Dagur - 03.01.1990, Síða 16
Kodak
Express
Gæöaframköllun
Akureyri, miðvikudagur 3. janúar 1990
Slökkviliðið á Sauðárkróki:
Aðeins kaJlað út fjórum
sinnum á síðasta ári
- nær 20 sinnum árið 1988
★ Tryggðu f ilmunni þinni
JSesta ^Pedi6myndii~
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Slökkviliðið á Sauðárkróki var
aðeins kallað út fjórum sinnum
á síðasta ári. Tvisvar í smá-
útköll innanbæjar og tvisvar út
í sveitina.
Aðeins einn meiriháttar bruni
varð en það var hlöðubruni í
Hegranesinu. Að sögn Björns
Sverrissonar hjá Slökkviliðinu er
þetta allt annað en árið á undan,
en þá voru útköllin nærri 20.
Nýr bíll var tekinn í notkun hjá
Slökkviliðinu seinni hluta síðasta
árs. Hann er kannski ekki nýr í
skilningi þess orðs því hann er
árgerð 1966 og er af International
gerð. Þetta er dælubíll en sá sem
fyrir var verður staðsettur í
Varmahlíð í framtíðinni. Björn
sagði að bíllinn hefði reynst vel á
æfingum og stæði hann fyllilega
fyrir sínu þrátt fyrir háan aldur.
kj
Akureyri:
Um 400 manns flugu á brott
Flugumferð milli Akureyrar og
Reykjavíkur gekk vel í gær. A
Akureyri áttu um 400 manns
bókað far með Flugleiðum til
Reykjavíkur og til að anna
eftirspurn var ákveðið að fara
tvær þotuferðir milli þessara
staða.
í gærmorgun kom þota til
Akureyrar og flutti farþega
suður. Um kaffileytið þjónaði
Fokker vél þessu hlutverki og
laust fyrir kvöldmat var þotan
aftur á ferðinni. Að lokum fór
Fokkerinn eina ferð í gærkvöld
og var fullbókað í allar vélarnar.
Flug- og brautarskilyrði voru
góð í gær og því gott hljóð í
mönnum á Akureyrarflugvelli,
en samgöngur í lofti hafa verið
æði skrykkjóttar yfir jólin. SS
„Kyndla vora hefjum hátt . . .“
Mynd: KL
Tvær brennur á Húsavík
Aramótin á Húsavík voru
þokkalega róleg að sögn lög-
reglu. Flugeldauppskot voru
með mesta móti í bænum á
i gamlárskvöld. Það rættist úr
Eyjafjörður:
Friðsæl og óhappa-
lítil áramót
heimamenn ráku af sér slyðruorðið
brennumálum bæjarbúa, því
Völsungar kveiktu í brennu
norðan við bæinn og einkaaðil-
ar voru með brennu sunnan
við bæ. Illa horfði um tíma
með að nokkur áramóta-
brenna yrði á Húsavík. Á
föstudag birti Dagur frétt um
að Húsvíkingar nenntu ekki að
gera sér brennu, og brettu
menn þá snarlega upp ermarn-
ar og ráku hraustlega af sér
slyðruorðið.
Aramótin voru óvenju friðsæl
á Akureyri og öðrum þéttbýlis-
stöðum við Eyjafjörð að þessu
sinni. Þrátt fyrir mikinn mann-
fjölda í miðbæ Akureyrar fram
undir nýársdagsmorgun urðu
engin tcljandi óhöpp eða slys,
en þó gistu sex fangageymslur
lögreglunnar fyrstu nótt ársins.
Matthías Einarsson, varðstjóri
hjá lögreglunni á Akureyri, segir
það undrunarvert hversu
óhappalaus áramótagleði Akur-
eyringa var, þrátt fyrir sjö stiga
hita og lygnt veður á nýársnótt.
Ölvun var, að sögn Matthíasar,
eins og við má búast um nóttina,
en mannfjöldinn í miðbænum var
gífurlegur. Fólkið var í stórum
hópum í bænum fram undir
klukkan níu um morguninn. Tug-
ir unglinga og fullorðins fólks
voru fluttir heim með lögreglu-
aðstoð um nóttina, ósjálfbjarga
vegna ölvunar, en þó var alit
slysalaust eins og áður sagði.
