Dagur - 10.01.1990, Qupperneq 7
Miðvikudagur 10. janúar 1990 - DAGUR - 7
Vestan Eikarlundar. Myndir: KL
fyrir að grafið verði niður á fast
og uppgröfturinn notaður til þess
að mynda áhorfendabrekkur og
skjólgarða. bar ætti vallargerðin
að geta gengið hratt. Á hinum
svæðunum er gert ráð fyrir að
jafnað verði til í landinu, skering
að ofan notuð sem fylling að
neðan. Mjög þarf að gæta þess
við framkvæmdir að flýta sér ekki
um of. Til þess að hægt verði að
gera betri áætlun um þessi svæði
þarf að fá um þau meiri vitneskju
s.s. um hæðarlegu, jarðvegsdýpt,
jarðvatn (grunnvatnsborð) og
snjóþyngsli skipta einnig máli
fyrir hitunina.
I upphituðum völlum á Norð-
urlöndunum (m.a. á Laugardals-
velli) hefur til þessa verið sett
malbik undir gervigrasið og
snjóbræðslulagnirnar verið í því.
Notað hefur verið sérstaklega
opið malbik sem hleypir vatni vel
í gegnum sig og voru í Reykjavík
gerðar tilraunir með hvernig
þessi blanda yrði sem best. Metið
er hér hver kostnaðaraukinn yrði
ef slíkt malbik væri notað og var
stuðst við verð sem Guðmundur
Guðlaugsson, yfirverkfræðingur
taldi sennilegt miðað við efnis-
kröfur sem gerðar eru.
Sandgrasið líkara
náttúrulegu grasi
Á síðustu árum hefur gervigras
verið sett beint á möl og í fram-
haldi af því hafa menn velt fyrir
sér hvort ekki megi líka hita slíka
velli upp. Gerður hefur verið
sandgrasvöllur við íþróttahúsið í
Garðabæ sem er hitaður með af-
fallsvatni úr húsinu og eru snjó-
bræðslulagnirnar þar í sandlagi.
Vert er að fylgjast með reynslu
manna af þessum velli og því sem
gerist annars staðar.
Metinn er kostnaður við það
að einangra undir völlinn til þess
að ekki tapist eins mikill varmi
niður í jörðina. Kostnaður
reyndist mikill og lauslegar
athuganir sýna að ekki muni
borga sig að einangra.
Um yfirlag á grasvöll er það að
segja, að ekki tókst að fá upplýs-
ingar um verð á því nema frá
tveimur aðilum, þó fleiri aðilar
séu „stórir“ á þessu sviði. Mikið
er rætt um muninn á sandgrasi
(gervigras sem fyllt er að mestu
með sandi) og hefðbundnu grasi
og sýnist sitt hverjum. Það sem
menn virðast helst sammála um
er að sandgrasið gefi eiginleika
sem eru líkari náttúrulegu grasi
en til þess að það endist og sé
gott þarf að halda því mjög vel
við . í gangi eru ýmsar rannsókn-
ir á þessum málum sem beinast
að mörgum þáttum málsins s.s.
hvernig hægt verði að hreinsa
sandinn sem best, hvernig skó er
heppilegast að nota á grasinu og
áframhaldandi samburðarrann-
sókn á grastegundum og vallar-
uppbyggingu sem „Æskulýðs- og
íþróttadeild norska menntamála-
ráðuneytisins“ stendur fyrir. í
útreikningum hér á undan er
reiknað með hefðbundna grasinu
frá Poligras sem er talið mjög
vandað en frekar dýrt. Líklegt
má telja að hægt verði að fá lægra
verð með útboði t.d. til nokkurra
valinna aðila.
Frágangur umhverfis
Varðandi frágang umhverfis er
talið æskilegt að velja skjólsælan
stað til að minnka orkunotkun
snjóbræðslukerfisins, eða reyna
að mynda skjól með trjágróðri og
jarðvegsbökkum. Gert er ráð fyr-
ir slíkri skjólmyndun og að trjá-
beltið verði sambland af runnum
og hærri trjágróðri. Reiknað er
með frágangi (sléttun og sáningu)
á áhorfendabrekkum og öðrum
fláum og að girt verði umhverfis
allt svæðið með c.a. 2 metra hárri
girðingu sem á verði eitt stórt
hlið og tvö smærri. í kostnaði við
lýsingu er gert ráð fyrir að ljósun-
um megi stýra þannig að í fyrsta
lagi sé hægt að fá fulla lýsingu á
allan völlinn, öðru lagi hálfa lýs-
ingu á allan völlinn og að lokum
lýsingu, fulla eða hálfa á hálfan
völlinn.
Gert er ráð fyrir 100 bílastæð-
um við völlinn. Til viðmiðunar
voru stæðin rissuð upp með til-
heyrandi lögnum, niðurföllum,
kantsteini og frágangi umhverfis
og þetta kostnaðarreiknað. Ekki
er þó reiknað með tengingum við
lagnakerfi né gatnakerfi bæjar-
ins. Gerð var lausleg áætlun um
stærð vallarhúss og hvað æskilegt
væri að það hýsti. Gert er ráð fyr-
ir að innifalinn sé kostnaður við
tengingu við hitaveitu til notkun-
ar í húsinu (sturtur) og að nota
megi þá tengingu sem varaafl fyr-
ir snjóbræðslukerfið.
