Dagur - 12.01.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 12.01.1990, Blaðsíða 9
Föstudagur 12. janúar 1990 - DAGUR - 9 Minning: Ý Jósep Ólafsson Fæddur 30. júní 1974 - Dáinn 6. janúar 1990 Þegar mæla skal kveðjuorð í minningu góðs vinar verður flest- um tregt tungu að hræra. Þannig er okkur einnig farið sem viljum minnast okkar góða félaga og vinar Jóseps Ólafssonar, Rima- síðu 11, Akureyri, sem varð bráðkvaddur á heimili sínu þrett- ánda dag jóla. Hve oft stöndum við ekki ráð- þrota gagnvart gangi lífsins og þó sérstaklega þegar okkar bestu vinir falla frá í blóma lífsins. Hver er eiginlega tilgangur lífsins þegar það skeður? Var honum ætlað annað og meira en hið jarð- neska líf getur veitt okkur liinum, eða hvað er það sem vak- ir fyrir æðri máttarvöldum á stundum sem þessum? Þessar spurningar og fleiri kvikna í huga okkar eftirlifandi, á stundum sem þessum, þegar við kveðjum okk- ar góða vin og félaga Jósep Ólafs- son. Jósep eða Jobbi eins og við kölluðum hann var lífsglaður unglingur á sextánda ári, hrókur alls fagnaðar í vinahópi og efni- legur drengur í hvívetna. Honum gekk vél í skóla og var talinn einn af framtíðarmönnum íþróttafé- lagsins Þórs í knattspyrnu og handbolta. Félagsmaður var hann og góður ekki eingöngu þiggjandi heldur og gefandi í starfi fyrir sitt félag og skildi þörf þess að afla fjár fyrir félagið sitt til þess að viðhalda þróttmiklu starfi. Innan síns skóla var hann einnig drjúgur félagsmaður og duldist engum sem til þekkti að þarna fór piltur víðsýnni en margur samferðamaður hans. Nú við leiðarlok þökkum við vinir hans allir heilshugar sam- fylgdina þó stutt hafi verið. Minningin um góðan dreng er geymd en ekki gleymd því eins og segir í Hávamálum: Deyr fé, deyja frændr deyr sjalfr it sama en orðstírr deyr aldregi hvem sérgóðan getr. Foreldrum Jóseps og systrum hans sendum við samúðarkveðj- ur. Vinir og félagar úr 3. fl. karla í knattspyrnu og handbolta hjá Iþróttaféiaginu Þór. í örfáum orðum vil ég fyrir hönd íþróttafélagsins Þórs senda hinstu kveðjur félagsins til góðs drengs sem fallinn er nú frá. Jós- ep ðlafsson var ötull félagi í starfi og leik og eftirsjá okkar er mikil en minning um góðan dreng lifir í brjóstum okkar vit- andi það að við munum hittast aftur þó síðar verði. Honum hefur verið ætlað eitt- hvað æðra hlutskipti sem okkur dauðlegum er ekki gefið að skilja en við vitum að honum mun farn- ast vel hvar sem hann er. Nú er hinsta kveðjustundin upp runnin og vissulega gætir nú bæði saknaðar og trega og þó mest hjá þeim er stóðu honum næst og þekktu hann best. Með Jósep er góður, grandvar og heilsteyptur unglingur geng- inn. Einn jjeirra ungu manna sem lagði meira upp úr því að vinna vel en að gera kröfur. Við kveðjum Jósep með þökk í huga og biðjum honum Guðs blessunar á nýjum vegum. Aðstandendum flytjum við samúðarkveðjur. F.h. íþróttafélagsins Þórs, Benedikt Guðmundsson. Nú þegar einn félagi okkar er horfinn, er dálitið erfitt að horfa fram á veginn. Hann Jobbi, eins og hann var kallaður í hópi vina sinna var efnilegur og yfirvegað- ur drengur. Alltaf bar drengskap- ur hans og yfirvegun af, þegar við stelpurnar í handboltanum kepptum æfingaleiki við flokk hans síðasta vetur og nú í vetur. Ósjaldan tók maður eftir honum í þessum föngulega hóp. Það verður erfitt að skilja að við sjáum hann ekki framar, og fáum ekki tækifæri til að fylgjast með hon- um dafna sem góðan dreng og afburða íþróttamann. En með þá trú í hjarta að hon- um líði vel, og að honum hafi verið ætlað annað, kveðjum við góðan félaga og biðjum guð að veita fjölskyldu hans styrk í hennar miklu sorg. Meistaraflokkur kvenna, Þór, Handknattleiksdeild. Vinur þinn er þér allt. Hann er akur sálarínnar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín uppskorín. Hann er brauð þitt og aríneldur. Pú kemur til hans svangur og í leit að friði. Kahlil Gibran Spámaðurinn Enn einu sinni erum við minnt á hversu stutt er á milli lífs og dauða. Jobbi eins og hann var kallaður af vinum og félögum er dáinn. Það bar svo skyndilega að, að við höfum ekki enn gert okkur grein fyrir því. Við vorum öll harmi slegin þegar við heyrðum þessar sorgar- fréttir. Hans verður sárt saknað af öllum í skólanum. Hann var mjög góður drengur og við elskuðum hann öll. Það er sárt að missa góðan vin og við vonum að Guð veiti ástvinum hans styrk í sorg þeirra. Við munum ávallt geyma minningu um góðan dreng í hjörtum okkar. Leikklúbburinn Saga Fúsi Síðustu sýningar Laugard. 