Dagur - 10.01.1990, Síða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 10. janúar 1990
myndasögur dags
ANDRÉS ÖND
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
rSamkvæmt því sem Roger Todd segir,
losa þeir úrganginn einhvers staðar í
Pensylvaníu. Sem betur fer fyrir Arabellu
veröur ökuferðin ekki löng ...
Því miöur vinaj
mín! Ég verð að láta þig af um tíu . J|
# Peninga-
kassinn
Þetta gerðist í verslun sem
sérhæfði sig í að selja pen-
ingakassa, peningaskápa og
skrifstofuvörur. Afgreiðslu-
maður í versluninni var bú-
inn að sýna sama viðskipta-
vininum ákveðinn peninga-
kassa mörgum sinnum án
þess þó að sala færi fram.
Maðurinn vildi alltaf fá að
skoða kassann betur, at-
hugaði lásinn og velti fyrir
sér hvort hann væri nægi-
lega öruggur. Þá var hann
sífellt að spyrja um verð,
afslátt og greiðsluskilmála.
Þó var hér ekki um sérstak-
lega háa upphæð að ræða,
aðeins nokkur þúsund
krónur. Að lokum fór af-
greiðslumanninum að leið-
ast þetta og sagði þegar
„kúnninn“ var búinn að
koma sjö sinnum að skoða
kassann: „Þú verður að
kaupa hann næst þegar þú
kemur, annars sýni ég þér
þetta ekki oftar.“ Viðskipta-
vinurinn hafði góð orð um
að þetta og sagðist koma
fljótt aftur.
# Kassinn var
ekki tómur
í umræddri verslun var Ijós-
ritunarvél sem Ijósritaði í lit,
hinn mesti kostagripur. Af-
greiðslumaðurínn hugsaði
sér að hrekkja viðskiptavin-
inn svolítið næst þegar
hann kæmi að skoða kass-
ann. Hann Ijósritaði 100
dollara seðla, skar til pappír
og bjó til fölsk „peninga-
búnt“ sem voru þannig að
dollaraseðlarnir Ijósrituðu
voru efstir í hverju búnti en
síðan var ekkert nema
pappír. Bjó hann vandlega
um þetta allt og lét „seðla-
búntin“ í ákveðinn peninga-
kassa. Verðgildi „pening-
anna“ voru tugmilljónir
króna. Dag nokkurn kom
umræddur viðskiptavinur
og fór að skoða kassann á
ný. Afgreiðslumaðurinn
samdi eftir langt þóf við
manninn um að lána honum
einn peningakassa heim til
reynslu, en það var auðvit-
að kassinn með „seðlun-
um.“
# Seldi húsið
og keypti
málverk
Afgreiðslumaðurinn frétti
eftir nokkra daga að „kúnn-
inn“ væri kominn á hress-
ingarhæli, úttaugaður á lík-
ama og sál. Maðurinn hafði
fengið einhvers konar kast
þegar hann sá alla „pening-
ana“, seldi húsið í hvelli fyr-
ir lágt verð og fór að skoða
stærstu villurnar í bænum.
Hann seldi öll sin húsgögn,
gaf mikið af innbúinu tll vina
og vandamanna en fór að
kaupa rándýr Kjarvalsmál-
verk og listmuni fyrir millj-
ónir króna, sem hann lét
ýmist skrifa eða gaf út ávis-
anir fyrir. Hann var víst ekki
mjög glaður þegar hann fór
að skoða innihaldið nánar í
kassanum góða ...
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Miðvikudagur 10. janúar
17.50 Töfraglugginn.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Poppkorn.
19.20 Hver á ad ráða?
(Who’s the Boss?)
19.50 Bleiki pardusinn.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Á tali hjá Hemma Gunn.
21.40 Arfurinn.
(Dedichina.)
Júgóslavnesk bíómynd frá árinu 1984.
Aðalhlutverk: Polde Bibic, Milena Zupan-
icic.
Dramatísk mynd um slóvenska fjöl-
skyldu, sem upplifir þrjú róstursöm en
gjörólík tímabil, frá 1914 og framyfir síðari
heimsstyrjöld, í sögu Slóveníu og Júgó-
slavíu.
23.00 Ellefufréttir.
23.10 Arfurinn - framh.
23.45 Dagskrárlok.
Stöð 2
Miðvikudagur 10. janúar
15.35 Travis McGee.
Leikarinn góðkunni, Sam Elliott, fer hér
með hlutverk hins snjalla einkaspæjara
Travis McGee. Hann ætlar að rannsaka
dularfullt bátaslys sem gamall vinur hans
er tahnn vera valdur að.
Aðalhlutverk: Sam Elliott, Gene Evans,
Barry Gorbin og Richard Farnsworth.
