Dagur


Dagur - 07.12.1989, Qupperneq 16

Dagur - 07.12.1989, Qupperneq 16
Jólatilboð á írei&lumat Bayonne- skinka 795,~ P kg Hringskorinn svínabógur 397,— pr. kg Svínaham- borgariæri 539,—pr kg Lambahamborgar- hryggur 539,— pr. kg i dagar tiljóla Húsvísk matvæli hf.: Starfsfólki sagt upp - fram yfir áramót Hið nýja hlutafélag, sem stofn- að var á Húsavík í haust, Húsvísk matvæli hf., hefur sagt upp starfsfólki sínu, 8-9 manns. Munu uppsagnirnar taka gildi um næstu helgi en vinna hefst síðan á ný hjá fyrir- tækinu eftir áramótin. Framkvæmdastjóri Húsvískra matvæla, Jakob Bjarnason tók til starfa fyrir síðustu mánaðamót. Fremur rólegt hefur verið hjá fyrirtækinu að undanförnu. Unn- ið er m.a. við að skipta um merk- ingar á rækjudósum af lager Hiks, en samningar náðust um sölu talsverðs magns af rækjunni á markað í Austur-Þýskalandi. Eftir að vinnu við matvælin lýkur verður unnið við lagfæringar hjá fyrirtækinu, til að hafa allt tilbú-, ið fyrir vinnsiuna á nýja árinu. IM Hótelstjóri Hótel Stefaníu vill breyta iðnaðarhúsnæði við Dalsbraut: Umsókninm hafiiað vegna óvissu um framtíðarnotkun Heimir Ingimarsson, bæjar- fulltrúi, vakti athygli á því á síðasta fundi Bæjarstjórnar Akureyrar að bygginganefnd hefði hafnað umsókn Stefáns Sigurðssonar, hótelstjóra, vegna breytinga á húsnæði við Dalsbraut. Eins og kunnugt er hcfur Ála- foss hf. undanfarið selt nokkuð af ónotuðu verksmiðjurými. Sumir þeir aðilar sem hafa keypt hluta fasteignanna hafa breytt þeim og innréttað, sumir með leyfi en aðrir ekki. Á fundi bygginga- nefndar 22. nóvember var umsókn Haraldar Árnasonar f.h. Stefáns Sigurðssonar vegna breytinga á 2. hæð í vestasta hluta verksmiðjubygginganna tekin til afgreiðslu. Umsókn um að breyta húsnæðinu var hafnað af bygginganefnd, þar sem ekki var gerð grein fyrir áætlun um notkun húsnæðisins. Heimir gagnrýndi fyrst og fremst að of mikil brögð væru að því að menn kynntu sér ekki, áður en kaup væru fest í húsum eða lagt út í fjárfestingar, hvort leyfi fengjust fyrir þeirri starf- semi sem ætlað væri að hafa á staðnum. Umsókn Stefáns Sig- urðssonar væri aðeins eitt dæmi af mörgum um þetta. „Mér finnst líka að menn eigi ekki að bjóða eignir til sölu án þess að geta þess að eignin hafi þjónað ákveðnum tilgangi og hafi fyrst og fremst leyfi til þess að gera það áfram. Sala á eign gefur ekki heimild til að hún þjóni nánast hvaða öðrum tilgangi sem er,“ segir Heimir. Bygginganefnd gerði athuga- semdir vegna stækkunar glugga og vegna bílastæða við Dals- braut, en gert var ráð fyrir tugum bílastæða við húsið. „Mér finnst þessi afgreiðsla bygginganefndar furðuleg. Nefnd- in þarf ekki að hengja sig í að verið sé að beita einhverjum brögðum þótt bílastæðafjöldi sé miðaður við hugsanlegar fram- tíðarþarfir í huga. í>að sama má segja um gluggana, ég skil ekki af hverju við megum ekki stækka þá þótt þarna eigi að vera geymsl- ur,“ segir Haraldur Árnason. Haraldur minnti ennfremur á að framtíðarnotkun byggingar- innar væri háð rekstrarleyfi, en um slíkt leyfi væri ekki hægt að sækja fyrr en menn vissu til hvers ætti að nota húsnæðið, eins og menn gætu sagt sér sjálfir. EHB Þorvaldur Örlygsson, knattspyrnumaðurinn snjalli, skrifar hér undir atvinnusamning við Nottingham Forest ásamt Ron Fenton, aðstoðarframkvæmdastjóra Forest, og Stefáni Gunnlaugssyni, formanni Knattspyrnudeildar KA. Mynd: KL Atvinnuleysi á Sauðárkróki ’88 og ’89: Stefiiir í nær helmings aukningu á niilli ára Á bæjarstjórnarfundi á Sauð- árkróki sl. þriðjudag var lagt fram yfirlit atvinnuleysisdaga árið 1988 og það sem af er árinu 1989. í þessu yfirliti kemur glögglega fram mikil aukning á atvinnuleysi á milli þessara ára. Fundað í dag um loðnuveiðarnar: Ákvörðun um stöðvun eða áframhaldandi veiðar? Fyrir hádegi í dag verður hald- inn fundur sjávarútvegsráð- herra og hagsmunaaðila