Dagur - 12.01.1990, Síða 2

Dagur - 12.01.1990, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 12. janúar 1990 TII sölu lítið notað knattspyrnufélag - leikur í 3. deild. Helstu eignir félagsins: Leikskýrslubók, fánar og 12-15 leik- menn í mismunandi góðu ásigkomulagi. Áskilinn réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Upplýsingar gefa Andrés í síma 96- 24222, Egill í síma 96-26288 eða Hall- dór í síma 96-27377. Tilboð skilist í lokuðu umslagi á afgreiðslu Dags merkt: „PEX - 66“. Flugskóli Akureyrar Flugskoli Akureyrar heldur bóklegt einkaflug- mannsnámskeið í janúar. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Ragnar Ólafsson í sím- um 22000 (skiptiborð Flugleiða) og 27458. Fulltrúafundur í Framsoknarfélagi Eyjafjarðar verður haldinn á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 90, Akureyri, laugardaginn 13. janúar kl. 11.00. Rætt um málefni Dags. Guðmundur. Jóhannes Geir með Guðmundi Bjarnasyni og Jóhannesi Geir í Freyvangi, föstudaginn 12. janúar frá kl. 20.30 og í Jónínubúð á Dalvík laugardaginn 13. janúar frá kl. 15.00- 17.00. Viðtalstími — Akureyri Guðmundur Bjarnason og Jóhannes Geir verða til viðtals á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hafnar- stræti 90, Akureyri, mánudaginn 15. janúar frá kl. 16-19. Framsóknarfólk Húsavík Almennur félagsfundur verður haldinn laugardag 13. jan. kl. 10.30 í Garðari. Fundarefni: 1. Kosningaundirbúningurinn. 2. Önnur mál. Félagar fjölmennið. Framsóknarfélag Húsavíkur. Vinnueftirlit ríkisins á Norðurlandi eystra: Getur haft alvarlegar afleiðingar að tílkynna ekki vinnuslys -18 vinnuslys tilkynnt á síðasta ári, sem er aukning um 7 frá 1988 Á síðasta ári var tilkynnt um 18 vinnuslys til starfsmanna Vinnueftirlits ríkisins á Norðurlandi eystra. Samsvarar það að tilkynnt hafi verið um 1,5 vinnuslys á mánuði þetta ár, en árið 1988 var tilkynnt um 11 vinnuslys til Vinnueftir- lits ríkisins í umdæminu. Helgi Haraldsson umdæmistækni- fræðingur segir engan vafa leika á að trassað sé að til- kynna um vinnuslys, en nýút- kominni reglugerð um tilkynn- ingu vinnuslysa er m.a. ætlað að auka og bæta skráningu vinnuslysa. Helgi segir að helst sé tilkynnt um slys ef þau eru mjög alvarlegs eðlis. „Á Akureyri virkar þetta þannig að þegar kallað er eftir sjúkrabíl, veit lögreglan af því og sér til þess að við séum boðaðir á staðinn líka ef um vinnuslys er að ræða. Fari menn hins vegar með einkabíl á slysadeild er oftast um minna alvarleg slys að ræða og þá vill það brenna við að þau séu ekki tilkynnt til okkar.“ Aðspurður um hvort það að tilkynna ekki slys geti haft ein- hverjar afleiðingar í för með sér sagðist Helgi t.d. þekkja dæmi frá Akureyri þar sem ekki var til- kynnt um vinnuslys, en við kom- andi starfsmaður náði sér ekki að fullu eftir slysið. Hann fór í mál við atvinnurekandann sem tapaði málinu eingöngu vegna þess að hann tilkynnti það ekki. „Þó eng- an veginn sé hægt að rekja slysið til vanrækslu á vinnustað tapar vinnuveitandi máli sem þessu ef það hefur ekki verið tilkynnt, en það er vinnuveitandans að til- kynna. Almennt segir Helgi að aðbún- aður að vinnustöðum hafi batnað undanfarin ár. Starfsmenn Vinnueftirlitsins fara reglulega í heimsóknir til fyrirtækja og fylgja máli sínu eftir með endurskoðun síðar ef gerðar hafa verið athuga- semdir í fyrstu heimsókn. Trassi menn að gera þær úrbætur sem farið er fram á getur það varðað sektum. Algengt er að vélar eru innsiglaðar, fyrirtækjum lokað um stundarsakir eða þau kærð, en Helgi segir að reynt sé að forð- ast kærur þar sem slíkt sé mjög seinvirkt. Helgi segir starfsmenn Vinnueftirlitsins verða vara við slæma fjárhagsstöðu fyrirtækja um þessar mundir. „Það verður vissulega erfiðara að ná fram úrbótum þar sem fjárhagurinn er ekki góður, sérstaklega ef um dýrari framkvæmdir er að ræða t.d. loftræstikerfi.