17.05 Santa Barbara.
17.50 Fimm félagar.
(Famous Five)
18.15 Klementína.
18.40 í sviðsljósinu.
19.19 19:19.
20.30 Af bæ í borg.
21.00 í slagtogi.
21.40 Ógnir um óttubil.
22.30 Þetta er þitt líf.
(This Is Your Life.)
23.00 Olíuborpallurinn.
(Oceans of Fire.)
Ævintýraleg spennumynd um nokkra
fanga sem láta sér fátt fyrir brjósti
brenna. Þeir hafa tekið að sér djúpsjávar-
köfun vegna olíuborunar og oft er æði
tvísýnt um hvort þeir komi aftur til baka
úr þessum lífshættulegu leiðöngrum.
Aðalhlutverk: Lyle Alzado, Tony Burton,
Ray’Boom-Boom'Mancini, Ken Norton
Cynthia Sikes og David Carver.
Bönnuð börnum.
00.35 Dagskrárlok.
Rás 1
Miðvikudagur 10. janúar
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið.
Randver Þorláksson.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsingar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
Þórður Helgason kennari talar um dag-
legt mál laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn: „Lítil saga um
litlu kisu“ eftir Loft Guðmundsson.
Sigrún Björnsdóttir les (8).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpósturinn - Frá Norðurlandi.
Umsjón: Áskell Þórisson.
10.00 Fréttir.
10.03 Neytendapunktar.
10Í10 Veðurfregnir.
10.30 Úr menningarsögunni - Saga geð-
veikinnar frá skynsemisöld til 19. aldar.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.15 Daglegt mál.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug-
lýsingar.
13.00 í dagsins önn - Slysavarnafélag
íslands.
Síðari þáttur.
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir.
13.30 Miðdegissagan: „Samastaður í til-
verunni“ eftir Málfríði Einarsdóttur.
Steinunn Sigurðardóttir les (20).
14.00 Fréttir.
14.03 Harmonikuþáttur.
15.00 Fréttir.
15.03 Samantekt um búferlaflutninga til
Svíþjóðar.
15.50 Neytendapunktar.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
16.08 Á dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Debussy og Rach-
maninoff.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.10 Á vettvangi.
18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Frá tónskáldaþinginu í París 1989.
21.00 Söguskoðun E.H. Carr.
21.30 íslenskir einsöngvarar.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Hann heilsar alltaf með hægri hendi.
Hrollvekjan „Martröðin í Álmstræti" og
skrímslið Fred Kruger.
23.10 Nátthrafnaþing.
Málin rædd og reifuð.
Umsjón: Ævar Kjartansson og Ólína Þor-
varðardóttir.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Miðvikudagur 10. janúar
7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn
í ljósið.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur áfram.
9.03 Morgunsyrpa.
Eva Ásrún Albertsdóttir og Áslaug Dóra
Eyjólfsdóttir.
Neytendahorn kl. 10.03 og afmæliskveðj-
ur kl. 10.30.
11.03 Þarfaþing
með Jóhönnu Harðardóttur.
- Morgunsyrpa heldur áfram og gluggað í
heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu
með Gesti Einari Jónassyni. (Frá Akur-
eyri.)
14.03 Hvað er að gerast?
Lísa Pálsdóttir kynnir allt það helsta sem
er að gerast í menningu, félagslífi og fjöl-
miðlum.
14.06 Milli mála.
Árni Magnússon leikur nýju lögin.
Stóra spurningin. Spurningakeppni
vinnustaða kl. 15.03, stjórnandi og dóm-
ari Dagur Gunnarsson.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnars-
dóttir, Sigurður Þór Salvarsson, Þorsteinn
J. Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómasson.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
- Gæludýrainnskot Jóhönnu Harðardótt-
ur.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 íþróttarásin.
Fylgst með og sagðar fréttir af íþróttavið-
burðum hér á landi og erlendis.
22.07 Lísa var það, heillin.
Lísa Pálsdóttir fjallar um konur í tónlist.
00.10 í háttinn.
01.00 Næturvakt á báðum rásum til
morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9,
10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22
og 24.
Næturútvarpið
1.00 Áfram ísland.
2.00 Fréttir.
2.05 Konungurinn.
Magnús Þór Jónsson segir frá Elvis
Presley og rekur sögu hans.
3.00 Á frívaktinni.
4.00 Fréttir.
4.05 Glefsur.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangi.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
5.01 Ljúflingslög.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Á þjóðlegum nótum.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Miðvikudagur 10. janúar
8.10-8.30 Svæðisútvarp Nordurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Hljóðbylgjan
Miðvikudagur 10. janúar
17.00-19.00 M.a. er „tími tækifæranna",
þar sem hlustendur geta hringt inn ef
þeir þurfa að selja eitthvað eða kaupa.
Beinn sími er 27711.
Fréttir kl. 18.00.