Dagur - 12.01.1990, Qupperneq 1
73. árgangur
Akureyri, föstudagur 12. janúar
8. tölublaö
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMKNR
SiGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Vinnudeild bifreiðastjóra í Sleipni:
Verkfall í þrjá daga
í næstu viku náist
samnmgar ekki
- ferðir hjá Norðurleið falla þá niður
Bflstjórar í Bifreiðastjórafélag-
inu Sleipni hafa boðað til
þriggja daga verkfalls í næstu
viku ef samningar við þá hafa
ekki tekist fyrir þann tíma. í
gær átti að reyna að ná sáttum
í deilunni á fundi með sátta-
semjara en fyrirfram var ekki
búist við árangursríkum fundi
því mikið ber á milli deilu-
aðila.
Félagar í Bifreiðastjórafélag-
inu Sleipni hafa verið með lausa
samninga frá síðustu áramótum.
Að sögn Magnúsar Guðmunds-
sonar formanns félagsins, var
ákveðið að reyna að vera
snemma á ferðinni með samn-
ingaviðræður og lögðu þeir fram
kröfugerð sína í byrjun nóvem-
ber. „Við fengum engin svör frá
viðsemjendum okkar og vísuðum
deilunni til Sáttasemjara ríkisins.
Par voru haldnir þrír árangurs-
lausir fundir fyrir áramót, en
uppúr viðræðum slitnaði 29. des-
ember sl.,“ sagði Magnús.
Ef af verkfalli verður falla allar
ferðir hjá mörgum sérleyfishöfum
landsins niður á mánudaginn,
þriðjudaginn og miðvikudaginn,
m.a. hjá Norðurleið.
ræðum við ríkið um núll-lausnir
sagðist Magnús vissulega finna að
bílstjórar ættu ekki samúð
almennings. „Það sem við erum
til og með að reyna, er að fá fram
breytt fyrirkomulag á vinnutil-
högun. Við viljum minnka álagið
á okkur en halda samt launum
sem við getum lifað af,“ sagði
Magnús. Hann vildi ekki tjá sig
um hvort hann teldi að samning-
ar næðust um helgina en það var
þungt í honum hljóðið.
Magnús sagði að ef hvorki
næðust samningar, né að árangur
verði af vinnustöðvun verði
aðgerðum haldið áfram, en
ákvörðun um það tekin eftir
helgi. VG
Það getur tekið á taugarnar að bíða!
Mynd: KL
Pormóður rammi hf. Siglufirði:
Ríkið eignast 97% hlutaJjár með
300 milljóna kr. skuldbreytingu
- og setur það skilyrði að félaginu verði breytt í almenningshlutafélag
Aðspurður um hvort ekki sé
erfitt að standa í samningavið-
ræðum nú þegar stóru verklýðs-
samtökin standa í samningavið-
Fjármálaráðuneytið hefur
heimilað að breyta 300 millj-
óna króna skuld Þormóðs
ramma hf. í hlutafé, sam-
Tilboð í 6. áfanga VMA opnuð:
Iiklegast að SS
byggir hf. fái verkið
- tilboð þeirra 92,7% af kostnaðaráætlun
Nýlega fór fram útboð vegna
byggingar 6. áfanga Verk-
menntaskólans á Akureyri.
Fimm aðilar sóttu útboðsgögn
og skiluðu fjórir tilboði í
verkið. Líklegast er talið að
gengið verði til samninga við
SS byggi hf. en þeir voru með
lægsta tilboð í verkið.
I 6. áfanga byggingar VMA er
um að ræða bóknámsálmu sem
verður 962 fermetrar að grunn-
fleti. Áætlað er að verkið geti
hafist í lok janúar en verklok eru
áætluð í júlílok í sumar svo hægt
verði að taka álmuna í notkun
næsta haust.
Að sögn Magnúsar Garðars-
sonar byggingaeftirlitsmanns
átti SS byggir hf. lægsta tilboð í
verkið en tilboð þeirra hljóðaði
upp á rúmlega 28,7 milljónir
króna sem er um 92,7% af kostn-
aðaráætlun. Næst kom fyrirtækið
GIBO hf. með tilboð upp á 29,5
milljónir eða 95,5% af kostnað-
aráætlun. SJS verktakar sf. og
fleiri lögðu fram tilboð upp á 31,7
milljónir sem er 102,6% af kostn-
aðaráætlun og Aðalgeir Finnsson
hf. skilaði tilboði sem hljóðaði
upp á 32,6 milljónir eða 105,3%
af kostnaðaráætlun.
Það var Verkfræðistofa Norð-
urlands sem gerði kostnaðaráætl-
un vegna verksins og hljóðaði
hún upp á 30,9 milljónir. Þessa
dagana er verið að skoða og yfir-
fara tilboðin nánar og segir
Magnús mjög líklegt að gengið
verði til samninga við SS byggi
hf. og sennilega verði það gert í
næstu viku.
