Dagur - 10.01.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 10.01.1990, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 10. janúar 1990 - DAGUR - 3 fréftir Prír sparisjóðir við utanverðan Eyjaprð: Nágrannar í eina sæng á þessu ári? „æskilegt að sameina sjóðina,“ segir sparisjóðsstjórinn í Hrísey Ekki er ólíklegt aö á þessu ári veröi stigið það skref að sam- eina þrjá sparisjóði við utan- verðan Eyjafjörð, Sparisjóð Svarfdæla á Dalvík, Sparisjóð Hríseyjar og Sparisjóð Ar- skógsstrandar. Sá fyrsttaldi er þeirra stærstur og ef til samein- ingar kemur er næsta víst að nýr sameinaður sparisjóður bæri nafn Sparisjóðs Svarfdæla og rekin yrðu útibú í hans nafni í Hrísey og á Árskógs- strönd. Það er samdóma álit spari- sjóðsstjóra þessara þriggja spari- sjóða að sameinaður sparisjóður við utanverðan Eyjafjörð væri mjög æskilegur kostur. Bent er á að með sameiningu yrði til ein öflug bankastofnun sem hefði alla burði til að þjóna atvinnulífi og einstaklingum á þessu svæði betur en nú er. Sparisjóðirnir í Hrísey og á Árskógsströnd eru litlar einingar og að mörgu leyti ekki í stakk búnar að þjóna atvinnulífi á þessum stöðum eins og æskilegt væri. Má þar sem dæmi nefna afurðalánaviðskipti Viðhorfskönnun Sambands íslenskra viðskiptabanka: Stjónunálamenn hafa of mikil áhrif í bönkmmm - jákvæð afstaða almennings til bankanna áberandi í gær kynnti Samband íslenskra viðskiptabanka niðurstöðu úr viðhorfskönnun sem gerð var til þess að kanna viðhorf almennings til bankakerfisins. Meginniðurstöðurnar eru þær að afstaða almennings er jákvæð. Meirihluti fólks segist ánægður með þá þjónustu sem bankarnir veita og ber traust til þeirra. Fáir segjast vilja skipta við banka sem reknir væru með tapi. í viðhorfi til banka sögðust 52,4% jákvæðir, 32% hlutlausir en 15,6% neikvæðir. Þá töldu 88,1% bankana gegna hlutverki sínu vel eða sæmilega en aðeins 11,9% töldu þá gegna því illa. Nær fjórir af hverjunt fiinm töldu Lögreglan: Enn klippt af óskoðuðum bflurn Lögreglan á Akureyri klippti númer af 10 bifreiðum í bæn- um síðastliðinn föstudag og var um að ræða bifreiðar sem ekki höfðu verið færðar til aðal- skoðunar á síðasta ári. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar er enn langur listi yfir bíla sem ekki voru færðir til skoðunar á fyrrgrbindum tíma. Lögreglan mun á næstunni klippa af þessum bílum hvar sem til þeirra næst og mega því eigendur þeirra búast við talsverðum óþægindum mæti þeir ekki með bílana til skoðunar. „Nei, það er engin miskunn núna. Ekki er um annað að ræða en klippa af þessum bílum enda áttu þeir að vera komnir til skoðunar," sagði varðstjóri hjá lögreglunni í samtali við blaðið. JÓH þjónustu bankanna góða eða frekar góða og 91,4% sögðu að sá banki sem þeir skiptu við veitti mjög góða þjónustu. Langflestir töldu líka að þjónustan hefði batnað á síðustu fimm árum og rúmlega þrír af hverjum fjórum sögðu að opnunartími bankanna hentaði sér vel eða sæmilega. 81,5% sögðu starfsfólk bankanna nægilega lipurt. Skiptar skoðanir voru um sam- keppni rnilli banka. 