“ Af algengum málum sem Vinnueftirlitið gerir athugasemd- ir við má nefna loftræstingu á bifreiðaverkstæðum og í bygging- ariðnaði, en trésmiðir og húsa- smiðir eiga það til að detta af vinnupöllum því mjög er trassað að setja á þá handrið. VG Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum: Aukning í sölu fiskflaka en samdráttur í fiskréttum Heildarsalan hjá Iceland Sea- food Corporation, sölufyrir- tæki sjávarafurðardeildar Sambandsins í Bandaríkjun- um, var á síðasta ári nánast sú sama í dollurum talið og árið áður, 132,7 millj. dollara á móti 133,4 millj. dollara árið 1988. Samdrátturinn nemur Aukning varð í öilum vöru- flutningum Skipadeildar Sam- bandsins á síðasta ári, að undanteknum olíuflutningum innanlands. Heildarflutningar námu 542 þúsund tonnum og hafa þeir ekki verið meiri í sögu deildarinnar. Heildar- aukningin nemur rúmum 6% miðað við árið á undan en séu olíuflutningarnir undanskildir er aukningin tæp 19%. Innflutningur jókst um 2%, útflutningur um 29%, eigin strandflutningar um 47%, flutn- ingar erlendis um 22% en sam- dráttur í olíudreifingu innanlands nam tæpum 10%. 20% aukning varð á flutning- um gáma um vöruafgreiðslu Skipadeildar við Holtabakka. Rekstrartekjur námu rúmum 2,8 milljörðum króna, sem er 32% aukning frá árinu áður. Með vís- an til hækkunar byggingarvísitölu nemur raunhækkunin tæpum 10%. í árslok 1989 voru 9 skip í rekstri Skipadeildar Sambands- . Bifhjólamenn íjM fcv-. hafa en9a heimild «1 að aha hraðar en a®rir' UwSEROA" því 0,7 milljónum dollara eða hálfu prósenti. Heildarsalan í magni í Banda- ríkjunum og Kanada varð 82,9 milljónir punda árið 1989 eða 37.600 tonn. Þetta er 0,3% minni sala en árið á undan. Samkvæmt upplýsingum sjáv- arafurðardeildar Sambandsins varð aukning um 25% í sölu ins. Fjögur þeirra eru í eigu Sam- bandsins, þrjú eru á þurrleigu með íslenskar áhafnir og tvö á tímaleigu með erlendar áhafnir. frystra flaka hjá fyrirtækinu hvað verðmæti snertir og 25,4% aukn- ing í magni. Verðmæti fiskflaka- sölunnar hjá Iceland Seafood Corporation nam 40 milljónum dollara og magnið var 19,5 millj- ónir punda. Sala fiskrétta nam 87,1 milljón dollara að verðmæti og 59 milijónum punda í magni. Þar var í báðum tilfellum um að ræða samdrátt milli ára. Starfsemi fyrirtækisins í Bandaríkjunum greinist í tvo meginþætti. Annars vegar er um að ræða sölu á flökum og skel- fiski og hins vegar vinnslu og sölu fiskrétta. Fyrirtækið rekur sjálft eigin fiskréttaverksmiðju nálægt Harrisburg í Pennsylvaníu og er hún af mörgum talin ein sú full- komnasta í Bandaríkjunum. Þar vinna að staðaldri 350-400 manns. JÓH sunnudagitm 14. janúar firá ld. 14.00-17.00 Kynnum starfsemlna á vorönu t d. eítir- talln námskeið: ★ vSkrifstofutækn i ★ PC-grunn ★ MS-DOS stýrikerfið ★ Ritvinnslu ★ Töflureikni ★ Gagnagrunn ★ Forritun Allir velkomnir — Yeitingar. Tökufræðslan Akurejri h£ Glerárgötu 34, 4. hæð, sími 27899. Skipadeild Sambandsins: Flutningar deildarinnar aldrei meiri en á sl. ári

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.