13. jan. kl. 17.00 Sunnud. 14. jan. kl. 20.00 Sýnt í Dynheimum Miöapantanir í síma 22710 milli kl. 13 og 18. ... dóttir mín vildi sjá leikritið aftur og það án tafar. Umsögn úr blaðinu. (S.S.) Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrír allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. V. Briem. 9. bekkur Síöuskóla. Jósep var rösklega fimmtán ára þegar engill dauðans knúði dyra. Fimmtán ár eru ekki hár aldur en á þeim tíma var Jósep búinn að ryðja sér braut sem dugmikill íþrótta- og námsmaður. Hann hafði líka með lífsgleði sinni komið sér vel í hópi ættingja og vina frá frá Kljáströnd. Sorg systra og foreldra er mikil. Raunar eru ekki til nein orð sem geta lýst henni, en smám saman mun birta á ný og sárasta sorgin réna. Jósep er nú kominn í hóp góðra vina. Það er huggun harmi gegn. Við minnumst stuttra kynna með hlýju um leið og við þökkum fyrir samfylgdina. Það ræður eng- inn þeirri stund er kallið kemur og víst þykir okkur, sem Jósep hafi verið hrifinn á brott alltof fljótt. Minning um góðan dreng mun lifa um ókomin ár. Elsku Inga, Óli, Anna María og Katrín. Við viljum votta ykk- ur og öðrum aðstandendum, okkar dýpstu samúð. Megi algóð- ur Guð vernda ykkur og styrkja. Nokkrir ættingjar og vinir frá Kljáströnd. Borgarbíó Föstud. 12. jan. Kl. 9.00 Leyfið afturkallað Já nýja James Bond myndin er komin tii íslands aðeins nokkrum dögum eftir frumsýningu í London. Myndin hefur slegið öll aðsóknarmet í London, enda er hór á ferðinni ein langbesta Bond mynd sem gerð heíur verið. Child’s play Spennumynd I góðu lagi Kl. 9.10 Karate kid III Kl. 11.10 Refsiréttur Spennafrá upphafi til enda... Bacon minnir óneitanlega á Jack Nicholson. „New Woman" Er réttlæti orðin spurning um rétt eða rangt, sekt eða sakleysi? í sakamála- og spennu- myndinni „Chriminal law“ segir frá efnilegum ungum verjanda sem tekst að fá ungan mann sýknaðan. Skömmu síðar kemst hann að því að skjólstæðingur hans er bæði sekur um nauðgun og morð. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN AKUREYRI Skoðanakönnun vegna framboðs til bæjarstjórnarkosninga fer fram á skrifstofu flokksins í Kaupangi við Mýrarveg föstudaginn 12. janúar frá kl. 17.00-19.00 og laugardaginn 13. janúar frá kl. 10.00-17.00. Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri. Hluthafafundur verður haldinn í Dagsprenti hf. laugardaginn 13. janúar 1990 kl. 10.30 að Strandgötu 31, Akureyri. Dagskrá: 1. Aukning hlutafjár og breyting á 4. grein sam- þykktanna. 2. Önnur mál. Stjórnin. DAGUR óskar eftir að ráða íþróttafréttamann í fullt starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 20. febrúar nk. Góð íslensku- og vélritunarkunnátta og góð almenn menntun áskilin. Skriflegar umsóknir berist ritstjóra fyrir 1. febrúar nk. Strandgötu 31, Akureyri, sími 24222. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JAKOBSDÓTTIR, Skarðshlíð 15 f, Akureyri, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, þriðjudaginn 9. janúar. Jarðsett verðurfrá Svalbarðskirkju í Þistilfirði, föstudaginn 19. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd barnabarna og barnabarnabarna: Birgir Antonsson, Kristjana Baldursdottir, Kári Eðvaldsson, Ari Jón Baldursson, Jóna Jónatansdóttir, Margrét Baldursdóttir, Viðar Baldursson, Sigríður Ósk Einarsdóttir, Bjarni Baldursson, Sóley Höskuldsdóttir, Iðunn Baldursdóttir, Karl Karlsson, Nanna Baldursdóttir, Arnþór Jónsson. Sonur okkar og bróðir, JÓSEP ÓLAFSSON, Rimasíðu 11, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju föstudaginn 12. janúar kl. 10.30 árdegis. Inga Lára Bachmann, Olafur Haraldsson, Anna María Ólafsdóttir, Katrín Ólafsdóttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.