Dagur - 12.01.1990, Blaðsíða 4

Dagur - 12.01.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 12. janúar 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON DREIFINGAHSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMD/'.STJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Afiiám verdtryggingar á peningamarkaði Aðilar vinnumarkaðarins hafa að undanförnu rætt mikið um svokallaða núll-lausn við gerð næstu kjara- samninga. Um er að ræða einhvers konar niðurfærslu- leið, sem byggist á því að vextir verði lækkaðir og verðlagi haldið stöðugu út samningstímabilið. Mark- miðið er að vinna á verðbólgunni þannig að hófsamir kjarasamningar verði raunhæfir. Þessar fyrirætlanir leiða hugann að því hvort ekki sé tímabært að láta sverfa til stáls gagnvart verðtryggingu fjármagns hér á landi. Margir telja það í hæsta máta óeðlilegt að laun séu á engan hátt vísitölubundin en fjármagnið hins vegar tryggt í bak og fyrir. Mörgum gengur illa að átta sig á því að við seljum meginhluta þjóðarframleiðslunnar á erlendum mörk- uðum, þar sem við ráðum ekki verðlaginu. Við eigum þar í samkeppni við margra þjóða fyrirtæki, sem greiða 8-10% vexti. íslensk fyrirtæki greiða u.þ.b. þre- falt hærri vexti, þótt hluti vaxtanna sé kallaður verð- bótaþáttur og hinn hlutinn raunvextir. Mismunandi nafngiftir bæta stöðu lántakenda ekki. Vextir eru ein- faldlega það heildarverð sem greitt er fyrir notkun lánsfjár. íslensk útflutningsframleiðsla er mjög fjár- magnsfrek og hin háa vaxtaprósenta hér á landi gerir hana með öllu ósamkeppnishæfa. Þess vegna er geng- ið fellt nokkuð reglulega, sem aftur hækkar verð inn- fluttra vara, sem aftur knýr á kaupkröfur og svo koll af kolli. Þetta er vaxta- og verðlagsskrúfan sem knýr verðbólguhjólið áfram. TU að bæta gráu ofan á svart er lánskjaravísitalan vensluð stærðum sem hún á að mæla. Hún lifir þannig eigin lífi og magnar hringrás- ina. Nauðsynlegt er að afnema verðtryggingu fjármagns til að koma í veg fyrir frekara misgengi í íslensku efna- hagslífi. Talsmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa m.a. bent á þetta, því þeir telja stjórn peningamála mun erfiðari með slíka vísitölubindingu. Tvær veiga- miklar ástæður má ennfremur nefna. Afnám lánskjara- vísitölu er stórt byggðamál, því full verðtrygging fjár- magns gerir það m.a. að verkum að óðs manns æði er að byggja eða kaupa húsnæði úti á landi. Markaðsverð fasteigna þar hækkar engan veginn til jafns við áhvíl- andi lán, sem eru verðtryggð í bak og fyrir. í annan stað er verðtrygging fjármagns tvíeggjað vopn gagn- vart fjármagnseigendum. Með henni verða hinir raun- verulegu vextir, sem lántakendum er gert að greiða, svo háir að fæstir standa undir greiðslubyrðinni. Gífar- legur fjármagnskostnaður er þannig á „góðri" leið með að drepa bestu mjólkurkýr peningastofnananna, þ.e. fyrirtækin í landinu. Tíð gjaldþrot fyrirtækja og einstakhnga hafa valdið peningastofnunum þungum búsifjum og það er stór spurning hvort verðtrygging fjármagnsins hafi í raun tryggt hag þeirra sem fjár- magnið eiga og lána. Með þetta í huga er sú spurning áleitin hvort afnám lánskjaravísitölu og verðtryggingar fjármagns yfir- leitt, ætti ekki að vera efst á blaði aðila vinnumarkað- arins í þeim kjarasamningaviðræðum sem nú standa yfir. BB hvað er að gerast Leikfélag Akureyrar: Eymalangir og annað fólk Skákfélag Akureyrar: Uppskeru- hátíð og skákmót Skákfélag Akureyrar heldur 10 mínútna mót í kvöld, föstudags- kvöld, kl. 20.00 í félagsheimili sínu. Á