21,4% töldu hana of mikla, 41,8% töldu hana hæfilega en 36,8% of litla. Sam- eining banka er æskileg að mati 76,3% þátttakenda. 84,1% þeirra sem tóku afstöðu töldu áhrif stjórnmálamanna í bönkum of mikil, 14,5% töldu þau hæfileg en aðeins 1,4% töldu þau of lítil. 39,6% töldu fjöl- miðla gefa sanngjarna mynd af bönkunum en 60,4% sögðu hana villandi. Loks má geta þess að stór hluti aðspurðra hafði ekki hugtök á borð við nafnvexti, raunvexti og verðtryggingu á hreinu. 66,6% vissu ekki hvað þessi hugtök þýddu. SS Bæjarstjórn Dalvíkur samþykkir að ganga ekki inn í 16,5 milljóna boð Landsbankans í Ytra-Holt: Hestamenn vilja festa kaup á heimsins stærsta hesthúsi - hyggist bankinn selja jörðina hefur Dalvíkurbær áfram forkaupsrétt Bæjarstjórn Dalvíkur sam- þykkti í gær aö ganga ekki inn í 16,5 milljón króna boö Landsbankans á jörðinni Ytra- Holti í Svarfaðardal, sem bankinn eignaðist á uppboði í desember fyrir 16,5 milljónir króna. Þrátt fyrir að nýta ekki forkaupsrétt Dalvíkurbæjar að jörðinni hefur hann þó ekki fallið niður. Forkaupsrétti gagnvart skiptaráðanda þrota- bús Pólarpels hefur verið hafn- að en forkaupsréttur bæjarins gagnvart hugsanlegri sölu Landsbankans er enn í fullu gildi. Það er því Ijóst að bank- inn verður að snúa sér fyrst til Dalvíkurbæjar ef hann hyggst selja jörðina. Á fundi bæjarráðs Dalvíkur milli jóla og nýárs bar þetta mál á góma. Á fundinn mættu fulltrúar Hestamannafélagsins Hrings, sem sýnt hafa því mikinn áhuga að fjármagna kaup á refaskála í landi Ytra-Holts með það fyrir augum að flytja þangað aðstöðu hestamanna á Dalvík. Umrædd- ur skáli er 27 metrar á breidd og 170 metrar á lengd og hafa gár- ungarnir það á orði að hann kunni í framtíðinni að breytast í heimsins stærsta hesthús. Sam- kvæmt heimildum Dags er nokk- uð almenn samstaða meðal hestamanna um kaupin á refa- skálanum, enda rúmi hann alla hesta á Dalvík og gott betur en það. Sú hugmynd nýtur fylgis að Hestamannfélagið Hringur fjár- magni kaupin á refaskálanum að einum fjórða hluta en hestamenn á Dalvík leggi sjálfir fram hina þrjá fjórðu hlutana. „Okkar hug- mynd er að nýta allan skálann fyrir starfsemi hestamanna. Það sem ekki yrði nýtt fyrir hesthús mætti nýta m.a. fyrir tamningar, reiðgerði og kaffistofu. Þarna er volgt vatn og mætti auðveldlega setja upp sturtu fyrir hross. Að koma allri þessari starfsemi undir eitt þak myndi lyfta félagslífi hestamanna mikið upp,“ voru orð félagsmanns í Hestamanna- félaginu Hring í gær. Ekki er ljóst á þessari stundu hvort Dalvíkurbær eigi viðræður við Landsbankann um sameigin- leg kaup bæjarins og hestamanna á Ytra-Holti og refaskálanum. Á sínum tíma fékk Pólarpels niðurfelldan söluskatt af refa- skálanum. Hins vegar liggur ekk- ert annað fyrir á þessari stundu en að hugsanlegum kaupanda yrði gert að greiða af honum full- an skatt ofan á kaupverð. Trausti Þorsteinsson, forseti bæjarstjórnar Dalvíkur, vildi á þessu stigi ekki spá um fram- vindu málsins. „Það sem við erum að hugsa um er fyrst og fremst að eignast jörðina upp á framtíðarbyggingarsvæði. Kaup á jörðinni væri einnig góð lausn fyrir hestamenn og annan smá- búskap.