Misjafnar kröfur
Um orkunotkun gervigrasvallar á
Akureyri er það að segja, að
varmaþörf snjóbræðslukerfa er
háð veðurfari og kröfum um
afköst snjóbræðslunnar þ.e.
hversu hratt hún getur brætt
snjó. Á gervigrasvellinum í
Laugardal hafa verið gerðar þær
kröfur að völlurinn haldi sér þíð-
um í 6-7 stiga frosti en þá bræðir
hann ekki af sér snjó svo neinu
nemi. Gerðar hafa verið strangar
kröfur til ástands vallarins og þar
af leiðandi verður orkunotkunin
mikil. Ætlunin er að slaka heldur
á þessum kröfum nú, sérstaklega
fyrri hluta tímabilsins eða fram í
febrúarbyrjun. Pá byrja æfingar
knattspyrnuliðanna af fullri
alvöru og kröfurnar aukast.
Nefndin leit á skýrslu um
reynslu af notkun gervigrasvallar
í Jordal við Osló. Ef litið er á
meðalhita þar á fjögurra ára
tímabili kemur í ljós að síðari
hluta þess var hitastig 3-5 gráðum
lægra en búast má við á Akur-
eyri. Auk olíu og afgangsvarma
til hitunar, hefur verið gripið til
þess í Osló að hreinsa nýfallinn
snjó af vellinum með traktor sem
búinn er sérsmíðaðri tréskóflu og
bursta, til að minnka orkueyðsl-
una.
Samstarfsnefndin telur að fara
verði varlega í að bera tölur frá
Osló saman við tölur frá Akur-
eyri. I Noregi er skafrenningur
t.d. ekki algengt fyrirbrigði en
tölurnar settar fram til að benda
á að kröfurnar eru misjafnar og
skipta mikla máli.
Samauburður við
göngugötuna
Fengist hafa upplýsingar frá
Guðmundi Guðlaugssyni, yfir-
verkfræðingi hjá Ákureyrarbæ
um orkunotkun í snjóbræðslu-
kerfinu í göngugötunni í Hafnar-
stræti sl. 5 ár. Gengið er út frá að
orkunotkun hér verði haldið hóf-
legri frá október til febrúar enda
kröfur féiaganna þá ekki miklar
og í flestum tilfellum dugar hálf-
ur völlur. Frá desember og fram í
febrúar er gert ráð fyrir að snjó-
bræðslukerfið verði keyrt á litlu
afli, þ.e. svipuðu og er í göngu-
götunni. Með því er tryggt að
frost fer ekki niður í völlinn, sem
gefur möguleika á ódýrari upp-
byggingu vallarins. Önnur aðferð
er að leyfa vellinum að kólna nið-
ur þegar ekki er þörf á snjó-
bræðslu, en þá má búast við að
þegar byrjar að snjóa verði völl-
urinn ónothæfur um stundarsak-
Til sölu er
fasteignin Bjarkarbraut 3, Dalvík.
Réttur er áskilinn að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Tilboðum skal skila til undirritaðs fyrir 20. janúar
1990.
Sparisjóður Svarfdæla, Dalvík.
Sparisjóðsstjóri.
Fulltrúafundur
í Framsóknarfélagi Eyjafjarðar
verður haldinn á skrifstofu Framsóknarflokksins,
Hafnarstræti 90, Akureyri, laugardaginn 13. janúar
kl. 11.00.
OPIÐ
HÚS
með Guðmundi Bjarnasyni og Jóhannesi
Geir í Freyvangi, föstudaginn 12. janúar
frá kl. 20.30 og í Jónínubúð á Dalvík
laugardaginn 13. janúar frá kl. 15.00-
17.00.
Guðmundur. Jóhannes Geir
Skýrslu samstarfsnefndar um
gervigrasvöll fylgir áætlun um
hvernig nota mætti snjóbræðslu-
kerfi og áætlaður kostnaður við
rekstur þess. Ekki er um ná-
kvæma útreikninga að ræða, en
sýnir þó að notkun má halda inn-
an hæfilegra marka með því að
halda kröfum í hófi. Reiknað er
með notkun frá október til maí
en öruggt má telja að oftast þurfi
ekki að kynda allan þann tíma,
þ.e. byrja seinna og hætta fyrr.
Til samanburðar yrði orkunotk-
un ef völlurinn væri kyntur svip-
að og göngugatan og í sama tíma,
um 1.700.000 kílóvattstundir á
ári. Kostnaðurinn við kaup á
afgangsorku er um 1,5 milljónir
króna á ári en um 3,2 ef kynt er
með hitaveitu. Þessu til viðbótar
kæmi kostnaður við lýsingu og
dælur og má því reikna með að
völlurinn yrði auður álíka marga
daga og göngugatan.
Helstu niðurstöður eru því þær,
að kostnaður við snjóbræðslu,
dælur og lýsingu ef notuð er
afgangs raforka næmi um 3,9
milljónum króna á ári, en ef not-
uð er hitaveita, um 8,5 milljónum
á ári. Munar þarna talsverðu frá
fyrri áætlunum, en þar var sem
fyrr getur talað um 20 milljónir á
ári. VG tók saman.
Framsóknarfólk Húsavík
Almennur
félagsfundur
verður haldinn laugardag 13. jan. kl. 10.30 í
Garðari.
Fundarefni:
1. Kosningaundirbúningurinn.
2. Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Framsóknarfélag Húsavíkur.
Akureyringar
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
Áskriftar'SS' 96-24222
★ Ávöxtun 8-10% umfram verðbólgu
★ Örugg ávöxtunarleið
★ Alltaf laus til útborgunar
★ Fæst fyrir hvaða upphæð sem er
KAUPÞING
Gengi Einingabréfa
10. janúar 1990
Einingabréf 1 4.562,-
Einingabréf 2 2.510,- I
Einingabréf 3 3.000,-
Lífeyrisbréf ... 2.294,-
Skammtímabréf .. 1,558
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1 • Akureyri
Sími 96-24700
Einingabréf
er eign sem ber arð.