Á Siglufirði, Olafsfirði og Dal-
vík var sömu sögu að segja, engin
óhöpp urðu eða slys á fólki á
nýársnótt eða gamlárskvöld,
þrátt fyrir mikla umferð fólks
sem naut þessarar óvenjulegu
veðurblíðu áramóta. Ekki varð
heldur tjón á munum á þessum
stöðum sem rekja mátti til ára-
mótagleðskapar.
Á Siglufirði var allmikill mann-
fjöldi í miðbænum á nýársnótt,
en allt fór vel fram og segja lög-
reglumenn að þetta hafi verið
með friðsælustu áramótum.
EHB
Mjög margir sóttu dansleik í
Félagsheimilinu á nýjársnótt og
nokkrir lentu í smáútistöðum eft-
ir dansleikinn. Afleiðingar urðu
þær að flytja þurfti þrjá menn á
sjúkrahús vegna meiðsla, og í
gær höfði lögreglu borist tvær
kærur vegna þessara meiðinga.
Rólegt var á dansleikjum sem
haldnir voru í nágrenni Húsavík-
ur um hátíðarnar.
Sérlega friðsælt var á Egils-
stöðum um áramótin. Fámennt
var á dansleik í Valaskjálf á
nýjársnótt en fjölmenni á dans-
leik á nýjársdagskvöld. Lögreglu
var ekki kunnugt um nein óhöpp
um áramótin og sagði að sumar-
færi væri um allt og talsvert um
að fólk skryppi í jólaheimsóknir
til Reykjavíkur á bílum sínum.
IM
Slökkviliðið á Akureyri 1989:
Eldur oftast í íbúðarhúsum
Slökkviliðið á Akureyri var
kallað út í 73 skipti á árinu
1989 og var um eld að ræða í
42 tilfellum. Fækkaði útköllum
um 6 frá árinu áður. í fjögur
skipti var slökkviliðið kallað út
fyrir bæinn, en það er helmingi
sjaldnar en árið áður. Lang
stærsti eldsvoði ársins var í
Síldarverksmiðjunni í Krossa-
nesi aðfaranótt gamlársdags.
SjúkraútköII voru 1028 á árinu
1989, þar af 130 utanbæjar en
voru 1084, þar af 185 utanbæj-
ar árið áður. Af þessum 1028
sjúkraútköllum voru 175
bráðatilfelli.
í skýrslu Slökkviliðsins á
Akureyri fyrir síðasta ár kemur í
ljós að í þeim tilfellum sem ekki
var um eld að ræða, var ástæðan
15 sinnum sú að grunur lék á að
Loðnuskipin halda til veiða:
Blessaður vertu, nú
fer loðnan að koma!
Eftir Iangvarandi tíð hamborg-
arhryggja og villtra fugla fara
hjól atvinnulífsins að snúast
eitt af öðru. Eitt þessara hjóla
er loðnuskipin sem tínast
þessa dagana á miðin. Súlan
EA sigldi á vit loðnu á mið-
nætti og Þórður Jónasson EA
fer væntanlega í dag.
„Blessaður vertu, það er engin
spurning að nú fer að loðnan að
koma,“ sagði kampakátur Sverrir
Leósson, útgerðarmaður Súlunn-
ar, í samtali við Dag í gær.
Hreiðar Valtýsson, útgerðarmað-
ur Þórðar Jónassonar, var einnig
bjartsýnn og sagði að menn tryðu
ekki öðru en að loðnan færi að
gefa sig. óþh
eldur hefði komið upp, 8 sinnum
biluðu brunaboðar og í 4 skipti
var um gabb að ræða.
Flestir notuðu síma til þess að
gera slökkviliðinu aðvart. í 42
skipti af 73 var síminn notaður,
25 sinnum gall brunaboði, þrisvar
var talstöð notuð og í 2 tilfellum
sendiboði.
