Dagur - 03.01.1990, Side 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 3. janúar 1990
íþróttir
Enska knattspyrnan:
Iiverpool kvaddi 1989 á toppnum
- sigur hjá Clough í hans 1000. leik - Þorvaldur og Guðni með
Gamla kempan Alan Cork hafði sigurinn af Man. Utd. er hann jafnaði fyrir
Wimbledon á síðustu mínútu.
Síðasta umferð ársins 1989 var
leikin í Englandi laugardaginn
30. des. Liverpool kvaddi
gamla árið á toppi 1. deildar
með 4 stiga forskot, en hafði
leikið einum leik meira en
næstu lið. í 2. deild sat Leeds
Utd. í efsta sætinu, en aðeins
einu stigi á undan nágrönnum
sínum og keppinautum Sheff-
ield Utd. En þá eru það leikir
laugardagsins.
Aðalleikur umferðarinnai var
sýndur í sjónvarpinu þar sem
Aston Villa og Arsenal mættust í
hörkuleik. Heimamenn höfðu
undirtökin í fyrri hálfleik og léku
þá oft vel, en gekk illa að nýta
færin sem þeir fengu. Það var
ekki fyrr en 6 mín. fyrir leikhlé
að liðið náði forystu með marki
frá David Platt, hann fékk send-
ingu inn { vítateig Arsenal og lék
mjög snyrtilega á Tony Adams
miðvörð Arsenal áður en hann
sendi boltann í markið af stuttu
færi. Meistarar Arsenal komu
ákveðnir til leiks í síðari hálfleik
og sóttu stíft, án þess að skapa
sér verulega góð marktækifæri.
Það var því gegn gangi leiksins er
Villa bætti öðru marki sínu við
seint í síðari hálfleiknum. Tony
Urslit
1. deild
Aston Villa-Arsenal 2:1
Crystal Palace-Norwich 1:0
Derby-Coventry 4:1
Liverpool-Charlton 1:0
Luton-Chelsea 0:3
Manchester City-Millwall 2:0
Q.P.R.-Everton 1:0
Southampton-Sheffield Wed 2:2
Tottenham-Nottingham For. 2:3
Wimbledon-Manchester Utd 2:2
2. deild
Barnsley-Leeds Utd. 1:0
Bradford-W.B.A. 2:0
Brighton-Oxford 0:1
Ipswich-Middlesbrough 3:0
Leicester-West Ham 1:0
Oldham-Portsmouth 3:3
Sheffield Utd.-Blackburn 1:2
Stoke City-Watford 2:2
Sundcrland-Port Vale 2:2
Swindon-Ncwcastle 3:1
Wolves-Bournemouth 3:1
Plymouth-Hull City 1:2
3. deild
llolton-Bury 3:1
Brístol Rovers-Tranmere 2:0
Chcster-Blakpool 2:0
Fulham-Shrewsbury 2:1
Huddersfield-Bristol City 2:1
Leyton Orient-Crewe 2:1
Mansfield-Northampton 1:2
Notts County-Birmingham 3:2
Preston-Wigan 1:1
Reading-Rotherham 3:2
Swansea-Brentford 2:1
Walsall-Cardiff City 0:2
4. deild
Aldershot-Rochdale 1:1
Burnley-Halifax 1:0
Doncaster-Colchester 2:0
Gillingham-Wrexham 1:0
Hartlepool-Grímsby 4:2
Lincoln-Carlisle 1:3
Peterborough-Scarborough 1:2
Scunthorpe-Chesterfleld 0:1
Southend-Excter 1:2
Stockport-Cambridge 3:1
Torquay-Maidstone 2:1
York City-Hereford 1:2
Daley hinn eldsnöggi útherji
Villa sendi þá frábæra Sendingu
inn á Derek Mountfield og
þrumuskalli hans hafnaði efst í
markhorni Arsenal. Leikmenn
Arsenal töldu að Mountfield
hefði verið rangstæður og mót-
mæltu kröftuglega, en áð sjálf-
sögðu án árangurs. Á lokartiín.
leiksins skallaði Tony Adams inn
eina mark Arsenal af stuttu færi,
en liðið féll niður í þriðja sæti við
ósigurinn. Það er hins vegar
óskiljanlegt að David Rocastle
skildi sitja á bekknum nær allan
leikinn hjá Arsenal, hann gerði
góða hluti þann stutta tíma sem
hann fékk að leika með í lokin.