vegna loðnuveiða. Sem kunnugt er tók ráðherra ákvörðun um að fella úr gildi heimildir til Ioðnuveiða um síðustu helgi en Snæfell til sölu: Viðræður í gangi „Viðræður eru í gangi og þær munu halda áfram. Við höfum tekið þá stefnu að selja Snæ- fellið. Meira get ég ekki sagt um málið,“ sagði Magnús Gauti Gautason, kaupfélags- stjóri, í samtali við Dag í gær um fyrirhugaða sölu á Snæfelli EA-740 til Grindavíkur. Magnús Gauti staðfesti að KEA stæði í viðræðum við Þor- björn hf. í Grindavík um sölu á frystitogaranum. Samningavið- ræður báru ekki áþreifanlegan árangur í gær en Magnús Gauti sagði að þeim yrði haldið áfram. SS frestaði því þegar fréttir bárust af afla skipa á Kolbeinseyjar- svæðinu. Lítið hefur aflast á svæðinu síðan þrátt fyrir að þar sé þorri loðnuskipaflotans. Fundurinn í dag mun því taka ákvörðun um hvort stöðva eigi veiðarnar. Sverrir Leósson, einn útgerð- araðila loðnuveiðiskipsins Súl- unnar, segir að nú séu uppi aðrar forsendur fyrir loðnuveiðibanni heldur en voru um síðustu helgi. Þá hafi ákvörðun verið tekin um stöðvun í ljósi þess að ekkert hafi veiðst af stærri loðnu en síð'ustu daga hafi skipin hins vegar veitt góða 2-3 ára loðnu þrátt fyrir að ekki hafi fundist mikið af henni. „Þeir eru nú komnir norðar og austar en áður og þrátt fyrir lítinn afla er um að ræða stóra loðnu. Spurningin er því sú hvort loðnan sé að gefa sig eða ekki. Rökin fyrir stöðvun um daginn var veiði á smáloðnu, nú er hins vegar uppi önnur staða og þá er spurn- ingin sú hvernig menn rökstyðja stöðvun frá morgundeginum, verði það niðurstaða fundarins í dag,“ segir Sverrir. JÓH Samtals atvinnuleysisdagar 1988 voru 5492. Allt bendirÁil þess að sú tala tvöfaldist í ár, því fyrstu 11 mánuði þessa árs voru alvinnuleysisdagarnir komir í 9825 og allur desember eftir. Á atvinnuleysisskrá í lok nóvember voru 52 en á sama tíma í fyrra voru það 45 manns. Líkur eru á því að tala atvinnu- lausra lækki aðeins í desember að sögn Matthíasar Viktorssonar forstöðumanns vinnumiðlunar Sauðárkróksbæjar en hann sagði aö þessar tölur væru ískyggilegar. Atvinnuleysi var nær þriöjungi meira fyrstu þrjá mánuði þessa árs en þess síðasta. Árið 1988 voru atvinnuleysisdagar 1715 fyrstu þrjá mánuðina en í ár voru þeir 4211. Þá virðist minna hafa verið að gera fyrir vörubifreiðastjóra í ár en í fyrra því atvinnuleysisdagar í þeirra herbúðum voru 1123 í fyrra en eru þegar orðnir 1390 fyrstu 11 mánuði þessa árs. Þá vekur athygli að 5122 atvinnu- leysisdagar voru meðal kvenna fyrstu 10 mánuði þessa árs en 3772 meðal karla. kj Hugmyndasamkeppni atvinnu- málanefndar Akureyrar: Um eitt hundrað hafa leitað eftir gögnum - skilafrestur til 15. desember en tíu tillögur hafa þegar borist Um eitthundrað aðilar hafa leitað eftir gögnum um hug- myndasamkeppni atvinnu- málanefndar Akureyrar og nú þegar hafa tíu aðilar skilað inn hugmyndum. Frestur til að skila inn hugmyndum rennur út 15. desember nk. og segist Sigurður P. Sigmundsson, framkvæmdastjóri Iðnþróun- arfélags Eyjafjarðar, búast við að fjöldi hugmynda skríði inn um bréfalúguna til þess dags. Sigurður segir athyglisvert að meirihluti þeirra sem fengið hafa gögn um hugmyndasamkeppnina ^séu höfuðborgarbúar. Hann segir að sumar hugmyndir sem þegar hafi borist séu allrar athygli verðar. „Af símhringingum að dæma finnst mörgum sá tími sem er til stefnu knappur og því óvíst að þeir geti fullmótað hugmynd- irnar. Það er því full ástæða til að taka fram að menn eru hvattir til að skila inn athyglisverðum hug- myndurn þó svo að þær verði ekki að fullu unnar þann dag sem skilafrestur rennur út. Við eigum eftir að kafa ofan í hlutina fram að verðlaunaafhendingu í febrú- ar og á þeim tíma gefst þessum hugmyndasmiðum kostur á að skýra sínar hugmyndir betur,“ 1 segir Sigurður.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.