Þegar byggingu 6. áfanga
VMA er lokið eru enn eftir
fjórir áfangar. Eftir er ein bók-
námsálma til viðbótar, miðrými
þ.e. félags- og samkomuaðstaða
og þrjár skemmur, yfir tréiðnað-
ardeild og rafiðnaðardeild, en
ótilgreint er hvað síðasta skemm-
an mun hýsa. VG
kvæmt heimildum Dags. Eftir
skuldbreytinguna mun ríkis-
sjóður eiga 97 prósent hluta-
fjár í Þormóði ramma hf.
Heimildarmenn Dags segja um
þetta mál að hér sé um greiðslur
að ræða sem ríkissjóður hefur
orðið að taka á sig vegna Þor-
móðs ramma, og að ganga eigi
frá hlutafjáraukningu ríkisins
mánudaginn 22. janúar á al-
mennum hluthafafundi.
Sörnu heimildir segja að fyrir-
hugað sé að gera breytingar á
samþykktum félagsins þannig að
Þormóður rammi verði almenn-
ingshlutafélag. Hlutabréf verða
boðin til sölu á almennum mark-
aði á þessu ári. Tilgangurinn er
talinn vera sá að endurskipu-
leggja fjármál fyrirtækisins, sem
er stærsti atvinnuveitandinn á
Siglufirði. Sumir segja að skilyrði
ríkissjóðs fyrir því að auka hluta-
fjáreign sína um 300 milljónir
hafi verið að félaginu yrði síðan
breytt í almenningshlutafélag.
„Menn gera sér auðvitað grein
fyrir að torsótt eða ómögulegt er
að safna tugum eða hundruðum
milljóna króna með þessum hætti
á Siglufirði. Þó er talið að bjart-
ara verði yfir hlutabréfamarkaði
landsmanna þegar líður að næstu
áramótum vegna skattaívilnana
sem fylgja því að kaupa hluti í
almenningshlutafélögum. En því
er ekki að neita að ráðuneytið
hefur staðið í miklum björgunar-
aðgerðum vegna Þormóðs ramma
undanfarin ár, fyrirtækið skuldar
rúman milljarð króna,“ sagði
einn heimildamaður blaðsins í
gær.
Mörður Árnason, upplýsinga-
fulltrúi fjármálaráðuneytisins,
staðfesti í gær að samkvæmt laga-
heimild væri ríkinu heimilt að
breyta ótilteknum hluta af skuld-
um Þormóðs ramma, þ.e. skuld-
um beint við ríkið eða ríkis-
ábyrgðasjóð, í hlutafé. Miðað er
við aðferðir Hlutafjársjóðs í því
efni. Hann staðfesti einnig að
boðað hefði verið til hluthafa-
fundar í fyrirtækinu 22. janúar.
Ekki náðist í framkvæmda-
stjóra Þormóðs ramma í gær, en
hann var staddur í Reykjavík.
EHB
Loðnuveiðin:
„Loksins komnir með fullfermi“
- sagði Hannes Kristjánsson á Súlunni
„Jú, það er loksins búið að fá
í’ann,“ sagði Hannes Krist-
jánsson, stýrimaður á loðnu-
skipinu Súlunni EA 300 í gær
en þá var skipið á Ieið til lands
með fyrsta fuilfermið á vertíð-
inni. Súlan var út af Gletting
síðla dags í gær og var ekki
ákveðið hvort landað yrði á
Raufarhöfn eða Siglufirði.
„Það var ágæt veiði á þessum
slóðum út af Austfjörðum. Þetta
er stór og falleg loðna. Við feng-
um frá 130 upp í rúmlega 300
tonn í kasti, fylltum skipið í fjór-
um köstum. Þetta er eins og það
Súlan hélt til hafnar í gær með 800
tonn af loðnu, fyrsta fullfermið á
vertíðinni.
á að vera,“ sagði Hannes. Hann
bjóst við að ef Súlan yrði komin til
Raufarhafnar um miðnætti í
gærkvöld, yrði sú höfn fyrir val-
inu, en annars yrði skipið á Siglu-
firði kl. 7 í morgun.
Óhætt er að segja að loðnu-
veiðin hafi verið góð í fyrrinótt.
Nálægt 50 íslensk og norsk skip
voru á miðunum og fengu öll
einhvern afla. Til loðnunefndar
bárust tilkynningar frá 24 skipum
í gær um samtals 17.830 tonn.
Flest þessara skipa lönduðu á
Austfjarðarhöfnum en fjögur skip
héldu til Vestmannaeyja. JÓH