Liverpool sigraði botnlið
Charlton á Anfield með eina
marki leiksins sem John Barnes
skoraði á 17. mín. eftir góða
sendingu frá Steve Stauton.
Charlton varðist vel í leiknum og
Bob Bolder í marki liðsins varði
vel frá Gary Ablett, Ronnie
Whelan og þó sérstaklega er
hann varði vítaspyrnu frá Ian
Rush sem dæmd var á Joe
McLaughlin fyrir brot á Barnes.
Liverpool lék án Ray Houghton
og þeir Peter Beardsley og Steve
McMahon voru á bekknum, en
það breytti engu og liðið hlýtur
að teljast líklegur sigurvegari í 1.
deild í vor.
Lið Man. Utd. endaði árið
heldur dapurlega, en liðið missti
af sigri á útivelli gegn Wimbledon
er varamaðurinn Alan Cork jafn-
aði fyrir Wimbledon á síðustu
mín. leiksins. Utd. sem lék án
Bryan Robson og missti Paul
Ince meiddan útaf átti undir högg
að sækja í leiknum. Eric Young
skoraði fyrir Wimbledon í fyrri
hálfleik og John Fashanu hefði
hæglega getað bætt við tveim
mörkum fyrir liðið. Er 15 mín.
voru eftir af leiknum skoraði
Utd. tvö mörk á tveim mín., Viv
Anderson og mark Robins voru
þar að verki og sigurinn blasti við
liðinu þar til Cork gerði út um
þann draum í lokin.
Brian Clough framkvæmda-
stjóri Nottingham For. stjórnaði
liðinu í 1.000 sinn er Forest mætti
Tottenham á útivelli. Og það
voru engin þreytumerki á kapp-
anum í grænu peysunni sem var
mjög líflegur á bekknum. Forest
lék betur í leiknum og sóknar-
menn liðsins fóru oft illa með
óstyrka varnarmenn Tottenham.
Gary Lineker skoraði bæði mörk
Tottenham í leiknum, kom liðinu
yfir á 11. mín. og síðan á síðustu
mín. leiksins. Á milli marka hans
gerðu gestirnir hins vegar þrjú
mörk, fyrsti Nigel Clough er jafn-
aði eftir mistök Bobby Mimms í
marki Tottenham og síðan 2 mín.
síðar á 29. mín. skallaði Gary
Crosby inn. Um miðjan síðari
hálfleik skoraði Garry Parker
þriðja mark Forest eftir sendingu
Clough.
Chelsea náði loks að reka af
sér slyðruorðið er liðið gersigraði
Luton á útivelli 3:0. Kerry Dixon
var maður leiksins hjá Chelsea,
hann skoraði þriðja mark liðsins
og lagði upp bæði mörkin sem
Kevin Wilson skoraði með
skalla. Það besta fyrir liðið var þó
að halda hreinu í leiknum eftir
allt markaflóðið að undanförnu
og það getur liðið þakkað mark-
verðinum Dave Beasant og lán-
lausum sóknarmönnum Luton.
Steve Coppell stjóri Crystal
Palace sagði fyrir leik liðsins gegn
Norwich að nú loksins væru leik-
menn hans að aðlagast 1. deild-
inni. Og það virtust orð að sönnu
því Palace hafði nokkra yfirburði
gegn Norwich. Eina mark leiks-
ins kom á 55. mín., Ian Wright
stökk hæst í vítateig Norwich og
skallaði inn fyrirgjöf John Pemb-
erton. Norwich reyndi að beita
hörku eftir markið, en hafði ekk-
ert upp úr því annað en bókanir á
þrjá leikmenn og sigur Palace
mjög sanngjarn.
Sheffield Wed. náði góðu stigi
á útivelli gegn Soputhampton og
Ron Atkinson stjóri Sheffield
virðist á réttri braut með liðið.
John Sheridan í liði Wed. var
áberandi besti maður vallarins og
stjórnaði spili liðsins. Dalian
Atkinson náði forystu fyrir Sheff-
ield á 33. mín. með skallamarki.
Þá jók Southampton hraðann og
Matthew Le Tissier jafnaði úr
vítaspyrnu sem Rod Wallace
fiskaði á síðustu mín. fyrri hálf-
leiks. Eftir klukkutíma leik náði
Le Tissier forystu fyrir Sout-
hampton, en aðeins mín. síðar
brá varnarmaðurinn Peter Shirtliff
sér í sóknina hjá Sheffield og
jafnaði með skalla eftir horn-
spyrnu. Bæði liðin fengu færi á að
skora sigurmark í lokin, Atkin-
son var tvívegis nærri því fyrir
Sheffield, Sheridan skaut hárfínt
framhjá úr aukaspyrnu og fyrir
Southampton munaði litlu að
varamaðurinn Neil Ruddock
næði að reka hausinn í fyrirgjöf
Le Tiossier fyrir opnu marki, en
jafnteflið voru sanngjörn úrslit.