Eldur kom oftast upp í heima-
húsum eða í 15 skipti. í 10 skipti
var eldur í rusli, sinu eða
mosa, 8 sinnum í ökutækjum og 6
sinnum í iðnaðarhúsnæði. Flest
útköll slökkviliðsins voru á tíma-
bilinu frá kl. 12.00 á hádegi til kl.
21.00 á kvöldin.
Um upptök eldsvoða er það að
segja, að í samtals 20 skiptum
mátti kenna um rafmagni af ein-
hverju tagi. íkveikja varð uppvís
9 sinnum, 6 sinnum farið óvar-
lega með eld, en ekki er vitað um
eldsupptök í 5 tilfellum.
Tjón varð af eldsvoðum í 20
tilfellum, þar af var mikið eða
talsvert tjón í 10 eldsvoðum. í 7
skipti nam tjónið meiru en 2
milljónum króna og í 3 skipti á
milli 1-2 miljónum króna. VG
Akureyri:
Inubrotafaraldur
Rannsóknarlögrcglan á
Akureyri hefur átt annríkt
undanfarið, svo ekki sé meira
sagt. Fyrir utan hina
umfangsmiklu rannsókn á
brunanum í Krossanesi voru
fiinmtán innbrot framin í
bænuin aðfaranótt gamlárs-
dags.
Ungur maður var handtekinn
grunaöur um aðild að innbrot-
um þessum í gær, og var farið
fram á að hann sætti gæsluvarð-
haldsvist. Rannsókn mála þess-
ara er á byrjunarstigi vegna
annríkis rannsóknarlögreglunn-
ar.
Daníel Snorrason, rannsókn-
arlögreglumaður, segir að meðal
þeirra staða sem brotist var inn
á séu Samkomuhúsið, íþrótta-
skeimnan, íþróttavallarhúsið á
Akureyrarvelli, Gúmmíbáta-
þjónustan, fyrirtæki í Kaupangi
og vinnuskúr við Múlasíðu. Á
ölium þessum stöðum var unnið
tjón og einhverjum verðmætuni
stolið.
Milli jóla og nýárs var brotist
inn í Bókval. Vcgna þess máls
var maður handtekinn sem
viðurkenndi einnig að hafa
brotist inn í Amaró um jólin og
í Dynheima síðasta sumar.
Ekki er álitiö að nein tengsl
séu milli brunans í Krossanesi
og innbrotafaraldursins sömu
nóttina. EHB
Öngulsstaðahreppur:
Sumarbústaður
brann
Slökkvilið Akureyrar var
kallað út um níuleytið á gaml-
árskvöld vegna elds í gömium
sumarbústað í Öngulsstaða-
hreppi. Bústaðurinn brann til
kaldra kola.
Tómas Búi Böðvarsson,
slökkviliðsstjóri, segir að
sumarbústaður þessi, sem stóð í
landi Brúarlands, hafi verið
oröinn gamall og ekki verið not-
aður í fjölmörg ár. Hann hafi
því verið kominn í niðurníðslu.
Slökkviliðið lagði ekki til
atlögu við eldinn þegar á bruna-
stað kom, enda var húsið alelda,
heldur lagöi áherslu á að verja
trjágróður í kring. Bústaðurinn
brann fljótt. EHB
Ólafsfjörður:
Innbrot
Brotist var inn í Apótek
Ólafsfjarðar rétt fyrir ára-
mótin og peningum stolið.
Málið er í rannsókn og niður-
staða liggur ekki fyrir.
Að sögn lögreglunnar í Ólafs-
firði vita inenn ckki gjörla hvort
innbrotið var framið að kvöldi
30. desember eða aðfaranótt
gamlársdags. Gluggi á bakhlið
lyfjaverslunarinnar var brotinn
upp og þrjátíu til fjörutíu þús-
und krónur tekna úr peninga-
kassa. Ekki er vitað hvort ein-
hverjum lyfjum hefur verið stol-
ið um leið.
Þetta er í fyrsta sinn sem
brotist hefur verið inn í Apótek
Ólafsfjarðar. EHB