“ óþh til sjávarútvegsfyrirtækja. Þessi viðskipti fara að stærstum hluta í gegnum Landsbankann, en á Dalvík hefur Sparisjóður Svarf- dæla, vegna styrks síns, hins veg- ar komið að afurðalánunum. Er í því sambandi skemmst að minn- ast verkun á Ítalíuskreið sl. vor. Á fundi forsvarsmanna Sam- bands sparisjóða með sparisjóða- mönnum á Norðurlandi á Akur- eyri á haustdögum var rætt um hugsanlega aukna samvinnu eða sameiningu sparisjóða við Eyja- fjörð. Samkvæmt upplýsingum Dags hafa engar formlegar við- ræður átt sér stað um þessi mál síðan, en fullur vilji er hjá öllum hlutaðeigandi aðilum að skoða málin betur og líkur eru til að það verði gert fyrr en síðar. „Ég tel að hljóti að enda með sameiningu sparisjóðanna og að mínu mati er það mjög æskilegt. Við yrðum að minnsta kosti ánægð ef af sameiningu yrði. Gcrðar eru auknar kröfur til þjónustufyrirtækja eins og bankastofnana og það er erfitt að koma til móts við þær nema með því að stækka einingarnar. Við getum aðstoðað fyrirtæki hér á staðnum, en alls ekki eins mikið og þyrfti," segir Vera Sigurðar- dóttir, sparisjóðsstjóri í Hrísey. óþh Loðnubátar héldu kyrru fyrir í gær: Þrírbátarlönd- uöu á Þórshöfn Þrír loðnubátar lönduðu á Þórshöfn í fyrrinótt, Björg Jónsdóttir frá Húsavík, Þórs- hamar GK og Keflvíkingur. Um klukkan hálf limm um nóttina fór rafmagniö af loðnuverksmiðjunni og átti þá eftir að Ijúka við að landa úr Ketlvíkingi. Bátarnir voru allir með slatta, eða í kringum 200 tonn hver. í gær lágu þeir bundnir við bryggju á Þórs- höfn og átti ekki að hreyfa þá fyrr en veðrið gengi yfir og raunar voru flestir loðnubátar í höfn eða vari í veöurofsanum í gær. Að sögn Gísia Óskarssonar, skrifstofustjóra hjá Hraðfrysti- stöð Þórshafnar, höfðu í gær borist 10.500 tonn af loðnu til bræðslu hjá loðnuverksmiðjunni frá upphafi vertíðar í haust. Þar af höfðu um 5000 tonn borist fyr- ir áramót, sem er mjög lítið, en þó benti Gísli á að um áramót hefði Þórshöfn verið í öðru sæti á eftir Siglufirði yfir þær löndunar- stöövar sem mest höfðu fengið af loðnu á haustvertíöinni. „Það var allt steindautt fyrst í haust en eftir áramót hefur kom- ið góður kippur. Síðan má gera ráð fyrir aö loðnan dreifist meira á stöðvarnar hérna cftir að Krossanesverksmiðjan datt út," sagði Gísli. SS Vantar leiguhúsnæði á Akureyri, eitt til tvö hundruð fermetra, undir heildverslun og verslun. Dpplýsingar gefur Áslaug í síma 24048. AKUREYRARBÆR Tilkynning frá Rafveitu Akureyrar Vegna gildistöku laga um virðisaukaskatt, fá nú allir kaupendur raforku á svæði Rafveit- unnar sendan raforkureikning miðaðan við nýafstaðin áramót. Rafveitustjóri. TONLISTARSKOLINN A AKUREYRI Frá Tónlistarskólanum á Akureyri Tekið verður á móti umsóknum nýrra nemenda fyr- ir vorönn 1990 á skrifstofu skólans milli kl. 13.00- 17.00 alla virka daga fram til 18. janúar. Kennsla á vorönn hefst 25. janúar. Hægt er að bæta viö nemendum í forskóla á selló og málmblásturshljóðfæri. Einnig verður boðið upp á tíma í tónlistarsögu og hlust- un fyrir almenning. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans að Hafnarstræti 81.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.