Þrír leikir, 7 stig og ekkert
mark á sig er árangur Man. City
frá því Howard Kendall tók við
liðinu. Millwall varð að láta í
minni pokann fyrir City á laugar-
dag, Paul Stephenson fékk dauða-
færi fyrir Millwall á 20. mín. og
10 mín. síðar bjargaði Andy
Hinchcliffe á línu fyrir City frá
Kevin O’Callaghan, en það voru
einu vandræðin sem City þurfti
að glíma við í leiknum. Mark
Ward sem City keypti frá West
Ham nýlega lék sinn fyrsta leik
með liðinu og stóð sig mjög vel.
Á 25. mín. skoraði David White
fyrir City með viðstöðulausu
skoti eftir undirbúning Clive All-
en og hann bætti öðru marki sínu
við á 70. mín. eftir sendingu Paul
Lake. Liðin mætast aftur á sama
stað í FA-bikarnum á laugardag
og þá gæti Paul Goddard leikið
með Millwall ef liðinu tekst að
kaupa hann frá Derby nógu
tímanlega.
Derby burstaði Coventry
heima 4:1. Nick Pickering náði
forystu fyrir Derby á 15. mín. og
Trevor Hebberd bætti öðru við
15 mín. síðar. Kevin Drinkell
hafði skotið í stöng fyrir Coven-
try strax á fyrstu mín. og á 10.
mín. síðari hálfleiks lagaði David
Speedie stöðuna fyrir Coventry
með marki. Hebberd á 77. mín.
og Craig Ramage á síðustu mín.
leiksins gulltryggðu hins vegar
stóran sigur Derby í leiknum.
Everton tapaði á útivelli gegn
Q.P.R. þrátt fyrir að hafa byrjað
leikinn með miklum látum og
verið óheppið að ná ekki góðri
forystu. Andy Sinton skoraði
eina mark leiksins fyri Q.P.R. í
fyrri hálfleik og Roy Wegerle
sem Q.P.R. keypti nýlega frá
Luton var óheppinn að skora
ekki fyrir sitt nýja lið er hann
slapp einn í gegn, en markvörður
Everton Neville Southall varði
frábærlega vel frá honum.
2. deild
Nágrannaliðin Leeds Utd. og
Barnsley tóku daginn snemma og
höfðu lokið leik sínum er aðrir
leikir hófust. Darren Foreman
skoraði eina mark leiksins fyrir
heimaliðið og er það ekki í fyrsta
skipti sem Leeds Utd. tapar á úti-
velli gegn Barnsley. Markið kom
6 mín. fyrir lok fyrri hálfleiks.
• Sheffield Utd. sem átti heima-
leik gegn Blackburn hafði því
góða möguleika á að endur-
heimta efsta sætið og Brian
Deane náði forystu fyrir Sheffi-
eld strax í upphafi. Blackburn
var þó á öðrú máli og Andy
Kennedy jafnaði á 16. mín. eftir
undirbúning Scott Sellars sem
hóf feril sinn hjá Leeds Utd. Það
var síðan Simon Garner sú gamla
kepa sem skoraði 1 sigurmark
Blackburn í síðari hálfleik og
Leeds Utd. heldur því toppsæt-
inu að minnsta kosti yfir áramót-
in.
• Sunderland og Oldham urðu
að láta sér jafntefli á heimavelli
nægja í leikjum sínum og tókst
því ekki að saxa verulega á for-
skot toppliðanna. Sunderland
gerði 2:2 jafntefli gegn Port Vale
og Oldham 3:3 jafntefli gegn
Portsmouth þar sem Gay Whitt-
ingham gerði öll mörk Portsmo-
uth.
• Ipswich virðist líklegt til
afreka og sigraði Middlesbrough
3:0.
• Swindon og Newcastle gerðu
1:1 jafntefli í leik sem bæði liðin
þurftu að sigra.
• Og West Ham virðist vera að
missa af lestinni eftir tap gegn
Leicester. Þ.L.A.
Enski landsliðsmiðherjinn Steve Bull skoraði öll fjögur mörk Wolves gegn
Newcastle.