólin eins og áður
var haldið. Það sýnir að stjórn
félagsins hefur trú á honum enda
er mikið um að vera í deildinni
yfir jólavertíðina. Það verður því
gaman að sjá hvernig Þorvaldur
stendur sig í enska boltanum.
Maraþonsund Óðins
- safnað fyrir Þýskalandsferð
Keppnishópur á vegum Sund-
félagsins Óðins heldur til
Þýskaiands um jólin í æfinga-
og keppnisferð. Til þess að
safna peningum til þessarar
feröar munu þau synda mara-
þonsund í Sundlaug Akureyrar
um næstu helgi.
Þetta eru 15 krakkar sem
munu synda og er áætlað að þau
muni synda um 100 km áður en
yfir lýkur. Sundfélagar hafa safn-
að áheitum hjá fyrirtækjum og
einstaklingum, en sund þetta
verður um leið fyrirtækjaleikur.
Blaksamband Islands hefur útnefnt Stefán Jóhannesson KA, blakmann árs-
ins 1989.