laugardaginn verða ungl- ingaæfingar kl. 13.30 og verða þær á laugardögum í janúar, en Akureyrarmótið hefst síðan fyrsta laugardag í febrúar. Á sunnudaginn kl. 14 verður uppskeruhátíð hjá Skákfélagi Akureyrar. Afhent verða verð- laun fyrir síðustu sex mánuði. Leikfélag Akureyrar sýnir barna- og fjölskylduleikritið Eyrnalangir og annað fólk á laugardag og sunnudag kl. 15.00. Leikritið er eftir þær Iðunni og Kristínu Steinsdætur en Ragnhildur Gísla- dóttir samdi tónlist við verkið. Leikstjóri er Andrés Sigurvins- son og leikararnir eru alls sextán, átta fullorðnir og átta börn. Leik- mynd Hallmundar Kristinssonar, lýsing Ingvars Björnssonar og búningar og gervi eftir Rósberg Snædal hafa fengið góðan hljóm- grunn og þykir leikritið hin ágæt- asta skemmtun í skammdeginu. bridds Akureyrarmótið í tvímenningi: og Anton efstir Antun Haraldsson og Pétur Guðjónsson. Pétur Akureyrarmótið í tvímenningi í bridds er hafíð. Alls taka 28 pör þátt í mótinu og er spilað eftir Barometer fyrirkomulagi, 5 spil milli para. Spilaðar verða 27 umferðir en eftir 5 umferðir er röð efstu para þessi: 1. Pétur Guðjónsson/ stig: Anton Haraldsson 2. Hermann Tómasson/ 80 Asgeir Stefánsson 3. Örn Einarsson/ 51 Hörður Steinbergsson 4. Zarioh Hamadi/ 50 Guðjón Pálsson 5. Jón Sverrisson/ 49 Máni Laxdal 6. Páll Pálsson/ 48 Þórarinn B. Jónsson 43 skák 7. Sveinbjörn Sigurðsson/ Stefán Stefánsson 42 8. Soffía Guðmundsdóttir/ Vilhjálmur Pálsson 39 Næstu 5 umferðir verða spilaðar næsta þriðjudagskvöld. -KK Skákfélag Akureyrar: Jón Garðar stigahæstur Nýlega voru íslensku skákstig- in reiknuð út, en þau fá skák- menn fyrir árangur í mótum innanlands og má ekki rugla þeim saman við alþjóðleg Hverfakeppnin er ávallt fyrsta skákmót ársins hjá Skákfélagi Akureyrar. Þrjár sveitir tóku þátt í keppninni að þessu sinni og leiddu liðin saman hesta sína í kappskák og hraðskák. Sveit Suður-Brekkunnar hafði töluverða yfírburði. í hraðskákinni sigraði Suður- Brekkan, sveitin fékk 25'/2 vinning. Sveit Norður-Brekku fékk IV/2 vinning og sveit Eyr- innar og Innbæjarins 11 vinninga. í kappskákinni urðu úrslit þessi: Suður-Brekka 10 vinning- ar, Norður-Brekka 7V2 v. og Eyr- in/Innbærinn ó'/2 v. Vaskleg skákstig. Skáksamband íslands gefur þessa stigatöflu út og fram kemur að Jóhann Hjart- arson er efstur á listanum með 2605 stig. framganga Gylfa Þórhallssonar í sveit Eyrinnar/Innbæjarins dugði ekki til enda meiri breidd í sveit- um Brekkusniglanna. En hvar voru Þorparar? SS Rúnar Sigurpálsson sigraði glæsilega í jólahraðskákmóti Skákfélags Akureyrar. Hann hlaut 19V2 vinning. í 2.-4. sæti með I6V2 v. urðu þeir Jón Garðar Viðarsson, Gylfí Þór- hallsson og Jón Árni Jónsson. Félagar Jóhanns í fjórmenn- ingaklíkunni, Margeir, Jón L. og Helgi, koma næstir. Við skulum hins vegar líta á stigahæstu menn innan Skákfélags Akureyrar: 1. Jón Garðar Viðarsson (2245), 2. Áskell Örn Kárason (2220), 3. Ólafur Kristjánsson (2165), 4. Pálmi Pétursson (2130), 5. Arnar Þorsteinsson (2110), 6.-7. Gylfi Þórhallsson og Kári Elíson (2100), 8. Rúnar Sig- urpálsson (2090), 9. Bogi Pálsson (2075), 10. Tómas Hermannsson (2070), en alls eru 16 félagar í Skákfélagi Akureyrar með meira en 2000 stig. SS Næstur kom Arnar Þorsteins son með 16 vinninga. Skákfélag Akureyrar hélt 10 og 15 mínútna mót í kringum jól- in og sigraði Jón Garðar Viðars- son á báðum þessum mótum. SS Hverfakeppnin: Yfirburðir Suður-Brekku Jólahraðskákmót: Rúnar sigraði glæsilega

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.